Morgunblaðið - 14.12.1990, Side 5

Morgunblaðið - 14.12.1990, Side 5
ISLENSKA AUCLÍSINCASTOFAN HF. MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 1990 5 IÐUNN VANDAÐAR BÆKUR ♦ f 45 Á R ♦ Undan illgresinu Guðrún Helgadóttir „Strax í íyrsta kafla nær Guðrún að hlaða upp^ spennu og „Undan illgresinu" er spennusaga. I henni eru leyndardómar og týndir fjársjóðir, sem ekki kæmi í ljós, nema vegna þess að Marta María er haldin óseðjandi forvitni og hún er sannleiksleitandi. En hér er ekki á ferðinni nein afþreyingarsaga, vegna þess að í henni eru mjög skýr skilaboð: Þú getur ekki ræktað garðinn þinn, nema horfast í augu við sannleikann. Persónusköpun í þessari bók er frábær. . . . „ . . . Mér finnst þetta ótrúlega góð bók; vel skrifuð, spennandi, fyndin og skemmtileg . . . strax á síðu 50 var ég farin að kvíða því að ljúka henni. Myndimar í bókinni eru mjög skemmtilegar og vel gerðar og undirstrika þann leyndardómsfulla blæ sem yfir henni er.“ Súsanna Svavarsdóttir í ritdómi í Morgunblaðinu Æviminningar IÐUNN Erlingur Þorsteinsson læknir hefur frá mörgu að segja af langri og viðburðarfkri leið. Frásögnin er krydduð glettni og gamansemi, víða er komið við og manna og málefna minnst af hreinskilni og einurð. Hann dregur upp persónulega mynd af föður sínum, Þorsteini Erlingssyni skáldi, og lýsir á eftirminnilegan hátt æskuheimilinu sem sorgin sótti snemma heim við fráfall heimilisföðurins. Þar áttu listir, menning og mannleg hlýja rætur, þangað lögðu margir þjóðkunnir menn og konur leið sína í dagsins önn, og þeir sem hjálpar voru þurfi áttu þar öruggt athvarf. Ur skjóli foreldrahúsanna liggur leiðin til náms og starfa, og að loknu sérnámi í háls-, nef og eyrnalækningum á stríðsárunum í Danmörku snýr hann heim reynslunni ríkari eftir að hafa lent í lífshættulegum ævintýrum þar. Af alúð og einbeitni tekst hann á við læknisstarfið, hugðarefnin og baráttumálin. Hér er á ferðinni frásögn mikils athafnamanns. VANDAÐAR BÆKUR ♦ í 45 ÁR ♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.