Morgunblaðið - 05.04.1991, Síða 13

Morgunblaðið - 05.04.1991, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. APRIL 1991 13 sem vitnisburður um ferðir okkar og annarra, í tíma, rými og huga.“ Þessi lýsing er að sjálfsögðu full- gild fyrir alla myndlist, og bendir enn og aftur á þau algildu sannindi að list er fyrst og fremst huglæg reynsla; en þó myndlist byggist að mestu á hinum sjónrænu möguleg- um, þá hlýtur úrvinnsla áhorfandans og endanlegt mat að byggjast á fleiri þáttum. Það er ekki ný kenning að lífið sé eins og ferðalag, og atburðum lífs og listar megi líkja við sífellt nýja viðkomustaði á þeirri leið. Hins veg- ar hefur Erla markvisst gert þetta að viðfangsefni í list sinni. Hún hef- ur ferðast víða um heim, sýnt verk sín í ýmsum löndum, og oftast hafa nöfn sýninganna tengst þessu eilífa ferðalagi mannsandans í gegnum líf- ið (Andinn er laus, Heimsálfur, Nær- myndir minnis og gleymsku, Ferða- ’ - - $ y ,, ■ ■ ■'# ■■■■: ' ■': # ■ ■ ^ m Erla Þórarinsdóttir: „Kort“ 1990. langar — svo nokkrar einkasýningar hennar séu nefndar). Á sýningunni í Norræna húsinu eru þijátíu og fimm verk, sem skipta má í þijá flokka. Fyrst ber að nefna tíu stór verk, en síðan eru smærri myndir, sem Erla nefnir annars veg- ar Myndaröð frá Sevilla/Farangur og hins vegar Farangur. Áferð myndanna er nú ólík því sem var á sýningunni á Kjarvalsstöðum, þar sem ýmsum efnum var blandað í yfirborðið til að gera það fjölbreytt- ara. Nú er það liturinn sem ræður ríkjum; myndbygging verkanna er sterk, form eru hrein og klár, og lita- fletir eru sterkir og djúpir. Og litur- inn er ekki einungis á yfirborðinu; allar myndirnar virðast vandlega samsettar með markvissri undirmál- un í andstæðum litum sem eykur styrk þess sem ræður í fletinum. Það er mikil birta og hiti í flestum litflöt- unum, eins og er við hæfi þegar við- fangsefnin hafa kviknað í framandi löndum á suðrænum slóðum, þar sem sólin, sandurinn og hitinn eru jafnrík- ir þættir tilverunnar og gráminn, rigningin og hraunið er hér á landi. Myndröðin frá Sevilla hefur að geyma nokkrar skýrar og skemmti- legar myndir, sem vert er að benda á. Þannig er „Casa Mia“ (nr. 13) sterk í sínum einfalda arkitektúr, og tilvísunin til arfleifðar Máranna á Spáni er einnig góð. Loks rís hin einfalda „Hneta“ (nr. 21) til óvæntr- ar tignar í því einfalda formi, sem listakonan finnur henni. Hin myndröðin, Farangur, er nokkru flóknari, enda víða komið við. En Erlu tekst að koma miklu til skila með einföldum formum, sem virðast hæfa ferðalaginu vel; bæði „í Marrakesh eru u.þ.b. 500 moskur“ (nr. 24) og „í hverri borg, turnar“ (nr. 32) túlka myndefnið vel með einföldum, ljóðrænum hætti. Stóru myndirnar eru einnig ein- faldar að öllu formi, með einni undan- tekningu. Þær myndir sem draga áhorfandann fljótt að sér nefnir lista- konan „Kort“ (nr. 3-7). í hugum flestra eru kort tilvísanir í raunveru- leikann; landakort, sjókort og stjörnukort vísa mönnum veginn um veröldina. En það er hægt að kort- leggja fleira, og í viðtali fjallar lista- konan um hugmyndina að baki þess- um verkum: „Ef við hugsum um hvernig lífsleiðir okkar líta út, þá gætu þær verið eins og þessi kort; við erum alltaf á ferð milli staða en gleymum þá gjarnan leiðinni, sem skiptir þó kannski mestu máli. Þann- ig má sjá kortin sem yfirlit yfir til- veru mannanna; sumir eiga sér fáa, en fastmótaða punkta í tilverunni, en hjá öðrum eru þeir fleiri, og sam- bandið milli þeirra óljósara og flókn- ara — eins og lífíð sjálft. Sýningu Erlu Þórarinsdóttur í Norræna húsinu lýkur sunnudaginn 7. ápríl. Hrefna Róbertsdóttir þeirra upp á almenningsfræðslu. Hún var vel þegin af fólki sem aldr- ei hafði notið skólagöngu. Ennfrem- ur uppfylltu félögin þörf manna fyrir samneyti í tómstundum. Nýjar hreyfingar, bindindishreyfíngin t.d., byggðust á fjöldasamstarfi og leiddu því sjálfkrafa til stofnunar félaga. Með bækur þessar í höndum sýn- ist sem 19. öldin sé aftur á dag- skrá. Upphaf verkalýðshreyfingar, vinstri flokkar, auðvald og kreppa, sem sett voru á oddinn meðan námsmannahreyfingarnar, sem kenndar eru við 68, voru að rasa út, virðast ekki lengur vera kjörefni fræðimanna. Eitt verka Svölu. ■ SVALA Sigurleifsdóttir sýnir málverk í Galleríi einn einn, Skólavörðustíg 4a, frá 5. til 18. apríl. Sýningin er opin frá kl. 14 til 18 alla daga. og Wicanders Kork-o-Plast korkflísamerkin komin undirsama þak. & ármúla 29, Múlatorgi, síml 38640 Þ. Þ0RGRIMSS0N & C0 rM f f Daviö Oddsson r f • • f r • a Blonduosi Davíð Oddsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, efnir til almenns stjórnmálafundar í Félagsheimilinu á Blönduósi laugardaginn 6. apríl n.k. Fundurinn hefst kl. 15:00. Pálmi Jónsson og Vilhjálmur Egilsson flytja ávörp. Fundarstjóri: Erlendur Eysteinsson. Allir velkomnir. Pólmi X[t» FRELSI OG MANNÚÐ

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.