Morgunblaðið - 16.11.1990, Page 34
34
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 1990
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl) V*
Eyddu ekki of miklum peningum
í skemmtanir í dag og taktu enga
áhættu. Sjálfsagi færir þér ávinn-
ing í starfí. Einhver reynist fús
að karpa við þig í kvöld.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Gættu hófs í framkvæmdum
heima fyrir. Hjón eru sammála
um flest mál núna. Sneiddu hjá
hvers konar kífi um peningamálin
í kvöld.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Láttu þér ekki sjást yfir mikil-
vægt smáatriði í dag. Innsæi og
sjálfsagi færa þig nær marki þínu
í vinnunni. Forðastu kaldhæðni í
umræðum seinni hluta dagsins.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí) Hg
Þetta verður skemmtilegur dagur
hjá þér, en þér hættir til að eyða
um of. Hjónum finnst þau vera
sérstaklega nátengd hvort öðru
núna. Einhver pirringur skýtur
upp kollinum í vinnunni.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
<et
Þér er ekkert að vanbúnaði að
. takast á við endurbótaverkefni
heima fyrir. Þú tekur einnig heim
með þér verkefni úr vinnunni.
Meyja
(23. ágúst - 22. september)
Einhveijum sem þú umgengst í
dag hættir til að ýkja. Skapandi
einstklingar fá innblástur núna
og með góðri einbeitingu tekst
þeim að koma miklu í verk.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Vinur þinn er stór upp á sig í
dag. Dómgreind þín í fjármálum
er óvenju skörp um þessar mund-
ir. Þú gerir stórinnkaup fyrir
heimilið. í kvöld ctur þú kappi
við persónu sem er gjörólík þér.
Sporódreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Hugmynd sem þú vinnur að núna
kann að vera óframkvæmanleg
frá viðskiptasjónarmiði. Sinntu
mikilvægum símtölum í dag. Þú
kannt að lenda í karpi út af pen-
ingum í kvöld.
Bogmaóur
(22. nóv. - 21. desember) m
Fyrst á dagskránni hjá þér í dag
er að drífa af verkefni sem þú
hefur ýtt á undan þér. Ráðgjafi
þinn reynist þér lítt hjálplegui'.
Sýndu fjölskyldu þinni umhyggju
og tillitssemi í kvöld.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Njóttu þess að hitta vini þína, en
haltu fast utan um budduna og
krítarkortið. Óþolinmæðin getur
dregið úr afköstum þínum. Haltu
friðinn við samstai'fsmenn þína.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febniar) ðh
Náinn ættingi eða vinur lætur
undir höfuð leggjast að gangast
við sínum hluta af sameiginlegri
ábyrgð ykkar. Þú verður fyrir
vonbrigðum með félagslífið í
kvöld.
Fiskar
(19. febrúar - 2Q. mars)
Einhver þjóðmálanna brenna
heitt á þér um þessar mundir.
Þú gerðir rétt í því að fara í ferða-
lag núna, en einhver í fjölskyld-
unni gæti orðið þrætugjarn í
kvöld.
AFMÆLISBARNIÐ hefur heim-
spekilega afstöðu til lífsins, en
er stundum dálítið fast í farinu.
Það hefur hugrekki, sem byggist
á sannfæringu, og er reiðubúið
að leggja mikið á sig fyrir mál-
stað sem það gerir að sínum. Það
hefur áhuga á almennri velferð,
en er einfari á margan hátt. Því
gengur betur að starfa þegar það
er eitt á báti en í samstarfi við
annað fólk. Það á sér háleitar
hugsjónir, en verður að vara sig
á að gera þá kröfu til annarra
að þeir iifi einnig í samræmi við
þær.
Stjörnusþána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
vísindalegra staóreynda.
nVDATBCMC
UYKAuLtlMo
PAVf5 10-16
TOMMI OG JENNI
SMÁFÓLK
Gjörðu svo vel, ólin þín var að koma
úr hreinsun.
l'M &LAP TO
5EE TWAT YOU
TAKE 5UCH 600P
CARE OF YOUR
THIN65.. ^
Það gleður mig að
þú skulir hugsa
svona vel um eigur
þínar.
En hvað á ég að gera við öll herðatrén?
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Eftir fremur lokaða sagnbar-
áttu enda sagnir í parsamningi
6 spöðum í suður.
Suður gefur; enginn á hættu.
Norður
♦ K108742
V 1065
♦ D4
♦ 83
Vestur Austur
♦- lmll ♦G5
VK8742 VADG3
♦ 86 ♦ G953
♦ ÁK10964 +D75
Suður
♦ ÁD963
V9
♦ ÁK1072
♦ G2
Vestur Norður Austur Suður
— — — 1 spaði
2 lauf 2 spaðar 3 lauf 4 spaðar
5 lauf Pass 5 spaðar Pass Pass
Útspil: Laufás.
Við sjáum að vörnin getur
tekið þijá fyrstu slagina, tvo á
lauf og einn á hjarta. Fyrir okk-
ur, sem sjáum allar hendur, er
því lítil þraut að hnekkja spilinu.
En frá bæjardyrum vesturs er
engan veginn sjálfsagt mál að
skipta yfir í hjarta. Það gæti
alveg eins verið rétt að spila tígli.
Hann þarf því hjálp frá makk-
er. Segjum nú að AV séu miklir
hliðarkallsspekingar. Austur
gæti þá látið sér detta í hug að
láta drottninguna detta í laufás-
inn! Snjallt kall í hjarta, ekki
satt?
Kannski, en gallinn er bara
sá að austur myndi setja drottn-
inguna frá DGx til að SÝNA
GOSANN. Því gæti vestur fallið
í þá gryiju að spila lauftíunni
til baka! Spila makker inn á
gosann og panta hjarta tii baka.
Suður fengi þá óvæntan en
kærkominn slag á laufgosa.
Með Dxxx kæmi frekar til
greina að láta drottninguna
fjúka í fyrsta slag til að hvetja
makker til. að' skipta strax yfir
í hjarta. En í þessu tilfelli ætti
austur að kalla í litnum og láta
drottninguna næst undir kóng-
inn. Hann býst hvort sem er við
að fá tvo slagi á lauf.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á sovézka meistaramótinu í ár
kom þetta endatafl upp í skák
alþjóðlega meistarans Aseev
(2.575) og stónneistarans Vyzm-
anavin (2.585), sem hafði svart
og átti leik. Hvítur lék síðast
hræðilegum afleik, 32. Kf2-e3??.
32. - Hxa3! og hvítur gafst upp,
því eftir 33. Hxa3 - Rc2+ verður
hann manni undir. Þegar ein um-
ferð var eftir voru þeir Beljavsky,
Vyzmanavin og Judasin efstir með
8 v. af 12 mögulegum, en næstir
komu Bareev með 7 'A v., Epishin
með 7 v., Khalifman með 6'A og
Kuzmin og Eingorn með 6 v.
Mótið er ekki eins sterkt og oft
áður og það virðist hafa gengið
mjög illa að manna það, keppend-
ur voru aðeins 14 talsins, en hafa
yfirleitt verið 16 eða 18. Margir
af beztu skákmönnum Rússa hafa
verið uppteknir við þátttöku á
mótum á Vesturlöndum, en verð-
laun á meistaramótinu eru mjög
lág.