Morgunblaðið - 06.02.1991, Side 19
MORGUNBLAÐIB. MIÐVIKUDAGIJR 6. FBBRUA1Í 1991
19
Morgunblaðið/Einar Falur
Frú Vigdís Flnnbogadóttir, forseti Islands, opnaði sýninguna „Hels-
inki - mannlíf og saga“ á Kjarvalsstöðum. Hér sést hún við opnun
sýningarinnar ásamt listamanninum Eero Manninen (t.v) og Raimo
Ilaskivi, yfirborgarsljóra Helsinki (t.h.).
Kynning á Helsinki
á Kjarvalsstöðum
„Vildi frekar Þingvallamynd“
Joan Halford gefur Kjarvalsstöðum málverk eftir Jóhannes Rjarval
Morgunblaðið/Einar Falur
Joan Halford og Hulda Valtýsdóttir, formaður Menningarmálanefnd-
ar Reykjavíkur, við málverkið á Kjarvalsstöðum.
FORSETI íslands, frú Vigdís
Finnbogadóttir, opnaði á mánu-
dag sýningu á Kjarvalsstöðum,
þar sem leitast er við að gefa
mynd af mannlífi og sögu Hels-
inkiborgar. Hér er um að ræða
farandsýningu á vegum borgar-
yfirvalda í Helsinki og hefur hún
þegar verið sett upp í Osló og
Kaupmannahöfn.
Sýningin „Helsinki - mannlíf og
saga“ er sett upp að frumkvæði
yfirborgarstjóra borgarinnar, Ra-
imo Ilaskivi, en hann var viðstaddur
opnunina. Með henni er ætlunin að
sýna þá mynd, sem Helsinkibúar
hafa af sjálfum sér og borg sinni
og draga fram ýmsar andstæður
sem þar birtast. Á sýningunni er
meðal annars notast við skugga-
myndir og myndbönd, auk tóna og
hljóða af ýmsu tagi. Höfundur sýn-
ingarinnar er prófessor Ensio Su-
ominen, en hann er sérfræðingur í
fjarvíddartækni.
Sýningin mun standa yfir til 24.
febrúar. I tengslum við hana verða
Helsinkidagar í Reykjavík næstu
daga. Ýmsir finnskir listamenn eru
staddir hér á landi af því 'tilefni svo
sem djasshljómsveitin UMO Big
Band, söngflokkurinn Trio Saludo
og klippilistamaðurinn Eéro Mann-
inen. Jafnfram verða finnskir sæl-
keradagar á Hótel Loftleiðum 7. til
10. febrúar og lið ungra handknatt-
leiksmanna frá Helsinki tekur þátt
í móti með reykvískum liðum 7. til
9. febrúar.
Af þeim 58% svarenda, sem tóku
afstöðu í könnuninni, nýtur Alþýðu-
flokkur fylgis 10,1%, Framsóknar-
flokkur 21,9%, og Alþýðubandalag
6,6%. Enginn ætlar að kjósa Stefán
■ Valgeirsson, 0,3% Flokk mannsins
og enginn Borgaraflokkinn.
ENSK kona, Joan Halford, af-
henti Kjarvalsstöðum að gjöf á
mánudag málverk eftir Jóhannes
Sveinsson Kjarval. Myndin nefn-
ist „Ástirnar" og er máluð um
1930. Joan er áttatiu og fjögurra
ára gömul, hún dvaldist á Islandi
í sex vikur sumrin 1935 og 1936,
og kynntist þá nokkrum Islend-
ingum. Þar á meðal komst hún
í náin kynni við Jóhannes Kjar-
val; hann gaf henni málverk og
teikningar, málverkið endur-
sendi hún en teikningarnar
hyggst hún gefa til Kjarvals-
staða, ásamt málverkinu sem hún
afhenti, en það gáfu íslenskar
vinkonur henni að skilnaði þegar
hún hélt til síns heima haustið
1936.
Joan Halford kom til íslands ein
síns liðs 1935, eftir að hafa fengið
þá hugmynd að eyða sumarleyfinu
sínu á einhveijum óvenjulegum
stað. Hún dvaldist á Hótel Borg og
komst í kynni við nokkra íslend-
inga. Þeirra á meðal var listamaður-
inn Magnús Árnason. Joan kynnti
hann fyrir annarri enskri stúlku
sem var stödd hér á landi, og var
að myndskreyta barnabækur; sú
nefndist Barbara og leiddu þau
kynni til hjónabands þeirra Magn-
úsar. Joan segir að Magnús hafi
boðið þeim, nokkrum útlendingum,
með sér upp á hálendið til að skoða
jöklana. Farið var með rútu á Þing-
völl og síðan leigðir hestar; ferðin
Kvennalistinn fær 9,5%, Þjóðar-
flokkur 0,9% og Heimastjórnarsam-
tökin 0,3%. Þess má geta að miðað
við svörun í úrtakinu jafngildir einn
svarandi um það bil 0,3% þeirra,
sem afstöðu tóku.
stóð í viku og rigndi allan tímann,
utan eina klukkustund og þá rétt
rofaði til svo sást til fjalla. Á Þing-
völlum hitti Joan Kjarval fyrst, en
í Reykjavík bjó hann einnig á Hótel
Borg, og þar kynntust þau betur.
„Jóhannes Kjarval var ákaflega
heillandi maður,“ segir Joan. „Hann
var mikill listamaður, fullur af ynd-
islegum hugmyndum og mjög hlýr
þegar maður kynntist honum betur.
Hann vann mikið, fór út á land að
mála, en þegar hann var í Reykjavík
var gaman að umgangast hann, það
var líf í kringum hann. Eitt sinn
tók hann mig með sér að heim-
sækja gamla konu sem lá sjúk
heima og ég gat ekki annað en
dáðst að því hversu mikla um-
hyggju Kjarval bar fyrir vinum
sínum. Hann var síteiknandi. Ég
man eftir því að hann sat á Hótel
Borg og teiknaði á bréfsefni, um-
slög og servéttur hótelsins. Hann
gaf mér margar slíkar teikningar
og þær eru virkilega fallegar.
Kjarval málaði mikið uppi við
Vífilfell þetta sumar og ég eyddi
nokkrum dögum með honum þar.
Við fórum uppeftir á leigubíl og
færðum honum kaffí; fyrst þijár
vinkonur saman, en ég fór einnig
ein. Á kvöldin fór ég aftur heim,
en hann svaf í tjaldi við fjallið.
Ég kom aftur til íslands sumarið
eftir, og þá fór ég einnig víða með
Kjarval. Það sumar var hann með
sýningu í Miðbæjarskölanum. Þá
var ég um tíma á Þingvöllum 1 og
Kjarval kom þar líka. Það var yndis-
legur tími. Ég eignaðist málverk
eftir hann og sendi bróður mínum
í Flórída það að gjöf. Jóhannes
ætlaði að senda mér mynd frá Þing-
völlum til Englands þegar ég væri
komin heim. Og hann sendi mál-
verk, af bleikri stúlku í landslagi;
en hún var máluð við Vífilfell en
ekki á Þingvöllum, svo ég endur-
sendi hana og bað um Þingvall-
amyd! Hana fékk ég aldrei," segir
Joan og hlær. „En ég fékk þó þessa
mynd, „Ástirnar". Vinkonur mínar
sendu hana á skipið til mín sem
kveðjugjöf þegar ég var að fara
heim.“
Þegar stríðið skall á gekk Joan
í flugherinn og missti sambandið
við íslenska vini sína. Þó fékk hún
eitt sinn jólakort frá Kjarval. Á það
hafði hann teiknað mynd af hvítum
fugli. Hún giftist aldrei og eignað-
ist ekki börn, og fékk því þá hug-
mynd að gefa myndina til íslands,
svo hún lenti ekki á flækingi eftir
sinn dag. „Myndin er búin að hanga
í setustofunni minni í áratugi,“ seg-
ir Joan. „í staðinn hef ég nú hengt
upp hestamynd sem langafi minn
átti. Vitaskuld kem ég til með að
sakna Kjarvals, þetta er svo falleg
mynd og henni fylgja persónulegar
minningar, en ég veit að hún er í
góðum höndum núna.“
— efi
Skoðanakönnun DV:
Sjálfstæðisflokkur með 50%,
Sjálfstæðisflokkurinn nýtur stuðnings 50,4% svarenda, sem afstöðu
tóku í skoðanakönnun um fylgi stjórnmálaflokkanna, sem Dagblaðið
Vísir birti á föstudag. Af úrtaki könnunarinnar, sem var 600 manns,
voru 37% óákveðnir og 5% neituðu að svara.
■■■ nHm i
FÆDDUR
SIGURVEGARI
BERÐU HANN SAMAN VIÐ
ÞAÐ BESTA
★ BÍLL ÁRSINS í ENGLANDI
(Auto Express)
★ BÍLL ÁRSINS í NOREGI
★ GULLNA STÝRIÐ í ÞÝSKALAN
★ BÍLL ÁRSIN.S í PORTÚGAL
★ BÍLL ÁRSINS í FINNLANDI
★ BÍLL ÁRSINS í DANMÖRKU
Ingvar
Helgason hf.
Sævarhöfða 2, sími 674000.