Morgunblaðið - 16.11.1990, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 1990
25
■ KVENNADEILD Skagfirð-
ingafélagsins í Reykjavík verður
með hlutaveltu og vöfflukaffi í
Drangey, Síðumúla 35, sunnudag-
irin 18. nóvember nk. 'kl. 14.00 til
eflingar á starfsemi sinni. Vonast
konurnar til að sjá sem flesta vel-
unnara deildarinnar.
■ / TILEFNI af Ári læsis 1990
ætla nemendur í 10-K, Hvassaleit-
isskóla, að halda maraþon í lestri
til að fjármagna skíðaferð til Akur-
eyrar. Takmark þeirra er að lesa
samfellt í 30 klst. Maraþonið verður
haldið í Hvassaleitisskóla og einnig
ætla nemendur að fara og lesa fyr-
ir börn á leikskóla, vistmenn spítala
og elliheimila. Dagskrá verður hald-
in um kvöldið kl. 20.00 þar sem
kynntar verða nýútgefnar bækur
frá ýmsum forlögum og er öllum
opin.
FISKVERÐ A UPPBOÐSMORKUÐUM - HEIMA
15. nóvember.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 98,00 77,00 92,91 11,171 1.037,969
Þorskur(ósl.) 45,00 45,00 45,00 0,089 4.055
Ýsa 100,00 82,00 92,49 3,862 357.208
Ýsa (ósl.) 86,00 63,00 75,44 12.567 948,048
Þorskur/st. 77,00 77,00 77,00 0,241 18.557
Smáýsa 38,00 ■ 38,00 38.00 0,027 1.026
Lýsa 31,00 31,00 31,00 0,096 2.976
Koli 40,00 40,00 40,00 0,009 360
Smáþorskur (ósl.) 45,00 45,00 45,00 0,089 4.055
Ufsi (ósl.) 28,00 28,00 28,00 0,390 10.947
Þorskurstór 91,00 72,00 82,61 3,181 262.780
Bland sv. 25,00 20,00 23,28 0,061 1.420
Skötuselur 115,00 115,00 115,00 0,010 1.150
Steinbitur(ósl) 46,00 46,00 46,00 0,069 3.174
Smáýsa 37,00 37,00 37,00 0,101 3.737
Ýsa (ósl.) 86,00 63,00 75,44 12,567 948.048
Lýsa (ósl.) 20,00 20,00 20,00 0,574 ' 11.480
Karfi 53,50 53,50 53,50 1,619 90.561
Langa (ósl.) 50,00 45,00 - 45,83 1,976 90.561
Keila (ósl.) 23,00 20,00 21,31 2,588 55.162
Smáþorskur 66,00 41,00 46,98 1,128 52.998
Ufsi 34,00 34,00 34,00 0,301 10.234
Steinþítur 54,00 54,00 54,00 0,634 34.289
Lúða 320,00 200,00 280,39 0,349 97.998
Langa 54,00 54,00 54,00 0,269 14.526
Keila 32,00 20,00 29,23 0,290 8.476
Samtals 75,36 50,634 3.815,891
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur
Þorskur(ósL) 88,00 66,00 72,96 3,677 268.268'
Ýsa (sl.) 103,00 20,00 78,42 5,065 397.251
Ýsa (ósl.) 88,00 59,00 74,58 6,192 461.776
Blandað 51,00 13,00 31,73 1,110 35.216
Gellur 125,00 125,00 125,00 0,024 3.000
Karfi 45,00 24,00 39,80 0,539 21.451
Keila 28,00 20,00 25,89 3,472 89.901
Langa 49,00 20,00 45,64 1,773 80.912
Lúða 390,00 220,00 323,03 0,487 157.315
Lýsa 20,00 20,00 20,00 1,520 30.400
Skötuselur 450,00 435,00 440,00 0,075 33.000
Steinbítur 66,00 55,00 58,35 5,282 308.242
Þorskur(sL) 102,00 59,00 89,46 25,643 2.293.976
Ufsi 49,00 20,00 46,10 9,014 415,582
Undirm.fiskur 36,00 36,00 36,00 1,424 51.264
Samtals 71,17 65,298 4.647.555
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur (sl.) 120,00 50,00 95,31 2,667 254.182
Þorskur (ósl.) 127,00 56,00 84,64 52,955 4.482
Ýsa (sl.) 85,00 50,00 57,22 0,189 19.815
Ýsa (ósl.) 94,00 30,00 78,21 29,389 2.298
Undirm.fiskur 44,00 41,00 43,65 0,250 10.913
Skpta 100,00 97,00 99,95 0,159 15.876
Skötuselur 185,00 135,00 156,59 0,126 19.730
Ufsi 56,00 10,00 32,76 3', 120 302.545
Blandað 10,00 10,00 10,00 0,279 2.790
Háfur 5,00 5,00 5,00 0,009 45
Steinbítur 53,00 ' 46,00 49,19 0,747 36.742
Kinnar 240,00 240,00 240,00 0,054 12.960
Gellur 261,00 261,00 261,00 0,011 2.871
Lýsa 18,00 10,00 12,76 0,110 ‘1.404
Langa 67,00 16,00 54,50 13,430 731,961
Keila 54,00 14,00 24,76 23,479 581.295
Karfi 55,00 5,00 43,66 1,073 46.851
Samtals 69,17 128,870 8.913
Olíuverð á Rotterdam-markaði, síðustu tíu vikur,
5. sept. -14. nóv., dollarar hvert tonn
GASOLÍA 425 400 375- 1
304/
1 f v
V !
225 200 175 150 -H—I—I—I—I—I—\— 7.S 14. 21. 28. 5.0 12. 19. -1—1—1-4— 26. 2.N 9.
Birna G. Bjarnleifsdóttir og Sigríður Ágústsdóttir við kennslu í ferðamálum í kvöldskóla MK
Kópavogur:
Ráðstefna o g námskynn-
ing í ferðaþjónustu í MK
Menntaskólinn í Kópavogi er að verða fræðslumiðstöð í ferðaþjónustun-
ámi. Fyrstu nemendur á ferðamálabraut útskrifuðust frá skólanum sl.
vor. Leiðsöguskólinn er þar til húsa. Og í áætlun er að Hótel- og veit-
ingaskólinn muni flytjast þangað. Eftir áramót er áætlað að „Ferða-
málaskóli Islands" taki til starfa, sem hefur á stefnuskrá að undirbúa
nemcndur undir háskólanám í ferðaþjónustugreinuni. Kvöldskólinn
mun verða fyrsti vísir að öldungadcild í MK. Uppbygging .námsins og
atvinnuhorfur í ferðaþjónustu verða kynntar á ráðstefnu í skólanum,
sem er opin öllu áhugafólki um ferðamál og liefst kl. 13.00. laugardag-
inn 17. nóvember..
Birna G. Bjarpleifsdóttir sem er
forstöðumaður Leiðsöguskólans,
mun verða umsjónarkennari kvöld-
skólans. Við leitum svara hjá Birnu
um skiptingu námsefnis og hvaða
réttindi skólinn muni gefa nemend-
um sínum.
„Þetta er 5. árið, sem boðið er upp
á kvöidnámskeið í ferðamálum í MK.
Á þessum námskeiðum hefur ferða-
brautin verið kynnt í hnotskurn.
Hingað til hafa þátttakendur ekki
tekið próf, en vegna óska frá at-
vinnugreininni, þá mun nám í kvöld-
skóla Ijúka með prófum í framt-
íðinni. En kvöldskólinn býður áfram
upp á nám fyrir þá sem liyggjá á
störf í ferðaþjónustu eða endur-
nienntun fyrir þá sem starfa þar nú
þegar. Hinn nýi Ferðamálaskóli Is-
lands getur veitt nemendum sínum
þá menntun á ferðamálasviði sem
krafist er undir stúdentspróf og gef-
ur þeim réttindi til framhaldsnáms í
ferðamálum. Námsefni er svipað og
kennt er í erlendum ferðamálaskól-
um, aðeins samræmt íslenskum að-
stæðum."
Starfsfólk Tölvufyrirtækisins ACO.
■ TÖL VUFYRIRTÆKIÐ ACO
hefur nú starfað í 15 ár og í tilefni
af afmælinu er opið hús í Skip-
holti 17 og fólki boðið að líta við
og ræða málin, kynnast afmælistil-
boðum og skoða nýjungarnar. Tekið
verður á móti gestum 16.-17. nóv-
ember frá kl. 9.00-17.00 í dag,
föstudag, og frá kl. 10.00-16.00
laugardag.
Deildarstjóri yfir ferðabraut MK
er Sveinn Viðar Guðmundsson. „Við
áætlum að nemendur í kvöldskóla
geti lokið áföngum á ferðamálasviði
undir stúdentspróf á 1-2 árum,“ seg-
ir Sveinn. „Stofnun Ferðamálaskól-
ans er kostnaðarsöm. Námsefnið
þarf að aðhæfa íslenskum aðstæðum,"
fullmóta námsbrautina o.fl. Við feng-
um styrk upp á 200 þúsund kr. en
hann hrekkur skammt. Búið er að
skipa nefnd sem í eiga sæti fulltrúar
ÍVá ferðaskrifstofum, Flugleiðum,
SVG, MK og Menntamálaráðuneyt-
inu. Nefndinni er ætlað að samræma
þær kröfur sem hver starfseining
gerir til skólans. Einnig er starfandi
nefnd á vegum Samgönguráðuneyt-
isins undir umsjón Hjörleifs Gutt-
ormssonar um stefnumótun í ferða-
málum.“ t ^
Sigrún Kr. Magnúsdóttir er starfs-
rnaður fræðsluráðs hótel- og veit-
ingagreina, sem var stofnað í vor.
„Það er athyglisvert, segir Sigrún -
að í ráðinu sitja bæði atvinnurekend-
ur og launþegar, sem eiga að móta
stefnu í fræðslu- og menntunarmál-
um, en hótel- og veitingarekstur er
einn stærsti þáttur ferðaþjónustu.
Haustnámskeið eru nú í gangi á veg-
um ráðsins. En Fræðsluráðið vill
leggja áherslu á uppbyggingu á
matvælaskóla í MK. Samkvæmt nýj-
um lögum er það hlutverk framhalds-
skóla að veita sí- og endurmenntun
starfsstétta. Og við álítum að MK
sé best fær um að vera fræðslumið-
stöð'í ferðaþjónustu. Þar er að safn-
ast saman sérþekking í ferðaþjón^
ustu, sérhæfðir kennarar og kominn
vísir að sérhæfðu bókasafni. Líka
hagkvæmnissjónarmið að vera með
allt ferðaþjónustunám á sama stað.
Ef Hótel- og veitingaskólinn fer
þangað, þá er allt ferðaþjónustunám
komið í einn skóla.“
O.Sv.B.
Leikarar ásamt leikstjóranum Valdimari Inga Guðmundssyni sem er fyrir miðju í fremri röð.
Leikfélag Hveragerðis:
• •
Samantekt ur verkum Laxness á Orkinni
Selfossi.
LEIKFÉLAG Hveragerðis frum-
sýnir í Hótel Ork á laugardags-
kvöld, 16. nóvember, samantekt
úr verkum Halldórs Laxness
undir leikstjórn Valdimars Inga
Guðmundssonar.
„Það má kalla þetta skáldakvöld
en þetta er sú tegund skemmtunar
sem er hvað best sótt af fólki hér
í Hveragerði,“ sagði Margrét Ás-
geirsdóttir formaður Leikfélags
Hveragerðis um sýninguna. Hún
sagði og að mikill söngur væri á
sýningunni og heil hljómsveit ann-
aðist undirleik. Alls taka 25 manns
þátt í sýningunni á Örkinni.
Á eftir leiksýningunni verður
dansleikur á Hótel Ork þar sem
hljómsveit Geirmundar Valtýssonar
leikur fyrir dansi. Önnur sýning
verður á sunnúdag en aðsókn ræður
því hvort ráðist verður í fleiri sýn-
ingar.
- Sig. Jóns.