Morgunblaðið - 14.12.1990, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 1990
KGB horfir ekki
aðgerðarlaust á
pólitískar óeirðir
Gorbatsjov æfur vegna skotárásar á blaðamann
Moskvu. Reuter.
VLADÍMÍR Kríjútskov, yfirmað-
ur sovésku öryggislögreglunnar,
KGB, sagði í viðtali sem birtist
í gær að efnahagskreppan í Sov-
étríkjunum væri verri en hann
hefði búist við. Hann sagði að
KGB myndi ekki horfa aðgerðar-
Bretland:
Styður Owen
stjórn Majors?
St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari
Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðs-
ins.
DAVID Owen, leiðtogi breska
Jafnaðarmannaflokksins, er
kominn á fremsta hlunn með að
styðja John Major, hinn nýja for-
sætisráðherra Breta, að því er
breska blaðið The Sunday Times
segir á sunnudag.
Owen hefur lengi verið áhrifa-
maður í breskum stjórnmálum.
Hann hefur ákveðið að hætta þing-
setu í næstu kosningum.
Owen hefur oft sagt, að hann
gengi aldrei í íhaldsflokkinn, en
eftir leiðtogaskiptin nýlega í íhalds-
flokknum hefur flokkurinn nálgast
miðjuna á nýjan leik og hann hefur
aldrei farið dult með stuðning sinn
við John Major.
Stuðningur Owens gæti aðstoðað
íhaldsflokkinn við að ná aftur til
sín miðjufylgi, sem hefur horfið frá
honum á síðustu mánuðum.
ERLENT
I^V
RAYMOND WEIL
GENEVE
L E TEMPS CRÉATEUR
FIDELIO
Sígild hönnun, handunnið,
með 18 K. gullhúð, vatnsþétt.
Einnig til í dömustærð með
eða án steina.
Verð frá kr. 69.000,-.
GltBERT URSMIÐUR
Laugavegi 62, sími: 14100
laus á stjórnmálaóeirðir við þess-
ar aðstæður.
„Þegar skorað er á fólk að
óhlýðnast lögunum, eyðileggja
stjómkerfið, skipuleggja borgara-
lega óhlýðni og vega að táknum
ríkisvaldsins er þá ekki augijóst að
armur laganna eigi að fást við það?“
sagði Kríjútskov í viðtali við dag-
blaðið Prövdu. Hann bætti því við
að hann hefði kvatt til starfa gamla
KGB-liðsmenn sem komnir hefðu
verið á eftirlaun. Þeim væri ætlað
að aðstoða við að beijast gegn efna-
hagslegum glæpum. Einnig yrði
andstæðingum ríkisins engin misk-
unn sýnd. „Því miður er ólöglegt
athæfi, ofbeldi og óstjóm orðið út-
breiddara en við héldum. Það er
engin regla á vörudreifingu. Sum
héruð hafa allt til alls á meðan
önnur líða skort.“
Míkhaíl Gorbatjsov lýsti í gær
reiði sinni yfir skotárás sem gerð
var í fyrrinótt á einn vinsælasta
sjónvarpsfréttamann Sovétríkj-
anna. Alexander Nevzorov sem býr
í Leníngrad hefur um nokkurt skeið
séð um þátt í sjónvarpinu sem heit-
ir „600 sekúndur". A tíu mínútum
sýnir hann svipmyndir úr undir-
heimum sovésks þjóðfélags og hef-
ur með því bakað sér óvild margra.
í fyrrakvöld var hringt í hann og
honum boðnar upplýsingar ef hann
hitti vissan mann í útjaðri
Leníngrad. Þangað fór hann við
þriðja mann en er hann gekk af-
síðis með viðmælanda sínum dró
sá upp byssu og skaut hann í bijóst-
ið. Nevzorov særðist en þó ekki
lífshættulega.
Reuter
Björgunarmenn að störfum í bænum Carlentini á Sikiley í gær en þar var óttast að átta manns hefðu farist.
13 farast í jarð-
skjálfta á Sikiley
Róm. Reuter.
ÞRETTÁN manns, hið minnsta,
fórust í gærmorgun er jarð-
skjálftahrina reið yfir suðaustur-
hluta Sikileyjar. Öflugasti
skjálftinn mældist 4,7 stig á
Richter-kvarða og hermdu frétt-
ir að milljónir manna hefðu flúið
heimili sín.
Fimm skjálftakippir riðu yfir og
varð þeirra vart allt frá borginni
Catania á austurströndinni til bæj-
arins Cela í suðurhlutanum. Sér-
fræðingar kváðu upptökin hafa ver-
ið á hafsbotni um tíu kílómetra frá
bænum Syrakúsu á austurströnd-
inni.
, Síðdegis í gær var talið að 13
manns hefðu farist í bænum Car-
lentini rúma 30 kílómetra suður af
Catania. Lík fimm manna úr níu
manna fjölskyldu fundust í rústun-
um síðdegis í gær. Tugir manna
slösuðust og var vitað um a.m.k.
tvo á lífi í rústum húsa í miðbæ
Rúmenía:
Roman lofar breyting-um
Búkarest. Daily Telegraph.
PETRE Roman, forsætisráð-
herra Rúmeníu, kom í fyrradag
til móts við kröfur verkalýðsfé-
laga og lofaði verulegum breyt-
ingum á stjórn sinni.
Verkalýðsfélögin höfðu hótað
allsheijarverkföllum yrði ekki orðið
við kröfum hennar um að vinnu-
laun hækkuðu til jafns við verðlag
á nauðsynjum. Roman viðurkenndi
að umbótaáætlun stjórnarinnar
hefði ekki skilað þeim árangri sem
vonast hefði verið eftir. Sagði hann
að þinginu yrði falið að endurskoða
áætlunina.
Jafnframt hét hann breytingum
á stjórn sinni og er talið að skipt
verði um ráðherra mennta-, heil-
bijgðis-, mennta- og landbúnaðar-
INNKALLAÐAR
FORLAGSBÆKUR
Bókaþjónustan, Vesturgötu 45, Reykjavík, sími
91 -27870, býöur þér að líta ó bókaúrvalið
Á boðstólum eru ódýrar innkallaðar bækur.
Barna- og unglingabækur, óstarsögur, sjó-
manna- og ævisögur, kvæðabækur o.fl.
^Bjóöum þér einnig frá SögusfeinitV,
íslensk ættfræðisöfn - niðjatöl
1. Húsatóftaætt
2. Gunnhildargerðisætt
3. Galtarætt
4. Knudsensætt l-ll
5. Hallbjarnarætt
6. Reykjaætt l-V
7. Ófeigsfjarðarætt
8. Heiðarsstaðakotsætt
9. Briemsætt l-ll o.fl. o.fl.
LÁGT VERD!
Vertu velkominn ef þú átt leió um
mála. Neitaði Roman að ósætti
væri í stjórninni og að hún riðaði
til falls en eftir því sem nær líður
ársafmæli falls Nicolai Ceausescu
fyrrum einræðisherra hefur spenna
aukist í landinu. Segja talsmenn
verkalýðsfélaganna að sömuleiðis
aukist ágreiningur stjórnarinnar
og Ions Iliescu forseta en þeim
síðarnefnda væri að þakka að ríkis-
stjórnin frestaði í síðustu viku um
hálft ár verðhækkunum á nauð-
synjum.
Carlentini. Kalt var í veðri og úrhell-
isrigning á þessum slóðum og gerði
það allt björgunarstarf erfíðara en
ella.
Talsmenn almannavarna á Ítalíu
sögðu að erfiðlega hefði gengið að
afla nákvæmra upplýsinga um
skemmdir og eignatjón af völdum
jarðskjálftans. Símsamband milli
Rómar og austurhluta Sikileyjar
lagðist af að mestu en nokkrum
neýðarlínum var þó haldið opnum.
Sögðu talsmennirnir að þannig lægi
ekki fyrir hversu margir hefðu
misst heimili sín en í fréttum út-
varpsins sagði að verulegt eignatjón
hefði víða orðið. Milljónir manna
hefðu flúið heimili sín er skjálftarn-
ir riðu yfir og margir hefðu hafst
við í ökutækjum sínum. Þá kom
fram í fréttum að sjúklingar hefðu
verið fluttir af sjúkrahúsinu í bæn-
um Mineo og um 1.500 sakamenn
í bænum Noto hefðu notið frelsis
um stund er múrar fangelsisins þar
hrundu til grunna.
Suðausturhluti Sikileyjar hefur
oftlega orðið illa úti í landskjálftum.
Þannig er talið að um 100.000
manns hafi farist árið 1693 í mikl-
um jarðskjálfta en á síðari tímum
varð manntjón af völdum náttúru-
hamfara mest er um 4.800 manns
fórust í Napolí og nágrenni í nóv-
embermánuði árið 1980.
SIEMENS uppþvottavélar eru velvirkar,
hljóðlátar og sparneytnar.
Breidd: 45 og 60 sm.
Verö frá 57.330,- kr.
SMITH & NORLAND
NÓATÚNI4-SÍMI 28300
!||