Morgunblaðið - 14.12.1990, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 14.12.1990, Blaðsíða 34
SIEMENS CBÓKQFORLflGSBÓK/ Sidnev Sheldon Sidney Shddon \ t j Ife nomalMWKl»w j m t aovtrt, i W haí þekki* þow"0» j fsten&W9 ***" ^18 / haf«te»^r*öok*h#a* j ofiOiinterín *f f Wk fTlartröð /7 iJtÍðHAAttÍ MARTRÖÐ Á MIÐNÆTTI eftir Sidney Sheldon Sidney Sheldon, sem er mest lesni skáldsagnahöfundur i Bandaríkjun- um, sendir nú frá sér nýja skáld- sögu og tekur upp þráðinn um Katrínu Douglas úr bokinni „Fram yfir miðnætti“. Það er grískur auðjöfur, Demiris, sem hefur örlög hennar í hendi sér, en hann þarf einnig að afmó spor sem ekki mega sjóst. Atburðarásin er hröð og spenna míkil, þvi öll ámet Evrópubandalagið: Yfírgnæfandi stuðningur við sam- starf um öryggis- og varnarmál Af könnuninni er ljóst að yfir- gnæfandi meirihluti íbúa banda- lagsins styður markmið ríkis- stjórnarráðstefnanna sem hefjast í Róm um næstu helgi. Minnstur er stuðningurinn við sameiginlega utanríkisstefnu aðildarríkj anna. 51%, en á móti voru 26%. 66% vilja sameiginlega stefnu í örygg- is- og varnarmálum og 64% styðja hugmyndina um frekari völd til Evrópuþingsins. 56% styðja tillög- ur um evrópskan seðlabanka og sama hlutfall telur að Evrópuþing- ið eigi að samþykkja tilnefningu framkvæmdastjómarinnar. 55% vilja sameiginlegan gjaldmiðil. Al- mennt virðast íbúar EB ánægðir með þróun bandalagsins og telja að samkomulag innan EB hafi á síðustu misserum batnað að mun. Stanislaw Tyminski, kaupsýslumaður og frambjóðandi í forsetakosn- _____________ ingunum í Póllandi, kemur til flugvallarins í Toronto í Kanada. Tyminski fær að fara frá Póllandi gegn tryggingu - Walesa segir af sér formennsku í Samstöðu Varsjá, Gdansk. Reuter. STANISLAW Tyminski, sem tap- aði fyrir Lech Walesa í síðari umferð forsetakosninganna í Póll- andi á sunnudag, kom til Kanada í gær eftir að hann hafði lagt fram 100.000 dollara tryggingu fyrir því að hann sneri aftur til að svara til saka í meiðyrðamáli sem höfðað hefur verið á hendur honum vegná ummæla hans um Tadeusz Mazowiecki forsætisráðherra. Þessi umdeildi kaupsýslumaður, sem náði óvæntum árangri í fyrri umferð kosninganna og olli miklu uppnámi í pólskum stjórnmálum, var umkringdur af stuðningsmönnum sínum og andstæðingum, þegar hann kom til flugstöðvarinnar á Varsjár- flugvelli á leið til Kanada. „Pólland er með þér,“ kallaði hópur stuðnings- manna og afhenti honum stóran vönd af nellikkum í pólsku fánalitunum. „Farðu til þíns heima,“ kölluðu nokkrir aðrir í kór, „burt með komm- únismann,“ bættu þeir við og vitnuðu þar til orða Walesa um að Tyminski hefði notið stuðnings fyrrverandi yfirmanna í öryggislögreglu komm- únista. Tyminski var yfirheyrður í þijár og hálfa klukkustund hjá saksóknara á þriðjudag og á yfir höfði sér allt að átta ára fangelsi verði hann fund- inn sekur um meiðyrði í garð Mazowieckis forsætisráðherra. Hann sagði að honum hefði verið leyft að fara úr landi eftir að hann lagði fram 100.000 dollara tryggingu fyrir því að hann sneri aftur til Póllands 5. janúar til að standa fyrir máli sínu. „En ég endurtek það sem ég hef áður sagt,“ sagði hann við frétta- menn, „orð mín standa óhögguð." Lech Walesa lét á þriðjudag af embætti formanns Samstöðu. Hann lagði til að gamall baráttufélagi í samtökunum, Bogdan Borusewicz, yrði eftirmaður hans þar til for- mannskosningar færu fram. Bor- usewicz vildi ekki taka formanns- starfið að sér. Búist var við að annar tveggja varaformanna Samstöðu, Lech Karzynski eða Stefan Jurczak, yrði tilnefndur í embættið. Jaruzelski hérshöfðingi, fyrrum leiðtogi kommúnistaflokksins, sagði í sjónvarpsræðu nýlega að pólska þjóðin hefði orðið að þola miklar þjáningar og óréttlæti. „Það þykir ef til vill þunnur þrettándi þó að ég segist harma það, en mér dettur ekkert annað orð í hug.“ Fjölhœf hrœrivél! MK 4450 Blandari, grænmetiskvöm og hakka- vél fylgja með. • Allt á einum armi. • Hrærir, þeytir, hnoðar, blandar, brytjar, rífur, hakkar og sker. • ísl. leiðarvísir og uppskriftahefti. • Einstakt verð: 13.960 kr. SMrTH&NORLAND NÓATÚNI4 - SÍMI28300 Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttantara Morgunblaðsins. SAMKVÆMT skoðanakönnun, sem birt var í Brussel fyrr í vikunni, styðja 70% íbúa Evr- ópubandalagsins (EB) hug- myndir um stofnun sérstaks varnarbandalags innan EB. Helmingur þeirra sem tók þátt í könnuninni taldi að setja ætti á stofn sérstakar hraðsveitir hermanna á vegum bandalags- ins. I könnuninni kom fram al- mennt meiri stuðningur við EB og markmið þess en áður og 69% aðspurðra töldu aðildina að EB af hinu góða. Niðurstöður könnunarinnar um öryggis- og varnarmál hljóta að teljast mjög athyglisverðar en inn- an EB hafa verið skiptar skoðanir um hlutverk bandalagsins í þess- um efnum. Það er t.d. eitt af skil- yrðum Svía fyrir umsókn um aðild að EB að öryggis- og varnarmál- um verði haldið utan við bandalag- ið. í könnuninni sem gerð var í október og nóvember í öllum aðild- arríkjunum var m.a. spurt um mat fólks á yfirvofandi ófriðarhættu við Persaflóa. í ljós kom að 62% Breta telja miklar líkur á styijöld á næstu tólf mánuðum en einung- is 25% Þjóðveija. Fyrir bandalagið allt var niðurstaðan sú að 39% töldu miklar líkur á ófriði en 42% voru mjög efins um að til styijald- ar drægi við Persaflóa. Af könnuninni er ljóst að Danir eru mun ánægðari innan EB en áður. 58% þeirra styðja aðildina en fyrir sex mánuðum var þetta hlutfall 48%. Mestur er stuðning- urinn við EB í Hollandi, 82% en íbúar hins gamla Austur-Þýska- lands eiga þó vinninginn en þar reyndist stuðningur við aðild að EB 84% en í heild styðja 73% Þjóð- veija aðildina að EB. ixmm Tóbaksreyk verði skipað í flokk verstu eiturefna Flórída. Frá Atla Steinarssyni, frétta- ritara Morgunblaösins. SÉRSTÖK ncfnd bandarískra vísindamanna hefur kveðið upp þann úrskurð, að tóbaks- reykur frá fólki sem reykir geti valdið lungnakrabba hjá þeim sem ekki reykja en eru samvistum við reykingahóp- inn. Sérfræðingarnir segja að um- hverfisverndarráð Bandaríkjanna eigi að skipa tóbaksreyk í „A- flokk eiturefna" því hann sé í hópi 15 hættulegustu eiturefna ásamt asbesti, radon og bensóli vegna krabbameinshættunnar sem af honum stafar. Þessi ráðgjafamefnd umhverf- isvemdarráðsins samþykkti orða- lag í uppkasti að skýrslu um- hverfisvemdarráðsins sem birt var í fyrra, en þar segir að tó- baksreykur frá reykingafólki geti einnig valdið öndunarsjúkdómum hjá börnum. Samtök sem beijast gegn reykingum hafa fagnað þessari niðurstöðu og búast má við að hún hafí mikil áhrif á vinnustöð- um. ‘tmnzM ‘firsisrNs* ai öia>
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.