Morgunblaðið - 15.12.1990, Page 33
AIOKGUNBLADIÐ LAUGARDAGUR 15. DESþlMBER 1990
33
stofnanir þær, sem til voru langt á
undan framkvæmdastjórninni, telja
sér misboðið þegar það ofurvald
seilist inn á ný svið eða rígheldur
í önnur sem það beinlínis hefur tek-
ið sér. Allt er þetta geysiijölskrúð-
ugt a.m.k. svo að mér reynist erfitt
að botna í öllu þessu síbreytilega
kraðaki. Hef ég þó farið í náms-
og kynnisferðir bæði sem formaður
utanríkismálanefndar og Evrópu-
nefndar Alþingis og auðvitað reynt
að kynna mér málefnin eftir föng-
um.
Um bréfið er það annars að
segja, að það sýnir að nokkuð er á
huldu hvernig háttað er umfjöllun
hverrar stjórnardeildar um einstök
mál og kannski tilviljunarkennt. Af
því máþó ljóst vera að fyrsta stjórn-
ardeild sér um samskipti við þriðju
ríki og viðskiptastefnu Evrópu-
bandalagsins. Óskir okkar um við-
skiptamál og almenn samskipti
ætti hún því að fjalla um, stjórnar-
deild XII um tolla almennt og óbeina
skatta en deild XIV um sjávarút-
vegsmál. Til hennar ætti ekki sér-
staklega að beina óskum frá okkur
þar sem sjávarútvegsmál væru
hvergi nefnd á nafn.
Ef til vill er misskilningurinn sem
hér hefur verið uppi um fiskveiði-
stefnu Evrópubandalagsins byggð-
ur á því að á einhveiju stigi óform-
legra viðræðna milli okkar og
bandalagsins hafi fiskveiðar verið
orðaðar i sambandi við hugsanlegt
samningsumboð til framkvæmda-
stjórnarinnar. Með velvilja í garð
þeirra, sem hafa haldið að sameig-
inlega fiskveiðistefnan næði til okk-
ar, má ímynda sér það.
Höfundur er einn af
alþingismönnum
Sjálfstæðisflokksins fyrir
Reykja víkurkjördæmi og
formaður Evrópustefnunefndar
Alþingis.
Borgarstjóri:
Gagnleg
úttektá
slökkviliðinu
Borgarstjóri, Davíð Oddson,
segist hafa átt viðræður við Hrólf
Jónsson, varaslökkviliðsstjóra, um
úttekt þá sem Hrólfur hefur gert
á Slökkviliði Reykjavíkur en þar
kemur fram að hann telur ástand
mála óviðunandi og leggur til
ýmsar breytingar.
Skýrslan hefur verið til umræðu
í borgarráði og stendur til að taka
hana til frekari athugunar í tengsl-
um við fjárhagsáætlun Reykjavík-
urborgar sem nú er í vinnslu.
„Það eru nokkur atriði í þessari
úttekt sem þurfa að koma til ijár-
hagslegrar afgreiðslu. Þetta er at-
hyglisverð úttekt og mjög gagnleg
til frekari ákvarðana um þróun
Slökkviliðsins og mörg athyglisverð
nýmæli sem þarna koma fram,“
sagði borgarstjóri en vildi ekki tjá
sig um einstakar tillögur Hrólfs á
þessu stigi.
Leiðrétting
í verðkönnun Verðlagsstofnunar
á kjötvörum slæddist inn sú villa
að verslunin Kjötheimur og verslun-
in Bónus við Reykjavíkurveg, Hafn-
arfirði, voru taldar ein og sama
verslunin. Hið rétta er að þessar
verslanir eru með öllu ótengdar og
nær verðkönnunin einungis til versl-
unarinnar Kjötheima. Einnig er
ranghermt nafn annarrar verslun-
ar. I stað verslunarinnar S.Ö. Kjöt-
vörur á að vera Nýi Kjöt og Fisk-
ur, Seljabraut 54. Þá hefur orðið
stafavíxl í verðskráningunni á ham-
borgarhrygg með beini hjá Kjörbúð
Laugaráss, Norðurbrún 1. Ham-
borgarhryggur með beini kostar þar
1.351 kr. kg en ekki 1.531 kr.
Verðlagsstofnun biður hlutaðeig-
andi velvirðingar á þessum mistök-
Síldarvinnslan hf.:
Samkomulag um 20%
heimalöndunarálag
SJÓMENN á togurum Síldar-
vinnslunnar hf. á Neskaupstað,
Barða NK, Bjarti NK og Birtingi
NK, sömdu við forráðamenn fyrir-
tækisins á miðvikudag um 20%
heimalöndunarálag frá 1. desemb-
er til 30.ágúst næstkomandi en
með rétti til endurskoðunar á
þriggja mánaða fresti. Sjómenn-
irnir höfðu lagt niður störf vegna
óánægju með fiskverð en þeir
fengu áður um 10% heimalöndun-
arálag, að sögn Finnboga Jónsson-
ar framkvæmdastjóra Síldar-
vinnslunnar.
Sjómenn á togurum Síldarvinnsl-
unnar höfðu krafíst þess að fá 28%
heimalöndunarálag, eins og sjómenn
á togurum Hraðfrystihúss Fáskrúðs-
fjarðar, Ljósafelli SU og Hoffelli SU,
hafa fengið greitt frá 10. júlí síðast-
liðnum.
Auk heimalöndunarálags fá sjó-
menn á togurum Síldarvinnslunnar
og Hraðfrystihúss Fáskrúðsfjarðar
sérstaklega greitt vegna útflutnings
á óunnum fiski. Hraðfrystihús Fá-
skrúðsfjarðar hefur mjög lítið flutt
út af óunnum físki, að sögn Eiríks
Ólafssonar útgerðarstjóra fyrirtæk-
isins en á þessu ári hafa að meðaj-
tali um 20% af heildarafla togara
Síldarvinnslunnar verið flutt út óunn-
in, að sögn Finnboga Jónssonar
framkvæmdastjóra.
Þeim mörgu, er sýndu mér og fjölskyldu minni
vináttu með heimsóknum, gjöfum og heillaósk-
um í tilefni af sjötugsafmœli mínu 15. október
sl., sendi ég hugheilar þakkir.
Bestu kveðjur til ykkar allra með ósk um gleði-
leg jól og farsœld á komandi ári.
Jón Ólafsson,
Eystra-Geldingaholti.
DECKER
GUFUSTRAUJÁRN
Eru létt, handhæg og örugg
á verði sem á sér enga
hliðstæðu.
Líttu inn til okkar eða í
næstu rafbúð.
Verð frá kr. 3.890.-
SKEIFUNNI 8 SlMI 82660 - EIÐISTORGI SÍMI 612660
NORÐMANNSÞINUR ER JÓLATRÉÐ
SEM EKKI FELUR BARRID
nýtt
greidswokorta-
TlNiABIt
Jólatrén okkar eru óvenju
falleg í ár.
Komið í jólaskóginn og
veljið jólatré við bestu
aðstæður.
LANDSBYGGÐARÞJÓNUSTA
Sendum jólatré hvert
á land sem er.