Morgunblaðið - 16.11.1990, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 1990
VERKSMIÐJUTILBOÐ FRA
BUGKSiDECKER
1000w RYKSUGA
SKEIFUNNI 8 SÍMI 91-82660
RADÍÓVINNUSTOFAN KAUPANGI AKUREYRI SÍMI 96-22817
RAFBÚÐ R.Ó. HAFNARGÖTU 52 KEFLAVÍK SÍMI 92-13337
SIEMENS
UPDbvottavélar í miklu úrvali!
SIEMENS uppþvottavélar eru velvirkar,
hljóðlátar og sparneytnar.
Breidd: 45 og 60 sm.
Verð frá 57.330,- kr.
SMITH & NORLAND
NÓATÚNI4 — SÍMI 28300
clothes for kids
517 Great Western Road
Glasgow G12 - Tel 339 1121
Opið sex daga, mánudaga til laugardags
frá kl. 9.30-17.30. Tökum öll greiðslukort.
Úrval af besta tískufatnaði fyrir
börn, m.a. Oilily, Monnolise,
Morgan, Chipic o.fl.
5% afsláttur
fyrir þá sem koma með auglýsinguna!
Fræðslustarf Krabbameinsfélagsins í skólum landsins er að mestu leyti kostað af happdrættisfé. Hér
eru fræðslufulltrúar félagsins, Erna Haraldsdóttir hjúkrunarfræðingur og Oddur Albertsson kennari,
að ræða við nemendur í Foldaskóla.
Hausthappdrætti Krabbameinsfélags-
ins eina happdrætti félagsins á árinu
HEFÐBUNDIÐ happdrætti féll
niður hjá Krabbameinsfélagimi
síðastliðið vor vegna Þjóðarátaks
gegn krabbameini sem þá fór
fram. Sala á miðum í hausthapp-
drætti félagsins 1990 er hins veg-
ar hafin og ættu miðar að vera
komnir til allra Jieirra einstakl-
inga sem fá þá senda. Útsending
nær til fólks á aldrinum 23ja til
sjötíu ára og í þetta sinn eru það
konur á þeim aldri sem fá mið-
ana senda, svo og einhleypir
karlar.
Verðmætustu vinningarnir eru
að þessu sinni 6 bifreiðir, þijár
Volvo 460 og þrjár Daihatsu
Charade, en auk þeirra eru fimmtíu
vinningar á 120.000 kr. og aðrir
fimmtíu á 60.000 kr. hver, fyrir
vörum eða þjónustu frá nokkrum
völdum fyrirtækjum. Samtals eru
vinningarnir 106 að tölu og heildar-
verðmæti þeirra 15,6 milljónir
króna.
Dregið verður í happdrættinu 24.
desember og jafnan er lögð áhersla
á að gera vinningshöfum sem allra
fyrst viðvart um heppni sína með
því að hringja til þeirra. Hefur það
iðulega komið þeim vel enda ekki
alltaf að menn gæti að því hvort
þeir hafi unnið.
Það skiptir miklu máli fyrir
Krabbameinsfélagið að hausthapp-
drættið verði árangursríkt. Það
mikla fé öem safnaðist í Þjóðarátak-
inu í vor fer til nokkurra afmark-
aðra verkefna en ýmsir aðrir mikil-
vægir þættir starfseminnar eru eft-
ir sem áður háðir happdrættistekj-
unum.
(Úr frétt frá Krabbameinsfélaginu)
Samtalsbók um dulræn efni
BÓKAÚTGÁFAN Forlagið hefur
sent frá sér bókina Neistar frá
sömu sól. Þar ræðir Svanhildur
Konráðsdóttir fyrrum ritstjóri
Mannlífs við fimm manneskjur.
Viðmælendur Svanhildar eru þau
Þórhallur Guðmundsson, Brynj-
ólfur Snorrason, Erla Stefáns-
dóttir, Gísli H. Wium og Jón Sig-
urgeirsson. Fiest eru þau
víðþekkt meðal þeirra sem láta
sig dulræn efni og sálar ánnsókn-
ir varða.
í kynningu Forlagsins segir m.a.:
„Þetta eru ekki kraftaverka- eða
kynjasögur. Þau sem hér segja frá
eiga það sameiginlegt að hafa eitt
sin tekið ákvörðun um að nýta
hæfileikana, sem þau fengu í
vöggugjöf, í þágu þeirra sem leita
að dýpri lífsfyllingu, tilgangi lífsins
— sjálfu almættinu.
„Við kynnumst gleði þeirra og
sorgum, hvernig sum þeirra litu á
það sem byrði að skynja fleira en
aðrir, uns þau tóku gáfur sínar í
sátt — gáfuna að lækna, hugga og
lýsa öðrum. Þau eru ólík hvert öðru
og skynjanir þeirra fjölbreyttar, en
Svanhildur Konráösdótttr,
\ .
öll eru þau neistar frá sömu sól og
þau eiga gjöf að gefa. Það er gleði
þeirra," segir að lokum í kynningu
Forlagsins.
Neistar. frá sömu sól er 204 bls.
auk & litmyndasíðna. Auk hf./Ólaf-
ur Pétursson hannaði kápu. Prent-
smiðjan Oddi prentaði.
Pálína G. Steins-
dóttir - Minning
Fædd 26. febrúar 1902
Dáin 8. nóvember 1990
í dag, 16. nóvember, fer fram
útförömmu minnar, Pálínu Guðrún-
ar Steinsdóttur, sem lést á Vífils-
staðaspítala 8. nóvember síðastlið-
inn. Amma fæddist á Hvanná í Jök-
uldal 26. febrúar 1902, eldri dóttir
hjónanna Ingibjargar Andrésdóttur
og Steins Guðmundssonar. Barn að
aldri flyst amma með foreldrum
sínum til Seyðisfjarðar þar sem hún
bjó síðan sín uppvaxtarár og taldi
hún sig ætíð Seyðfirðing. Seyðis-
fjörður var á þessum tíma mikið
menningarpláss og bar amma alltaf
mjög sterkar tilfmningar til staðar-
ins og talaði oft um Seyðisfjörð og
alla þá sem þar voru henni sam-
ferða, með sérstakri hlýju.
Á Seyðisfirði lærði hún karl-
mannafatasaum en tækifæri voru
ekki til áframhaldandi náms þó
hugurinn stæði til þess. Árið 1922,
þá tvítug að aldri, flyst amma til
Reykjavíkur. Þar kynnist hún eigin-
manni sínum, Karli Bjarnasyni,
bakara, f. 6. ágúst 1892, d. 1970,
og gengu þau í hjónaband 28. júní
1924. Karl var ekkjumaður með
eina dóttur, Sigrid, f. 1918, sem
síðast ólst upp hjá þeim ömmu og
afa. Sigrid er gift Garðari Sigurðs-
syni og eiga þau sex börn. Einnig
var á heimili þeirra systir ömmu,
Kristín, frá 11 ára aldri, en Kristín
lést fyrir ári.
Afi og amma eignuðust tvær
dætur, Kristín, f. 1924. Eiginmaður
hennar var Egill Hjörvar, sem lést
1965 og áttu þau eina dóttur; og
Ingibjörgu, f. 1926, gift Jens G.
Jónssyni og eiga þau tvö börn. Áuk
þess ólu þau upp Steinu Haralds-
dóttur, f. 1934, og Pálínu Guðrúnu
Karlsdóttur, f. 1943.
1948 flytja amma og afi á Lang-
holtsveg 141 þar sem þau bjuggu
alla tíð síðan og í því húsi hafa 5
ættliðir búið og þar af þrír með
nafninu Pálína Guðrún. Það var því
oft líflegt á heimilinu og gestkvæmt
því amma var gestrisin og hafði
gaman af því að hafa fólk í kringum
sig. Amma og afi áttu fallegt heim-
ili með miklú og góðu plötu- og
bókasafni og hafði amma ætíð
mikla ánægju af góðum bókmennt-
um og ias alla tíð mjög mikið. Það
var því mikið áfall fyrir hana þegar
hún fór að missa sjónina fyrir fimm
árum og var hún nær blind síðustu
þrjú árin. Amma var myndarleg
kona og sínu fólki reyndist hún #
vel. Og alltaf gladdi það hana ef
einhverjum gekk vel hvort sem það
var í starfi eða námi.
Síðustu fimm árin fór heilsan að
gefa sig hjá ömmu og síðustu þijú
árin dvaldi hún á Vífilsstaðaspítala |
þar sem hún naut mjög góðrar
umönnunar starfsfólks. Andlegu
heilbrigði hélt hún fram til hins
síðaSta. Ég minnist og kveð ömmu
með hlýju og þakklæti.
Blessuð sé minning hennar.
Kristín S. Jensdóttir I