Morgunblaðið - 16.11.1990, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 1990
27
Vígsla safnaðarheimilis Akureyrarkirkju:
Morgunblaðið/Benjamfn Baldursson
Bygging íbúða fyrir aldraða við Kristnes hefur gengið vel og er stefnt að því að gera húsið foklielt
í lok mánaðarins.
Framkvæmdir við byggingu íbúða
fyrir aldraða í Kristnesi ganga vel
Ytri-Tjfinium.
FRAMKVÆMDIR við byggingu
íbúða fyrir aldraða, sem nú eru
í smiðum við Kristnes í Eyja-
fjarðarsveit, hafa gengið mjög
vel.
1 örstuttu spjalli við fréttaritara
Morgunblaðsins sagði verktakinn
Þorgils Jóhannesson, að tíðin
hefði verið þeim sem öðrum afar
hagstæð og væri steypuvinnu nú
að mestu lokið, en framkvæmdir
við bygginguna hófust 20. sept-
ember.
Stefnt er að því að gera húsið
fokhelt í lok mánaðarins. í því eru
fjórar íbúðir, tvær þeirra eru 80
fermetrar og tvær 60 fermetrar.
Nú þegar hefur verið sótt um
þijár þeirra.
— Bei\jamín
Nýtt verk eftir Jón Hiöðver
frumflutt við hátíðarmessu
HÁLFRAR aldar afmæli Akureyrarkirkju er á morgun, laugardag,
óg af því tilefni verður nýtt safnaðarheimili kirkjunnar vígt við hát-
íðlega athöfn. Þá verður einnig sérstök hátíðarmessa í kirkjunni á
sunnudag þar sem Pétur Sigurgeirsson biskup predikar.
Við vígslu safnaðarheimilisins
sem hefst kl. 14 flytja þau Ragnheið-
ur Árnadóttir formaður sóknar-
nefndar og Árni Jóhannesson for-
maður bygginganefndar ávörp.
Sóknarprestar Akureyrarkirkju lesa
ritningargreinar og Pétur Sigur-
geirsson biskup blessar safnaðar-
heimilið.
Kór Akureyrarkirkju undir stjórn
Björns Steinars Sólbergssonar syng-
ur fjögur íslensk þjóðlög í raddsetn-
ingu Jóns Ásgeirssonar og Hafliða
Hallgrímssonar. Einnig mun kórinn
ásamt Margréti Bóasdóttur sópran-
söngkonu syngja nokkur sígaunaljóð
eftir Brahms við undirleik Kristins
Arnar Kristinssonar. Þá verður flutt-
ur kviritett fyrir píanó og strengi
eftir J.N. Hummel.
■ Að lokinni vígslu verður þpðið upp
á léttar veitingar í boði sóknarnefnd-
ar.
Hátíðarmessa verður í Akureyrar-
kirkju á sunnudag, 18. nóvember, í
tilefni af afmælinu. Pétur Sigur-
geirsson biskup predikar, en hann
hefur lengst allra presta þjónað
kirkjunni eða í 34 ár. Séra Sigurður
Guðmundsson vígslubiskup, sr. Birg-
ir Snæbjörnsson, sr. Ingólfur Guð-
mundsson og sr. Þórhallur Höskulds-
son þjóna fyrir altari.
Við messuna verður frumflutt
nýtt verk eftir Jón Hlöðver Áskels-
son, sem hann samdi sérstaklega af
þessu tilefni. Fjölbreytt tónlist verð-
ur flutt við messuna, en að henni
lokinni býður sóknarnefnd kirkju-
gestum til kaffisamsætis í safnaðar-
heimilinu þar sem kvenfélag kirkj-
unnar sér um veitingar. .
Héraðsráð Eyjafjarðar:
Leitað verði
nýrraleiðaí
atvinnumálum
Slippstöðin á Akureyri:
Fjórum viðgerðum frestað
vegna sjómannaverkfalls
HÉRAÐSRÁÐ Eyjafjarðar hefur
samþykkt ályktun í atvinnumál-
um þar sem vakin er athygli á
því að nú þegar álveri hafi verið
valinn staður á suðurhorni lands-,
ins og ekki séu innan seilingar
aðrir valkostir varðandi stóriðju,
verði að leggja áherslu á aðra
möguleika í atvinnumálum.
í ályktuninni segir: Eyjafjörður
er það byggðai'lag á landsbyggðinni
sem helst getur keppt við höfuðborg-
arsvæðið varðandi þjónustu og upp-
byggingu atvinnulífs. í því sambandi
ber einkum að leggja áherslu á að
ná samstöðu með nágrannabyggðum
um hvað eina sem landsbyggðina
varðar í atvinnumálum.
Héraðsráð Eyjafjarðar lítur á það
sem hlutverk sitt að leita nýrra leiða
varðandi uppbyggingu atvinnulífs
og að stuðla að eflingu þess í sam-
starfi við Iðnþróunarfélag Eyjafjarð-
ar hf., einstaklinga og fyrirtæki.
VEGNA yfirvofandi verkfalls
yfirmanna á fiskiskipum er mun
minna að gera í Slippstöðinni á
Akureyri í nóvembermánuði en
áætlað var. Útgerðarmenn fjög-
urra skipa sem pantað höfðu við-
gerð í þessum mánuði frestuðu
viðgerðum skipa sinna til að geta
veitt sem mest af kvótanum fyrir
verkfall.
Stærsta verkefni Slippstöðvar-
ipnar nú er bygging tógskips fyrir
Óskar Matthíasson og Sigurjón
Óskarsson í Vestmannaeyjum. Búið
er að leggja kjöl skipsins og er ver-
ið að stilla upp skipshlutunum í
dráttarbrautinni. Næg vinna er hjá
stálsmiðum Slippstöðvarinnar við
þetta verkefni og aðrir iðnaðarmenn
hafa einnig nokkra vinnu við það.
Að sögn Sigurðar Ringsted, for-
stjóra Slippstöðvarinnar, var sæmi-
legt útlit með verkefni í nóvember-
mánuði. Yfirvofandi verkfall Far-
manna- og fiskimannasambandsins
hefði hins vegar sett strik í reikn-
inginn. Viðgerð hvers skips er um
tveggja vikna vinna fyrir ákveðinn
hóp iðnaðarmanna og frestast því
átta vikna vinna fram í desember.
Sigurður segir að í staðinn verði
meira álag í desember.
Morgunbladio/Runar Por
Kjölur Vestmanneyjatogskipsins hefur verið lagður í Slippstöðinni
og vélarrúmið, sem sést næst á myndinni, er fyrsti skipshlutinn sem
mynd kemst á.
M FÉLAGAR úr Lionsklúbbnum
Huginn á Akureyri ganga í öll hús
í bænum á rnorgun, laugardag, og
bjóða til solu Ijósaperur og dagatöl
með súkkulaði. Að sögn Hugins-
manna hefur þeim verið afar vel
tekið á síðustu árum en sala þessi
á sér áralanga hefð. Allur ágóði af
sölustarfinu rennur til líknarmála.
Tveir listar í kjöri
í Eyj afj arðars veit
TVEIR listar eru í kjöri þegar kosin verður ný sveitarsljórn fyrir
hina nýju Eyjafjarðarsveit á morgun, laugardag. Fyrir nokkru var
um það kosið í núverandi þremur hreppum framan Akureyrar,
Hrafnagils-, Öngulsstaða- og Saurbæjarhreppum, að sameina
hreppana þrjá og var það samþykkt. Þá hefur einnig verið ákveð-
ið nafn á hið nýja sveitarfélag, en nafnið Eyjafjarðarsveit varð
fyrir valinu.
Listarnir tveir sem kosið verður
um í kosningunum á morgun eru
annars vegar Framboðslisti fráfar-
andi hreppsnefndarmanna og hef-
ur hann bókstafinn E og. hins veg-
ar „Framboðslisti nýrra tíma í
Eyjafjarðarsveit" sem hefur bók-
stafinn N.
Ný ITC-deild
á Sauðárkróki
NÝLEGA var stofnuð ný ITC-
deild á Sauðárkróki. Nýja deild-
in hlaut nafnið IFA en það er á
forn-norrænu heiti á á. Stofnfé-
lagar eru 28, þar af einn karl-
maður. Forseti nýju deildarinn-
ar er Ágústa Eiríksdóttir.
Fundir verða haldnir 1. og 3.
þriðjudag hvers mánaðar í veit-
ingahúsinu Dalakofinn á Sauðár-
króki.
ITC-deildin IFA mun tilheyra II
ráði á íslandi en alls eru þijú ráð
(svæði) starfandi innan samtak-
anna hér á landi.
ITC býður uppá alhliða þjálfun
í tjáningu og sjálfstyrkingu sem
nýtist hvar sem er í þjóðfélaginu.
Leiðrétting
Á Akureyrarsíðu í gær var rang-
lega haft eftir Ágústi Berg húsa-
meistara að búið væri að taka til-
boði Páls Alfreðssonar í endurbætur
á Iðavöllum. Bæjarráð fjallaði um
tilboðið í gær og endanleg ákvörðun
verður tekin á næsta bæjarstjórnar-
fundi. Beðist er velvirðingar á mis-
tökunum.
Birgir Þórðarson bóndi á Öng-
ulsstöðum 2 skipar efsta sæti á
lista fráfarandi hreppsnefndar-
manna. í 2. sæti er Ólafur Geir
Vagnsson ráðunautur, Hlébergi, í
3. sæti er Sigurgeir B, Hreinsson
bóndi, Hríshóli. í 4. sæti er Jóhann-
es Geir Sigurgeirsson bóndi, Öng-
ulsstöðum 3. Pétur Helgason bóndi
á Hranastöðum er í 5. sæti, Ár-
mann H. Skjaldarson bóndi á
Skáldsstöðum er í 6. sæti og í því
7. er Benjamín Baldursson bóndi
á Ytri-Tjörnum.
Atli Guðlaugsson skólastjóri,
Þórustöðum 6, skipar 1. sæti á lista
nýrra tíma í Eyjafjarðarsveit. í 2.
sæti er Jón H. Eiríksson bóndi á
Arnarfelli, í 3. sæti er Hreiðar
Hreiðarsson, húsasmíðameistari,
Skák, í 4. sæti Helgi Örlygsson
skrifstofustjóri, Þórustöðum 7.
Sigurlín H. Birgisdóttir bóndi á
Gilsá er í 5. sæti, Bjarki Árnason
rafvirkjameistari, Kristnesi, er í
6. sæti og í 7. sæti er Guðfinna
Nývarðsdóttir hjúkrunarfræðing-
ur, Þórustöðum 5.
Sjö menn verða í nýju sveitar-
stjórninni og mun hún taka við 1.
janúar 1991 og fellur þá um leið
niður umboð núverandi sveitar-
stjórna. Gert er ráð fyrir að ráðinn
verði sveitarstjóri að hinu nýja
sveitarfélagi.
Á kjörskrá eru 632 og verður
kosið á þremur stöðum: Freyvangi
í Öngulsstaðahreppi, Laugaborg í
Hrafnagilshreppi og Sólborg í
Saurbæjarhreppi. Kjörfundur hefst
kl. 10 og honum lýkur ekki síðar
en klukkan 23. Samkvæmt lögum
gæti kjörfundi lokið fyrr. Atkvæði
verða talin í Freyvangi strax að
lokinni kosningu.