Morgunblaðið - 05.04.1991, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 1991
Harðbaksmenn halda til veiða síðdegis í gær.
Frystihús ÚA:
Ekki óeðli-
legt að við
fáum bita
af kökunni
- segir Frosti Meldal
„FÓLKI þykir ekki óeðlilegt að
það fái smábita af kökunni, fyrir-
tækið hefur gengið vel í nokkur
ár og fólk horfir til þess,“ sagði
Frosti Meldal trúnaðarmaður
starfsfólks hjá Útgerðarfélagi
Akureyringa í gær eftir að ljóst
va að samkomulag hafði náðst
við sjómenn félagsins um hækk-
un á fiskverði.
Frosti sagði að starfsfólk frysti-
hússins myndi í mestu rólegheitum
skoða stöðuna, það hefði sýnt hug
sinn til hækkunar skattleysismarka
Sjómenn gengu að tilboði ÚA:
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Frosti Meldal trúnaðarmaður hjá
ÚA.
í verkfalli fiskverkafólks fyrir
skömmu og kjaramál væru nokkuð
rædd í matar- og kaffitímum.
„Mörgum finnst tími til kominn að
við fáum eitthvað í okkar hlut, síð-
ast þegar sjómenn fengu hækkun
héldum við að okkur höndum. Það
verður hins vegar sett upp flæðilína
í frystihúsinu í vor og með tilkomu
hennar væntir fólkið þess að launin
hækki,“ sagði Frosti.
Tökum áhættu en sjón-
armið okkar viðurkennd
- segir Konráð Alfreðsson for-
maður Sjómannafélags Eyjafjarðar
SJÓMENN á ísfisktogurum Útgerðarfélags Akureyringa samþykktu
með yfirgnæfandi meirihluta að ganga að tilboði sem félagið lagði
fyrir þá í fyrradag, en í því felst að fyrir 15% aflans verður greitt
markaðsverð eins og það er hverju sinni að meðaltali á þremur
mörkuðum á suðvesturhorni landsins, en fast verð verður greitt
fyrir 85% aflans. Hækkunin nemur ríflega 5% miðað við verð í janú-
ar og febrúar. Báðir aðilar, forráðamenn ÚA og sjómenn, eru ánægð-
ir með það samkomulag sem náðst hefur og fagna því að deilan
hefur verið leyst. Fyrstu tveir togararnir héldu til veiða í gærkvöldi.
Konráð Alfreðsson formaður (til hægri á myndinni) og Sveinn Krist-
insson varaformaður Sjómannafélags Eyjafjarðar voru ánægðir þeg-
ar ljóst var að samkomulag í fiskverðsdeilunni var í höfn. Sveinn
náði að festa blund örskamma stund í stól félagsins í býtið í gær-
morgun eftir mikla útreikninga um nóttina.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Sjómenn á ífisktogurum ÚA skoða tilboð lyrirtækisins gaumgæfilega
á fundinum i gær.
„Ég fagna því að við höfum leitt
þessa deilu til lykta og við teljum
að það hafi verið gert á farsælan
hátt þannig að báðir aðilar megi vel
við una,“ sagði Gunnar Ragnars
framkvæmdastjóri ÚA. „Við verðum
að horfast í augu við það að markað-
imir eru staðreynd og það hefur
lengi verið áhugamál sjómanna að
tengjast því verði á einhvern hátt.
Verðið á þessum mörkuðum er hins
vegar að okkar mati óraunhæft, það
er opinber skömmtun á erlendu
markaðina og það sem á innlendu
markaðina fer er nánast ígildi
skömmtunar því magnið sfem í gegn-
um þá fer er svo lítið. En á meðan
þetta er svona verður aldrei friður
og þar af leiðandi er best að fara
þá leið sem valin hefur verið,“ sagði
Gunnar.
■ KAMMERHLJÓMS VEIT Ak-
ureyrar heidur Mozarttónleika í
Akureyrarkirkju sunnudaginn 7.
apríl kl. 17, en þeir eru haldnir í
tilefni þess að 200 ár eru liðnir frá
dauða tónskáldsins. Hljómsveitin
verður skipuð 45 hljóðfæraleikur-
um. Hljómsveitarstjóri verður Örn
Óskarsson en einsöngvarar þau
Bergþór Pálsson, baritón, og Elín
Ósk Öskarsdóttir, sópran. Fluttur
verður forleikur að óperunni Don
Giovanni, þá verða flutt valin ein-
söngsatriði og dúettar úr sömu
óperu svo og Cosi Fan Tutti, Brúð-
kaupi Fígarós og Töfraflautunni.
Tónleikunum lýkur með flutn-
ingi á g-moll sinfóníu Mozarts,
sem er ein þekktasta og vinsælasta
sinfónía hans. Forsala aðgöngu-
miða hefst í dag, föstudag, í Bóka-
búð Jónasar og þar verða einnig
seldir miðar á morgun.
Hann sagði að með samkomulag-
inu væri tekin áhætta á báða bóga,
en hún væri ekki stór. Hvað fasta
verðið varðar sagði hann að það
hefði verið sett með hliðsjón af því
sem stóru fiskvinnslufyrirtækin
greiða, en það væru þau fyrirtæki
sem ÚA þætti ástæða til að bera sig
saman við. Það væri verð sem í gildi
hefði verið á undanförnum mánuðum
og því teldi hann félagið ekki fara
út fyrir þá ramma sem hin svokall-
aða þjóðarsátt gerir ráð fyrir.
„Eg held að þegar til lengri tíma
er litið muni verðið vera svipað og
það sem greitt hefur verið og þetta
muni ekki hafa í för með sér kostn-
aðarauka fyrir félagið. Við höfum
áðuri ákveðið leiðréttingu til sjó-
manna sem felst í hækkun heima-
löndunarálag og þetta samkomulag
er innan þess rarnrna," sagði Gunn-
ar.
Konráð Alfreðsson formaður Sjó-
mannafélags Eyjaíjarðar sagði eftir
fund sjómanna í gær að sigur þeirra
í málinu væri sá að fá markaðsteng-
inguna inn en hún boðaði hugarfars-
breytingu hjá útgerðinni, sem áður
hefði landað öllum afla heima og
greitt eftir verðlagsráðsverði.
„Menn taka vissulega áhættu með
þessu samkomulagi, því ekki er
hægt að vita fyrirfram hvert verðið
er á mörkuðunum. En þetta er viður-
kenning á okkar sjónarmiðum, verð-
lagsráðsverðið er úr sér gengið og
við væntum þess að þetta verði
fyrsta skrefið í að það verði lagt
niður og í landinu verði ftjáls verð-
myndun á fiski. Deilur sem þessa
ætti í kjölfarið að leggja af öllum
til bóta,“ sagði Konaráð.
Harðbakur EA fór út kl. 18 í
gær, fyrstur ísfisktogaranna, og
gamli Sólbakur fylgdi í kjölfarið, en
hann fór út kl. 20. Þá fara vænt-
anlega tveir togarar út í dag, föstu-
dag, Hrímbakur og Svalbakur, og
sá síðasti, Kaldbakur, á laugardag.
Hráefni til vinnslunnar dugar að
minnsta kosti fram til mánudags og
ef til vill fram á þriðjudag í næstu
viku. Ekki er ljóst nú hvort vinnsla
stöðvast í húsinu en ekki er víst að
til þess þurfi að koma, m.a. hafa
frystihúsin í Eyjafirði lánað hvort
öðru hráefni til vinnslu tímabundið
og ef til vill hægt að grípa til þess
ráðs ef hráefni þrýtur. „Það sem
okkur þykir mest um vert er að
ekki hefur þurft að segja starfsfólk-
inu upp vegna þessa máls,“ sagði
Gunnar Ragnars.
■ GJAFABÓK, almenn spari-
sjóðsbók, til handa Úlfari Arasyni
og fjölskyldu hans, Klöpp, Sval-
barðsströnd, 601 Akureyri, en hús
þeirra og allt innbú brann 27. mars
sl., liggur fyrir í Landsbanka ís-
lands, Strandgötu, Akureyri, nr.
117016 og bókin er á hans nafni
og fijáls framlög eru vel þegin, seg-
ir í tilkynningu frá Önnu Steinunni
Þengilsdóttur.
■ TÓNLISTARSKÓLI Eyja-
fjarðar gengst fyrir æfingabúðum
skólalúðrasveita á Norðurlandi
eystra í Hrafnagilsskóla í Eyja-
fjarðarsveit dagana 5.-7. apríl.
Þátttakendur koma víðs vegar að
og verða á bilinu 120-150 á aldrinum
7-16 ára. Aðalleiðbeinendur verða
Atli Guðlaugsson, Michael Jacqu-
es og Norman H. Dennis, en auk
þeirra munu aðrir stjórnendur sveit-
anna og kennarar leggja hönd á
plóginn. Lúðrasveitirnar munu síðan
halda tónleika í íþróttaliúsi
Hrafnagilsskóla sunnudaginn 7.
apríl og hefjast þeir kl. 14. Hver
sveit leikur tvö lög og síðan leika
þær sameiginlega nokkur lög. Að-
gangur að tónleikunum er ókeypis
og fólk hvatt til að hvetja unga tón-
listarfólkið til dáða, segir í fréttatil-
kynningu.
I BÍÓMYNDIR verða að nýju
sýndar í Nýja Bíói sáluga um helg-
ina eftir tæplega tíu ára hlé, en
Kvikmyndaklúbbur Akureyrar
gengst fyrir sýningu fjögurra mynda
í húsinu sem nú heitir 1929. Tvær
myndir verða sýndar á laugardag,
Separate Tables og Jonathan L.
Seagull, en sýningar heljast kl. 17
og 18.30. A sama tíma á sunnudag
verða sýndar myndirnar From Here
to Eternity og loks verður Separ-
ate Tables sýnd aftur á mánudag
kl. 19. Myndirnar eru framleiddar á
tímabilinu 1950 til 1973.
■ BA UTINN heldur upp á tvítugs-
afmæli sitt um helgina, en á morg-
un, laugardag, eru tuttugu ár liðin
frá því veitingastaðurinn var opnað-
ur á horni Kaupvangsstrætis og
Hafnarstrætis. A þessum tíma hafa
sótt staðinn hátt á aðra milljón
gesta. í tilefni af afmælinu býður
Bautinn þríréttaða máltíð á hag-
stæðu verði um helgina og einnig
verður um miðjan daginn í boði sérs-
takt tilboð á afmæliskaffi. Bautinn
er alhliða veitingastaður, þar sem
jafnt er hægt að seðja hungur sitt
með svokölluðum skyndibita eða
steik, auk þess sem þar er einnig
boðið upp á kaffi og kökur. Bautinn
rekur einnig veitingastaðinn Smiðj-
una í samliggjandi húsi og Bautabú-
rið sem er kjöt- og fiskvinnsla fyrir
veitingastaðina tvo auk verslana og
mötuheyta.