Morgunblaðið - 13.03.1991, Síða 35

Morgunblaðið - 13.03.1991, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. MARZ 1991 35 Sigmjón Jóns- son - Minning Fæddur 8. júlí 1907 Dáinn 4. mars 1991 Fáeinar línur til þess að kveðja, er það minnsta sem ég get gert, þegar leiðir okkar Siguqons skilja nú. Kveðja og þakkir fyrir liðin ár og allar góðu, björtu minningarnar. Margs er að minnast um glað- væran samviskusaman mann, mann sem ávallt hafði það að leiðarljósi að skiia sem bestu dagsverki. Það hefði ég fyrir satt að þeir sem fengu notið starfskrafta hans töldu hann góðan og dugmikinn starfsmann, auk þess sem hann á árum áður var rammur að afli, sem kom sér oft vel í störfum járniðnað- armannsins, á þeim tímum sem tæknin hafði ekki hafið innreið sína í smiðjur landsins. En ekki varð Siguijón ríkur af veraldargæðum þó hann hafi unnið hvern þann dag sem Drottinn gaf honum. Hins vegar var hann ríkari en margur annar, ríkidæmi hans var fyrst og fremst í honum sjálf- um, heimilinu, konunni sem hann kvæntist og unni mjög til hinsta dags, í áhuga á velferð barna sinna og í ódrepandi glaðlyndi og æðru- leysi. Þegar Sigurjón nú er kvaddur hinstu kveðju er efst í huga þakk- læti fyrir að hafa fengið að ganga með honum á vegum lífsins. Fengið að vera með honum í „Holtinu" í Hafnarfirði þegar söngurinn hljóm- aði og við fengum hann til að leiða sönginn í Ólafi Liljurós, þá var gam- an og glatt í höllinni hans, með vini og nákomna á allar hliðar, þá naut hann sín því hann hafði mikið að gefa. Ekki ætla ég að rekja lífshlaup hans að öðru leyti enda penninn settur niður til þess að þakka fyrir samveruna og til að minna okkur öll sem kynntumst Siguijóni á hve bjart var yfír öllu í návist hans og fyrir það er nú þakkað að leiðarlok- um. Hafi Siguijón þökk fyrir allt. V Birtíng afmælis- og minningargreina Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birting- ar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjórn blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafn- arstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki eru tek- in til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfilegt er að birta til- vitnanir í ljóð, tvö erindi, eftir þekkt skáld, og skal þá höfundar getið. Sama gildir ef sálmur er birtur. Meginregla er sú, að minning- argreinar birtist undir fullu nafni höfundar. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar eru birtar afmæl- isfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersla er á það lögð að handrit séu vel frá gengin, vélrituð og með góðu línubili. Hagnýt greinaskrif Læriö aö skrifa blaða- og tímaritsgreinar, minningargreinar, fréttatilkynningar o.fl. Á námskeiöinu veröur lögö áhersla á aö kenna fólki undir- stööuatriöi greinaskrifa. Markmiöiö er að gera þátttakendum fært aö tjá sig i fjölmiðlum. Á námskeiöinu veröur A stuöst viö nýútkomna bók um ritun eftir Ólaf M. Jóhannesson: Þaö er leikur aö skrifa. á JSf Nánari upplýsingar og skráning alla daga I sima 67 16 97 Drottinn geymi hann og blessi á sínum vegum. Atli Ágústsson Mér er ljúft að minnast hér svila míns frá fyrra hjónabandi mínu, Siguijóns Jónssonar. Hann lést 4. mars sl. á Hrafnistu í Hafnarfirði, þá á áttugasta og fjórða aldursári. Þar hafði hann dvalið sem vistmað- ur síðustu ár ævi sinnar. Ég kynnt- ist Sigutjóni sem ungum manni í þann mund, sem hann kynntist Guðrúnu Guðmundsdóttur Sigurðs- sonar matsveins, til heimilis á Holti í Hafnarfirði eins og þá var skráð. Siguijón og Guðrún giftust. Hún er nú látin, en börn þeirra, tengda- börn, barnabörn og barnabarnabörn er nú allstór og mannvænlegur hóp- ur. Þess og annarra vensla verður ekki nánar getið hér. Siguijón var fæddur og uppalinn undir Eyjafjöllum og til átthaganna leitaði hugur hans mjög en ferða- máti var þá annar og seinfarnara milli sveita en nú er. Það var þó sumarið 1931, ef ég man rétt, að Siguijón hóf máls á því við mig og Eyrúnu heitna konu mína, systur Guðrúnar, að við fjög- ur tækjum okkur ferð á hendur austur undir Eyjafjöll, en Guðrún og Siguijón höfðu þá um þær mund- ir trúlofast. Svona ferð þótti okkur bæjarfólkinu að vonum hið mesta ævintýri, einkum vegna þess, að þá var Markarfljót enn ekki brúað. Við fórum með bifreið austur í Fljótshlíð og síðan ríðandi austur að Skálabæjum undir Eyjafjöllum. Eftir að hafa dvalið í tvo til þijá daga þar austurfrá við besta atlæti og farið um nágrennið var haldið heim á sama hátt. Alla þá góðu fyrirgreiðslu og útvegan, sem þessa ferð varðaði var markvissu skipulagi og umhyggju Siguijóns að þakka, því hann hafði veg og vanda af öllu í þessari ferð, sem heppnaðist mjög vel. Því minnist ég á þessa ferð hér, að hún er eins og svipmynd af lífsferli og háttprýði Siguijóns. Hann var í öllu traustur maður og vel séður til þeirra starfa, sem hann fékkst við, hvort sem það var til sjós eða lands. Það var mörgum erfitt að fá störf á árunum 1930-40 en aldrei man ég eftir því að Sigur- jón væri atvinnulaus nema ef skipta varð um vinnustað og þá mjög stutt- an tíma í senn. Eftir að hann hætti til sjós lærði hann eldsmíði og varð meistari í vélvirkjun enda starfaði hann lengi að þeirri grein einkum í Vélsmiðju Hafnarfjarðar. Siguijón lærði einnig pípulagnir og stundaði þá iðn í nokkurn tíma á ýmsum stöðum. Alls staðar vann Siguijón með þeim góða árangri að traust og trúmennska í öllum störfum var sameiginleg einkunn sem allir gáfu honum. Jóhanna móðir Siguijóns, sem lengst af bjó á heimili hans og þeirra hjóna og vann því með dyggð, naut þar umhyggju og kærleika því á heimili var Siguijón hógværðin sjálf og nærgætinn heimilisfaðir þegar sorg bar að höndum. Hann var einn þeirra fáu, sem kunna að gleðjast með glöðum,- en aldrei svo að úr hófí færi eða í odda skærist. Hann var fjótur til sátta þegar hann sá einlægni andstæðings síns, var kærleiksríkur eiginmaður og faðir. Siguijón var seinn til reiði, en þrekmaður mikill og þeim, sem áreittu hann til lengdar var vissara að hafa stoð að styðjast við, ef upp úr sauð sem ég vissi aðeins einu sinni til að gerðist. Ég minnist Siguijóns svila míns með virðingu, þakklæti fyrir alla vinsemd og velvild á okkar sam- veruárum á Holti í Hafnarfirði. Ég bið honum blessunar í öðru lífí og syrgjendum samúðar minnar. Friðgeir Grímsson Jórunn Skúla- dóttir — Kveðja Okkur finnst lífið svo sjálfsagt. Svo sjálfsagt að hafa vini okkar hjá okkur. Það er ekki fyrr en nú að við skiljum að svo er ekki, nú, þeg- ar við höfum misst vinkonu okkar, hana Jórunni. Það er svo stutt síðan við vorum alltaf fjögur saman. Jórunn var með okkur í sýningarsamtökum um tíma, og vorum við fjögur mikið saman. Jórunn var falleg og góð manneskja en það hefur reynt mik- ið á hana á þessari stuttu ævi henn- ar. Þó við séum sorgmædd þá vitum við að hún er á góðum stað, hennar tími var kominn og hún er í góðum höndum. Við ætlum að kveðja hana Jór- unni okkar með þessum orðum og biðjum Guð að geyma litla drenginn hennar, ættingja og vini. Kolla, Simbi og Biggi. Ég vil með þessum fáu orðum minnast hennar Jórunnar. Við Jór- unn kynntumst þegar við tókum þátt í keppninni Ungfrú Hollywood 1983. Kynni okkar urðu með ágæt- um, en þó að á milli okkar hafi kannski ekki myndast bein vinkonu- tengsl, þá var alltaf mjög gaman að hitta Jórunni. Þegar áðurnefnd keppni stóð yfir studdi Jórunn okkur stelpurnar á svo margan hátt, við stelpurnar vorum bara börn, en litum á Jór- unni sem þroskaða konu sem við vildum allar líkjast. Enda var hún aldursforseti hópsins. Ég þakka fyrir að eiga þá minningu um hana í lijarta mínu. Ég votta fjölskyldu hennar og syni dýpstu samúðarkveðjur fyrir hönd okkar stelpnanna í Ungfrú Hollywood 1983. Jóhanna Sveinjónsdóttir t Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, ÁSTA VALDIMARSDÓTTIR, Grænukinn 28, Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Víðistaðakirkju fimmtudaginn 14. mars kl. 13.30. Reynir V. Dagbjartsson, Fjóla V. Reynisdóttir, Erlendur Ingvaldsson, Guðlaug Reynisdóttir, Guðbjartur Heiðar Reynisson, Bryndís Reynisdóttir, Eirikur Haraldsson, Sverrir Reynisson, Sofffa Matthíasdóttir og barnabörn. Aðalfundur íslenska hlutabréfasjóðsins hf. Aöalfundur íslenska híutabréfasjóösins hf. verður haldinn þriöjudaginn 26. mars, 1991 kl. 16:00 í Þingstofu A aö Hótel Sögu, Reykjavík. Dagskrá 1. Venjuleg aöalfundarstörf skv. 12. gr. samþykkta félagsins. 2. Tillaga aö útgáfu jöfnunarhlutabréfa. 3. Tillaga um breytingu á 6. gr. samþykkta félagsins um heimild til stjórnar til aö hækka hlutafé með sölu nýrra hluta. 4. Önnur mál löglega upp borin. 5. Staöa og horfur á íslenska hlutabréfamarkaðnum; erindi flutt af Davíð Björnssyni deildarstjóra hjá Landsbréfum h.f. Tillögur frá hluthöfum sem bera á fram á aðalfundi skulu vera komnar í hendur stjórnarinnar eigi síöar en 7 dögum fyrir aðalfund. Dagskrá, endanlegar tillögur svo og reikningar félagsins munu liggja frammi á skrifstofu Landsbréfa h.f. hluthöfum til sýnis 7 dögum fyrir aðalfund. Fundargögn veröa afhent á fundarstað. Reykjavík 11. mars, 1991. Stjórn íslenska hlutabréfasjóösins þf. LANDSBRÉF H.F, I Landsbankinn stendur meö okkur g ÍSLENSKI Suðurlandsbraut 24,108 Reykjavik, simi 91-679200 HLUTABRÍFASJÓÐURINN HF. Löggilt verðbréfafyrirtæki. Aðili að Verðbréfaþingi islands.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.