Morgunblaðið - 14.12.1990, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 14.12.1990, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUÐAGUR. 14. DESEMBER 1990 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Árvakur, Reykjavík HaraldurSveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, ÁrniJörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1100 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 100 kr. eintakið. Ohugnaður í Kúvæt Töluverð áhersla virðist nú lögð á að finna pólitíska lausn er leiði til þess að Sadd- am Hussein, einræðisherra í írak, kalli herafla sinn á brott frá Kúvæt. Samkvæmt sam- þykkt öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna er svigrúm fram til 15. janúar til að ná slíku sam- komulagi en eftir þann tíma brýtur það ekki i bága við ályktanir öryggisráðsins, þótt hervaldi yrði beitt til að ná Kúvæt úr höndum Husseins. Ógjömingur er að segja um það á þessu stigi, hvort samn- ingar takist. Sumir telja, að komist Hussein upp með of- beldið sem hann hefur sýnt og nái ef til vill að halda eftir hluta af Kúvæt hafi hann náð mark- miði sínu. Hann hafi slegið sig til riddara meðal arabaþjóða sem sá leiðtogi þeirra er bauð heiminum byrginn og komst upp með það. Hann hafí ekki hopað andspænis óvígum her Vesturlanda. Stríð íraka og írana og innrásin í Kúvæt yrðu þó áfram víti til varnaðar og svo kynni að fara, að vestrænn herafli yrði um kyrrt á Arabíu- skaga Hussein til viðvörunar. ísraelar teldu öryggi sitt síður en svo meira eftir en áður. Vangaveltur af þessu tagi eiga rétt á sér á meðan rætt er um framvindu mála við Persaflóa í því öryggi sem ríkir fjarri svæðinu. I Irak og Kúvæt ríkir hins vegar ógnarstjóm á meðan Hussein fer sípu fram þar. Lýsingar blaðamanns Morgunblaðsins á ástandinu í Bagdad endurspegla sálar- ástand fólksins sem verður að þola stjórnarhætti Husseins. Viðmælandi blaðsins sagðist fyrirlíta töku gíslanna og inn- rásina og bætti við: „Græðgi og mannvonska, og Guð hjálpi mér og fjölskyldu minni ef þú birtir þetta undir nafni.“ Lýsingar Gísla Sigurðssonar læknis á ástandinu í Kúvæt hafa vakið heimsathygli. Hann hefur augljóslega verið í iífshættu sjálfur ekki síður en fólkið sem hann lýsir. Hann stóð frammi fyrir því eins og aðrir í Kúvæt, að írösku her- mennirnir skutu á fólk til að drepa og af tilefnislausu eins og þessi frásögn Gísla ber með sér: „Eg man til dæmis vel eftir einum Kúvæta. Hann hafði staðið í tvær stundir í biðröð við bakarí til að kaupa brauð þegar nokkrir íraskir hermenn komu þar að og tróðu sér framarlega í röðina. Hann mótmælti því og benti þeim á að fara aftast í röðina. Hann galt þess með því að þeir drógu hann út úr röðinni og skutu hann í brjóst og kvið.“ Lýsingar af þessu tagi og frásagnir af því að írakar hirði allt steini léttara í Kúvæt og flytji á brott sýna ekki annað en að nauðsynlegt er að grípa hið fyrsta til ráða sem duga til að losa íbúa landsins undan ofríki og ofbeldi Husseins. Efa- semdir hljóta að vakna um, hvort nokkum tíma sé unnt að semja við þann sem lætur her sinn ganga fram með þess- um hætti. Með því að sleppa gíslum er Hussein ekki að hugsa um öryggi þeirra eða tilfínningar fjölskyldnanna sem bíða á milli vonar og ótta. í hans huga er um áróðurs- bragð að ræða sem hann ætlar að beita til að knýja fram ofrík- isfullan vilja sinn gagnvart þeim sem hafa sett honum skorður í krafti samþykkta Sameinuðu þjóðanna. Það er mikill vandi að glíma við einræðisherra á borð við Hussein og . tvískinnungur í þeim samskiptum kemur fljótt í ljós. Má þar minna á opinbera afstöðu Frelsissamtaka Pal- estínumanna (PLO) undir for- ystu Yassers Arafats, sem vilja eiga gott samband við Hussein og horfa jafnvel framhjá örlög- um hundruða þúsunda Pal- estínumanna sem hann er að hrekja frá Kúvæt. Það dugar ekki alltaf að heiðra skálkinn. Á næstu dögum kemur í ljós, hvort unnt reynist að losa íbúa Kúvæts við blóðugan innrásar- herinn með friðsamlegum hætti. Gífurlegur herafli hefur verið dreginn saman umhverfis írak. Líkurnar á að honum verði beitt aukast dag frá degi. Taugaspennan á stjórnmála- sviðinu verður í hámarki um hátíðarnar. Hingað til hefur andstæðingum Husseins geng- ið ótrúlega vel að samræma sjónarmið sín og viðbrögð, hann á sér enga öfluga formæl- endur. Þeim íjölgar ekki við að kynnast frásögnum Gísla Sigurðssonar læknis af óöld- inni í Kúvæt. MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 1990 39 Fríverslun og fjárhagsaðstoð aust- ur eða flóttamaimastraumur vestur eftirJón Sigurðsson I. Ástæður efnahagsvandans Hagkerfi landanna í Mið- og Austur-Evrópu eru að hruni komin af því að valdstjórnarbýskapur að hætti kommúnismans hefur verið yfírgefinn áður en markaðsbúskap- arhættir eru komnir á eða hafa feng- ið staðfestingu í stjórnskipulaginu. Efnahagur þessara landa er að hruni kominn vegna þess að sú víðtæka samvinna og samstilling í framleiðslu og dreifingu sem nauð- synleg er hagkerfi sem byggir á verkaskiptingu og sérhæfíngu, sprettur ekki af sjálfri sér. Annað hvort þarf valdsstjórn til að knýja hana fram með góðu eða illu eða hún er löðuð fram af hvatningum verðkerfís í í'tjálsum markaðsbú- skap. Hrunið verður ef hagkerfið er lengi á milli vita — á gráu svæði — þar sem hvorki vald né verð ræður för. Svipað ástand ríkti eftir stríðið í Þýskalandi áður en endurreisnar- starfið hófst. Nánari skýringar á þessu ófremd- arástandi má gefa í þrennu lagi: 1. Arfleifðin frá óstjórn kommún- ismans. Atvinnuvegir þessara ríkja eru einfaldlega óhagkvæmir og ósam- keppnisfærir. Það kemur í ljós þegar markaðsverð og samkeppni fá loks- ins að miðla réttum upplýsingum um verð og framleiðslukostnað. Sam- dráttur í framleiðslu og erfið aðlögun að honum er því óhjákvæmileg í fyrstu. Úr sér gengin fjarskipta- og sam- göngukerfí valda stöðugum töfum í atvinnulífínu og koma jafnvel í veg fyrir eðlilega dreifíngu á hráefnum, framleiðsluvöru og matvælum. Mengun og umhverfisspjöll eru miklu alvarlegri í ríkjum Mið- og Austur-Evrópu og fyrirtækjum hef- ur liðist að níðast á umhverfinu með úreltum framleiðsluaðferðum. Strangari kröfur í þessum efnum kalla nú á lausnir og ijármagn sem erfitt er að finna. Utanríkisviðskipti ríkjanna hafa einkum verið við önnur austantjalds- ríki og hafa byggst á miðstýringu og falskri verðmyndun. Endalok þessa fyrirkomulags í árslok 1990 kippa fótunum undan fjölmörgum útflutningsfyrirtækjum f þessum löndum. Stór hluti útlána í bönkum eru í vanskilum og allt að 60% í sumum ríkjanna. Bankamir geta því alls ekki fjármagnað nauðsynlega ný- sköpun í atvinnulífínu. Gömlu lánin — pólitísku lánin — eru einfaldlega að sliga bankana. Þrúgandi erlendar skuldir þrengja svigrúm margra þessara þjóða til efnahagsframfara. Áætlað er að Búlgaría, Pólland og Ungveijaland þyrftu að veija 3-5% af landsfram- leiðslu sinni til að borga af skuldum sínum til Vesturlanda. Á sama tíma þurfa þessi ríki á öllu handbæru fé sem og auknu lánsfé að halda til endurreisnarstarfsins. Erlendu lánin voru tekin á tímum fyrri stjórna til þess eins að halda efnahagslífínu gangandi og þeim sjálfum við stjórn- völinn þrátt fyrir óstjómina án þess að gripið væri til raunhæfra aðgerða til að breyta efnahagskerfínu. Synd- ir feðranna koma nú af fullum þunga niður á hinum nýfijálsu ríkjum. 2. Ómarkvissar umbótaáætlanir á fyrri árum. Hálfkák við breytingar á hagkerf- um í ríkjum Mið- og Austur-Evrópu á fyrri árum gerði oft og tíðum illt verra. Ábyrgðarlausum aðilum voru fengin yfírráð yfír fyrirtækjum í valddreifíngartilraunum kommún- ista. Slíkar breytingar hafa valdið ringulreið og vöruskorti, ekki síst í Sovétríkjunum. Hagkerfíð þar er nú í upplausn og allt á tjá og tundri. 3. Versnandi ytri skilyrði. Ofan á þennan tvíþætta vanda úr fortíðinni bætast svo áföll í ytri skilyrðum efnahagslífsins sem auka enn á efnahagsvandann: Ringulreiðin í Sovétríkjunum veldur hinum ríkjunum í Mið- og Austur-Evrópu miklum erfiðleikum vegna þeirra miklu viðskipta sem hafa verið á milli þessara ríkja. Al- mennt öryggisleysi einkennir við- skipta- og atvinnulíf landanna allra. Um næstu áramót verður tekið upp heimsmarkaðsverð og uppgjör í vestrænum gjaldmiðli í innbyrðis- viðskiptum ríkja Mið- og Austur- Evrópu. Þá verða miklar breytingar á greiðslufyrirkomulagi og verð- myndun sem munu valda versnandi viðskiptakjörum og miklum efna- hagsvanda í Búlgaríu, Póllandi, Rúmeníu, Tékkóslóvakíu og Ung- veijalandi. Þessi breyting á fyrir- komulagi viðskiptanna er hins vegar í senn óhjákvæmileg og bráðnauð- synleg. Hækkun olíuverðs og óvissa um þróun þess vegna Persaflóadeilunnar gerir umbreytinguna í ríkjum Mið- og Austur-Evrópu enn erfíðari en eila. Þar við bætist að írakar skulda sumum þessara ríkja mikið fé og standa ekki í skilum. Þannig mun Búlgaría eiga 1-2 milljarða dollara inni hjá írökum. Eftirspurn eftir lánsfé hefur auk- ist á alþjóðalánamarkaði á sama tíma og dregið hefur úr framboði vegna minnkandi greiðsluafgangs Japans og Þýskalands. Jafnframt hefur verðbólga farið vaxandi í heiminum. Þetta hefur þegar leitt til aukins vaxtakostnaðar fyrir ríki Mið- og Austur-Evrópu og kann að torvelda aðgang þeirra að lánsijár- magni. II. Nauðsynlegar breytingar í ríkjum Mið- og Austur-Evrópu 1. Stjórnmálaóvissa. Ríki Mið- og Austur-Evrópu glíma öll við sams konar vandamál, og að nokkru leyti sameiginleg vandamál, en jafnframt er efnahags- og stjórn- málaástand í löndunum nokkuð mis- munandi. í Póllandi og Ungveijalandi hafa þegar verið gerðar mikilvægar breytingar á hagkerfinu. í Búlgaríu og Rúmeníu er hafin framkvæmd umbótaáætlana. en í Tékkóslóvakíu hefur til þessa verið farið hægt í sakimar. Innan Sovétríkjanna hefur enn sem komið er reynst erfitt að sammælast um það hvernig staðið skuli að breytingum á hagstjórn. Þarlend stjórnvöld hafa þó þegar ákveðið að sækja um aðild að Al- þjóða gjaldeyrissjóðnum og Alþjóða- bankanum. Það veyður að teljast fyrsta stóra skrefið í átt til markaðs- væðingar í utanríkisviðskiptum sem er skilyrði fyrir aðild að þessum stofnunum. Þótt mikilvæg fyrstu skref hafi verið stigin í átt til lýðræðis og þing- ræðis í ríkjum Mið- og Austur-Evr- ópu ráða stjórnkerfi þessara ríkja illa við stórfelldar hagkerfisbreyt- ingar við þessar erfiðu aðstæður. Einna erfiðast er að almenningur gerir sér allt of miklar vonir um skjótar framfarir og kjarabætur Ioks þegar oki kommúnismans hefur ver- ið aflétt. Þolinmæði almennings er því trúlega af skornum skammti. Sem dæmi má nefna að forsetafram- bjóðandi í Póllandi lofaði betri tíð þegar innan eins mánaðar en á Vest- urlöndum og víða meðal sérfræðinga í ríkjum Mið- og Austur-Evrópu er rætt um að það taki áratugi að koma efnahagsstarfseminni í það gott horf að lífskjör verði svipuð því sem gcng- ur og gerist á Vesturlöndum. Þá má ekki gleyma því að alls konar hagsmuna- og þrýstihópar láta til sín taka í stjórnmálum þegar lýðræðislegir stjórnarhættir eru inn- leiddir og þá yfirleitt til þess að vernda gamalgróna sérhagsmuni og koma í veg fyrir breytingar. Eitt af erfiðustu verkefnum nýrra ríkisstjórna er að glæða skilning al- mennings á nauðsyn breytinganna og sætta fólk við fórnirnar sem fyrst um sinn þarf að færa til þess að koma umbótum í framkvæmd. Þetta er án alls efa þyngsta þrautin. Fæð- ingarhríðir lýðræðisins í þessum ný- fijálsu ríkjum eru harðar og' leiðin til valda gæti verið greið fyrir ópr- úttna lýðskrumara. Við bæti^t svo sá stjórnmálavandi sem leiðir af sjálfstæðisviðleitni einstakra ríkja og sjálfstjórnarsvæða, einkum í Sov- étríkjunum og Júgóslavíu en að nokkru leyti einnig í Tékkóslóvakíu. Meginskýringin á erfíðu og óvissu stjórnmálaástandi í ríkjum Mið- og Austur-Evrópu er ef til vill sú að kostnaðurinn við umbætur í efna- hagsmálum kemur strax niður á lífskjörum almennings þegar fram- leiðslan minnkar. Það leiðir til vax- andi atvinnuleysis og dulin verðbólga kemur fram í dagsljósið. Hins vegar fellur ávinningurinn af umbótunum ekki til fyrr en síðar og fyrir margan manninn er erfitt að sætta sig við illa skilgreindan og óvissan fram- tíðarábata fyrir.áþreifanlegar fórnir. Þetta er auðvitað skýringin á því Jón Sigurðsson augljósir. Það fjármagn sem greitt er fyrir eignirnar verður einfaldlgga að taka úr umferð til þess að koma í veg fyrir óðaverðbólgu. Sala stórfyrirtækja kallar á meiri undirbúning og kæmi í öðrum áfanga og er vandasamt mál. I ar hafa menn bæði áhyggjur af erlend- um yfirráðum og ósanngjarnri verð- myndun. Það er hins vegar vafa- laust að þær áhyggjur eru algjört aukaatriði þegar horft er á nauðsyn þess að koma á hvetjandi hagskipu- lagi og eignarhaldi til þess að auka hagkvæmni framleiðslunnar. Ein leið er sú að dreifa hlutum í ríkisfyrirtækjum til almennirigs án endurgjalds. Slíkt er tiltölulega auð- velt í framkvæmd og eflir einkavæð- ingu í sessi meðal íbúanna en hefur þann mikla ókost að eignaraðild verður svo dreifð að stjórnendur fyr- irtækjanna fá ekkert raunverulegt aðhald frá eigendum þeirra. Önnur leið er að selja fyrirtækin ■ Dagana 28.—30. nóvember gekkst Efnahagss- amvinnu- og framfarastofnunin (OECD) í sam- vinnu við Alþjóðabankann fyrir ráðstefnu í París um leiðir til að koma á fót og efla markaðsbú- skap í ríkjum Mið- og Austur-Evrópu. Það var nýstofnuð miðstöð OECD fyrir þessi mál (Centre for Co-operation with European Economies in Transition) sem hafði veg og vanda af undirbúningi þessarar ráðstefnu. Megintil- gangur hennar var að draga saman úr sem flest- um áttum reynslu og þekkingu um hagþróun sem gæti nýst þessum þjóðum við að komast á fram- farabraut. Þátttakendur voru ráðherrar og aðr- ir stjórnmálamenn úr austri og vestri, visinda- menn og sérfræðingar, bæði frá háskólum og sljórnarstofnunum einstakra ríkja og alþjóða- stofnana auk fulltrúa atvinnurekenda og verka- lýðshreyfinga. Þátttakendur voru um 200 tals- ins, en þetta var í fyrsta sinn sem fulltrúar allra Mið- og Austur-Evrópuríkja tóku þátt í opinberu fundahaldi á vegum OECD. I þessari grein er fjallað um ýmis mikilvæg atriði sem fram komu á ráðstefnunni og er þar meðal annars byggt á óformlegri samantekt eft- ir prófessor Paul Marer. Greinarhöfundur var einn stjórnenda ráðstefnunnar. Ársins 1990 verður minnst fyrir það að þá hrundi kerfi kommúnismans til grunna. Atburð- ir ársins hafa leitt í ljós að efnahagsástandið í ríkjum Mið- og Austur-Evrópu er ískyggilegt og fer versnandi. Yfir þeim vofir vöruskortur, at- vinnuleysi og verðbólga og almennt öryggisleysi um eigin afkomu og framtíð þjakar fólkið. Veru- leg hætta virðist á því að stjórnmálaþróunin geti snúist gegn umbótaöflunum, ef þau fá ekki stuðning frá Vesturlöndum. Hvaða leiðir eru færar út úr þessum ógöngum? Þótt meginstefn- an sé ljós, eru svörin vandfundin í einstökum atriðum. að flestir íbúar landanna eru mót- fallnir þeim einstöku aðgerðum sem þarf til að gera efnahagsumbætur að veruleika þótt almennur stuðn- ingur sé víð breytingar í átt til mark- aðshagkerfis. 2. Efnahagsumbætur. Fræðimenn og aðrir sem fjallað hafa um þróunina í ríkjum Mið- og Austur-Evrópu virðast almennt sam- mála um að raunverulegar úrbætur í efnahagsmálum í þessum ríkjum felist í aðgerðum á fjórum megin- sviðum. í fyrsta lagi þarf að ná pólitískri samstöðu um umbæturnar og draga úr væntingum almennings. í öðru lagi þarf að skapa jafnvægi í efnahagsmálum og afnenia ýmiss konar höft, t.d. í verðlags- og gjald- eyrismálum. í þriðja lagi þarf að einkavæða framleiðslu- og þjónustu- fyrirtæki og mynda eignarrétt ein- staklinga í þjóðfélaginu. Og í fjórða lagi þarf að koma til ijármagn, tækni- og stjórnunarþekking frá Vesturlöndum. Innan þessara fjög- urra meginflokka má svo greina fjöl- mörg atriði og skulu hér nokkur nefnd: Ná þarf jafnvægi í peningamálum til þess að halda aftur af verðbólgu sem blossar upp um leið og verðlag er gefið fijálst og dregið er úr niður- greiðslum. Beita þarf aðhaldi í ríkisfjármál- um og minnka hlut ríkisins í þjóðar- búskapnum. Koma þarf á nútíma- skattkerfi sem bætir ráðstöfun al- mannafjár og hvetur til sparnaðar og Ijárfestingar jafnframt því sem það letur ekki menn til vinnu. Skrá þarf gengi gjaldmiðla með raunhæfum hætti og afnema gjald- eyrishöft, a.m.k. þau sem tengjast viðskiptum með vöru og þjónustu. Koma þarf á fijálsum milliríkja- viðskiptum með vöru og þjónustu ög greiða fyrir fjárfestingu erlendra aðila með rýmri reglum. Koma þarf á virkri samkeppni í framleiðslu og viðskiptum. Það má gera með því að skipta fyrirtækjum í landbúnaði og iðnaði í smærri ein- ingar og með því að opna fyrir sam- keppni frá útlöndum. Stuðla þarf að hreyfanleika fjár- magns og vinnuafls innanlands. Fyrirtæki þurfa að búa við stöð- ugt rekstrarumhverfi, t.d. hvað varð- ar opinbera stjórnsýslu, viðskipta- reglur, lánamál, skatta og gengis- skráningu. Lögleiða þarf vel skilgreindar og framkvæmanlegar reglur um eign- arrétt og viðskiptasamninga. Hverfa þarf frá því fyrirkomulagi að ríkið sé aðaleigandi framleiðslu- tækjanna. Meiri hluti atvinnufyrir- tækja verður að vera óháður ríkinu. Til þess þarf umfangsmikla einka- væðingu og auðvelda þarf stofnun og slit fyrirtækja. Bæta þarf rekstur þeirra fyrir- tækja sem áfram verða í eigu ríkis- ins, bæði með bættri fjármálastjórn og endurskipulagningu. Ríkið á að beita sér að endurskipulagningu og einkavæðingu atvinnulífsins. Koma þarf á laggirnar virku ör- yggisneti — almannatryggingakerfi — sem þó dregur ekki úr vinnuvilja og framtakssemi. Þetta er sérlega mikilvægt á fyrsta stigi breyting- anna til þess að hlífa þeim sem harð- ast verða úti. Öll eru þessi atriði samslungin en vónlaust er fyrir stjórnvöld í þesgum ríkjum að hefja strax markvissar aðgerðir á öllum sviðum í senn. Nauðsynlegt er að grípa nú þegar til jafnvægisaðgerða í efnahagsmál- um og hefja róttækar skipulagsum- bætur en hins vegar mun líða langur tími þar til þær fara að skila fullum árangri. Samstaða virðist um að helja þurfi einkavæðingu í hagkerfínu sem fyrst en deildar meiningar eru um bestu leiðina að því marki. Mest aðkall- andi í sumum landanna, t.d. í Sov- étríkjunum, er að „þurrka“ upp of- gnótt peningaeigna, sem safnast hafa upp vegna vöruskorts. Þar er nærtækast að selja íbúðarhúsnæði, bújarðir, smáfyrirtæki o.þ.h., þar sem einkahagsmunir eru beinir og til innlendra jafnt sem erlendra aðila en þá þarf að verðleggja fyrirtækin. Það kann að reynast erfitt auk þess sem þau kunna þá að lenda í höndum þeirra aðila sem efnuðust í skjóli kommúnistaklíkunnar á sínum tíma. Þriðja meginleiðin er sú að stofna nokkur eignarhaldsfélög sem eiga ríkisfyrirtækin og veita stjórnendum þeirra aðhald og dreifa síðan hlutum í eignarhaldsfélögunum til almenn- ings. III. Lærdómur reynslunnar frá Vesturlöndum Sú spurning vaknar að hve miklu leyti reynsla OECD-ríkjanna eftir seinni heimsstyijöld er lærdóinsrík fyrir þessi lönd og brúkleg sem fyrir- mynd við gerð og framkvæmd um- bótaáætlana í ríkjum Mið- og Austur-Evrópu. Bent hefur verið á að þessi reynsla hefði takmarkað gildi — en gildi þó — í þessu sam- bandi. Endurreisnarstarfið í Þýska- landi eftir stríð þar sem markaðsbú- skap var komið á með skjótum hætti getur að nokkru leyti verið fyrir- mynd. Nær okkur í tímanum eru svo lög, reglur og stofnanir EB, sem geta verið mikilvægar fyrirmyndir, þar sem innan vébanda EB hefur verði lögð í það mikil vinna að sam- ræma reglur og gera markaðshag- kerfið virkt. Dæmi Spánar er sérlega lærdómsríkt en þar hefur aðildin að EB gegnt miklu hlutverki við far- sæla umbreytingu hagkerfisins frá ofstjórn Franco-tímabilsins til fijálsra viðskiptahátta. Við þetta bætist svo að flest af ríkjunum í Mið- og Austur-Evrópu hafa hug á nánum tengslum eða jafnvel aðild að EB. Ástæða er til þess að gera sér grein fyrir því að ríki Mið- og Austur-Evrópu búa við allt aðrar aðstæður en OECD-löndin eftir stríð: í OECD löndum var meginvið- fangsefnið eftir heimsstyijöldina síðari að endurreisa efnahagskerfi fyrirstríðsáranna. Ríki Mið- og Áustur-Evrópu byggja ekki á sama grunni hvað varðar einkaframtak, markaðsbúskap eða lýðræðishefðir. Þar hafa 2 kynslóðir vaxið úr grasi sem ekki þekkja annað en hið komm- úníska kerfi. Stjórnmálaástandið í ríkjum Mið- og Austur-Evrópu er nú allt annað en var í OECD-löndunum eftir stríðið. í þeim löndum var almenn- ingur nægusamari og var ekki hald- inn miklum væntingum um skjót- fengnar kjarabætur, þótt menn væru bjartsýnni á framtíðina eftir að frið- ur komst á. Nú eru væntingar al- mennings í ríkjum Mið- og Austur- Evrópu miklar um stórbætt lífskjör um leið og markaðsbúskapur er inn- leiddur. Þetta er skiljanlegt þar sem fóikið í þessum löndum hefur beðið lengi eftir betri tíð og hefur daglega fyrir augum í sjónvarpi allsnægta- samfélag Vesturlanda. Þá skiptir einnig miklu máli að hið alþjóðlega efnahagskerfi er nú annað en var við stríðslok. Þótt al- þjóðaviðskipti séu nú meiri eru líka við lýði lokaðar viðskiptablokkir sem ríki Mið- og Austur-Evrópu eiga ekki sjálfkrafa aðgang að. Þá eru nú blikur á lofti á alþjóðlegum fjár- magnsmörkuðum sem geta tafið fyr- ir fjártnögnun nauðsynlegra fram- kvæmda. Af öllu þessu má draga þá álykt- un að umbæturnar í ríkjunum í Mið- og Austur-Evrópu eftir gjaldþrot kommúnismans verði vandasamari og seinlegri en hjá OECD-löndunum eftir stríð. Þar er því varla að leita margra fyrirmynda, ef til vill væri ekki síður gagnlegt að líta til efna- hagsumbóta í ýmsum þróunarríkj- anna. IV. Aðstoð frá Vesturlöndum „Marshall plan or martial law.“ „Hjálp að vestan eða herlög" hefur heyrst þegar rætt er um þörfina fyrir aðstoð frá Vesturlöndum. Aðrir spá því að hið skuggalega útlit í ríkjum Mið- og Austur-Evrópu leiði til þess að óánægt fólk flykkist unn- vörpum vestur yfir í leit að betri lífskjörum fyrir sig og sína. Fram- undan sé mikill flóttamannastraum- ur þegar ferðabanni þessara þjóða verði loksins aflétt. Það liggur í augum uppi að Vest- urlönd eiga að gera það sem í þeirra valdi stendur til að styðja umbótaöfl- in í þessum löndum, ekki eingöngu af mannúðarástæðum heldur einnig af eigingjörnum hvötum. Það er ein- faldlega ódýrara að flytja fjátmagn- ið austur en að fá flóttamenn í stríðum straumum vestur. Liðsinni Vesturlanda ætti að taka mið af eftirtöldum atriðum: Fyrst og fremst að gefa ríkjum Mið- og Austur-Evrópu fijálsan að- gang að markaði Vesturlanda fyrir útflutningsvörur sínar. Vera viðbúin að veita matar-, lyfja- og mannúðarhjálp í stórum ■ stíl á næstunni. Veita tímabundna fjárhagsaðstoð þegar í stað til þess að komast yfir fyrsta hjallann í aðlögun að breytt- um aðstæðum, hnmi sovéska hag- kerfísins, hækkandi olíuverði og vöxtum. Endurskipuleggja skuldabyrði ríkja Mið- og Austur-Evrópu, en skuldbreytingar og lánalengingar eru óumflýjanlegar. Veita nýju lánsfé til þessara landa, ekki síst til þess að skapa tiltrú hjá væntanlegum fjárfestendum. Veita tækniaðstoð og ráðgjöf á stjórnmálasviðinu og í atvinnu- og efnahagslífi. Vesturlönd hafa þegar ákveðið að verða ríkjum Mið- og Austur-Evrópu að liði á ýmsan hátt. Einn liður í því var stofnun Endurreisnar- og þróunarbanka Evrópu sem gagngert er ætlað að veita þessurn þjóðum fjárhags- og sérfræðiaðstoð við end- urreisnarstarfið og einkavæðinguna. ísland er einn af stofnendum bank- ans og hefur ríkisstjórnin óskað eft- ir staðfestingu Alþingis á þeirri ákvörðun, og er þess að vænta að hún verði veitt fyrir jólahlé þingsins. Stuðningur Vesturlanda er vissu- lega mikilvægur en mikilvægast er þó að ríki Mið- og Austur-Evrópu taki sjálf á vandamálum sínum. Stuðningur utan að má aldrei verða til þess að tefja eða fresta óhjá- kvæmilegum breytingum. Höfundur er iðnadar- og viðskiptaráðherra. Tölvunefnd afgreiddi 118 umsóknir á síðasta ári: Flest erindi varða heilbrigðismál í ÁRSSKÝRSLU Tölvunefndar fyrir árið 1989, sem er nýkomin út, kemur fram að á árinu árust nefndinni alls 107 erindi og umsóknir en óafgreidd erindi og umsóknir frá fyrra ári voru 21. Til afgreiðslu á árinu voru því 128 mál. Þar af voru 118 afgreidd en 10 málum var vísað til viðtakandi nefndar á næsta ári. Erindi varðandi heil- brigðismál eru sá málaflokkur sem nefndin sinnir mest og leyfi til markaðs- og skoðanakannana eru einnig umfangsmikill málaflokk- ur. Kostnaður af starfi nefndarinnar á árinu 1989 var alls 2.073 þús. kr., þar af var launakostnaður 1.705 þús. kr. en fjárveiting á fjárlögum var 1.874 þús. kr. Tölvunefnd veitt alls 18 leyfí til samtengingar skráa á árinu. Þ.á.m. var heimild til Bifreiðaskoðunar ís- lands að tengja ökutækjaskrá við skrá um tekjubókhald ríkisins um álögð bifreiðagjöld, sameiginlega skrá tryggingafélaganna yfir öku- tækjatryggingar Qg veðbandaskrá þinglýsingarembætta. Jóni Hrafn- kelssyni, lækni á geðdeild Landspít- alans, var heimilað að gera skrá á vegum geðdeildarinnar úr gögnum hennar um skizofren sjúklinga og samkeyra þá skrá við krabbameins- skrá Krabbameinsfélags íslands með ákveðnum skilyrðum um að útmá öll persónuauðkenni að sam- keyrslu lokinni. Aðgangur að skrám Veitt voru tvö leyfí til vinnslu og geymslu gagna erlendis ogývö starfsleyfí til tölvuþjónustu. Átta aðilum var veittur aðgangur ■ að þjóðskrá og fleiri skrám til útsend- ingar dreifibréfa, áróðursbréfa o.þ.h. Meðal þeirra voru Hótel Borg sem fékk leyfi til að fá útskrift úr nemendaskrá Háskóla íslands til að senda nemendum upplýsingar um það sem væri að gerast á skemmtistaðnum. Prentsmiðjunni Odda var veitt heimild til að fá út- skrift á nöfnum og heimilisföngum tölvunarfræðinema í Háskóla Is- lands skv. nemendaskrá til að nota til að senda þeim handbók um pappír, og Tölvufræðslunni var veitt leyfi til að fá límmiðaútskrift úr nemendaskra H.í. svo og kennara- skrá til að senda kynningu á nám- skeiðum sinum. Nafnabankar og skrár Alls voru veitt 20 leyfí til að framkvæma viðhorfskannanir og neytenda- og skoðanakannanir og 8 leyfi voru gefín til að halda ýms- ar skrár. Þ.á.m. er Jafnréttisráð, sem fékk heimild til að koma upp nafnabanka yfir upplýsignar frá konum í tilteknum atvinnugreinum og/eða með reynslu í félagsmálum. Haraldi Briem lækni var veitt starfsleyfi ti! að annast faralds- fræðilega skráningu smitsjúkdóma fyrir landlækni og Sambandi al- mennra lífeyrissjóða var veitt leyfi til að gefa út nafnaskrá lífeyrissjóða og halda hana hjá Reiknistofu ban- kanna. Aðgang að henni hafa þó aðeins starfsmenn lífeyrissjóða. Fjölmargar heimildir voru veittar til aðgangs að upplýsingum úr ýmsum skrám. Meðal þeirra sem slíkt leyfi fengu var fíkniefnadeild lögreglunnar sem fékk heimild til beinlínutengingar við fasteignaskrá Fasteignamats ríkisins til að fletta upp kennitölu eigenda fasteignar. Vinnueftirliti ríkisins var heimilað að tengja saman skrá eftirlitsins yfir bændur og krabbameinsskrá Krabbameinsfélags íslands til að gera rannsókn á nýgengi krabba- meins meðal bænda. Áslaugu Þór- arinsdóttur, laganema, var heimilað að gerá rannsókn á kynferðisafbrot- um sem börn verða fyrir af hálfu skyldra og eða tengdra aðila og fá aðgang að lögregluskýrslum Rann- sóknarlögreglu, sakaskrá ríkisins, afgreiðslum ríkissaksóknara og dómum Sakadóms Reykjavíkur fyr- ir tíu ára tímabil. Það skilyrði var sett að hvergi komi fram nöfn aðila í gögnunum. Skýrsluvélum ríkisins og Reykjavíkurborgar var heimilað að veita Ríkisendui-skoðun aðgang að ýmsum gögnurn í tölvukerfi í eigu ýmissa aðila sem varðveitt eru hjá fyrirtækinu. V ísindarannsóknir Tölvunefnd veitti alls 26 leyfí til fjöldarannsókna og rannsókna í vísindaskyni. Þá voru og veittar ýmsar heimildir á sviði heilbrigðis- mála. Þ.á.m. var heimild til handa Erlendi Ilarladssyni, prófessor við Háskóla íslands að gera könnun á tíðni þunglyndis hjá konum eftir barnsburð með því að leggja spurn- ingalista fyrir um 280 konur sem koma til skoðunar í tvær heilsu- gæslustöðvar í Reykjavík. Hannesi Péturssyni, yfirlækni, var heimiluð könnun meðal vistmanna á fangels- isstofnunum á geðheilbrigði, per- sónuleikagerð og öðrum högum vistmanna með því skilyrði að eyða persónuauðkennum að lokinni gagnasöfnun. Krabbameinsfélag- inu var heimilað að tengja saman krabbameinsskrá félagsins og skrá Blóðbankans yfir blóðflokka í því skyni að afla frekari upplýsinga vegna rannsókna á tengslum blóð- flokka og krabbameins. Vinnueftir- liti ríkisins var heimilað að tengja saman skrá eftirlitsins yfír leigubif- reiðastjóra í Hreyfli og dánarmeina- skrá til rannsóknar á hugsanlegri hættu á hjarta- og æðasjúkdómum og lungnakrabbameini hjá leigubif- reiðastjómm vegna mengunar frá útblásturslofti bifreiða. Synjað Synjanir og óflokkaðar afgreiðsl- ur voru 7 á árinu. Fasteingamati ríkisins var synjað um að veita lög- mönnum heimild til að fletta upp í fasteignaskrá eftir kennitölu eig- anda fasteignar. Séra Gunnari Björnssyni var meinað að fá límmið- aútskrift úr þjóðskrá yfír nöfn og heimilisföng húsbænda í Fríkirkju- söfnuðinum til útsendingar gagna fyrir safnaðarfund og væntanlegar prestskosningar. Þá var einnig hafnað að veita safnaðarfélagi Fríkirkjunnar í Reykjavík í té út- skrift úr þjóðskrá yfír skráða með- limi í Fríkirkjusöfnuðinum gegn andmælum stjórnar safnaðarins. Heimilistæki, hf. Húsasmiðjan hf. og Samband ísl. samvinnufélaga leituðu eftir heimild til að fá tölvu- tæka ’skrá Reiknistofnunar yfir dóma, gjaldþrot og uppboð. Tölvu- nefnd ákvað að hafna að svo stöddu erindunum með vísan til þess að vænta mætti nýrra reglna um skráningu og miðlun upplýsinga um fjárhagsmálefni þegar ný lög tækju gildi á árinu 1990. íslenskir þátt- takendurí norrænni tón- listarhátíð DÓMNEFND sem velur þátt- takendur fyrir Islands hönd á Tónlistarhátíð ungra norænna einleikara í Tampere í okt. 1991 hefur nýlega valið þá sem lialda áfram í lokaumferð keppninnar. Þau sem valin voru eru þessi: Auður Hafsteinsdóttir fíðluleik- ari, Gunnar Guðbjörnsson söngv- ari og Hólmfríður Þóroddsdóttir óbóleikari. Lokaumferð keppninnar fer fram á opinberum tónleikum í Gerðubergi i byijun janúar. Dóm- nefnd skipa Guðmundur Emilsson tónlistarstjóri, Gunnar Kvaran sellóleikari og Rut Magnússon söngkona.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.