Morgunblaðið - 16.11.1990, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 1990
29
Kristniboðsfélag kvenna í Reykjavík verður með basar sinn á morg-
un, laugardaginn 17. nóvember.
■ MAGNÚS Gíslason formaður
Verslunarmannafélags Suðurgesja
í Keflavík færði Landssamtökum
hjartasjúklinga í Reykjavík kr.
500.000 nú á haustdögum, sem
framlag úr sjúkrasjóði Verslunar-
mannafélagsins til eflingar starf-
semi Landssamtakanna, enda
stendur til að stofna á næstunni
Félag hjaitasjúklinga á Suðurnesj-
um,sem verður deild í Landssam-
tökunum.
(Fréttatilkynning)
■ LA UGA RDA GSKAFFI
Kvennalistans í Reykjavík verður
að venju á Laugavegi 17, kl.
10.30-13.00, 17. nóvember nk. Þá
eiga Kvennalistakonui' stefnumót
við þrjár ungar skáldkonur, Gerði
Kristnýju, Melkorku Olafsdóttur
og Úlfhildi Dagsdóttur.
Á meðfylgjandi inynd afhendir Magnús Gíslason formaður Verslunar-
mannafélagsins Sigurði Helgasyni formanni Landssamtaka hjarta-
sjúklinga þetta rausnarlega peningaframlag. Aðrir á myndinni eru:
Haraldur Steinþórsson, Jóhannes Proppé og Sigurveig Halldórsdótt-
ir, en þau eru öll í stjórn Landssamtakanna.
■ KRISTNIBOÐSFÉLAG
kvenna í Reykjavík heldur árlegan
basar sinn í Kristniboðssalnum,
Háaleitisbraut 58, 3. hæð, á morg-
un, laugardaginn 17. nóvember, kl.
14.00. Þar verða til sölu ýmsir eigu-
legir munir, handavinna, laufa-
brauð og kökur. Allur ágóði rennur
til kristniboðs í Afríku á vegum
Sambands ísl. kristniboðsfélaga.
Nú er í byggingu íslensk stöð í
Voitodal í Eþíópíu, þar sem ólíkir
þjóðflokkar búa við bág kjör, engir
skólar eða heilbrigðisþjónusta önn-
ur en sú sem kristniboðar/hjúkr-
unarfræðingar veita við frumstæð
skilyrði. í Konsó sem íslepdingar
þekkja betur til, bera nú heimamenn
höfuðábyrgð, en skyldum íslenskra
kristniboðsvina er þó ekki lokið á
þeim slóðum,- Utan Eþíópíu eru
íslenskir kristniboðar að störfum í
Kenýa, nánar tiltekið í Chepareria.
Kristniboðsstöðin er miðstöð
margra safnaða í héraðinu og þar
er fjölmennur skóii. í Nairobi starf-
ar auk þess íslenskur kennari.
■ / ÁLYKTUN félagsfundar
Birtingar, sem haldinn var 8. nóv-
ember, er nýjum áherslum, sem
fram koma í stjórnmálaályktun að-
alfundar miðstjórnar Alþýðu-
bandalagsins fagnað. „Birting
fagnar þeim áfanga að Alþýðu-
bandalagið hefur nú fellt úr gildi
stefnuplaggið frá 1974. í þeirri
ákvörðun felst upgjör við fortíðina
og hún knýr flokkinn til að móta
nýja stefnuskrá byggða á hugsjón-
um jafnaðarmanna," segir í álykt-
uninni. Þá er í ályktuninni tekið
eindregið undir þá áskorun mið-
stjórnarinnar að endurnýja verði
sem víðast í efstu sætum á fram-
boðslista Alþýðubandalagsins í
vor, til að fylgja nýjum áherslum
eftir. Þá er skorað á foiystu Al-
þýðuflokks og Alþýðubandalags
að snúa bökum saman í komandi
kosningum og beita sér gegn sam-
eiginlegum andstæðingum. Loks er
vakin athygli á, að skipulagsmál
Alþýðubandalagsmanna í
Reykjavíkurkjördæmi séu í full-
kominni óvissu og enn alls óljóst
hvort færi gefist til samvinnu um
framboð á jafnréttisgrundvelli.
■ NÝLEGA var hljómsveitin
Blúsbrot endurreist. Hljómsveitin
starfaði síðast fyrir u.þ.b. tveimur
árum og eru nú í hljómsveitinni
þrír af fyrri meðlimum hennar. Þeir
eru: Vignir Daðason, söngur og
munnharpa, Leó Torfason, gítar,
og Helgi Víkingsson, trommur.
Þeir þremenningar hafa nú fengið
til liðs við sig keflvíska bassa- og
orgelleikarann Björn Árnason.
Eins og nafnið bendir til leikur
hljómsveitin blús en einnig leikur
hún rokklög frá 7., 8. og 9. áratugn-
um. Hljómsveitin mun næst leika á
Gikknum, Ármúla, föstudags-
kvöldið 16. nóvember og á Blús-
barnum, Laugavegi, laugardags-
kvöldið.
H JÓNÍNA Guðnadóttir opnaði
sýningu í Hafnarborg laugardag-
inn 3. nóv. sl. Á sýningunni eru
skúlptúrar og veggmyndir sem unn-
in eru úr leir, trefjasteypu og öðrum
efnum. Sýningin er opin daglega
frá kl. 14-19 og stendur til 18.
nóy, nk.
Með nýjungar í hverju homi
Fimmlán ár eru langur tími í tölvuþjónustu.
Viö höfum lært að það verður að tryggja
viðskiptavinum örugga þjónustu og vöru
og kynna honum þær nýjungar sem
koma honum að gagni hverju sinni.
Fösludaginn 16. nóvember frá kl. 09:00 til 17:00.
l,augardaginn-17. nóvember frá kl. 10:00 til 16:00.
SKIPHOLT 17 105 REYKJAVÍK
í tilefni af afmælinu bjóðum við viðskiptavinum
okkar og vinum að líta Inn, ræða málin. kynna
sér sérstök afmælistilboð okkar og skoða það
nýjasta í tölvum og skrifstofuvélum.
Meðal nýjunganna eru Q M S • P S litgeisla-
prentarar og M 1 C R O T E K „litaskanni".
Ný tölvulína, S L I M L I N E H T M
frá Bandaríkjunum og einstakt
þjónustutæki fyrir R I C O II myndsenda
sem greinir bilanir gegnum síma.
SÍMI: 91-27333 - FAX 91-28622
aco
Verið velkomin.