Morgunblaðið - 13.03.1991, Síða 33

Morgunblaðið - 13.03.1991, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. MARZ 1991 33 Félag dráttarbrauta og skipasmiðja: Erlendum skípum verði leyft að fá hér alla þjónustu o g landa afla Fá ekki að landa hér ef þau veiða úr sameiginlegum stofnum, sem við höfum ekki samið um veiðar úr „MJÖG ÓEÐLILEGT er að er- lend skip þurfi að sækja um leyfi þjá sjávarútvegsráðuneytinu til að fá hér viðgerða- og viðhalds- þjónustu og það veldur því að þau fara eitthvað annað til að fá þessa þjónustu," segir Guð- mundur Guðmundsson verk- fræðingur hjá Félagi dráttar- brauta og skipasmiðja. Guð- mundur vill að erlendum skip- um, sem veiða fyrir utan okkar lögsögu, til dæmis sovéskum skipum og Evrópubandalags- skipum, verði leyft að fá hér alla þjónustu og landa og selja afla. Island verði þannig miðstöð sjávarútvegsviðskipta á Norður-Atlantshafssvæðinu. Eins og fram hefur komið í blað- inu hafa íslenskir aðilar undan- farið átt í viðræðum um endur- byggingu á skipi fyrir Litháa. „Við höfum ekki leyft erlendum fiskiskipum að koma hér inn til að landa og umskipa afla ef þau eru að veiða úr sameiginlegum stofn- um, sem við höfum ekki samið um veiðar úr,“ segir Gylfi Gautur Pét- ursson lögfræðingur hjá sjávarút- vegsráðuneytinu. „Menn bera fyrir sig að stjórn- völd meini þeim að taka hér erlend skip til viðgerða og endurbóta en í sjálfu sér eru þeir að tala um allt aðra hluti, það er að segja að veita erlendum skipum aila þjónustu hér í sambandi við veiðar á sameigin- legum fiskistofnum," segir Jón B. Jónasson skrifstofustjóri sjávarút- vegsráðuneytisins. Jón segir að í lögum, sem sett voru árið 1922, sé mörkuð meginstefna varðandi athafnir erlendra veiðiskipa í íslenskri landhelgi og þar séu enn- fremur ákvæði um eignaraðild út- lendinga að bæði fiskveiðum og fiskvinnslu. Sækja þarf um leyf i til viðgerða á erlendum skipum Hann segir að lögin frá 1922 eigi hins vegar ekki koma í veg fyrir að íslenskir aðilar fái verkefni við viðgerðir og endurbætur á er- lendum skipum, sem hafi verið að veiða fyrir utan okkar lögsögu. „Að vísu þarf að sækja um leyfi til þess en ekki hefur staðið á okkur í sjálfu sér að afgreiða slík leyfi. Við getum til dæmis nefnt að Akureyringar breyttu kanadískum togurum og í sjálfu sér voru engar skorður settar við því af hálfu stjórnvalda. Ef menn eru hins vegar að tala um að hleypa hér erlendum skipum inn til að landa og umskipa afla eru þeir komnir út í allt aðra sálma.“ Jón segir að nýsmíðar á íslensk- um fiskiskipum hafi farið fram er- lendis að mestu leyti og nýsmíðar hér hafi verið mönnum dýrar og erfiðar. „Þetta er spurning um sam- keppnisfærni íslenskra skipasmíða- stöðva án þess að ég sé að gera lítið úr þeim. Við höfum fengið erindi frá mönnum, sem telja sig þurfa að fá meiri aflakvóta ef smíða á skip þeirra hér, þar sem það sé dýrara en að smíða þau erlendis." Guðmundur Guðmundsson segir að ísland verði miðstöð sjávarút- vegsviðskipta á Norður-Atlants- hafssvæðinu ef erlend skip fái að landa hér afla. Þau geti meðal ann- ars selt aflann á fiskmarkaði hér. Það gefi okkur tækifæri til að selja skipunum meðal annars olíu og olíuvörur, varahluti, vélar og tæki, ráðgjöf og þekkingu, veiðarfæri og veiðarfæraviðgerðir, mat. og vatn. Auk þess þýði áhafnaskipti á þess- um erlendu skipum viðskipti við íslensk flugfélög og hótel. „Innlendar fiskvinnslustöðvar hafa lagt í gífurlega fjárfestingu vegna þess að þær hafa verið að vinna margar fisktegundir. Ef við fáum fisk frá erlendum skipum inn á okkar fiskmarkaði gætu þær frekar sérhæft sig í vinnslu á ákveðnum fisktegundum og þróað fullunnar afurðir úr þeim. Þannig gæti fiskvinnslan hér orðið sam- keppnisfær við fiskvinnsluna í Evr- ópu. Erlendu skipin gætu selt okk- ur fisk í gegnum fjarskiptamarkað hér, sem gæti verið dreifður um landið. Það er fáránlegt að leyfa ekki erlendum skipum að landa hér afla sínum þegar við flytjum inn fisk frá Alaska til vinnslu hér.“ Guðmundur segist telja þá túlk- un sjávarútvegsráðuneytisins hæpna að íslendingar myndu auð- velda erlendum skipum, til dæmis Evrópubandalagsskipum, að veiða úr sameiginlegum fiskistofnum ef við leyfðum þeim að landa hér og veittum þeim alla þjónustu. „í sum- um tilfellum eru þessi skip að veiða aðrar fisktegundir en við höfum nýtt. Slippstöðin á Akureyri breytti fimm kanadískum togurum og spurði hvorki kóng né prest um leyfi til þess. Hins vegar voru þess- ir togarar ekki að veiðum hér og komu hingað beint úr heimahöfn. Sjávarútvegsráðuneytið túlkar lögin frá 1922 þannig að erlend skip eigi ekki að vera að þvælast hér yfirleitt. íslensk og erlend skip veiða sameiginlega úr karfastofnin- um, rækjustofninum á Dohrnbanka og loðnustofninum, sem er tíma- bundið fyrir utan okkar fiskveiði- lögsögu. Við höfum hins vegar samið við Grænlendinga og Norð- menn um veiðar úr loðnustofninum og færeysk og norsk loðnuskip hafa fengið hér þjónustu.“ ísfirðingar og Hafnfirðingar bítast um grænlenska togara „Þá hafa grænlenskir togarar fengið undanþágu til að landa hér rækju sex mánuði á ári, þar sem þeir geta ekki stundað rækjuveiðar frá austurströnd Grænlands, því þar er engin hafnaraðstaða fyrir þá. ísfirðingar fengu á annað hundrað milljónir króna vegna við-' skipta við þessa grænlensu rækju- togara árið 1988, þegar þeir lön- duðu eingöngu á ísafirði, enda hafa Isfirðingar og Hafnfirðingar bitist um þessi viðskipti," segir Guðmundur. „Evrópubandalagsskip hafa ekki veitt nema 5 þúsund tonn af 40 þúsund tonna árlegum karfakvótá í grænlensku lögsögunni og fiski- fræðingar hafa sagt að ekki sé hægt að veiða meira af honum. Sjávarútvegsráðuneytið heldur því hins vegar fram að Evrópubanda- lagsskipin gætu náð að veiða þenn- an kvóta ef þau hefðu aðstöðu hér.“ Eystrasaltsþjóðir hafa mikinn áhuga á viðskiptum við okkur „Fyrirtæki í Eystrasaltslöndun- um hafa mjög mikinn áhuga á að eiga viðskipti við okkur,“ segir Guðmundur Guðmundsson hjá Fé- lagi dráttarbrauta og skipasmiðja. „Hjá okkur eru tvö mál í gangi varðandi viðskipti við fyrirtæki í Eystrasaltslöndunum. Annars veg- ar höfum við verið í viðræðum við útgerðarfyrirtæki og skipasmíða- stöð í Tallin í Eistlandi varðandi endurbyggingu á ákveðnum skip- um fyrir þetta fyrirtæki. Hins veg- ar er um að ræða útgerðarfyrirtæk- ið Litrybprom í Klaipeda í Litháen.“ Guðmundur segir að Slippstöðin á Akureyri hafi í byrjun þessa árs gert þessu fyrirtæki í Klaipeda til- boð í algjöra endurbyggingu 104 metra langs verksmiðjuskips. „Endurbyggingin kostar um 300 milljónir króna og þetta er vinna fyrir 30 manns í eitt ár. Skipið er búið að liggja mjög lengi og bíða VINKLAR Á TRÉ Þ.ÞORGRfMSSON&CO ÁRMÚLA 29, SjMI 38640 ★ GBC-Pappírstætarar Þýsk framleiðsla Ýmsar stærðir og gerðir fáanlegar OTTO B. ARNAR HF. Skipholti 33 ■ 105 Reykjavík Simar 624631 / 624699 eftir viðgerð, þar sem skipasmíða- stöðvar í Eystrasaltslöndunum anna ekki eftirspurn. Slippstöðin yrði aðalverktakinn en hópur skip- asmíðastöðva hér er að skoða þenn- an markað. Þetta skip er of stórt til að hægt sé að taka það upp hér og því yrð- um við að vinna skrokkvinnuúa annars staðar en hér, nema við fengjum flotkví, sem skipasmíða- stöðin í Tallin myndi útvega. Við höfum lagt áherslu á að byija með eitt skip og ef við sýnum að við geturn unnið það verk er ég sann- færður urn að við fáum samning um að minnsta kosti tíu skip til viðbótar," segir Guðmundur. Félag dráttarbrauta og skipa- smiðja, Rafboði hf. í Garðabæ og Atlas hf. í Reykjavík, sem er með- al annars með umboð fyrir vélbún- að í skip, hafa verið í sambandi við skipasmíðastöðina í Tallin. Stöðin hefur áhuga á að flytja hingað flotkví og býðst til að útvega henni verkefni á alþjóðamarkaði. Þetta yrði væntanlega 4.500 tonna flotkví, sem gæti verið annað hvort á Akureyri eða í Reykjavík, að sögn Guðmundar Guðmundssonar. „Litháar þurfa trú- lega leyfi frá Moskvu“ „Það er ekki komið svar við þessu tilboði Slippstöðvarinnar ennþá og það er orðinn lengri tími en við áætluðum í upphafi. Vegna óróleika í Eystrasaltslöndunum undanfarið er hugsanlegt að Lithá- ar vilji ekki ráðast í stórar fjárfest-' ingar hér núna og ég held að þeir þurfi hvort eð er leyfi frá Moskvu til þess. Við erum að kanna ýmsa möguleika í báðum þessum dæmurn varðandi fjármögnunaraðstoð og það er inni í umræðunni að Litháar greiði hluta af kostnaðinum við endurbyggingu skipsins með fiski, sem innlend eða erlend sölufyrir- tæki kæmu í verð.“ Guðmundur segir að þessi fyrir- tæki í Klaipeda og Tallin hafi leyfi frá Moskvu til að ráðstafa hluta af sínum gjaldeyri sjálf en það dugi sjálfsagt ekki til og ef fyrir- tækin þyrftu einhveijar ábyrgðir vegna lántöku þyrftu þau eflaust. að fá þær hjá Utanríkisviðskipta- banka Sovétríkjanna í Moskvu. „Við höfum hitt fulltrúa sovésku viðskiptaskrifstofunnar hér og sagt þeim af þessum málum og reynt að vinna þeim velvilja í kerfinu. Við höfum ekki heyrt annað en að velviljinn sé fyrir hendi en fulltrú- arnir hafa haft einna mestan áhuga á þjónustu við erlend skip í íslensk- um höfnum og að þau megi koma hingað óhindrað inn. Þeir vilja hins vegar að það sé alveg á hreinu að lögin frá 1922 séu ekki í veginum fyrir því, þar sem þeim er mjög í mun að lenda ekki í neinum pólitískum deilum vegna slíks.“ Guðmundur segir að fulltrúar sovéskra yfirvalda hafa einnig rætt við íslensk yfirvöld um möguleika á því að Sovétmenn fái að veiða hér vannýttar fisktesrundir. RAIIONAL Gufuofnar ... þar sem gæðin skifta máli Istóreldhúsið, veitingastaði og mötuneyti Nýjasta gerðin: CC með 50 vinnsluminnum U, fí Dalshrauni 5 Hafnarfirði Sími 650615 Sovésk skip á karfaveiðum fyrir utan okkar fiskveiðilögsögu. Félag dráttarbrauta og skipasmiðja vill að erlend fiskiskip megi landa afla sínum í íslenskum höfnum og fá hér alla þjónustu en sjávarútvegs- ráðuneytið hefur ekki veitt þeim Ieyfi til þess ef þáu veiða úr sameiginlegum fiskistofnum, sem við höfum ekki samið um veiðar úr.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.