Morgunblaðið - 16.11.1990, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMEER 1990
15
fjáraukalög! Fjáraukalög á að
leggja einu sinni fram á ári, á
haustþingi, — og þá að ná ná-
kvæmlega til 31.12. það ár með
nákvæmum rekstrar- og
greiðsluáætlunum þannig að al-
þingismenn viti hvað þeir eru að
samþykkja!
Þjóðarsátt framtíðarinnar
í framtíðínni skulu fjármálaráð-
herrar landsins fá að virða fjár-
málaákvæði stjórnarskrárinnár að
fullu. Hvers vegna?
Jú, svarið er að verði svo gert,
þá er verðbólgan dauð, að því til-
skildu að aðilar vinnumarkaðarins
haldi þeirri stefnu sem þeir mörk-
uðu sér í vetur. Ég óska verkalýðs-
forystunni til hamingju með nýjar
og breyttar áherslur í kjaramálum.
En göngum hægt um gleðinnar dyr.
Ríkissjóður getur einungis með
einum hætti staðið við þjóðarsátt-
ina. Það er með því að virða fjár-
málaákævði stjórnarskrárinnar.
Það hefur enn ekki verið gert. Aðil-
ar vinnumarkaðarins eru hvattir
til þess að fylgjast með þessari
hlið málsins, því sukk og rugl í
ríkisrekstrinum kveikir í gang
vaxtahækkanir öðru fremur.
Virði framkvæmdavaldið ekki fjár-
málaákvæði stjórnarskrárinnar að
fullu og öllu leyti, þá eru það svik
við aðila vinnumarkaðarins, sem
hafa lagt gífurlega mikið af mörk-
um, en ríkisvaldið hefur enn ekki
staðið við sinn hluta þjóðarsáttar-
innar. Það er ríkissjóður Islands
sem er i dag með hegðun sinni að
búa til vaxtasprengingu.
Aðilar vinnumarkaðarins eru
hvattir til þess að leggja því ljð að
dregið verði nú þegar úr fjárstreymi
til Húsnæðisstofnunar og einungis
afgreiddir þeir sem eiga í erfiðleik-
um. Þjóðarsáttinni stafar ekki
eins mikil hætta áf neinu í dag
og frekjunni í félagsmálaráð-
herra. Það er engum greiði gerður
með því að verða við þeirri frekju.
Þvert á móti eru aðilar vinnumark-
aðarins og aðrir hvattir til þess að
láta ekki frekju í einum ráðherra
núverandi ríkisstjórnar sprengja
þjóðarsáttina, og valda stórtjóni hjá
öllum, sérstaklega þeim sem skulda
mikið. Þá fjámiuni sem félagsmála-
ráðherra ætlar sér að komast yfir
á að nota til að greiða hallann á
rikissjóði. Annað veldur stórhækk-
un vaxta og eyðileggur þjóðarsátt-
ina.
Þjóðarsátt framtíðarinnar bygg-
ist á skilningi og virðingu fyrir
grundvallaratriðum þeim sem hafa
verið rakin í þessari blaðagrein. Ég
sem alþingismaður og íslenskur
ríkisborgari hvet aðila vinnumark-
aðarins að taka aftur ráðin af ríkis-
stjórninni eins og þeir gerðu í vetur
með sínum skynsamlegu kjara-
samningum, og þvinga ríkisstjórn-
ina til þess að hætta hrossakaupum
við félagsmálaráðherra um nauðg-
un á veikluðu íslensku peningakerfi
sem myndi valda vaxtasprengingu
og stórskaða.
í framtíðinni eiga svo aðilar
vinnumarkaðarins einn kost til að
tryggja að ríkisvaldið eyðileggi ekki
kjarasamninga. Þann að sjá til þess
að umgengni æðstu embættis-
manna þjóðarinnar verði með þeim
hætti að virða fjármálaákvæði
stjórnarskrárinnar að fullu og
öllu leyti.
Höfundur er ammr af
alþingismönnum
Sjálfstæðisflokksins fyrir
Austurlandskjördæmi.
Tvær bækur
frá Leshúsinu
LESHÚSIÐ gefur út tvær bækur
á þessu ári.
Önnur bókin er Tataraþulur, ljóða-
bók eftir Federico García Lorca í
þýðingu Þorgeirs Þorgeirssonar.
Þessi bók geymir ljóðaflokkinn Ro-
mancero Gitano, sem kom fyrst út
1928..
Hin bókin er UML II ritgerðir
eftir Þorgeir Þorgeirsson. Iðunn gaf
út 1977 UML - ritgerðir um dægur-
mál eftir Þorgeir.
Ráðstefna
um þýðing-
arskyldu
LAUGARDAGINN 17. nóvember
nk. gangast Menntamálaráðuney-
tið, Islensk málnefnd og Útvarps-
réttarnefnd sameiginlega fyrir
ráðstefnu um þýðingarskylduna.
Sú skylda, sem lögð er á dreifinga-
raðila sjónvarpsefnis að þýða allt
erlent efni, sem sýnt er í sjón-
varpi, hefur verið til umfjöllunar
að undanförnu. A ráðstefnunni
verður leitast við að fjalla um
helstu sjónarmið í þeim efnum og
varpa ljósi á tæknilegar hliðar
málsins.
Ráðstefna þessi verður haldin í
Borgartúni 6, Reykjavík, laugardag-
inn 17. nóvember nk. og hefst kl.
13.30. Ráðgert er að ráðstefnunni
ljúki kl. 17.00.
Dagskrá ráðstefnunnar verður
þannig:
Ingvar Gíslason, fyrrv. mennta-
málaráðherra og ráðstefnustjóri, set-
ur ráðstefnuna.
Kristján Árnason, formaður ís-
lenskrar málnefndar: „Málvernd og
þýðingarskyldan."
Þórunn J. Hafstein, deildarstjóri:
„Gildandi reglur um þýðingarskyldu
og túlkun þeirra."
Gústav Arnar, yfirverkfræðingur
Pósts og síma: „Gervihnettir —
tæknilegir möguleikar á móttöku og
dreifingu sjónvarpsefnis."
Indriði G. Þorsteinsson, ritstjóri:
„Þýðingarskyldan — almenn sjónar-
mið.“
Rúnar Birgisson, formaður Lands-
samtaka kapalkerfa: „Þýðingar-
skyldan er tímaskekkja."
Bogi Arnar Finnbogason, sjón-
varpsþýðandi: „Þróun í þýðingar-
tækni.“
Þorbjörn Broddason, formaður
Útvarpsréttarnefndar: „Er þétta eitt-
hvert mál?“
Gert er ráð fyrir almennum um-
ræðum að framsöguerindum loknum.
Ráðstefnustjóri verður Ingvar Gísla-
son, fyrrv. menntamálaráðherra.
Öllum er heimill aðgangur meðan
húsrúm leyfir. (Fréttatilkynning)
Nú aukum við
valfrelsi
lántakenda!
í samrœmi viö þá stefnu íslandsbanka
ab sinna þörfum hvers og eins býbur
bankinn lántakendum aukib valfrelsi.
Nú geta vibskiptavinir íslandsbanka
valib hvort þeir taka verbtryggt eba
óverbtryggt lán, sé þab til tveggja árá
eba lengur.
Abstœbur fólks eru mismunandi og því
hentar ekki öllum hib sama í þessu efni.
Kynnib ykkur málib,
starfsfólk íslandsbanka veitir nánari
upplýsingar.
ÍSLANDSBANKI
- í takt við nýja tíma!
Q
Q
SAIIMAÐU ÞIi U
FAiAÐFARI
F\ýll af nálinni færir þér tískuhugmyndir
og úrvals leiðbeiningar um eigin hönnun.
m\ i:\ibi;ki k; \i koviin
Tlli FÉlACi.A MiCBBSIlNS!
• Fjölbreyttar sauma-
og prjónauppskriftir
• Falleg jólaföt á börnin
• Hátíða- og samkvæmis-
klæðnaður
• Hlýlegur vetrarfatnaður
• Hagnýtt efni til heimilisins
Síðumúla 6
Ert þú komin i ldúbbinn?
Síminn er (91) 688 300
•O O
•cc S
Inngöngutilboð í nóvember:
50% afslátlnr
af fyrstu sendingu og
ókeypis Sauma- og prjónahandbók!