Morgunblaðið - 14.12.1990, Blaðsíða 5
ISLENSKA AUCLÍSINCASTOFAN HF.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 1990
5
IÐUNN
VANDAÐAR BÆKUR
♦ f 45 Á R ♦
Undan
illgresinu
Guðrún Helgadóttir
„Strax í íyrsta kafla nær Guðrún að hlaða upp^
spennu og „Undan illgresinu" er spennusaga. I
henni eru leyndardómar og týndir fjársjóðir, sem
ekki kæmi í ljós, nema vegna þess að Marta María
er haldin óseðjandi forvitni og hún er
sannleiksleitandi. En hér er ekki á ferðinni nein
afþreyingarsaga, vegna þess að í henni eru mjög skýr
skilaboð: Þú getur ekki ræktað garðinn þinn, nema
horfast í augu við sannleikann.
Persónusköpun í þessari bók er frábær. . . .
„ . . . Mér finnst þetta ótrúlega góð bók; vel skrifuð,
spennandi, fyndin og skemmtileg . . . strax á síðu 50
var ég farin að kvíða því að ljúka henni. Myndimar
í bókinni eru mjög skemmtilegar og vel gerðar og
undirstrika þann leyndardómsfulla blæ sem yfir
henni er.“
Súsanna Svavarsdóttir í ritdómi í Morgunblaðinu
Æviminningar
IÐUNN
Erlingur Þorsteinsson læknir hefur frá mörgu að segja af
langri og viðburðarfkri leið. Frásögnin er krydduð glettni og
gamansemi, víða er komið við og manna og málefna
minnst af hreinskilni og einurð.
Hann dregur upp persónulega mynd af föður sínum,
Þorsteini Erlingssyni skáldi, og lýsir á eftirminnilegan
hátt æskuheimilinu sem sorgin sótti snemma heim við
fráfall heimilisföðurins. Þar áttu listir, menning og
mannleg hlýja rætur, þangað lögðu margir þjóðkunnir
menn og konur leið sína í dagsins önn, og þeir
sem hjálpar voru þurfi áttu þar öruggt athvarf.
Ur skjóli foreldrahúsanna liggur leiðin til náms og starfa,
og að loknu sérnámi í háls-, nef og eyrnalækningum á
stríðsárunum í Danmörku snýr hann heim reynslunni
ríkari eftir að hafa lent í lífshættulegum ævintýrum þar.
Af alúð og einbeitni tekst hann á við læknisstarfið,
hugðarefnin og baráttumálin. Hér er á ferðinni
frásögn mikils athafnamanns.
VANDAÐAR BÆKUR
♦ í 45 ÁR ♦