Morgunblaðið - 14.12.1990, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 1990
SÍLDARBÆRINN
— frá kreppuárum til tæknialdar —
__________Bækur_____________
Stefán Friðbjarnarson
Benedikt Sigurðsson: Brauðst-
rit og barátta - Úr sögu byggð-
ar og verkalýðshreyfingar á
Siglufirði (síðara bindi). 509 bls.
með nafnaskrá. Myllu-Kobbi
forlag í samvinnu við Verka-
lýðsfélagið Vöku í Siglufirði.
Út er komið síðara bindi bókar-
innar „Brauðstrit og barátta -
Úr sögu byggðar og verkalýðs-
hreyfingar á Siglufirði". Höfundur
er Benedikt Sigurðsson, fv. kenn-
ari og bæjarfulltrúi í Siglufírði.
Bókin spannar, svo sem nafn
hennar segir til um, sögu verka-
lýðshreyfingar - sögu launþegafé-
laga - í síldarbænum Siglufirði,
allt frá fjórða áratugnum, þ.e.
kreppuárunum, fram á níunda ára-
tuginn, þ.e. tækniöldina. Baksviðið
er síldarævintýrið, litrík byggðar-
saga, lífleg bæjarmálapólitík og
sjálf þjóðmálaþróunin. Hún skar-
ast ríkulega við sögu síldariðnað-
arins, fyrstu stóriðjunnar á Islandi
og sögu höfuðstaðar þeirrar stór-
iðju - þar sem silfur hafsins var
unnið í grjótharðan gjaldeyri.
Benedikt hefur safnað saman
kynstrum af heimildum og fróð-
leik, sem mikill fengur er að, og
unnið í góðan texta af alúð og
smekkvísi. Kaflaheiti eins og „at-
vinnulífið í kreppunni", „hallæris-
sumarið 1935“, „kyndaraverkfall-
ið 1943“, „pólitísk viðhorf í Þrótti
1949-1966“, „lokaskeið síldveið-
anna“, „fyrsta hraðfrystihúsadeil-
an“ ö.s.frv. spegla sögusviðið.
Höfundur fer í saumana á
mörgum viðkvæmum deilumálum,
sem skiptar skoðanir vóru og eru
um, og horfa mismunandi við aug-
um, eftir því frá hvaða sjónarhóli
eru litin. Þar má nefna átök
kommúnista/sósíalista annars
vegar og jafnaðarmanna og ann-
arra andkommúnista hins vegar í
verkalýðshreyfingunni fyrr á tíð,
sem og meint pólitísk átök í stjórn
Síldarverksmiðja ríkisins o.fl.
Meginefni bókarinnar er þó
saga Jaunþegafélaga í Siglufirði,
sem vóru mörg í tímans rás, félög
verkamanna, félög verkakvenna,
félög iðnaðarmanna, félag bíl-
stjóra, félag sjómanna, félag bæj-
arstarfsmanna o.s.frv. Sú sögurit-
un er að sjálfsögðu mikils virði.
011 fj'allar hún um baráttu fyrir
bættum almennum kjörum. Hún
speglar sigra og ósigra - en ekki
síður góðæri og hallæri. Þegar
sjávarafli brást barði skorturinn
að dyrum. Svartur sjór af síld gaf
á hinn bóginn gull í flestra vasa.
Þegar síldarstofninn hrundi um
síðir var höggvið að undirstöðum
síldarbæjarins.
Benedikt kemst svo að orði um
síldarleysisár - hallærisárið 1935:
„Verkamaðurinn [blað á Akur-
eyri] skýrði frá geysilegum
straumi verkafólks frá Akureyri
til Sigluijarðar; allir sem gætu
reyndu nú að komast þangað í
Benedikt Sigurðsson
síldarvinnu, sumir færu ráðnir,
aðrir óráðnir. Um leið spurði blað-
ið hvort afturhaldið á Akureyri
væri að sigla bænum í sama forað-
ið og Vestmannaeyjar, Eskifjörð-
ur, og Hafnaríjörður hefðu staðið
í. - Þessi bæjarfélög voru sem sé
í reynd gjaldþrota ... í þessari erf-
iðu stöðu gerðu menn sér vonir
um að síldin yrði sá trompás sem
snqri spilagæfunni í hag fyrir út-
gerðina, ríkissjóðinn, bankana,
sveitarfélögin, verkamennina og
síldarstúlkurnar. En síldin var ekki
tromp sumarið 1935.“ - Benedikt
lýsir síðan hveijar hörmungar
fylgdu í kjölfar síldarbrestsins -
í miðri kreppunni miklu - einkum
fyrir aðkomið síldarfólk, án kaup-
tryggingar. Það bjó við sáran
skort, margt hvert, og var um síð-
ir flutt af stjómvöldum til síns
heima.
í annan tíma var Siglufjörður
skógur siglutijáa, saltað á öllum
plönum, brætt í öllum verksmiðj-
um, unnin nótt með degi og fljót-
tekinn fengur hjá fólki og samfé-
lagi. - Það vóm bæði skin og
skúrir í síldarævintýrinu.
Bók Benedikts Sigurðssonar,
Brauðstrit og barátta, er viðamik-
ið framlag til sögu íslenzkrar
verkalýðshreyfíngar, auk þess sem
hún er dijúgt framlag til sögu
Siglufjarðar. Að baki henni liggur
mikil vinna, sem hefur gildi fyrir
nútíð og framtíð. Deila má um
áherzlur og stöku söguskýringar,
en svo hefði farið, hver sem á
penna héldi, þegar fjallað er um
jafn viðkvæm þjóðfélagsmál og
hér eru til meðferðar.
Veruleikinn tíundar ekki eftir-
sóknarverða uppskeru á akri þeirr-
ar rauðu byltingar, sem nú er
kolfallin á áratuga reynsluprófí í
A-Evrópu og víðar. Bylting mennt-
unar, þekkingar og tækni hefur
hins vegar gjörbreytt aðbúð og
kjörum fólks hér á landi og víðast
í veröldinni. Og trúlega er almenn
og sérhæfð menntun og þekking
sem og tæknivæðing atvinnulífs-
ins sterkustu vopn starfsstétta og
„ÞAÐ ER
ALLT HÆGT“
_________Bækur______________
Katrín Fjeldsted
„Det kan lade sig göre“,
Frásögn 12 danskra alkóhólista
Höfundur: Gizur I. Helgason
og Margit F. Kohl
Útg. Holkenfeldts forlag
í Danmörku 1990
Kilja, prentuð af Nörhaven A/S,
Viborg. 260 bls.
í bókinni „Det kan lade sig
göre“ segja tólf danskir alkóhólist-
ar ævisögu sína og lýsa kynnum
sínum af Bakkusi. Vitað er, að
hann er harður húsbóndi, og átak-
anlegt að lesa um það hvernig
fólk getur lent algjörlega viljalaust
í ræsinu, fjarlægst vini, fjölskyldu
og ættingja og útskúfað sjálfu sér
úr samfélaginu. Þeir tólf, sem sögu
sína segja, eru sex karlar og sex
konur. Uppruni þeirra, menntun
og lífskjör eru ólík. þau áttu sér
öll drauma og væntingar um „eðli-
legt“ líf með maka og bömum,
örugga og fasta atvinnu en ánetj-
uðust svo áfengi og hættu að geta
ráðið lífí sínu. Þau líta svo á, að
alkóhólismi sé sjúkdómur, sem
hafí verið kominn vel á veg með
að eyðileggja líf þeirra, flölskyldu
og umhverfí, áður en þau loks
komust í meðferð og náðu á ný
tökum á lífí sinu. Meðferðin er
kennd við Hazelden-stofnunina í
Bandaríkjunum, sem í Danmörku
er í daglegu tali nefnd Minnesota-
módelið.
Það er ljóst af lestri bókarinn-
ar, að höfundar telja, að tilgangs-
laust sé að meðhöndla áfengissýki
með hinum hefðbundnu aðferðum
læknisfræðinnar eða sálfræðinnar.
Alkóhólistinn verði að líta svo á
að hann hafí ofnæmi fyrir áfengi,
þoli ekki að drekka nokkurn tíma
framar, því að fyrsta glasið ýti
honum á ný út á brún hengiflugs-
ins og hann geti ekki afstýrt því
að falla fram af bmninni. Alkóhó-
listinn læknast í raun aldrei, hann
verður aðeins óvirkur og lætur sér
nægja að umbera einn dag í senn.
Viðbrögð hans við boði um að
detta í það af því að einhver eigi
bjórkassa eða nokkrar flöskur
hljóti að verða að vera áiíka og
sykursýkisjúklings §em fengi boð
um að detta í það, til boða standi
5 kíló af sykri'.
Eitt af helstu einkennum alkans
er afneitun, en hún er jafnframt
það sem helst kemur í veg fyrir
að hann leiti sér hjálpar. Hann
gerir sér sjaldnast grein fyrir því,
hve hratt sjúkdómur hans þróast,
vonar ef til vill að löngunin í að
drekka hverfí, en það gerir hún
ekki. Bakkus sleppir ekki tökun-
um. Hann neitar þvi að áfengið
sé vandamál, og trúir því sjálfur
að hann stjórni drykkju sinni, sem
markast af því að han geti stund-
að vinnu sína, mæti alltaf, þótt
fjölskylda og samstarfsfólki sé
Ijóst að hann sé fullur í vinnunni
og sinni henni í raun illa eða ekki.
Ofdrykkjan erkhans augum alltaf
öðrum að kenna og hann sér ekki
að hann stjórnar í raun alls ekki
sínu eigin lífi. Hann þarf að fela
sársaukann, vandamálin, sjálfs-
gagnrýnina og skort á sjálfsvirð-
ingu af því að hann veit, að hann
getur ekki stjórnað drykkju sinni.
Hann hefur ekki innsýn í eigin
veikindi þótt öllum öðrum séu þau
ljós.
í meðferð við áfengissýki er
Gizur I. Helgason
sjúklingunum kennt að verða sér-
fræðingar í eign sjúkdómi og taka
ábyrgð á þróun hans. Því er hald-
ið fram í bókinni að árangur af
meðferð í Bandaríkjunum sé 65%
og að Betty Ford-stofnunin státj
af 85% árangri á 6 ára tímabili. í
Danmörku er eins og áður sagði
byggt á Hazelden/Minnesota-
módelinu og þar eru að verki ís-
lendingar og Danir, sem standa
að Von Veritas. Að lokinni 5 vikna
dvöl hefst alvara lífsins og þá
þarf að vera hægt að beita þeim
aðferðum sem kenndar hafa verið.
Flestir sækja AA-fundi og fyrstu
mánuðina er mælt með að þeir séu
daglega, það er að segja 90 fund-
ir á 90 fyrstu dögunum. Eftir það
er mælt með 3 fundum í viku,
jafnvel í 2 ár.
Æðruleysisbænin svonefnda
fylgir að sjálfsögðu með í bókinni
og á dönsku er hún svohljóðandi:
Gud, giv mig sindsro
til at acceptere de ting
jeg ikke kan ændre,
mod til at ændre de ting
jeg kan, og
visdom til að se forskeilen.
Það er allt hægt (vinur).
Leðurstígvél
Frábært veró
Falleg og vönduð leðurstígvél
nokkrar gerðir í brúnu og svörtu.
Verð aðeins 8.900.kr.
Skóverslunin ,___^ - /y
Laugavegi74 Sími 17345^^ t ,JCo-
Ævintýri Krúsu
__________Bækur______________
Eðvarð Ingólfsson
Heíður Baldursdóttir:
Leitin að demantinum eina.
Vaka-Helgafell 1990.
Heiður Baldursdóttir er einn
þeirra verðlaunahöfunda sem sigr-
að hafa í handritasamkeppni Verð-
launasjóðs íslenskra bamabóka.
Það var í fyrra. Þá var fyrsta bók
hennar, Álagadalurinn, gefín út.
Vafalaust hefur sú viðurkenning,
er hún fékk þá, orðið henni til
hvatningar á ritvellinum því að
nú ári seinna hefur hún sent frá
sér aðra bók sem er sjálfstætt
framhald þeirrar fyrri.
Nýja sagan heitir Leitin að dem-
antinum eina og fjallar um jarð-
arbúann Krúsu sem lendir í ýms-
um ævintýrum í framandi heimi.
Þar er henni falið afar mikilvægt
verkefni: Að fínna demant er
gegnir því hlutverki að tryggja
frið og velsæld um ókomna tíð.
Hann hefur týnst í mikilli spreng-
ingu. Finnist hann ekki sem fyrst
geta orðið miklar hörmungar.
í sögunni er lýst miklum átök-
um milli góðs og ills. í leit sinni
að demantinum lenda þau Krúsa
og skógarbarnið Almar, félagi
hennar, í mörgum og erfíðum
raunum, svo sern að beiýast við
blóðþyrsta ófreskju, forynju úr
hinum illu undirheimum. En allt
fer vel að lokum og söguhetjurnar
fá umbun erfiðis síns.
Þessi saga er löng miðað .við
það sem venjulegast er um ævin-
týri. Þess vegna hefur höfundur
þurft að leggja sig fram við að
halda athygli lesandans. Það hefur
tekist ágætlega. Sagan er
skemmtileg og spennandi. Á köfl-
um er ekki gott að átta sig á hvað
er í raun að gerast, hvert hún
nýtt símanumer
PRENTMYNDAGERÐAR:
(MYNDAMÓTj
esns
Heiður Baldursdóttir
stefnir. Það eykur á vissan hátt
spennuna - en í lokin sér les-
andinn allt í skýru ljósi.
Boðskapur bókarinnar er ljós:
Friður, réttlæti og vinátta eru
undirstaða farsæls mannlífs.
Ófriður á rætur í öfund og ágirnd
er leiðir aðeins eitt af sér: Óham-
ingju og misrétti fyrir þorra
manna. Menn eiga ekki að láta
lokkast af fagurgala þeirra manna
sem blása í herlúðra. Almar lætur
um tíma glepjast af slíkum áróðri.
Hann sökkvir sér niður í drauma
um að verða frægur og fímur ridd-
ari án þess að gera sér grein fyrir
því að til þess að svo geti orðið
þurfí hann að deyða fólk. En hann
á eftir að skipta um skoðun í lok
sögunnar.
Kósturinn við ævintýri eins og
þetta er sá að það gefur börnum
færi á að beita ímyndunaraflinu,
hverfa inn í heim þar sem hið
ómögulega verður mögulegt. Börn
hafa ekki mestan áhuga á því
hvað er satt og hvað logið í ævin-
týrum heldur því hver er góður
og hver vondur, hver gerir rétt og
hver rangt. Góð ævintýri eins og
þetta geta því örvað dómgreind
barna.
Leitin að demantinum eina er
ágætlega skrifuð bók. Höfundur
býr yfír góðum og fjölbreytilegum
orðaforða sem glæðir málvitund
ungra lesenda. Vissulega eru hér
ekki farnar ótroðnar slóðir í heimi
ævintýraskáldskapar. Mörg
minnanna eru kunn - en engu að
síður er hér um nýtt og vandað
verk að ræða. Heiður Baldursdótt-
ir má vera stolt af þessari sögu.