Morgunblaðið - 13.03.1991, Side 21

Morgunblaðið - 13.03.1991, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. MARZ 1991 21 Reuter Tugir albanskra flóttamanna sofa í leikfimisal skóla í ítölsku hafnar- borginni Brindisi sem kenndur er við Leonardo da Virtci. Um 15.000 Albanir hafa komið til borgarinnar að undanförnu og fengið þar húsaskjól til bráðabirgða í skólum, hótelum og flóttamannabúðum. Albanía tekur upp stj órnmálatengsl við Bandaríkin Pólitískum föngum sleppt Vín. Reuter. Kommúnistastjórnin í Albaníu tekur upp síjórnmálasamband við Bandaríkin á föstudag, 50 árum eftir að tengslum ríkjanna var rift. Albanska fréttastofan ATA skýrði frá því í gær að Muhamet Kapllani, utanríkisráðherra Alb- aníu, færi til Washington til að undirrita samning um stjórnmála- samband ríkjanna 15. mars. Ríkin hafa átt í viðræðum í nokkra mánuði um að taka upp stjórnmálasamband að nýju. Því var slitið árið 1939 eftir að Italir réðust inn í Albaníu og hernámu landið. Bandarísk sendinefnd fór til Alb- aníu árið 1945 til að ræða upptöku stjórnmálasambands en viðræðurn- ar runnu út í sandinn vegna þess að albönsk stjórnvöld neituðu að viðurkenna samninga sem undirrit- aðir voru fyrir síðari heimsstyijöld- ina. Þau sökuðu Bandaríkjastjórn einnig um að hafa reynt að grafa undan stjórn kommúnista í landinu. Þegar stalínistinn Enver Hoxha var við völd í landinu einangraðist það nær algjörlega frá umheimin- um. Hoxha sleit stjórnmálasam- bandi við Sovétmenn árið 1961 vegna hugmyndafræðilegs ágrein- ings við Níkíta Krústsjov, þáverandi Sovétleiðtoga. Albanska útvarpið tilkynnti í gær að öllum pólitískum föngum í landinu hefðu verið gefnar upp sak- ir. Hefði forsætisnefnd albanska þingsins samþykkt þetta á fundi sínum undir forsæti Ramiz Alia, forseta Albaníu. Skákmótið í Linares: Kasparov með forystu Linares. Reuter. KASPAROV, heimsmeistari í skák, hefur nú tekið forystuna á stór- mótinu i Linares á Spáni með 7'/2 vinning af 11 mögulegum. Ivant- sjúk átti þó í gær góða möguleika á því að skjótast upp fyrir heims- meistarann með sigri í biðskák gegn Gúrevitsj. Þrír voru efstir og jafnir fyrir 11. umferð með 7 vinninga: Kasp- arov, Beljavskíj og ívantsjúk. Kasp- arov gerði jafntefli við Indveijann Anand, Beljavskíj tapaði fyrir Salov og skák Ivantsjúks og Gúrevitsj fór i bið og þótti sá fyrrnefndi hafa vinningsstöðu eins ojj áður segir. Öðrum skák lauk þannig að skák Kamskíjs og Karpovs fór í bið og hefur Karpov vinningsstöðu. Timm- an gerði jafntefli við Ljubojevic, Speelman vann Ehlvest og Gelfand og Júsúpov gerðu jafntefli. Staðan að loknum 11. umferðum er þessi: 1. Kasparov l'h vinning. 2. ívantsjúk 7 v. og biðskák. 3. Beljavskíj 7 v. 4.-5. Speelman og Júsúpov 6V2 v. 6.-10. Anand, Gelf- and, Ljubojevic, Salov og Timman 5 'h v. 11. Gúrevitsj 4 'h og biðskák 12. Karpov 4 og biðskák. 13. Ehlvest 3 v. 14. Kamskíj U/2 og biðskák. ■ NEW YORK - Javier Perez de Cuellar, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, lætur af störfum í lok þessa árs og getur leitin að eftirmanni hans nú hafist þar sem Persaflóastríðinu er lokið. Ríki Afríku leggja mikla áherslu á að eftirmaður de Cuellars komi úr þeirra heimsálfu og er eitt framboð þaðan þegar komið fram, Kennetli Oadzie frá Ghana. Sú kona sem óftast er orðuð við framkvæmda- stjóraembættið er Gro Harlem Brundtland, forsætisráðherra Nor- egs. Þá hefur Reuters-fréttastofan það eftir heimildum innan öryggis- ráðs Sameinuðu þjóðanna, sem til- nefnir framkvæmdastjórann, að jafnt Frakkland sem Sovétríkin hafi hug á að de Cuellar samþykki að gegna störfum áfram í eitt tíma- bil til viðbótar eða hluta úr tímabili. ■ MOSKVU - Háttsettur cmb- ættismaður innan sovésku leyni- þjónustunnar KGB sakaði Vest- urlönd í viðtali við Prövdu, málgagn sovéska Kommúnistaflokksins, um að nota eftirlit með að afvopnunar- samningum sé framfylgt til að njósna um Sovétríkin. Væru ferðir eftirlitsmannanna notaðar til að afla leynilegra upplýsinga. ■ TRIPÓLÍ - Fjórir létust og þrír særðust í átökum sem brut- ust út á milli tveggja bændafjöl- skyldna í Norður-Líbanon á mánu- dag. Höfðu fjölskyldurnar deilt hart um aðgang að aðveituvatni og end- aði rifrildið með skotbardaga. ■ | ■ Hnf H UTSALA 'iair ALLT AÐ r i* mm wsk m. wmmm. æg BBg % AFSLATTUR Dœmi: Töskur 60% Leikfimifatnaður 60% Skíðavara 30% Boltar 20-30% íþróttaskór 20-40% Göngu- og viðleguútbúnaður 20% Sundfatnaður 30% Æfingagallar 30% mm O.fl. o.fl. Komið og gerið góð kaup ó okkar fróbœru útsölu. Kringlunni v/Hlemm F4966ELM Sambyggður ofn/ örbylgjuofn Yfir-undirhiti, blástur, grill og snúningsgrill. Full sjálfhreinsun, kjöthitamælir, spegilútlit, örbylgjuofn, tölvuklukka og tímastillir. FIM6 Ofn Yfir-undirhiti, blástur, grill og snúningsgrill, full sjálfhreinsun, stálútlit, tölvuklukka og tímastillir. F380SELM Ofn Yfir-undirhiti, blástur, grill og snúningsgrill, fituhreinsun, svart eða hvítt spegilútlit, tölvuklukka með tímastilli.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.