Morgunblaðið - 16.11.1990, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSÍUDAGÍUR: ié. NÓVEMBER 1990
43.'-
1.DEILD KVENNA
Haukar-ÍS 45:53 (15:26)
íþróttahúsið við Strandgötu, 1. deild kvenna i körfuknattleik, fimmtudaginn 15. nóvember
1990.
Stig Hauka: Guðbjörg Norðfjörð 13, Eva Havlik 11, Sólveig Pálsdóttir 7, Herdís Gunnars-
dóttir 4, Sigrún Skarphéðinsdóttir 4, Anna Guðmundsdóttir 2, Dóra Garðarsdóttir 2,
Hafdís Hafberg 2.
Stig IS: Díanna Gunnarsdóttir 14, Hafdís Helgadóttir 11, Vigdís Þórisdóttir 10, Kolbrún
Leifsdóttir 6, Kristín Sigurða)-dóttir 6, Vanda Sigurgeirsdóttir 4, Elínborg Guðnadóttir 2.
ÍS vann toppslaginn
Bæði lið voru með fullt hús stiga fyrir þennan leik. ÍS-stelpurnar tóku
strax forystu í leiknum og má segja að þær hafi haldið henni allt
til leiksloka. Hauka-stelpurnar náðu nokkrum sinnum að minnka muninn
en þá gripu Stúdínur í taumana og juku forskotið á ný.
Sigur ÍS var sanngjarn og var það einkum sterk liðs-
Vanda heild sem skóp sigurinn. Þess má þö geta að Díanna Gunn-
Sigurgeirsdóttir arsdóttir átti stórleik.
skníar Lið Hauka var einnig jafnt en sérstaklega áttu þær
Guðbjörg Norðfjörð og Eva Havlik góðan leik. ÍS-stúlkurn-
ar eru nú einar á toppi 1. deildar kvenna.
Morgunblaðið/Júlíus
Mike Noblet var sterkur undir körfunni í gær og tók mörg fráköst. Hér
hefur hann betur í baráttu við Axel Nikulásson.
faánut
FOLK
■ BANDARÍSKAR konur stefna
að því að gera betur en karlarnir í
keppni Bandaríkjanna og Evrópu
í golfi. Bandaríkjamönnum hefur
mistekist að ná Ryder-bikarnum
í síðustu þremur tilraunum en um
helgina verður keppt um svipaðan
bikar í kvennaflokki, Solheim-bik-
arinn. Keppt verður á Lake Nona
í Orlando og eru átta konur í hvoru
liði. Þær þekktustu í liði Banda-
ríkjanna eru líklega Beth Daniel,
Patty Sheehan og Betsy King. í
liði Evrópu eru m.a. Trish Jo-
hnson, frá Englandi, Marie-Lau-
rede Lorenzi, frá Frakklandi og
sænsku stöllurnar Helen Alfreds-
son og Lisalotte Neuman.
■ ANDRE Agassi hefur tilkynnt
að hann ætli ekki að keppa í Stóra-
bikarnum [Grand Slam] í Miinchen
í desember. Hann vildi ekki segja
af hveiju, en sagðist hafa velt mál-
unum lengi fyrir sér. Hann gæti
verið sektaður um allt að 25 þúsund
dollara og dæmdur í bann ef hann
hættir án þess að gefa góða ástæðu,
s.s. meiðsli. Sex milljónir dollara,
sem skiptast milli efstu manna, eru
í verðlaun og hefur það farið fyrir
bijóstið á mörgum. Boris Becker
verður ekki með og heldur ekki
John McEnroe og Mats Wilander
en þeir hafa sagt að peningamót
sem þetta skemmi aðeins fyrir
íþróttinni.
■ ALBERT Ferrer hjá Barcel-
ona, sem varð að fara af leikvelli
í leiknum gegn Fram á dögunum,
reyndist vera með rifinn liðþófa í
hné. Hann hefur
FráAtla verið skorinn upp og
Hilmarssyni verður frá keppni í
áSpáni tvo mánuði.
■ JUPP Heyn-
ckes hefur framlengt samning sinn
við Bayern Miinchen um tvö ár.
Honum var m.a. boðið að þjálfa
Barcelona en sagðist vera ánægður
hjá Bayern.
KR-ingar réðu ekki við Jón Arnar
Logi
Bergmann
Eiðsson
skrifar
Jón Arnar Ingvarsson fór á kostum í gær er Haukar sigruðu KR-inga,
86:75. Hann var óstöðvandi og gerði 44 stig í leiknum, rúmlega helm-
ing stiga Hauka, og var maðurinn á bakvið sannfærandi sigur. Haukar
náðu strax forystunni og héldu henni nær allan leikinn. Þeir léku örugg-
lega, sterka svæðisvörn og skynsamlegan sóknarleik. Þeir
nýttu sér galopna vörn KR og flestum sóknum lauk með
öruggu skoti frá Jóni Arnari.
í síðari hálfleik lifnaði yfír KR-ingum. Bow tók við sér
og Páll Kolbeinsson óð hvað eftir annað í gegnum vörn
Hauka. Með góðum kafla tókst KR-ingum að jafna en sterk vörn Hauka
hleypti þeim ekki nær og Haukar tryggðu sér sanngjarnan sigur.
Haukar léku vel með Jón Arnar sem lang besta mann. Noblet var grimm-
ur undir körfunni og ívar og Pálmar léku örugglega. Lið KR, sem tapaði
fjórða leik sínum í röð, saknar greinilega Guðna Guðnasonar. Páll Kol-
beinsson átti þó mjög góðan leik, einkum í síðari hálfleik er hann dreif
liðið áfram. Axel átti góðan kafla í fyrri hálfleik og Bow í þeim síðari.
Haukar - KR 86:75
íþróttahúsið Strandgötu, úrvalsdeildin í körfuknattleik, fimmtudaginn 15. september 1990.
Gangur leiksins: 13:8, 29:22, 43:32,43:37, 49:47, 55:55, 66:61,77:66, 79:72,82:75,86:75.
Stig Hauka: Jón Arnar Ingvai-sson 44, Mike Noblet 18, ívar Ásgrímsson 10, Henning
Henningssón 7, Pálmar Sigurðsson 5 og Pétur IngVarssson 2.
Stig KR: Páll Kolbeinsson 31, Jonathan Bow 23, Axel Nikulásson 9, Matthías Einaisson
6, Hörður Gauti Gunnai'sson 2, Hermann Hauksson_2 og Björn Steffensen 2.
Dóinarar: Kristinn Albertsson og Helgi Bragason. Áhorfendur: Um 150.
Auðvelt hjá IMjarðvíkingum
Njarðvíkingar áttu ekki í miklum erfiðleikum með slaka IR- inga í
Ljónagryfjunni í Njarðvík í gærkvöldi, þrátt fyrir að þeir væru langt
frá sínu besta. Leikurinn var lengi vel hrútleiðinlegur, mikið um mistök,
slæmar sendingar og engu líkara en flestir á vellinum ætluðu að gera
allt sjálfir. Þegar talsvert var liðið á seinni hálfleikinn fóru
Njarðvíkingar loksins í gang og góðir sprettir þeirra vöktu
áhorfendur sem flestir voru fyrir löngu orðnir áhugalausir.
Ungur nýliði í liði Njafðvfkinga, Daníel Sveinsson kom
inná á lokamínútunum, hann gerði sér lítið fyrir og skoraði
9 stig.
UMFIM - ÍR 97:69
íþróttahúsið í Njarðvík, íslandsmótið í körfuknattleik, ðrvalsdeild, fimmtudaginn 15. nóv-
ember 1990.
Gangur leiksins: 4:0, 4:2, 15:8, 24:13, 32:23, 36:33, 41:38, 50:40, 63:49, 76:53, 84:63,
84:63, 89:63, 97:69.
Stig ÚMFN: Rondey Robinson 23, Teitur Örlygsson 20, ísak Tómasson 15, Friðrik Ragn-
arsson 14, Daníel Sveinsson 9, Kristinn Einarsson 6, Hreiðar Hreiðai'sson 6, Ástþór Inga-
son Rúnar Jónsson 2.
Stig IR: Douglas Shouse 23, Jóhannes Sveinsson 14, Björn Bollason 10, Hilmar Gunnars-
son 8, Björn Leósson 6, Eggert Garðarsson 6, Halldór Hreinsson 2. .
Dómarar: Guðmundur S. Maríusson og Bi-ynjar Þór Þoi-steinsson. Áhorfendur: Um 100.
Björn
Blöndai
skrifarfrá
Keflavik
A-RIÐILL
KNATTSPYRNA / ENGLAND
Butcher ráðinn leikmað-
ur og þjálfari Coventry
Peter Reid í sama hlutverki hjá ManchesterCity
Terry Butcher, sem settur var
á sölulista hjá Glasgow Rang-
ers á dögunum, hefur verið ráðinn
stjóri hjá enska 1. deildarliðinu
Coventry og mun hann einnig
leika með liðinu.
Butcher stjórnaði fyrstu æfíngu
sinni hjá Coventry í gær. Hann
er 31 árs og hætti með landsliði
Englands eftir HM á Ítalíu í sum-
ar.
Coventry rak John Sillett, eftir
að hann hafði tilkynnt stjórn fé-
lagsins að hann hygðist ekki end-
urnýja samning sinn, en hann
átti að renna út í vor. Stjórnin
beið því ekki boðanna þegar
Butcher var á lausu; losaði sig
við Sillett á stundinni en hann fær
reyndar ágóðaleik hjá félaginu
fyrir góða þjónustu. Sillett hefur
áhuga á að sinrf þjálfun áfram en
taldi sig ekki geta náð lengra með
lið Coventry.
Coventry mætir Liverpool á
heimavelli á morgun, og er jafn-
vel talið að Butcher leiki með.
Þá er Peter Reid, leikmaður
Manchester City, sestur í stjóra-
stólinn á þeim bæ; og mun jafn-
framt leika áfram með liðinu.
Hann tók við stjórninni, tíma-
bundið þá, er How.ard Kendall
yfirgaf City-skútuna í síðustu viku
og liðið tapaði heima 2:3 gegn
Leeds undir stjórn hans á laugar-
dag. Reid er 34 ára og lék 13
sinnum fyrir Englands hönd.
Hann gerði tveggja og hálfs árs
samning við City.
Fj. leikja u J T Mörk Stig
NJARÐVÍK 10 7 0 3 900: 774 14
KR 10 6 0 4 807: 803 12
HAUKAR 10 5 0 5 822: 824 10
SNÆFELL 9 2 0 7 690: 807 4
l'R 10 0 0 10 762: 984 0
BADMINTON
íkvöld
Fjórir íslendingar keppa á NM
Norðurlandamót fullorðinna í
badminton verður haldið í
Sandefjord í Noregi á morgun og
sunnudag. Fjórir íslenskir keppend-
ur halda utan í dag til keppni á
mótinu, sem er einstaklingskeppni,
auk þess sem landsleikur milli Nor-
egs og íslands fer fram í dag.
Keppendur fyrir íslands hönd í
Noregi eru Árni Þór Hallgrímsson,
Broddi Kristjánsson, Elsa Nielsen
og Guðrún Júlíusdóttir; öli úr TBR.
Þjálfari er Karsten Thomsen. Þá fer
Reynir Þorsteinsson dómari utan
með hópnum.
■Á myndinni er hópurinn sem fer
í dag til Noregs. í aftari röð eru,
f.v.: Sigrfður Jónsdóttir fararstjóri,
Karsten Thomsen þjálfari, Árni
Þór, Broddi og Reynir Þorsteinsson,
dómari. Fyrir framan eru Guðrún,
til vinstri, og Elsa.
Handknattleikur
Tveir leikir verða í kvöld í 1.
deild karla í handknattleik:
KA-menn taka á móti FH-ingum
í íþróttahöllinni á Akureyri kl.
20.30 og í Laugardalshöll eigast
við ICR og ÍBV. Viðureign þeirra
hefst kl. 20.00.
í 1. deild kvenna mætast ÍBV
og FH í Eyjum kl. 20.00.
Þrír leikir eru á dagskrá í 2.
deild k'arla í handbolta. Kl. 20.00
mætast í Digranesi Breiðablik
og ÍBK og í Njarðvík heima-
menn og Ármenningar, og kl.
21.15 hefst viðureign ÍS og
Völsungs í Laugardalshöll.
Blak
Þrír leikir verða í kvöld í 1.
deild kvenna. I Digranesi mæt-
ast UBK og Víkingur kl. 18.30,
Völsungur og HK leika á
Húsavík kl. 20.00 og í íþrótta-
húsi Glerárskóla á Akureyri
hefst viðureign KA og Þróttar,
Neskaupsstað kl. 20.50.
ÚRSLIT
Handknattleikur
Bikarkeppni kvenna:
ÍR-Stjaman...............15:35
Vinátluleikur í karlalokki:
HK - Bandaríkin.........16:16
2. DEILD KARLA
Fj. leikja U J T Mörk Stig
HK 7 6 1 0 169: 103 13
ÞÓR 7 6 1 0 165: 138 13
BREIÐBLIK 7 5 1 1 156: 123 11
NJARÐVÍK 8 5 1 2 182: 163 11
ÍBK 8 4 0 4 176: 172 8
VÖLSUNGUR 7 3 1 3 145: 154 7
ÁRMANN 9 2 1 6 169: 196 5
AFTURELD. 7 2 0 5 128: 149 4
ÍH 9 1 0 8 168: 200 2
is 7 1 0 6 116: 176 2
Staðan í blaðinu á þriðjudaginn var röng
þai-sem leik ÍBK og ÍH vantaði. Nú er
hann kominn inn og staðan því rétt.