Morgunblaðið - 16.11.1990, Side 12
12
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 1990
Kreppuástand við Persaflóa;
Olía og auður II
eftir Alfreð J. Jolson
Tugir þúsunda af hermönnum
hafa verið sendir til viðbótar til
Persaflóa og spennan eykst. Þótt
kynlegt sé merkir'nafn Saddams
Husseins forseta átök í hugum
manna. Hvað tekur síðan við? Sú
spurning liggur á vörum og býr í
huga margra.
Saddam Hussein forseti er sterk-
ur leiðtogi. Hann hefur fulla stjórn
á fólki sínu þótt hann beiti til þess
valdi og áróðri og haldi fólkinu
hræddu. Hann er gáfaður og vægð-
arlaus foringi. Hann virðist vanta
gætni og visku og því er núverandi
ástand þeim mun hættulegra fyrir
heiminn allan.
Vitur leiðtogi sem stæði í sporum
hans myndi hörfa frá Kúvæt þegar
hér væri komið sögu til að sýna
samkomulagsvilja sinn og eftir því
sem sagt er til þess að standa vörð
um heimsfriðinn. En ef hann hörfar
nú, hvað tæki þá við? Hann myndi
vera áfram leiðtogi sem hefur fulla
stjórn á írökum — leiðtogi sem lmt-
ar friðar og sátta! Við suðurlanda-
mæri lands hans bíða mörg hundruð
þúsund hermann í eyðimerkurhitan-
um og sandinum. Öðrum stjórn-
málamönnum og leiðtogum gæti
virst undanhald Iraka, sem svo lengi
hefur verið krafíst, þýða martröð
heima fyrir og erlendis.
Ólíklegt er að við eigum eftir að
sjá fyrir okkur hinn „vitra“ Saddam
Hussein forseta. En hvað tekur þá
við? Svo virðist sem heimurinn sé
að komast fram á hyldýpisbrún
styijaldar, jafnvel kjarnorkustyij-
aldar. Eitt atriði í ráðgátunni við
Persaflóa er mjög óstöðugt, þar er
sá möguleiki opinn að beita kjarn-
orkuvopnum til verndar þess það
sem það ríki lítur á _sem hagsmuni
sína. Þetta atriði er Ísraelsríki. All-
ir vita að ísrael á miklar birgðir
kjarnorkuvopna. ísrael stefnir að
því að vernda samheldni sína og
tilveru af staðfestu og harðfylgi,
hvað sem heimurinn segir og hugs-
ar. Ef svo færi að Saddam Hussein
forseti reyndist svo óvitur að beita
taugagasi og kjarnorkuvopnum
(sem hann myndi áreiðanlega gera
ef hann hefur þau), þá myndu Isrá-
elar ekki sitja með hendur í skauti
sér, heldur grípa til sinna ráða upp
á eigin spýtur, hratt og grimmúð-
lega. Það yrði dapurlegasta fram-
hald á þessari deilu.
Hefðbundnar kristnar siðgæði-
sreglur um réttlátt stríð: réttmætur
málstaður, góð fyrirætlun, sæmi-
legar horfur á' sigri og hagstætt
hlutfall hins góða sem áynnist, sam-
anborið við hið illa sem sigrað yrði,
virðast varla eiga við þegar við tök-
um með í reikninginn notkun efna-
og karnorkuvopna sem virðist líkleg
í þessum átökum. Sé litið til hlut-
fallsins milli góðs og ills út af fyrir
sig, virðist ekkert réttlæta styijöld.
Bagdad er ekki mikið yfir 1000
ára gömul en í rás sögunnar hefur
hún tvisvar verið lögð algerlega í
eyði. Átök við Persaflóa myndi hafa
í för með sér þriðju gereyðinguna
— að minnsta kosti margar milljón-
ir manna myndu verða fórnarlömb
þeirra átaka. Stríð við Persaflóa
merkiifr ekki götubardaga til að
frelsa draugaborgina Kúvæt á
kostnað þúsunda mannslífa frá
Vesturlöndum. Það myndi merkja
gerðeyðandi árásir á írak sjálft svo
að herlið íraka í Kúvæt myndi ein-
angi-ast þar. Og það virðist helst
vera það hernaðaráform sem skipu-
lagt hefur verið.
Það er fávíslegt að blanda sér í
deilur fjölskyldna og ættflokka.
Ekkert er lögreglunni ógeðfelldara
en vera kölluð út til að kveða niður
fjölskyldudeilur. Það er alltaf
hættulegt. Ættflokkur íraks —
sjálft Irak sem hefur mótast af
stjórn lénsherraættflokksins — hef-
ur ráðist á nágrannaríkið Kúvæt
út af langvinnri deilu um landsvæði
(og efnahagsmál). Tikriti-ættflokk-
urinn — ættflokkur Saddams Huss-
eins,_ norðan við Bagdad — ræður
yfir írak og ákveður stefnu þjóðar-
innar.
Því er verr og miður að heimur-
inn einangraði ekki írak og íran í
hinum heimskulegu átökum þeirra
(sem Saddam Hussein forseti hóf
líka) fyrir mörgum árum: Skeyting-
arleysi heimsins sáði fræinu að
ævintýri Saddams Husseins forseta
í Kúvæt. Aðstæður hafa að vísu
breyst við það að spennan milli
Vesturlanda og hinna austrænu
landa er úr sögunni.
Staðan er mjög flókin eins og
sakir standa. Styijaldarhættan er
fyrir hendi af hálfu Vesturland-
anna, svo sem Thatcher forsætis-
ráðherra og Bush forseti sem vilja
bæla niður óánægju heima fyrir og
kröfur hernaðarsinna. íraksmegin
blasir við nokkuð óstöðug og óvitur-
leg en sterk forusta Saddams Huss-
eins forseta.
Þar sem Vesturlönd hafa nú
blandað sér í þessa deilu, felst helst
vonin um friðsamlega lausn í fast-
heldni við efnahagslegar og póli-
tískar þvingunaraðgerðir heimsins.
Þær aðgerðir kosta mikið fé en þær
verður þó að taka fram yfir gereyð-
andi styijöld sem myndi snerta allan
heiminn.
Allir menn verða að biðja til
Guðs að hann gefi valdamönnum
beggja aðila-visku og það sem fyrst!
Komandi kynslóðir — það fólks sem
Alfreð J. Jolson
„Því er verr og miður
að heimurinn einangr-
aði ekki Irak og íran í
hinum heimskulegu
átökum þeirra (sem
Saddam Hussein forseti
hóf líka) fyrir mörgum
árum: Skeytingarleysi
heimsins sáði fræinu að
ævintýri Saddams
Husseins forseta í Kúv-
æt.“
kynni að Iifa af — munu fordæma
eyðingarstríð út af olíu og auði.
Á minningardegi vopnalilés-
ins í fyrri heimsstyrjöldinni,
11. nóvember 1990.
Höfundur er biskup kaþólskra á
lslandi.
Þrjú ný leikrit
leiklesin í Borg-
arleikhúsi
LEIKRIT eftir þá Björn Th.
Björnsson, Jón Hjartarson og Jón
Árnason verða leiklesin í anddyri
Borgarleikhússins næstu þrjá
laugardaga kl. 15.00.
Verkin eru enn á þróunarstigi
þótt segja megi um þau öll að þau
séu býsna langt komin. Leikarar
Leikfélags Reykjavíkur lesa verkin,
æfa þau fyrst í nokkra daga ásamt
leikstjóra, en ætlunin er að flutning-
ur af þessu tagi geri hvort tveggja
að kynna verkin og veita áhorfend-
um góða skemmtun.
Á laugardaginn kemur ríður Björn
Th. Björnsson á vaðið með verk sitt
Konráð í Kreischa, stutta kómedíu
þar sem söguhetjan er Konráð Gísla-
son Fjölnismaður. Leikstjóri þessa
fyrsta leiklestrar vetrarins er Sigríð-
ur Margrét Guðmundsdóttir. Lesarar
eru: Edda Björgvinsdóttir, Guðný
Ragnarsdóttir, Karl Guðmundsson,
Margrét Ólafsdóttir, Steindór Hjör-
leifsson, Sigríður Hagalín, Sigurður
Skúlason, Saga Jónsdóttir, Valgerð-
ur Dan, Vilborg Halldórsdóttir og
Þorsteinn Gunnarsson.
Aðgangseyrir er 500 kr. og kaffi
innifalið. (Fréttatilkynning)
HAFDU BETUR
EN BANKtNN!
. .:
HHPPflÞREMfl
HAPPDRÆTTIS HÁSKÓLANS
HB
Gistiaöstaöa er glæsileg á
Hótel Sögu. í herbergjunum
er góð vinnuaöstaöa og öll
þægindi þarfyrir hendi.
A veitingastööum okkar
bjóöum viö mat og þjónustu í
sérflokki og fundaraöstaða á
hótelinu er eins og best
verður á kosið.
Hafðu samband
í síma 29900.
holrel/
'Jaoa
lofar góðu!
Vidtalstími borgarfulltrúa i
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins
verða til viðtals í Valhöll, Háaleitisbraut 1,
á laugardögum íveturfrá kl. 10-12.
Er þá tekið á móti hvers kyns fyrirspurnum
og ábendingum.
Allir borgarbúar velkomnir.
Laugardaginn 17. nóvember verða til viðtals Sveinn Andri Sveinsson, formaður stjórnar SVR, í
umferðarnefnd, íþrótta- og tómstundaráði, stjórn Dagvistar barna, og Sigríður Sigurðardóttir,
stjórn Dagvistar barna.
W W W W W:' W’ V
Y-Y
a! y y y
KVIK KLÆÐASKAPAR
ÓTRÚLEGA ÓDÝRIR
T
Gerð 50-hvítur
50 x 210 x 60 sm
m/hattahillu, slá fyrir
herðatré og höldum.
AÐEINSKR. 9.478
Gerð 100
tvöfaldur, hvítur
100 x 210 x 60 sm
m/skilrúmi hattahillu,
3 hillum, slá fyrir
herðatré og höidum.
AÐEINSKR. 14.760,-
BÆJARHRAUNI 8 • HAFNARFIRÐI
SÍMI 651499