Morgunblaðið - 16.11.1990, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 1990
Belgar við löglegar veiðar í landhelgi
Landhelgisgæslan hefur reglubundið eftirlit með þeim fáu erlendu togurum sem enn hafa leyfi til veiða í
íslenskri landhelgi samkvæmt miliiríkjasamningi sem ísland er aðili að frá 1972. Réttindin eru bundin við
tiltekin skip og eru nú aðeins fáeinir gamlir kláfar eftir í þeim hópi, sem yísast væri búið að úrelda ef ekki
væru þessi veiðiréttindi. Myndin var tekin er skipveijar af varðskipinu Tý fóru um borð í eitt þessara
skipa, belgíska togarann Belgian Sailor, skammt norðan við karfalínu á dögunum. Að sögn Sigurðar Stein-
ars Ketilssonar skipherra fannst ekkert aðfmnsluvert utan að tognað hafði á möskvum í poka en ekki meira
en svo að látið var nægja að viðgerð færi fram á staðnum.
Bólusetning styrk-
ir ónæmiskerfið
BÓLUSETNINGAR gegn inflú-
ensufaröldrum hafa færst í vöxt
hérlendis og eins og greint hefur
verið frá í blaðinu er reiknað með
að 35 þúsund Islendingar verði
bólusettir gegn inflúensu í ár.
Helgi Valdimarsson prófessor í
ónæmisfræði segir að ónæmi-
skerfi líkamans hljóti engan skaða
af slíkum bólusetningum.
„Þessi nútímabóluefni eru orðin
býsna hrein og þau vekja fyrst og
fremst upp ónæmisminni fyrir þær
öi’verur eða sýkla sem verið er að
bólusetja gegn. Ónæmisminnið bygg-
ist á því að eitilfrumur, sem eru þær
frumur líkamans sem greina það sem
er framandi í líkamanum frá því sem
tilheyrir líkamanum sjálfum, skipta
sér og dótturfrumurnar greina sama
sýkilinn. Þær eru því fleiri en fyrir
bólusetningu og viðbrögðin því skjót-
ari næst þegar sýkillinn heijar á.
Minnið byggist á fjölgum fruma sem
greina hlutaðeigandi sýkil og þar sem
þessar frumur eru mjög langlífar
virkar bólusetningin eins og minni,“
Gert ráð fyrir valdamikilli auglýsinganefnd í nýju lagafrumvarpi:
Formaðurinn geti bannað
auglýsingar tímabundið
JÓN Sigurðsson viðskiptaráðherra hefur lagt fram á Alþingi
frumvarp til laga um auglýsingar. Þar eru meðal annars ákvæði
um sérstaka auglýsinganefnd, sem á að tryggja að ákvæðum
laganna sé framfylgt og hafa visst frumkvæði i því skyni. Sam-
kvæmt frumvarpinu á formaður nefndarinnar eða starfandi
formaður að hafa vald til að banna auglýsingu til bráðabirgða,
telji hann að hún brjóti í bága við lögin.
Samkvæmt framvarpinu verður
nýjum kafla um auglýsingar bætt
inn í lög um verðlag, samkeppnis-
hömlur og óréttmæta viðskipta-
hætti. í frumvarpinu er kveðið á
um að auglýsingar í hljóðvarpi og
sjónvarpi skuli vera á lýtalausri
íslenzku, en þó sé heimilt að er-
lendur söngtexti sé hluti auglýs-
ingar. Aðrar auglýsingar skuli
einnig vera á lýtalausu íslenzku
máli, en þegar sérstaklega standi
á megi texti þeirra vera á erlendu
máli, til dæmis þegar auglýsingun-
um sé sérstaklega beint til útlend-
inga.
í frumvarpinu er kveðið á um
ekki megi nota rangar, ófullnægj-
andi eða villandi upplýsingar í
auglýsingum til að örva sölu ein-
hverrar vöru eða þjónustu. Þá
megi auglýsingar ekki vera ósann-
gjarnar gagnvart keppinautum
auglýsandans eða neytendum
vegna forms þeirrá eða sökum
þess að skírskotað sé til óviðkom-
andi mála.
Nýju lögin, ef samþykkt verða
óbreytt, munu mæla svo fyrir að
auglýsingar skuii þannig úr garði
gerðar að ekki leiki vafi á að um
auglýsingar sé að ræða og eiga
þær að vera skýrt aðgreindar frá
Á fjórða tug útgáfu-
bóka frá Skjaldborg
Bók um fjóra forseta Islands
öðru efni fjölmiðla. Auglýsingar í
sjónvarpi og hljóðvarpi skulu flutt-
ar í sérstökum auglýsingatímum.
Auglýsingar eiga að miðast við
að börn sjái þær og heyri, segir í
frumvarpinu, og sérstakrar varúð-
ar skal gætt þegar auglýsingar
höfða til bama. „Komi börn fram
í auglýsingum skal þess gætt að
sýna hvorki né lýsa hættulegu
atferli eða atvikum er leitt geti til
þess að þau eða önnur börn kom-
ist í hættu eða geri það sem óheim-
ilt er,“ segir í frumvarpinu.
Auglýsinganefndin, sem stofn-
uð verður ef frumvarpið nær fram
að ganga, verður skipuð af við-
skiptaraðherra til Ijögurra ára í
senn. í nefndinni eiga að sitja
fimm menn. Ráðherra skipar án
tilnefningar formanninn, sem á að
vera lögfræðingur, og einn mann
með sérþekkingu á sviði fjölmiðl-
unar. Hinir fulltrúarnir skulu skip-
aðir samkvæmt tilnefningu Sam-
bands ■ íslenzkra auglýsingastofa,
Verzlunarráðs og Neytendasamta-
kanna. Brot á ákvæðum auglýs-
ingalaganna má kæra til auglýs-
inganefndar, en einnig getur
nefndin tekið mál upp af sjálfsdáð-
um. Verðlagsstofnun á að taka við
kærum til nefndarinnar og annast
daglegan rekstur vegna starfs
hennar.
„Telji formaður auglýsinga-
nefndar eða starfandi formaður
hennar að auglýsing sé ekki í sam-
ræmi við ákvæði laga þessara
getur hann bannað hana til bráða-
birgða. Skal bannið gilda þar til
auglýsinganefnd kann að hnekkja
því en fellur þó niður eftir viku
hafí nefndin ekki tekið afstöðu,"
segir í frumvarpinu. Þar segir
einnig að banni auglýsinganefnd
auglýsingu, megi fylgja banninu
ákvörðun úm févíti, allt að ein
milljón króna. Ákvörðun um bann
má fella niður ef ástæða þykir til,
til dæmis vegna nýrra upplýsinga.
Nefndin má ljúka málum með sátt.
sagði Helgi.
Helgi sagði að bólusetningin
styrkti ónæmiskerfi líkamans gagn-
vart þeim sýklum sem verið er að
bólusetja gegn.
Ljóðabók eft-
ir Kristján J.
Gunnarsson
SKÁKPRENT hefur gefið út
fyrstu Ijóðabók Kristjáns J. Gunn-
arssonar og heitir hún Leirkarla-
vísur.
Bókin skiptist í þijá meginkafla,
Árdaga með 35 ljóðum og vísum,
Hundadaga með 14 ljóðum og Loka-
daga með 16 ljóðum. Bókin er 144
blaðsíður.
Á bókarkápu segir m.a.:„Leir-
karlavísur eru afrakstur ljóðasmíða
á rúmlega fimm áratugum, elsta
kvæðið birtist í Lesbók Morgunblaðs-
ins þegar höfundurinn var 16 ára,
nokkur voru ort á skólaárunum um
tvítugsaldurinn, fáein á stundum
milli stríða í önnum dagsins, en flest
hafa orðið til eftir að höfundu settist
í helgan stein. Höfundurinn yrkir
jöfnun höndum rímuð ljóð-og órím-
uð. Stundum velur hann sér form
sveigjanleika milli hefðar og fijáls-
ræðis. Hann beitir þá rími og ljóðstöf-
um í þágu hrynjanda ljóðsins með
öðrum hætti en hefðbundinni brag-
fræði krefst".
Kristján J. Gunnarsson
Otto B. Arnar hf. sýnir
póst- og frímerkjavélar
FYRIRTÆKIÐ Otto B. Arnar hf. efnir til sýningar, í samvinnu við
fyrirtækið Pitney Bowes, í Skipholti 33 19. og 20. nóvember og er
sýningin opin milli kl. 10 og 17.
rafeindateljaraverki og ljósatölum.
Til staðar verða fulltrúar frá Pitney
Bowes en þeir mpnu veita allar
sérfræðilegar upplýsingar.
Eigendur og framkvæmdastjórar
Otto B. Arnar hf. eru Birgir Amar
og Jóhannes Ástvaldsson. Fyrir-
tækið er með aðsetur í Skipholti 9.
Meðal þess er til sýnis verður
má nefna nokkrar stærðir og gerð-
ir frímerkjavéla, póstpökkunarvél-
ar, skurðarhníf fyrir tölvuform og
aðrar vélar til vinnslu á pósti og
öðrum viðskiptagögnum. Ennfrem-
ur verður kynnt frumgerð nýrrar
frímerkja- og stimpilgjaldvélar með
SKJALDBORG gefur út rösklega 30 bækur að þessu sinni og er
þar-á meðal bókin Forsetar íslenska lýðveldisins eftir Bjarna Guðm-
arsson og Hrafn Jökulsson sem fjallar um forsetana fjóra, Svein
Björnsson, Ásgeir Ásgeirsson, Kristján Eldjárn og Vigdísi Finn-
bogadóttur.
Kveðja frá Sankti-Bernharðs-
hundinum Halldóri, heitir bók um
íslendinga í þágu þriðja ríkisins
og er eftir Önund Björnsson og
Ásgeir Guðmundsson. í bókinni
Margir vildu hann feigann segir
Kristján Pétursson löggæslumaður
frá lögreglustörfum sínum. Þurrt
og blautt að vestan nefnist bók
þar sem Bjöm Jónsson læknir í
Kanada endurminningar sínar
austan hafs og vestan. Myrkrar-
verk í miðbænum er áttunda bók
Birgittu H. Halldórsdóttur, bónda
á Syðri-Löngumýri.
•Árbókin Hestar og menn 1990
er eftir Guðmund Jónsson og Þo-
reir Guðlaugsson og íslensk knatt-
spyrna 1990 eftir Víði Sigurðsson.
Pelli sigurvegari - unglingsár
er eftir Martin Andersen Nexo.
Þetta er önnur bókin í ritverkinu
Pelli sigurvegari í þýðingu Gis-
surar Ó Erlingssonar. Konuhjarta
er fjóða bók Mayu Angelou og ný
bók eftir Mary Higgins Clark nefn-
ist Vökult er vargsaugað. Dauðinn
á prestsetrinu er eftir Agöthu
Christie og Hersveit hinnar for-
dæmu eftir Sven Hassel. Þótt ótrú-
iegt sé er bók um furðuleg uppá-
tæki og skopleg atvik og í Fjöl-
fræðibókinni um Spádóma og spá-
sagnalist eru útskýrðar flestar að-
ferðir spásagnalistar.
„ Allt um nudd og Megrun í
áföngum era bækur, sem koma
öllum að gagni“ segir í fréttatil-
kynningu Skjaldborgar um útgáf-
una á þessu ári.
Sinfóníuhljómsveit Islands:
Tíu breskir söngvarar fengn-
ir til að styrkja kór verksins
Á TÓNLEIKUM Sinfóníuhljómsveitar íslands 29. nóvember næstkom-
andi verður flutt 13. sinfónía Sjostakovitsj við ljóð Evtusjenko á
rússnesku, og hafa tíu breskir söngvarar verið fengnir til að styrkja
kór, sem þátt tekur í flutningi verksins. Flytja átti sinfóníuna í apríl
síðastliðnum, en því var frestað að ósk stjórnandans, Eri Klas frá
Eistlandi, sem taldi kórinn ekki vera tilbúinn til að taka þtt í flutn-
íngnum.
Að sögn Gunnars Egilssonar,.
skrifstofustjóra Sinfóníuhljómsveit-
arinnar, munu bassasöngvarar úr
Karlakór Reykjavíkur og Fóstbræð-
rum flytja verkið ásamt hljómsveit-
inni, en einsöngvari verður Aage
Haugland. Hann sagði að komið
hefði í ljós að styrkur kórsins væri
ekki nægilega mikill, en ekki hafi
reynst mögulegt að stækka kórinn
með innlendum röddum vegna þess
að ekki gefst tími til æfinga á svo
skömmum tíma, og því hefðu verið
fengnir söngvarar frá Bretlandi.
„Þetta er mjög langt verk og það
þarf að nauðkunna það og geta
sungið allt á rússnesku, og það er
fyrst og fremst þess vegna sem of
naumur tími reyndist vera til að
stækka kórinn með innlendum
röddum,“ sagði hann.
Gunnar sagði að þeir sem voru
áskrifendur að tónleikum Sinfón-
íunnar í fyrra gætu fengið miða á
tónleikana. .íio