Morgunblaðið - 16.11.1990, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 1990
19
Verslunin Sautján að Laugavegi 91, þar sem áður var Domus.
Verslunin Sautján nú á þremur hæðum:
■ FRÓÐI HF. hefur gefið út bók
breska stjórnmáiamannsins og rit-
höfundarins Jeffrey Archer og er
í íslenskri þýðingu Björns Jónsson-
ar. Bókin nefnist Ekki er allt sem
sýnist. í kynningu útgefenda segir
m.a.: „Jeffrey Archer þykir snillingur
í því að nota þekkta atburði í sögum
sínum og flétta óvænta atburðarás
inn í þá. Þetta gerir hann óviðjafnan-
lega í þessari bók sem geymir tólf
sögur sem allar halda lesendum í
spennu og koma þeim sífellt á óvart.“
Ekki er allt sem sýnist er 187 bls.
Prentsmiðjan Oddi hf. annaðist
umbrot, filmuvinnu, prentun og bók-
band. Teiknideild Fróða hf. hann-
aði bókarkápu.
■ LÍKAMINN og starfsemi
hans heitir ný bók í flokknum
Gluggi alheimsins sem gefinn er
út hjá Máli og menningu. í kynn-
ingu útgefenda segir m.a.: „ Hér
er fjallað um starfsemi mannslíka-
mans í máli og myndum. Byggingu
líkamnas er lýst í stóru og smáu,
allt frá beinagrind til einstakra
fruma og starfsemi hans frá getn-
aði til elliára. Bókin lýsir hvað ger-
ist í hinum ýmsu líkamshlutum,
hvernig þeir eru samsettir, hvérnig
hreyfingar fara fram, hvernir nýr
einstaklingur verður til, hvernig
heilinn starfar o.s. frv.“. Björg
Þorleifsdóttir þýddi.
■ MÁL OG MENNING hefur
gefið út skáldsöguna Dreyrarhim-
inn eftir norska höfundinn Her-
björgu Wassmo.
Þetta er sjálfstætt
framhald bókanna
Húsið með blindu
glersvölunum og
Þögla herbergið,
þriðja og síðasta
bókin í sagnabálk-
inum um Þóru sem
færði Herbjörgu
Wassmo bók-
menntaverðlaun
Norðurlandaráðs árið 1987. Í kynn-
ingu útgefenda segirm.a.:„I þessari
sögu er Þóra orðin unglingsstúlka
og setur fyrri reynsla hennar mark
sitt á hana, þótt allt sýnist með
felldu á ytra borði. Hún skýlir sér
fyrir öðru fólki bakvið frábæran
námsárangur og með því að flýja á
vit ímyndana. Brátt verður þetta
sálarstríð henni um megn og uppá-
tæki hennar gerast æ undarlegri."
Hannes Sigfússon skáld þýddi
bókina sem er 215 bls. Kápu hann-
aði Sigurborg Stefánsdóttir, en
bókin er unnin í Prentsmiðjunni
Odda hf.
Stefnt að lengn opnun-
artíma á laugardögum
SAUTJÁN opnaði í gær nýja
verslun á þremur hæðum, að
Laugavegi 91, þar sem áður var
Domus. Auk verslunarinnar, sem
er í 2000 fermetra húsnæði, er
rekin kaffitería í húsinu. Stefnt
er að því að opnunartími verslun-
arinnar verði lengdur á laugar-
dögum og opið verði til kl. 17.
Svava Johansen og Bolli Kristins-
son keyptu húsnæðið um síðustu
áramót, en síðan hefur það verið
gert upp, bæði að utan og innan
auk þess sem bætt hefur verið við
húsið um 400 fermetrum.
Auk verslunarinnar eru í húsinu>
skrifstofur fyrirtækisins og sauma-
stofa. Að sögn Svövu munu 15 til
20 manns starfa í nýju versluninni,
en 10 manns á saumastofunni.
„Fataúrvalið hefur verið aukið
hjá okkur og við bjóðum nú upp á
fínni línur og meira af samkvæmis-
klæðnaði en áður. Vörumerkjum
hefur verið fjölgað en auk þess selj-
um við nú fleira en áður, bæði
hljómplötur og snyrtivörur og skó-
deildin hefur verið stækkuð," sagði
Svava í samtali við Morgunblaðið.
Stefnt er að því að lengja opnun-
artíma verslunarinnar um helgar,
þannig að opið verði á laugardögum
til kl. 17 í stað 16 áður. I stað þess
verður lokað fram til hádegis á
mánudögum.
„Við ætlum að breyta opnunar-
tímanum þannig að hann henti bet-
ur skrifstofufólki og hafa opið leng-
ur á laugardögum. Þetta er svipað
og gert hefur verið í Hollandi,
Þýskalandi og á Ítalíu," sagði
Svava.
Á jarðhæð versluuarinnar er seldur herrafatnaður, skór og hljóm-
Sjálfstœdisýólk
í Reykjaneskjördœmi
Égfceriykkur bestu þakkirfyrir gódan
studning íprófkjöri Sjálfstœöisflokksins
í Reykjaneskjördcemi 10. nóvember
síbastlióinn.
Stöndum saman um stóran sigur
í kosnmgunum í vor.
ó'anáujT- "IpóráaxcioUir-
Eigendur verslunarinnar Sautj-
án, þau Svava Johansen og Bolli
Kristinsson.
plötur.
UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI: 681511 LUKKULÍNA: 991000