Morgunblaðið - 16.11.1990, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 1990
33
Sigurbjörg Þorsteins-
dóttir — Minning
Fædd 12. janúar 1915
Dáin 8. nóveniber 1990
Veröld er slungið orð. Orðið vísar
í senn í öldina, þessa einstefnu
tímans og tilvistina, veruna í öld-
inni, tíðina í vistinni. Inn í veröld
er maðurinn öfinn, en maðurinn er
líka vefari.
Af geðprýði og sýnilegri ná-
kvæmni óf hún amma. Þræðimir
margvíslegu liggja víða og mynda
þau mynstur sem við gleðjumst jrfir
og söknum. Þannig sjáum við
mynstrin en vitum að ekki verða
ný mynduð úr þessum þræði, slíkt
er tómarúmið, slík er vistin.
Mynstrið — hygg ég — er sú ein-
staka lund að vera geðgóður, og
meira, skapgerðin bar vott um ein-
stakt jafnvægi. Sú dásemd að hafa
kynnst manneskju er ómetanleg,
hún er verðmæti sem enginn getur
»■ af hendi sleppt án þess að glata
traustu bandi.
Eg hafði vist í rúm tvö ár á
Holtsgötunni. Vistina fæ ég aldrei
þakkað eins og vert væri, en tíðin
geymir stundirnar, hveija og eina.
Eg þekki ekki annað en hlýjuna,
langlundina og umburðarlyndið, allt
hlutar verunnar sem ég vildi hafa
í þessum ríka mæli sem amma
hafði.
En nú hefur vefarinn mikli kallað
öldina, markað tímann og leyst upp
vistina. Hún Sigurbjörg Þorsteins-
dóttir, amma, var trúuð og algóður
Guð hefur ljáð henni hvíldina og
veröldin heldur áfram að vera
slungið orð.
F.h. fjölskyldunnar á
Kirkjubraut 6, Nj.,
Ágúst Ásgeirsson
í dag kveðjum við elskulega
ömmu okkar. Hún amma á Holts-
götu einsog við kölluðum hana, var
svo góð. Við sem héldum að hún
Kveðjuorð:
yrði hjá okkur miklu lengur. Það
var alltaf gott að koma til ömmu.
Við hugsum um allt það fallega og
góða sem hún hefur kennt okkur.
Allar bænirnar sem hún fór með
með okkur þegar við sváfum hjá
ömmu og afa. Við munum hvað
amma varð glöð þegar litli bróðir
okkar fæddist. Við eigum eftir að
sakna hennar mikið. Við biðjum
góðan Guð að styrkja elsku afa.
Við kveðjum ömmu með bæninni
sem hún kenndi okkur.
Leiddu mína litlu hendi
ljúfi Jesús þér ég sendi
bæn frá mínu bijósti sjáðu
blíði Jesús að mér gáðu.
Berglind og Telma
Amma mín, Sigurbjörg Þor-
steinsdóttir, fæddist í Sæbyrgi í
Vestmannaeyjum. Hún var dóttir
Þorsteins Sigurðssonar verslunar-
manns og Sigurbjargar Sigurðar-
dóttur._ Þorsteinn átti tvö börn að
auki, Óskar, f. 1908, og Huldu, f.
1927. Amma mín var fyrsta og eina
barn móður sinnar sem lést 25 ára
gömul. Þegar amma var ung stúlka
kom til hennar kona og sagði henni
eftirminnilega sögu um hana sjálfa.
Konan var farþegi ásamt ömmu
minni, sem þá var reifabarn, á leið-
inni frá Vestmannaeyjum til iands.
Þegar komið var á sandana undir
Eyjafjöllum var barnið lagt í
sandinn á meðan verið var að sel-
flytja menn og dót í land. Þessi
kona sagðist aldrei gleyma um-
komulausa barninu sem horfði svo
blítt á allt í kring. Þannig var amma
mín, hún horfði með blíðu á allt
umhverfi sitt, alla tíð.
Guð sá til þess að hún var ekki
lengi umkomulaus. Hún var borin
á milli bæja í von um að einhver
vildi taka hana að sér. Móðir henn-
ar var undan Eyjaijöllum og faðir
úr Rangárvallasýslu svo ekki þótti
Kristín Gestsdóttir
Ingibjörg Þórðardóttir
Kristín
Fædd 22. júlí 1911
Dáin 31. október 1990
Ingibjörg
Fædd 12. ágúst 1944
Dáin 4. október 1990
líta dýrð þína á hinu hæsta fjalli.
Innilegar samúðarkveðjur til ætt-
ingja og vina þeirra.
Nína
óeðlilegt að leita fanga ejnmitt á
þessum slóðum. í Stóru-Mörk
bjuggu hjónin Helga Sigurðardóttir
og Björn Þorgilsson, þau tóku
ömmu mína að sér. Helga var fjar-
skyld ömmu minni en umfram allt
góð kona sem vildi láta gott af sér
leiða. Hún hafði áður fóstrað dreng,
Árna Siguijónsson, sem nú er lát-
inn. Þær mæðgur -urðu óaðskiljan-
legar og aldrei minntist anima móð-
ur sinnar nema með votum augum.
Þær upplifðu saman mikla sorg í
tengslumm við andlát ástvina sinna.
Björn dó þegar amma var 5 eða 6
ára gömul og ekki löngu síðar miss-
ir Helga dætur sínar þrjár með
stuttu millibili, Sigui-veigu, Ragn-
heiði og Sigríði.
Þær mæðgur fluttu eftir þetta
til Vestmannaeyja og bjuggu í Staf-
holti þar til amma giftist afa mínum
Óskari Jónssyní árið 1942. Þau
eignuðust fjögur börn, Helgu, f.
1942, gift Ásgeiri Ólafssyni, Frið-
þjóf, f. 1944, ókvæntur, Stellu
Gróu, f. 1949, gift Guðmundi Sigur-
jónssyni og Sigþór, f. 1953. kvænt-
ur Hjördísi Lúðvíksdóttur. Barna-
börnin eru níu, elstur Ágúst Ás-
geirsson, f. 1964 en yngstur Óskar
Sigþórsson f. 1987. Afi og amma
bjuggu fyrstu hjúskaparár sín í
Vestmannaeyjum en árið 1955
fluttu þau búferlum til Ytri-
Njarðvíkur. Á Holtsgötu 32 í
Njarðvík bjó fjölskyldan eftir það.
Afi kenndi við Gagnfræðaskólann
í Keflavík og síðar við fjölbrauta-
skólann. Amma vann úti um tíma
en alla ævi var fjölskyldan og heim-
ilið aðaláhugamál hennar.
Nú kveð ég elsku ömmu mína í
hinsta sinn. Það er sárt að þurfa
að kveðja hana sem var mér svo
hjartfólgin. Hún studdi mig og
styrkti og kenndi mér að meta það
góða í lífinu. Hún á stóran þátt í
uppeldi mínu og þess vegna höfum
við sennilega verið fremur sem
mæðgur en amma og ömmubarn.
Amma mín var að mörgu leyti
óvenju þroskaður persónuleiki, gaf
mikið af sjálfri sér og engan vissi
ég betri hlustanda en hana. Hún
var létt í lund og átti auðvelt með
að brosa. Þessir góðu eiginleikar
hennar nýttust henni vel í erfíðum
veikindum síðustu árin. Þá sýndi
hún best hversu sterk og þolinmóð
hún var. Trú á Guð og bænin veittu
henni þó meiri styrk í lífinu en nokk-
uð annað. Það var veganesti sem
hún fékk frá móður sinni, vega-
nesti sem hún færði börnum sínum
og barnabörnum og enginn getur
þakkað nógsamlega.
Um leið og ég bið góðan Guð að
styrkja afa minn, vil ég þakka hon-
um fyrir að gefa mér svo góða
ömmu.
Sigurbjörg Ósk Áskelsdóttir
Ó Guð minn. Ó þú, sem fyrirgef-
ur syndir okkar, gefur okkur gjafir,
eyðir sorgum okkar.
Sannlega bið ég þig að fyrirgefa
syndir þeirra sem hafa afklæðst
jarðneskum líkömum sínum og
haldið til æðri heims. Ó, Drottinn
minn, hreinsa þær af misgjörðum,
dreif sorgum þeirra og snú myrkri
þeirra í ljós.
Lát þær frænkurnar ganga í
garði hamingjunnar, þvo þær með
tærasta vatni og gef að þær megi
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför föður okkar, tengdaföður, afa langafa,
KJARTANS S. BJARNASONAR
fv. lögregluvarðstjóra,
Bústaðavegi 85.
Sérstakar þakkir til Lögreglukórs Reykjavíkur.
Börn, tengdabörn,
barnabörn og barnabarnabörn.
Hópurinn sem tekur þátt í leiksýningunni.
■ KRAKKARNIR í Unglinga-
deild Leikfélags Hafnarfjarðar
frumsýna í dag leikritið Gulldreng-
irnir eftir Peler Terson. Leikstjóri
er Lárus Vilhjálmsson. í kynningu
segir m.a.: „Leikritið fjallat' í stuttu
máli um áhangendur fótboltaliðs,
og líf Halla sem er í klíkunni." í
leikritinu eru 46 leikarar og hljóm-
sveit. Allir sem taka þátt í sýning-
unni eru á aldrinum 13-16 ára.
U NÝJASTA spurningaskrá Þjóð-
minjasafns um sauma og fatnað er
komin út og hefur verið send til
heimildarmanna deildarinnar víða
um land. Þar er leitáð upplýsinga
hjá eldra fólki um t.d. áhöld við
sauma, heimasaum, saumakonur
og klæðskera, hversdags- og spari-
fatnað, liirðingu á fatnaði og þjóð-
trú varðandi föt og sauma. Þá er
spurt um hvort menn viti af fötum,
skóm eða höfuðfatnaði frá því um
____________Brids_______________
ArnórRagnarsson
Bridsfélag Hornafjarðar
Hótel Höfn sigraði í Landsbankamót-
inu sem lauk sl. sunnudag. Borgey hf.
varð í öðru sæti ogÞorsteinn Sigurjóns-
son í 3. sæti.
Lokastaðan:
Sveit Þorsteins: Þorsteinn Sigur-
jónsson, Einar Jcnsson, Skarphéðinn
Larsen og Stefán Hclgason. Alls 1.419
stig.
Sveit Hótels Hafnar hf.: Skeggi
Ragnarsson, Baldur Kristjánsson, Árni
Stefánsson og Jón Sveinsson. Alls
1.412 stig.
Sveit; Borgeyjar lif.: Gestur Halldórs-
son, Magnús Jónasson, Sigurpáll Ingi-
bergsson og Guðmundur Guðjónsson.
Alls 1.378 stig.
Næsta sunnudag, þann 18. nóvemb-
er, hefst Vísismótið sem er 3ja kvölda
tvímenningur. Allir áhugasamir hvattir
til að mæta og vcra komnir tímanlega
cn spilamennskan byijar klukkan
19.30.
Bridsfélag Reyðarfjarðar og
Eskifjarðar
Lokið er fimm umferðum í baro-
meter-tvímcnningi scm cr aðaltvímenn-
ingur vetrarins;
Staðan:
ísak Ólafsson - Sigurður Freysson 63
Aðalsteinn Jónsson - Pálmi Kristmannsson 37
Ámi Guðmundsson - Gísli Stefánsson 31
Jónas Jónsson - Guðmundur Magnússon 31
Kristmann Jónsson - Magnús Bjarnason 30
Ásgeir Metúsalemsson - Friðjón Vigfússon 21
Bjarni Garðarsson - Hörður Þórhallsson 15
Hæsta skor í 5. umferð:
ÞorbergurHauksson-SigurðurFreysson 29
Kristmann Jónsson - Magnús Bjarnason 28
Ásgcir Metúsalemsson - Friðjón Vigfússon 23
Guðmundur Magnússon—Jónas Jónsson 11
Jóhann Þorsteinsson - Kristján Kristjánsson 3
Frá Skagfirðingum, Reykjavík
Lokið er tveimur kvöldum af þremur
í hraðsveitakeppni. Staða efstu sveita
er þessi:
Lárusar Hermannssonar 933 (482).
Ingibjargar Grímsdóttur 927 (423).
Sigmars Jónssonar 866 (467).
Ragnars Hjálmarssonar 865 (424).
Tölur innan sviga eru skor 1. kvöld-
og fyrir miðja öld og beðnir að sjá
til þess að slíku sé ekki hent. Þjóð-
minjasafnið þiggur með þökkum
gamlar flíkur, hvort heldur er spari-
eða hversdagsfatnað svo og myndir
sem sýna gamlan klæðnað. Þeir sem
kynnu að vilja leggja þessari söfnun
lið eru beðnir að hafa samband við
starfsmenn þjóðháttadeildar Árna
Björnssonar eða Hallgerði Gísla-
dóttur.
(Frcttatilkynning)
ið. Aðalsveitakcppni deildarinnar hefst
svo þriðjudaginn 27. nóvember nk.
Skráning er hafin hjá Ólafi Lárussyni
í síma 16538.
Allt spilaáhugafólk velkomið meðan
húsrúm leyfir. Veitt verður aðstoð við
myndun sveita, sé þcss óskað.
Bridsfélag Hafnarfjarðar
Mánudaginn 12. nóvember var spilað
fjórða og síðasta kvöldið í A. Hansen-
keppninni, sem 20 pör tóku þátt í.
Vcitt voru þrenn matarverðlaun sem
gefin voi'u af veitingahúsinu A. Hansen
í Hafnarfirði auk bikara.
A-riðiIl
Ólafur Gíslason —
Sigurður Aðalsteinsson 129
Jón Þorkclsson —
Kjartan Jóhannsson 128
Jens Sigurðsson —
Jón Sigurðsson 125
Guðbrandur Sigurbergsson —
Kristófer Magnússon 121
B-riðilI
Hulda Hjálmai'sdóttir —
Sigurður Siguijónsson 130
Guðlaugur Sveinsson —
Magnús Sverrisson 127
Esther Jakobsdóttir —
Hjördís Eyþórsdóttir 124
Árni Reynisson —
RúnarÁrnason 120
Lokastaðan í keppninni:
Guðbrandur Sigurbergsson —
Kristófer Magnússon 496
Ólafur Gíslason —
Sigurður Aðalsteinsson 481
Anna Þóra Jónsdóttir — ,
Ragnar Hermannsson 468
Guðlaugur Sveinsson -
Magnús Sverrisson 467
Næstkomandi mánudag, hinn 19.,
hefst síðan aðalsveitakeppnin. Ákveðið
hefur verið að spila sömu spi! á öllum
borðum og reikna árangur út fyrir
livert par um leið. Skemmtileg blanda
af sveitakeppni og tvímenningi.
Bridsdeild Rangæinga
Sl. miðvikudag hófst 5 kvölda hrað-
sveitakeppni með þátttöku 11 sveita.
Staðan eftir fyrsta kvöldið:
Sveit
Þorsteins Kristjánssonar 619
Sigurðar Jónssonar 606
ÁsmundarGuðmundssonar 578
Lilju Halldórsdóttur 560
Meðalskor 540.
Þökkum innilega öllum þeim, er sýndu okkur samúð og hlýhug
við andlát og útför
HALLDÓRS BENEDIKTSSONAR
frá Fjalli.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki sjúkrahúss Sauðárkróks.
Guðrún Þóra Þorkelsdóttir,
Margrét S. Halldórsdóttir, Ólafur Þ. Olafsson,
Grétar Benediktsson, Erna Bjarnadóttir
og barnabörn.