Morgunblaðið - 05.04.1991, Blaðsíða 24
30
24
reei iiwaA .8 HUCiAauTaö'? aioAjaniJDJiOM
- MORGUNÐLAÐIÐ POSTUÐAGUR 5: APRIL 1991
Svíþjóð:
Auglýsingar leyfð-
ar í sjónvarpinu
Stokkhólmi. Frá Erik Lidén, fréttaritara Morgunblaðsins.
AUGLÝSINGAR verða leyfðar í sænsku sjónvarpi frá og með fyrsta
desember nk. Svíþjóð er síðast Norðurlandanna til að leyfa auglýs-
ingar í sjónvarpi og er Albanía nú eina Evrópulandið þar sem sjón-
varpsauglýsingar eru bannaðar. Miklar deilur hafa staðið um þetta
mál innan Jafnaðarmannaflokksins, sem nú nú fer með stjórnarvald-
ið, en ríkisstjórnin hefur loks komist að samkomulagi um málið og
er gert ráð fyrir að sænska þingið greiði atkvæði um það 11. júní nk.
að reikna mætti með að auglýst yrði
fyrir um fjóra milljarða sænskra
króna í sjónvarpi árlega en nú telja
hinir allra bjartsýnustu áð raunhæft
sé að áætla að sjónvarpsauglýsingar
muni nema um einum og hálfum
milljarði sænskra króna.
í Svíþjóð er starfrækt útvarpsráð
sem kannar dagskrá sænsku ríkis-
sjónvarpsstöðvanna eftir á. Mun það
einnig fylgjast með dagskrá nýju
einkastöðvarinnar og sjá til þess að
gildandi reglum um sjónvarpsút-
sendingar sé fylgt þar á bæ.
Nú eru tvær sjónvarpsstöðvar
reknar í Svíþjóð og eru þær báðar
í eigu ríkisins. Þann 1. desember
bætist þriðja stöðin við. Verður hún
í einkaeign og eiga auglýsingatekjur
að standa undir rekstrarkostnaði.
Vegna þess hve horfur í sænsku
efnahagslífi þykja slæmar er ekki
búist við að tekjur sjónvarpsstöðva
af auglýsingum verði eins miklar og
í fyrstu var talið. Áður töldu menn
Reuter
Rithöfundurinn Max Frisch.
Sviss:
Rithöfund-
urinn Max
Frisch látinn
Zurich. Reuter.
SVISSNESKI skáldsagnahöf-
undurinn og leikskáldið Max
Frisch lést í Zurich í gær, 79
ára að aldri. Frisch varð heims-
frægur fyrir bók sína „Ich bin
nicht Stiller" sem kom út árið
1954.
Max Frisch var róttækur
vinstrisinni en fór í mörgu sínar
eigin leiðir og var ætíð mjög
umdeildur. Hann gagnrýndi heift-
arlega svissneskt þjóðfélag, ekki
síst herinn sem hann sagði gegna
því meginhlutverki að halda verk-
alýðnum niðri og tungumálasvæð-
unum saman en þrjú mál eru töluð
í landinu; þýska, franska og ít-
alska. í þjóðaratkvæði árið 1989
lýstu 35% landsmanna fylgi við
þá hugmynd að leggja herinn nið-
ur.
Frisch stundaði blaðamennsku
á kreppuárunum og ferðaðist víða
um Evrópu en hóf síðan störf sem
arkitekt. í sögunni um Stiller, sem
seldist mjög vel og gerði honum
kleift að helga sig ritstörfum, lýsti
hann löndum sínum svo að þeir
væru ekki frjálsir heldur stöðugt
í helgreipum óttans. „Óttans við
framtíðina, óttans við að verða
einhvern tíma fátækir, óttans við
lífíð, ... óttans við breytingar í
heiminum, fátkennds óttans við
andlegt hugrekki."
Önnur rit Frisch eru m.a. skáld-
sagan „Homo Faber“, einnig leik-
ritin „Ándorra“ og „Biedermann
og brennuvargamir" þar sem
hann fæst við arf nasismans.
Leikritin hafa verið færð upp hér
á landi.
■ LONDON - Roger Cooper,
sem hefur verið haldið í gíslingu í
íran í fimm ár og var óvænt sleppt
fyrr í vikunni, segir að Terry Wa-
ite, sem hvarf í Beirút árið 1987
og er enn haldið í gíslingu í Líban-
on, hafi verið rænt vegna þess að
hann hafi verið talinn vera njósnari
á vegum bandarísku leyniþjón-
ustunnar CIA. Iranir sögðu Cooper
að senditæki hefði fundist í skeggi
eða hári hans. Waite hefði ætlað
að láta færa sig á staðinn þar sem
gíslamir voru í haidi, starfsmenn
CIA hefðu síðan ætlað að miða út
staðinn og frelsa gíslana.
Reuter
Örtröð við annan af bönkunum í Moskvu, þar sem hægt er að kaupa erlendan gjaldeyri. Sovétstjórnin
lækkaði i gær gengi rúblunnar fimmfalt gagnvart helstu gjaldmiðlum heims. Opinbera gengið er orðið
því sem næst hið sama og á svörtum markaði.
Verkfallið í Sovétríkjunum breiðist út:
Kolanámamenn hafna tilboði
Gorbatsjovs um launahækkun
Krefjast enn afsagnar Sovétforsetans og annarra ráðamanna í Kreml
VERKFALL námamanna í Sovétríkjunum breiddist út í gær er verk-
fallsmenn höfnuðu tilboði Mikhaíls Gorbatsjovs Sovétforseta um tvöföld-
un launa þeirra innan árs og kváðust ætla að halda til streitu kröfu
þeirra um að Gorbatsjov segði af sér. Fréttastofan TASS hafði áður
haldið því fram að verkfallsmennirnir hefðu fallist á tilboð Sovétforset-
ans en talsmenn þeirra sögðu að þeir, sem sömdu við Sovétsljórniná,
hefðu ekki haft umboð til þess.
Borís Jeltsín, forseti rússneska
þingsins, gagnrýndi stjórnina í Kreml
fyrir að hafa ekki tekið rétt á verk-
fallinu. „Fleiri námum hefur verið
lokað eftir fund námamanna og Va-
lentíns Pavlovs forsætisráðherra þar
sem engar raunhæfar ákvarðanir
voru teknar. Verkfallið heldur áfram
að breiðast út,“ sagði Jeltsín á þing-
inu.
Um 1.000 báxít-námamenn í
Sverdlovsk, heimabæ Jeltsíns, lögðu
niður vinnu til að mótmæla stefnu
Sovétstjómarinnar. „Því víðfeðmari
sem verkföllin verða því fyrr verður
hægt að hefja nýsköpunina í Rússl-
andi,“ sagði talsmaður verkfalls-
mannanna. Verkfallið náði einnig til
stórra nikkel-náma í Norílsk, nyrst
í Rússlandi, og framleiðslan á svæð-
inu minnkaði um helming. Verka-
menn í Mínsk, höfuðborg Hvíta-
Rússlands, lögðu niður vinnu og
efndu til mótmælagöngu til að krefj-
ast afsagnar Moskvu-stjórnarinnar.
Leggja nú megináherslu á
stj órnmálaumbætur
Leiðtogar verkfallsmanna í kola-
námum Kúzbass í Síberíu og Don-
bass í Úkraínu sögðu að þeir sem
tóku þátt í samningaviðræðunum við
Sovétstjómina hefðu ekki haft um-
boð til samninga. Þeir sögðu að ráða-
mennimir í Kreml hefðu ekki burði
til að leysa málið. „Það er of seint
fyrir Gorbatsjov að leggja fram slíkt
tilboð. Við hefjum ekki vinnu að
nýju fyrr en Gorbatsjov segir af sér
og sovéska þingið verður leyst upp,“
sagði Vladímír Mítsjovskíj, námu-
maður frá Tsjervonograd í Vestur-
Úkraínu. „Verkfallið heldur áfram
og við leggjum nú megináherslu á
kröfur okkar um stjómmálaumbæt-
ur,“ sagði leiðtogi námamanna í
Úkraínu.
Verkfallið breiddust einnig út í
Kúzbass í Síberíu, helsta kolanáma-
svæði Sovétríkjanna. „Við höfum
lagt fram kröfur um stjómmálaum-
bætur en stjómvöld í Moskvu beina
sjónum sínum aðeins að efnahags-
vandanum," sagði talsmaður verk-
fallsmanna á svæðinu. Námamenn-
imir vilja að Sámbandsráðið, sem er
skipað kjömum fulltrúum allra lýð-
veldanna fimmtán, taki við völdunum
af Sovétstjórninni og sovéska þing-
inu.
Tatsmaður óháða námamanna-
sambandsins í Moskvu, sem hefur
skipulagt verkfallið í samráði við
verkfallsnefndirnar á námasvæðun-
um, sagði að Sovétstjórnin hefði að-
eins samið við „stjómendur náma,
verkalýðsfélög kommúnista og vel
alda skósveina þeirra úr röðum nám-
amanna“.
Dagblaðið Komsomolskaja Pravda
skýrði frá því að ráðuneyti kolanáma
hefði ákveðið hveijir fengju að taka
þátt í viðræðunum í Kreml. Af um
500 þátttakendum hefðu aðeins 30
verið fulltrúar námamanna.
Færast mikið í fang
Kolanámamennimir efndu einnig
til verkfalls árið 1989 en Gorbatsjov
tókst að binda enda á það með loforð-
um um launahækkanir og bætt lífs-
kjör. Þá kom Sovétforsetinn fram
sem bandamaður þeirra. Nú segja
þeir hins vegar að Gorbatsjov hafí
svikið þá og vitna að sögn breska
tímaritsins The Economist næstum
orðrétt í kröfur sem Borís Jeltín lagði
fram tveimur vikum áður en verkfall-
ið hófst fyrir rúmum mánuði. Jeltsín
hefur þó ekki getað lýst því yfir opin-
berlega að hann styðji verkfalls-
mennina því kröfur þeirra gætu tor-
veldað þær efnahagsumbætur, sem
hann hefur beitt sér fyrir í Rúss-
landi. Eini stjórnmálamaðurinn í Sov-
étríkjunum, sem hefur vaxið í áliti
vegna verkfallsins, er forseti Kazak-
hstans, Nursultan Nazarbaev, sem
tókst að telja námamenn í lýðveldinu
á að hefja vinnu á ný með loforðum
um bætt lífskjör og stuðning við kröf-
ur þeirra.
Verkfallsmennirnir vilja feta í fót-
spor Samstöðumanna í Póllandi, sem
tókst að hrekja kommúnista frá völd-
um, en stjómmálaskýrendur telja að
mikið þurfi að koma til ef það eigi
að takast.' Þeir benda á að lítil hætta
sé á því að verkfallið leiði til efna-
hagshruns eins og ráðamenn í Kreml
hafa látið í veðri vaka. Kolafram-
leiðslan í Sovétríkjunum hefur
minnkað um innan við þriðjung
vegna verkfallsins og er aðeins um
19% af heildarorkuframleiðslunni.
Orkuforðinn hefur því aðeins minnk-
að um 6%.
Stjórnmálaskýrendur telja einnig
að verkfallið þurfi að ná til mun fleiri
greina atvinnulífsins til að koma
stjóminni frá völdum. Aðrir verka-
menn hafa hingað til verið tregir til
að ganga til liðs við námamennina
en það kann að breytast vegna
óánægju almennings- með verðhækk-
anirnar á mánudag, sem námu allt
að 60%.
Heimild: Reuter og The Economist.
♦ ♦ ♦
Albanía:
Verkfallsboð-
un fær dræm-
ar undirtektir
Tirana. Reuter.
ÁSKORUN Lýðræðisflokksins í
Albaníu um eins dags verkfall til
að mótmæla aðgerðum lögreglu
í óeirðum eftir þingkosningarnar
á páskadag fékk dræmar undir-
tektir Albana.
Verkfallið átti að vera í gær en
margir íbúar Tirana sögðust ekki
hafa frétt af áskoruninni. Ekki var
minnst á hana í sjónvarpi og út-
varpi og fáir könnuðust við flugrit
sem flokkurinn dreifði.
Talsmaður óháðu verkalýðs-
hreyfingarinnar í landinu sagði að
hreyfingin fordæmdi lögregluað-
gerðirnar, sem kostuðu fjóra menn
lífíð, en styddi ekki verkfallsaðgerð-
ir sem stjórnmálaflokkur boðaði.
Uppreisnin í írak:
Bush gagnrýndur fyrir að
aðstoða ekki skæruliðana
Washington. Reuter.
GEORGE Bush Bandaríkjaforseti sætir vaxandi gagnrýni fyrir að
horfa aðgerðarlaus upp á sókn íraska stjórnarhersins gegn skæru-
liðum Kúrda og shíta. Er forsetinn sakaður um að taka stjórnmála-
hagsmuni fram yfir siðferðisleg sjónarmið.
Deilur um stefnu Bandaríkja-
stjómar í málefnum Iraks hafa
aukist síðustu daga á sama tíma
og sveitir hliðhollar Saddam Hus-
sein írakforseta hafa brotið upp-
reisn skæruliða á bak aftur og
fellt hundruð þeirra nánast fyrir
augum hersveita bandamanna sem
enn halda um 15% írasks lands.
Bush hafði ítrekað hvatt írösku
þjóðina til þess að rísa upp og
hrekja Saddam frá völdum. Einna
lengst gekk hann í yfirlýsingu 15.
febrúar með því að segja: „Það
er önnur leið til að koma í veg
fyrir blóðbað en hún er sú að ír-
aski herinn og íraska þjóðin taki
málin í sínar hendur og knýi harð-
stjórann Saddam Hussein til af-
sagnar“.
Eftir að hlé varð á bardögum í
Persaflóastríðinu og uppreisnar-
menn létu til skarar skríða gegn
Saddam hefur Bush hins vegar
margsagt að Bandaríkjamenn
muni ekki blanda sér í borgara-
styrjöldina í írak.
Aðstoðarmenn forsetans hafa
haldið því fram að hann óttist, að
hrun valdakerfis Ba’ath-flokksins
í írak kynni að stofna stjórnmála-
jafnvægi í hættu, ekki einungis í
írak heldur á öllu Persaflóasvæð-
inu.
Þessar útskýringar hafa ekki
dugað og sótt hefur verið að for-
setanum úr öllum áttum.
Til að byija með einskorðaðist