Morgunblaðið - 13.03.1991, Síða 20

Morgunblaðið - 13.03.1991, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. MARZ 1991 Svörtum verði leyft að eiga land hvar sem er Höfðaborg. Reuter. RÍKISSTJÓRN Suður-Afríku lagði fram frumvörp á þingi landsins í gær sem fela í sér að hvítum og svörtum íbúum Iandsins verði ekki lengur gert að búa í aðskildum borgarhlutum og svörtum verði leyft að eiga land hvar sem er. Tillögur þessar ganga þó mun skem- ur en kröfur blökkumanna um að þeir endurheimti land sem hvítir hafi slegið eign sinni á. í frumvörpunum er gert ráð fyr- ir að aflétt verði öllum sérstökum hömlum á eignarrétti blökkumanna í lok júní. Einnig verða blökku- mönnum afhentar tvær milljónir landskika sem þeir hafa haft á leigu hingað til. Einnig verður þeldökkum bændum seld rúm milljón hektara íraskir uppreisnarmenn í Basra sigri hrósandi á skriðdreka íraska stjórnarhersins sem þeir hafa náð á sitt vald. Iranska fréttastofan IRNA sendi myndina frá sér en ekki var sagt hvenær hún var tekin. írösk stjórnvöld hóta fjölda- morðum á konum og bömum Sveitir Saddams sagðar hafa notað napalm- ams breiddist stöðugt út. Þá hélt útvarpið í Teheran í írak því fram í gær að sveitir hliðhollar Saddam íraksforseta hefðu varpað napalm-sprengjum ótæpilega í átökum við uppreisnarmenn. Fj'öldi Fundur OPEC: sprengjur gegn uppreisnarmonnum Amman, Nikósíu. Reuter. IRAKAR voru sakaðir um það i gær að hafa tekið 5.000 konur og börn í gíslingu og hótað þeim Iífláti í þeirri von að fá uppreisn- armenn til þess að hætta aðgerð- um gegn stjórn Saddams Hus- seins forseta. Ennfremur full- yrtu flóttamenn sem komið hafa til Irans síðustu daga að Lýðveld- isvörðurinn, úrvals hersveitir Saddams, hafi varpað napalm- sprengjum á uppreisnarmenn í suðurhluta Iraks. Jalal Talabani, einn af leiðtogum kúrda í norðurhíuta íraks, sagði í gær að gíslamir hefðu verið teknir á sunnudag er uppreisnarmenn hefðu sest um olíuborgina Kirkuk í norðausturhluta landsins. „Stjóm- völd hótuðu fjöldamorðum á konum og börnum ef uppreisnarmenn héldu ekki að sér höndum," sagði Talabani. I gær var fullyrt að upp- reisn andstæðinga stjórnar Sadd- Iraka sem hefðu brennst illa af völdum bensínhlaupsins sem í sprengjunum væri hefðu leitað inn yfir írönsku landamærin í gær og fyrradag. Þessi ásökun um notkun efnavopna gegn uppreisnarmönn- um sem vilja steypa stjórn Saddams hefur ekki fengist staðfest. Hið sama er að segja um fullyrðinguna um að írakar hefðu tekið þúsundir kvenna og barna í gíslingu. Alþjóða Rauði krossinn sendi í gær 600 tonri af matvælum og lyfj- um frá Amman í Jórdaníu til Bagdads. Yfirmaður Rauða hálf- mánans í írak sagði í gær að kól- eru og taugaveiki hefði orðið vart að undanförnu í írak og virtist sem þessir sjúkdómar breiddust út í landinu. Genf, París. Reuter. SAMKOMULAG náðist í gær á fundi olíuráðherra Samtaka olíuút- flutningsríkja (OPEC) um samdrátt í framleiðslu. Höfðu ráðherr- arnir deilt hatrammlega um það efni frá því á mánudagsmorgun í Genf í Sviss. Blandaðist klofningur arabaríkja vegna Persaflóa- stríðsins þar í. Samþykkt var að takmarka framleiðsluna við 22,3 milljónir fata á dag en hún mun nú nema 23 milljónum fata. ■ ARLINGTON - George Bush, Bandaríkjaforseti, átti í mikl- um erfíðleikum með að sannfæra ungan dreng um hver hann væri þegar hann heimsótti bamaskóla í Virginíufylki í gær. „Ertu virkilega forsetinn," spurði hinn átta ára Anthony Henderson vantrúaður. Bush gerði hvað hann gat til að sannfæra snáða, sýndi honum ök- uskírteini sitt, myndir af barnabörn- unum, benti á embættisbifreið sína út um gluggann og afhenti drengn- um loks spjöld með tilbúnum eigin- handaráritunum forsetans. Virtist Anthony Henderson samt ekki að fullu sannfærður er Bush renndi úr hlaði I ræðu sem hann hélt um helgina sagði hann engin opinber við- brögð hafa borist frá Kínveijum við tilboðum sem hann gerði þeim 1987 og 1988. Fulltrúi Dalai Lama í Nýju-Delhí sagði í gær að þessi ummæli hans ættu að marka veginn fyrir útlagaþing sem myndi ákvarða stefnumótun í þessum efnum. Fundurinn er sá fyrsti eftir að vopnahlé komst á í stríðinu fyrir botni Persaflóa. Um er að ræða svonefnda eftirlitsnefnd OPEC en til þess að ákvarðanir um aukningu eða samdrátt í framleiðslu öðlist gildi verður að efna til ráðstefnu olíuráðherra allra aðildarríkjanna. Hermt er að ýmsir ráðherranna á Genfarfundinum hafi krafist þess að gripið yrði að nýju til fram- leiðslukvóta og verðstýringar á þeirri forsendu að eftirspurn minnki á næstu mánuðum vegna hlýnandi veðráttu í helstu viðskiptalöndun- Bandaríkin: af landi við vægu verði og hafist verður handa við að gera stórfelldar úrbætur í húsnæðismálum þeirra. Sumar vestrænar ríkisstjórnir hafa sagst reiðubúnar til að endur- skoða refsiaðgerðir sem stjórn Suð- ur-Afríku hefur verið beitt þegar lög af þessu tagi hafa verið sam- þykkt og þegar afnumin hafa verið lög um að flokka skuli alla nýfædda Suður-Afríkubúa eftir kynþætti. Breska utanríkisráðuneytið fagnaði tillögum suður-afrísku ríkisstjórn- arinnar í gær og hvarti Evrópu- bandalagið til að aflétta efnahags- þvingunum hið fyrsta. En ríkisstjórnin bannar ekki einkaaðilum að mismuna kynþátt- um. „Ef einhver í einkageiranum skyldi ákveða að hann vildi ekki ■leigja tiltekinni manneskju eign vegna kynþáttar hennar þá getur hann gert það,“ sagði Hernus Kri- el, áætlunar- og landsbyggðarráð- herra, í gær. Olíuframleiðsla dregin saman um. Harðast deildu Saudi-Arabar annars vegar og Alsírmenn og íran- ir hins vegar. Vegna mikils her- kostnaðar í stríðinu fyrir botni Persaflóa eru Saudar sagðir ófúsir til að minnka framleiðslu sína, sem nemur 8,3 milljónum fata á dag. Háttsettur saudi-arabískur emb- ættismaður sagði í viðtali við franska olíuritið Petrostrategies í fyrradag að Saudar myndu ákaft leggjast gegn því að framleiðslan yrði minnkuð. Hafa þeir spáð því að eftirspurn á öðrum fjórðungi ársins muni nema 22,45 milljónum fata á dag, eða 2,55 milljónum fata meira en Iranir áætla. Sérfræðingar í höfuðstöðvum OPEC álíta hins vegar að eftirspurnin verði 21,41 milljón fata. Sendiherra Iraks leitar hælis á Spáni Madrid. Reuter. SENDIHERRA íraks í Madrid, Arshad Tawfiq, hef- ur óskað eftir hæli sem póli- tiskur flóttamaður á Spáni og er undir vernd spænsku lögreglunnar. Þetta er í fyrsta sinn sem íraskur sendiherra óskar eftir hæli frá því stríðið fyrir botni Persaf- lóa hófst í jan- úar. Spænska Arshad Tawfig dagblaðið ABC skýrði frá því í gær að Tawfig óttaðist hugsanlegar árásir útsendara Saddams Hus- seins íraksforseta og hefði því óskað eftir vernd spænsku lög- reglunnar. Talsmaður spænska innanríkisráðuneytisins stað- festi að sendiherrann hefði leit- að hælis í landinu en vildi ekki tjá sig ástæður þess. Seldu írökum hátækníbún- Frumvörp á þingi Suður-Afríku: ■ LONDON - Þjónn og hús- freyja á bresku óðalssetri voru á mánudag dæmd til fjögurra ára fangelsisvistar fyrir að hafa stolið skartgripum, silfri og öðrum hús- munum frá húsráðendum sínum. Andvirði þýfisins nam um milljón sterlingspunda eða rúmlega hundr- að milljónum íslenskra króna. Mununum var stolið er húsráðand- inn, markgreifafrúin af Zetlandi brá sér frá óðalssetri sínu í norð- austur Englandi til að fylgjast með kappreiðum og Wimbledon-tennis- mótinu í London á síðasta ári. Þjón- inn gaf sig síðar fram við lögreglu og hefur öllu því sem stolið var verið komið til skila. ■ NÝJU-DELHÍ - Dalai Lama, leiðtogi Tíbeta, hyggst draga til baka þær tilslakanir sem hann var búinn að bjóða Kínveijum varðandi sjálfstæðiskröfur Tíbeta. að dagínn fyrir innrásina Washington. The Daily Telegraph. DAGINN áður en írakar réðust inn í Kúveit 2. ágúst í fyrra sam- þykkti Bandaríkjastjórn sölu á hátæknibúnaði til íraks fyrir um 40 milljónir ÍSK. Frá árinu 1985 höfðu þá Bandaríkjamenn samið um sölu á ýmsum varningi til landsins fyrir um 27 milljarða ISK; seldu þangað meðal annars þyrlur sem hægt er að nota til að dreifa eiturgasi. í opinberum skjölum, sem fjöl- miðlar fengu aðgang að á mánu- dag, kemur fram að Bandaríkja- stjóm samþykkti 771 samning um sölu til íraks á ýmsum hátækni- búnaði á þessu tímabili. Samning- arnir kváðu meðal annars á um sölu á tölvum, fjarskiptatækjum, tölvuteiknibúnaði sem hægt er að nota til að hanna eldflaugar, tölvu- kortakerfum og búnaði til að taka á móti gervihnattamyndum. Einnig voru seldar einkaþyrlur handa Saddam Hussein íraksforseta, að sögri dagblaðsins Washington Post sem varð fyrst íjölmiðla til að skýra frá samningunum. Talið er írakar hafi beitt þyrlum, sem Bandaríkja- menn seldu þeim, til að dreifa gasi í byggðum Kúrda árið 1988. Marlin Fitzwater, talsmaður Bandaríkjaforseta, vildi ekki viður- kenna að þessir samningar væru mistök og sagði þeir væru í fullu samræmi við þær reglur sem giltu á þessum tíma. „Eftir á að hyggja sjáum við eftir ýmsu. Okkur þykir miður að við vissum ekki að Sadd- am Hussein er eins og hann er,“ sagði hann. Stjórn Bush hélt sölunni áfram þótt bandarískir þingmenn hefðu krafist þess að viðskiptabann yrði sett á íraka til að refsa þeim fyrir notkun efnavopna gegn Kúrdum og þótt bandaríska tollgæslan hefði lagt hald á tæki, sem selja átti til íraks og írakar þurftu til að fram- leiða kjarnorkuvopn. Þegar Ronald Reagan var for- seti var það stefna Bandaríkja- stjórnar að styrkja íraka í stríðinu við írani 1980-88. „Náin tengsl okkar við íraka voru heimskuleg skyssa," viðurkenndi Reagan í ræðu sem hann flutti í siðasta mánuði. Margir af sölusamningunum voru gerðir við ráðuneyti iðnaðar og jarðefnavinnslu í írak en því var breytt á laun í ráðuneyti iðnað- ar og hergagnaframleiðslu. Ráð- herra þess var tengdasonur Sadd- t'ri^lnssfm . flásan. llllÍJBBmit po Li>

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.