Morgunblaðið - 05.04.1991, Page 20

Morgunblaðið - 05.04.1991, Page 20
20 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 1991 Hnignun heimilanna, hnignun tungunnar og aðdragandi þessa eftir Rannveigu Tryggvadóttur Fyrri grein Reikult er rótlaust þangið, rekst það um víðan qá; straumar og votir vindar velkja því tii og frá. (Joh. Siguij.) Ólafur Oddsson og Jón Óttar Ragnarsson rituðu nýverið greinar í Morgunblaðið um að okkur beri að halda dyggan vörð um móður- málið og lýstu þeir áhyggjum sín- um vegna hnignunar þess. Að sjálfsögðu er ég þeim sammála, en ég held að hnignun heimilanna eigi enn meiri þátt í hnignun ís- lenskrar tungu en ásókn þeirrar ensku t.d. Hnignun heimilanna er þjóðarböl. Engin „stofnun" getur komið í stað góðs heimilis. Móðurmál heitir það því börn nema málið fyrst af vörum mæðra sinna. „Mamrna", fyrsta orðið, sem bam myndar með vörunum, hefur eðlilega fest sem gæluyrði við móðurina. Hún hefur líka mjúka húð og mjólk í bijóstum fyrstu mánuði ævi þess, þýðan róm og ber — að öllu jöfnu — heita ást í bijósti til afkvæmis síns. Sé allt með felldu þá myndast milli móður og bams sterkt kærleikssamband sem veitir báðum unað og baminu notalega öryggiskennd. Það er engin hætta á því að bam, sem fær að njóta návistar við foreldra sína og systkini á við- kvæmustu mótunarárum sínum, sé ekki fært um að tala rétt mál og fallegt, sé það fýrir því haft á heimilinu. En hve oft dregur ekki ský fyr- ir sólu? Kominn var gestur á heim- ilin. Nefndist sá tíðarandi og var þaulsætinn mjög. Vildi bara alls ekki fara þó fáa langaði til að hafa hann. Svo tók hann sér hús- bóndavald, bara svona upp úr þurru. Og frekjan í honum! Hann hóf einatt mál sitt á því að segja: „Þú skalt...!“ Tíðarandinn á íslandi hefur vægast sagt verið stórskrítinn undanfarna áratugi. Fyrst mót- mæltu stríðaldir unglingar með miklum tilþrifum — bara ein- hveiju! Það gerðu líka stríðaldir jafnaldrar þeirra í öðrum vestræn- um löndum (’68-kynslóðin). Mönn- um líkar það auðvitað ekki að standa á blístri af vellíðan. Tíðar- andinn sagði mönnum að upp væri komið mikið og alvarlegt kynslóðabil. Enginn vissi hvað hann var að fara, en hann hlaut að vita þetta og unglingamir ák- váðu að kynslóðabil skyldi það heita. Hættu þau siðan snarlega að virða skoðanir karls og kerling- ar, foreldra sinna, og annars grá- myglulegs fólks, öfugu megin við kynslóðabilið. Öðru máli gegndi auðvitað um skoðanir „björgunar- deildar Rauðsokka “, sem mætt var galvösk til leiks, þó ekki væru all- ir réttu megin við bilið á þeim bæ. Báðar þessar hreyfíngar, „’68- kynslóðin“ og „Rauðsokkar“, voru ættaðar erlendis frá — hvaðan upphaflega væri fróðlegt að fá að vita. Fyrri hreyfíngin þjónaði þeim tilgangi að „deila og drottna" og sú síðari kom því til leiðar að Rannveig Tryggvadóttir „Það er engin hætta á því aðbarn, sem fær að njóta návistar við foreldra sína og systk- ini á viðkvæmustu mót- unarárum sínum, sé ekki fært um að tala rétt mál og fallegt, sé það fyrir því haft á heimilinu.“ Vestur-Evrópubúum fækkaði. Við máttum einna síst vð slíku sökum fámennis, en að þvi var ekki spurt, tíðarandanum skyldi bara hlýtt undanbragðalaust! Hafa menn velt því fyrir sér hvers vegna konum, sem langaði til að eignast bömin sem þær gengu með en höfðu ekki ráð á því, hefur ekki verið boðin fjárhagsaðstoð svo þær þyrftu ekki að láta deyða ófætt bam sitt? Er ekki eitthvað sjúklegt við þetta? Er þetta ekki hættulegt fyrir þjóð, sem vegna óaflátlegrar baráttu fyrir sjálfstæði sínu, verð- ur að eiga „sterkan, ungan stofn“? Til að gera langt mál stutt þá voru það Rauðsokkur og meðreið- arsveinar þeirra sem hræddu al- þingismenn til að samþykkja rýmkun fóstureyðingarlaganna 1975. Gunnlaugur Snædal for- stöðumaður Fæðingardeildarinn- ar, tjáði mér að það hefði verið alveg óþarft, lögin hefðu vérið aI- veg nógu rúm. Þau eru ekki fá, íslensku börnin, sem síðan hefur verið fargað í móðurkviði. Hefur það gert þjóðina sterkari? 0, al- deilis ekki! Jafnframt var hafín herferð til að telja konum trú um að þær væru mun betur settar úti á vinnumarkaðinum eða í lang- skólanámi en heima hjá sér — og bömin á stofnunum. Allur var málflutningurinn undir formerkj- um jafnréttis kynjanna. Nær aldr- ei var minnst á jafnrétti milli kvenna innbyrðis. Hinn raunverulegi tilgangur skötuhjúanna tíðaranda og Rauð- sokka var að hluta til sá að búta fjölskylduna niður í einingar og ráðskast svo með og drottna yfir „einingunum“. Sú hefur a.m.k. útkoman orðið. Síðasta snilldar- hugmyndin er sú að öll börn frá sex mánaða aldri „eigi rétt á“ dagvistarplássi. '' Þó að hálfur annar áratugur sé liðinn síðan það óheillaspor var stigiað að rýmka fóstureýðingar- lögin þá er ekki enn farið að meta heimaumönnun barna til fjár. Vilji þjóðin ekki ganga fyrir ættemis- stapa innan tiltölulega skamms tíma þá bráðliggur á að það verði gert. Vita alþingismenn ekki að ung kona, sem vinnur úti allan daginn, hefur ekki nokkurt þrek til að eignast nema í mesta lagi eitt til tvö börn en þyrfti að eign- ast þtjú til fjögur eigi þjóðin að eiga sér minnstu afkomumögu- leika í þjóðahafinu í heiminum. Skólabömin kæmu þá heldur ekki að tómu húsi. Þær konur sem sí- fellt hrópa: „Fleiri dagvistarstofn- anir“ en sjá ekkiþörfin á að barna- fólki sé hyglað fjárhagslega eru í raun að höggva að rótum þjóðar- meiðsins. Agjarnir menn í auðlind- ir landsins bíða í ofvæni fyrir dyr- um úti, hvort sem þeir eru kennd- ir við EB eða Kreml. Forstöðumenn fyrirtækja og stofnana ættu sem flestir að vinda bráðan bug að því að bjóða konum sem kjósa hlutastörf. Það myndi borga sig fyrir þá sjálfa og fyrir fyrirtækin líka. Tvær ánægðar og glaðar konur, sem skipta heilu starfí á milli sín, era betri starfs- menn en bamakonan í heilsdags- starfí sem eðlilega er oft með hug- ann heima. Það gæti bjargað mörgu barninu frá örvílnan og margri móðurinni frá hugarangri og ofþreytu. Auk þess myndi það skapa atvinnumöguleika fyrir mið- aldra konur, sem þjóðfélagið hefur leyfy sér að ýta til hliðar eins og slitinni flík. Þreytt móðir er ekki góð móðir, það hef ég reynt á • sjálfri mér. Yngri sonur minn, þá tíu ára gam- all, sagði eitt sinn við mig er ég kom heim frá vinnu: „Heldurðu að það sé gaman að sitja aleinn heima, horfa út í loftið og hafa engan að tala við?“ Hann sagði nákvæmlega þetta, orðin greypt- ust í huga minn. Höfundur er húsmóðir í Reykjavík. Öflugan fiskmarkað eftir Össur Skarphéðinsson Fiskmarkaðimir hafa hleypt nýju lífí í íslenskan sjávarútveg. Fyrir tilstilli þeirra hefur verð á físki hækkað og nýting aukist. Þeir hafa ennfremur leitt til auk- innar sérhæfíngar, sem fyrir þjóð- arbúið skilar sér í auknum verð- mætum úr sama aflamagni. Um leið getur fískvinnslan borgað betra verð fyrir hráefnið, og hærri laun til þeirra, sem vinna fískinn í landi. F’iskmarkaðimir eru þann- ig hluti af þeirri uppstokkun í sjáv- arútvegi sem þarf að eiga sér stað til að hægt sé að lyfta lífskjörum rækilega. Helsti galli markaðanna er hversu smáir þeir eru, og hve lít- ill hluti af aflanum er seldur um þá. Því þarf að breyta sem fyrst. Við þurfum að búa svo um hnút- ana að sem mestur hluti aflans fari yfír innlendan markað, og sjálfur tel ég réttast að gera það með svipuðum hætti og sums stað- ar eríendis, þar sem allur afli er lögskyldaður til að fara um mark- að. Hráefnisskortur Sú skrýtna staða er nú komin upp, að íslensk fískvinnslufyrir- tæki era farin a flytja hausskorinn þorsk frá Alaska. Flutningurinn tekur 40 daga, og komið til ís- lands kostar kílóið 120 krónur, eða um fímmtungi meira en íslenskur þorskur hefur kostað á mörkuðun- um hér heima, — þegar hann fæst. Á sama tíma eram við að flytja útum-70.þúsund tonn-af bolfiski á ári hverju til Evrópu, þar sem skilaverðið er oft lægra en við þurfum að borga fyrir Alaskaþor- skinn. Þetta háa verð, sem innlend fyrirtæki era reiðubúin að greiða fyrir útlendan þorsk, sýnir glögg- lega, að innanlands ríkir skortur á físki til vinnslu. Þetta sýnir líka, að fyrirtækin eru sum hver reiðu- búin til að greiða hátt verð fyrir íslenskan fisk. En, — því miður, þau fá ekki tækifæri til þess. Langmestur hluti af innlendum afla fer annaðhvort beint á erlendan markað eða er seldur til vinnslufyrirtækja, sem tengjast útgerðinni. Mjög lítið magn fer um íslensku uppboðs- markaðina. Samkeppnisfrelsi í dag ríkir því ekki samkeppnis- frelsi í verslun með íslenskan fisk. Þau vinnslufyrirtæki, sem ekki tengjast veiðum, hafa ekki sama möguleika á að verða sér úti um hráefni til vinnslu og hin, og þurfa yfirleitt líka að greiða mun hærra verð fyrir hráefnið. Innanlands er þetta ástand þegar farið að hefta þá þróun sem hefur á síðustu áram gætt til aukinnar sérhæfni og þar- með meiri verðmætasköpunar. Með uppboðsmarkaði myndu hins vegar öll fyrirtæki í vinnslu geta keppt innbyrðis á markaðn- um, og ættu því jafna moguleika á að afla hráefnis. Þarmeð yrði komið á almennilegri samkeppni, sem þegar upp er staðið yrði'ollum til góðs. Sérhæfing En mikilvægasti ávinningurinn af uppboðsmarkaðnum felst þó ekki síst í þeim miklu möguleikum, sem slíkur markaður veitir fyrir- tækjum til að sérhæfa sig í vinnslu. í dag er staðan þannig, að húsin þurfa að taka á móti öllum afla sem þeim berst, og verða sífellt að vera að skipta á miili tegunda og stærðarflokka. Með uppboðs- markaði væri hinsvegar hægt að sérhæfa vinnslulínur í sérstökum stærðum, eða tegundum. Staðreyndin er vitaskuld sú, að þegar fiskvinnslan nær að sérhæfa sig betur með því að kaupa hrá- efni á stóram uppboðsmarkaði, þá fær hún í senn betri nýtingu og er þarafleiðandi fær um að greiða hærra verð fyrir hráefnið. Þeir fiskmarkaðir, sem þegar er búið að setja á stofn hériendis, hafa rækilega sýnt fram á þetta. Gæðahvatning í dag tekur verðlagning á físki of lítið mið af gæðum aflans hveiju sinni. Yfirleitt er fast verð ákveðið með samningum, þar sem stærðin skiptir mestu máli. Verð á fiski sem fer yfir markað ræðst hins vegar í miklu ríkari mæli af ástandi fisksins, og sala á upp- boðsmarkaði myndi því tengja bet- ur verð og gæði. í þessu felst löngu tímabær gæðahvatning. En markaðimir bæta gæðin með öðrum hætti líka: Þeir sníða af aflatoppana. í dag leiða afla- hrotur oft til þess, að gæði aflans stórminnkar auk þess sem verð- mætum er gjarnan „bjargað" með því að vinna hann í fljótunnari en verðminni pakkningar. Færi hins- vegar allur afli um markað, þá -leiddi hið aukna framboð í hrotum- samstundis til verðlækkunar og útgerðin, sem vitaskuld leitast við að fá sem mest fyrir þann afla, sem henni er heimilt að veiða, drægi úr veiðum uns jafnvægi næðist aftur. Raunar myndir markaður líka eyða því undarlega ástandi sem núna ríkir i verðlagsmálum á fiski. En í dag eru margs konar verð í gangi: verðlagsráð hefur sam- þykkt lágmarksverð sem era 50,41 króna á kíló fyrir fimm kílóa fisk, víðast gildir svo 30% álag ofan á það, sem lyftir verðinu í 65,53 krónur. Þar á ofan koma sérsamn- ingar sem hækka það enn í 70-80 krónur. Hæsta verðið mun vera um 107 krónur á kíló fyrir 7 kílóa þorsk og yfír. Ef fískur færi hinsvegar allur um markað, hyrfí þessi glundroði. Að líkindum myndi þá meðalverð til sjómanna hækka eitthvað, og það yrði örugglega jafnara milli staða en nú. Góð reynsla Öflugur uppboðsmarkaður myndi líka sjá til þess að í stað þess að kaupa íslenskan fisk á mörkuðum í Cuxhaven, Bremerha- ven eða á Humbersvæðinu þyrftu erlendir fískkaupmenn að* koma til íslands. Það eitt myndi reynast veraleg lyftistöng fyrir hvers kon- ar þjónustugreinar innanlands. Ekki er síður mikilvægt, að inn- an fárra ára munu nýjar reglur um ferksleika taka gildi í Evrópu- bandalaginu, sem banna að eldri fískur en átta daga verði settur á markað. Þetta þýðir, að færi ís- lenskur afli um innlendan markað, -þá-myndi—sú- vtnnsla, sem í- dag- Össur Skarphéðinsson „Fiskmarkaðirnir eru þannig hluti af þeirri uppstokkun í sjávarút- vegi sem þarf að eiga sér stað til að hægt sé að lyfta lífskjörum ræk- ilega.“ fer fram í Evrópu á íslensku hrá- efni, að mestu leyti færast inn í landið. Ég tel því að það sé brýnt, að allur afli af íslandsmiðum fari um innlendan markað, og mun fyrir mitt leyti stuðla að því að Alþýðu- flokkurinn beijist fyrir því þegar á næsta þingi. Höfundur skipar 3. sœti A framboðsUsta Alþýðuflokksins í Reýkjavík: >nsií íu>iHi1.>.m j

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.