Morgunblaðið - 16.11.1990, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 1990
13
mHEKLAHF
Laugavegi 170-174 Simi 695500
GALANT stallbakur
5 manna lúxusbfll - Sjálfskiptur/handskiptur
- Endrif/sítengt aldrif (4WD).
Verö frá kr. 1.264.320
Galant GTI - 16 ventla
með hemlalæsivörn (ABS)
ARA
YRGÐ
MITSUBISHI
MOTORS
þær uni lágu laununum og vanmati
á störfum sínum. Uni tvöfalda
vinnuálaginu og atvinnuleysinu.
Vilji að þeir sem verða að reiða sig
á umönnun annarra séu vanræktir.
Vilji að blind peninga- _ og gróða-
hyggja ráði för, þar sem hin „hörðu
gildi“ ríkja ein. Því sú mun verða
raunin áfram er konur eru hornreka
í öllu stjórnkerfinu. Þarf frekari
vitnanna við — veruleikinn talar
sínu máli.
Því er allt tal um verndað um-
hverfi firra ein. Ætli það sé ekki
mála sannast að konur, hvar sem
þær hafa skipað sér í raðir, séu
pólitískir munaðarleysingjar á ber-
angri — hugsanlega á vergangi eft-
ir kosningar, ef konur bregðast
ekki hart við og styðja kynsystur
sínar í vor.
Höfundur er þingnmður
Kvennalistans í Reykjavik.
GLÆSILEGT ÚTLIT OG VANDAÐUR BÚNAÐUR
ERU ÁSTÆÐURNAR FYRIR VINSÆLDUM
Konur á berangri
eftir Þórhildi
Þorleifsdóttur
„Konur í vernduðu umhverfi“ var
yfirskrift greinar eftir Sólveigu
Pétursdóttur, sem birtist í Morgun-
blaðinu sl. föstudag og vísar með
þeim orðum til þess að í Kvennalist-
anum séu konur í vernduðu um-
hverfi utan veruleikans. Sólveig er
eina konan sem hlaut náð fyrir
augum flokksbundinna sjálfstæðis-
manna í Reykjavík í nýafstöðnu
prófkjöri þeirra.
Vel skil ég að henni sviðu úrslit-
in fyrir siV.a hönd og annarra
kvenna, en engu að síður reyndi
hún að bera sig borginmannlega
og sagði að konur mættu vel við
una — það hefðu verið svo margir
hæfir frambjóðendur!
Þessi undarlegu orð, sem merkja
ekkert annað en það, að þá fyrst
geti konur komist að, að nógu
margir óhæfir frambjóðendur
(væntanlega af karlkyni), séu í boði,
urðu mér undirritaðri umhugsunar-
efni. Á landsfundi Kvennalistans í
byijun nóvember gerði ég að um-
talsefni þá alvarlegu staðreynd að
konur virðast ekki styðja konur og
að konur innan hinna hefðbundnu
stjómmálaflokka neiti að horfast í
augu við þá staðreynd, þrátt fyrir
slæma útreið í „undanrásum" af
ýmsu tagi, eins og ofangreind um-
mæli Sólveigar bera með sér.
Arangur kvenna
Sólveig segir mig hafa verið að
„gera lítið úr árangri kynsystra
minna í öðrum stjómmálaflokkum"
og „það sé gert í örvæntingu vegna
eigin fallandi gengis".
Það þarf ekki mig til að reyna
að gera lítið úr árangri kynsystra
minna_— niðurstöðurnar taia sínu
máli. Árangurinn er lítill. Vegur
kvenna virðist fara minnkandi. Þau
fjörbrot sem urðu í kjölfar kvenna-
baráttu, sem loks tók á sig mynd
sérframboða kvenna, skiluðu fleiri
konum inn á þing og í sveitarstjóm-
ir en áður hafði þekkst á íslandi.
Hinir hefðbundnu stjórnmálaflokk-
ar tóku á sig smárögg og nú sitja
14 konur á þingi, þar af tæpur
helmingur frá Kvennalista.
En nú virðist sem blómaskeiðinu
sé lokið. Heldur miðar aftur á bak,
í besta falli staðið í stað. Kann þar
nokkm um að valda fallandi gengi
Kvennalistans í skoðanakönnunum.
Karlmenn sjá hann ekki lengur sem
ógn og því engin þörf fyrir kvenleg-
ar yfirbreiðslur, til að reyna að fela
og milda karlveldið innan flokk-
anna.
að kynin starfi hlið við hlið. Hið
síðara er auðvitað hárrétt og það
er einmitt markmið okkar kvenna-
listakvenna að svo verði. En því fer
fjarri að svo sé í dag.
„Hlið við hlið“-aðferðin skilaði 7
konum inn á þing í síðustu kosning-
um af blönduðum lista, en 49 körl-
um — 7 sinnum fleiri! — og einum
betur. (Þessi eini hvarf svo á brott
vegna þess að betra bauðst og í
hans stað kom kona). Við bættust
svo 6 af Kvennalista.
Þetta eru staðreyndir, Sólveig,
þetta er veruleikinn. Þess vegna vil
ég kalla konur til ábyrgðar í kosn-
ingunum í vor. Það þarf mikið átak
til að varðveita unna sigra og vinna
„Ef konur hlýða ekki
kallinu í vor og styðja
kynsystur sínar, er það
nánast yfirlýsing um að
þær vilji óbreytt
ástand.“
nýja. Þess vegna kalla ég kosning-
arnar í vor „úrslitabaráttu".
Verndað umhverfi
Ef konur hlýða ekki kallinu í vor
og styðja kynsystur sínar, er það
nánast yfirlýsing um að þær vilji
óbreytt ástand. Yfirlýsing um að
Vantraust — oftraust
Það er því ekki bara „vegna eig-
in fallandi gengis“ sem ég kalla
kosningabaráttuna I vor „úrslita-
baráttu" heldur er ég uggandi um
gengi kvenna yfírleitt og á ég þar
ekki einungis við stjórnmálasviðið.
En auðvitað er ég líka uggandi um
gengi Kvennalistans, vegna þess
að ég tel hann eina skjól kvenna í
íslenskum stjómmálum og vil því
veg hans sem mestan.
Um það veit ég að við Sólveig
eru ekki sammála og við því er
ekkert að segja, hún vill ganga sinn
veg — ég minn. En saman skyldum
við horfast í augu við þá staðreynd
— þann veruleika — að konur upp
til hópa styðja ekki kynsystur sínar
nægilega, hvort sem er innan
stjórnmálaflokkanna eða í sérfram-
boðum.
Eigum við Sólveig að fallast á
þá skýringu að það sé vegna þess
að nóg framboð sé af körlum og
að þeir séu yfirleitt hæfari? Eða
skyldi rótgróið vantraust á konum
og rótgróið oftraust á körlum ráða
einhveiju um?
50 karlar — 7 konur
Konur láta um of blekkjast af
áróðri um að auðvitað eigi þær
ekki bara að kjósa konur, vegna
þess eins að þær séu konur (þó flest-
ir karlar kjósi nú bara karla, vegna
þess eins að þeir eru karlar) og að
hag allra sé best borgið með því
Þórhildur Þorleifsdóttir
GAJLANT hlaðbakur
Sjálfskiptur/handskiptur - Eindrif/sftengt aldrif
(4WD) - 5 manna fólksbíll, breytanlegur í 2
manna bíl með gríðarstórt farangursrými. -
Sannkallað augnayndi hvar sem á hann er litið.
Verö firá kr. 1.286.400.