Morgunblaðið - 05.04.1991, Síða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 1991
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl) W*
Hrúturinn tekur þátt í ein-
hvers konar reiptogi um pen-
inga. Hann ætti að vara sig
á ráðríku fólki. Skoðanir
hans fá nú góðar undirtektir.
Naut
(20. apríl - 20. maí) irfti
Astvinir ættu að forðast að
reyna um of á þolrif hver
annars. Rannsóknarstarf
sem nautið hefur iagt á sig
vegna fjárfestingarmáls
borgar sig ríkulega.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Tvíburinn verður fómarlamb
afbrýðisemi í vinnunni. Hann
á skemmtilegar stundir í
vændum með vinum og kunn-
ingjum.
Krabbi
(21. júní - 22. júK) HíSB
Krabbinn fær viðurkenningu
í starfí í dag. Afköst hans
eru mest fyrri hluta dagsins.
í hönd fer tilfinningaheitt
timabil í lífí hans og ef til
viil erfitt.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst) <ef
Ljónið bíður eftir að heyra
frá einhvetjum. Fjölskyldu-
mál veldur því áhyggjum. Sé
það skapandi í hugsun á það
auðvelt með að notfæra sér
það í starfi í dag.
Meyja '
(23. ágúsl - 22. september)
Heimilið, peningar og
langtimaöryggi í fjármálum
eru mál dagsins hjá meyj-
unni. Hún hefur betur i kapp-
ræðúm við einhvern.
V°g ^
(23. sept. - 22. októbe'r) gj5!*
Vogin ætti að vara sig á
fjárglæframönnum í dag.
Hún er á sömu bylgjulengd
og maki hennar og þau gera
framtíðaráætlanir.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóvember) Mfe
Sporðdrekanum verður vel
ágengt í vinnunni í dag. Fjár-
hagshorfumar fara nú batn-
andí hjá honum, en hætt er
við að hann eyði of miklu.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember) J^3
Starfsfélagi bogmannsins
veitir honum harða sam-
keppni í dag. Hann þarf að
hafa sig allan við til að ljúka
verkefni sem hann hefur með
höndum.
Steingeit
(22. dea. - 19. janúar) &
Félagslíf steíngeitarinnar er
þrúgað af óþægilegu lundemi
einhvers. Hún kemur ýmsu
þarflegu í verk heima fyrir.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar)
Vatnsberinn sér fram á
magnaða valdabaráttu í við-
skiptalífmu í dag. Tillaga sem
hann þarf að taka afstöðu til
er ekki öll þar sem hún er séð.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Stirðleika gætir milii fisksins
og náins ættingja eða vinar.
Þróunin í fjármálalífmu er
honum í hag.
Stjörnusþána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
visindalegra staóreynda.
DÝRAGLENS
rDCTTID
uKt 1 1 IK
TOMMI OG JENNI
t>A£> e'rru/z.
e/aCEfZT'A At4AiN.'
LJÓSKA
T7T —I „
FERDINAND
SMAFOLK
ALL RI6HT, MEN.. YOU ARE NOD
50LPIER5 IN TME FAMOU5 FRENCH
F0REI6N LE6ION!
-----------C^-
EACH RECRUIT
DILL BE AS5IGNEP
A NED IPENTITV'...
Jæja menn, nú eruð þið hermenn í hinni Sérhver nýliði mun fá Nei, þið getið ekki allir verið Gary Cooper.
frægu frönsku útlendingahersveit. úthlulað nýju nafni.
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
íslandsmótið í sveitakeppni
um páskana var um margt
skemmtilegt fyrir áhorfendur.
Tekin var í notkun ný tölvu-
tækni, sem gerir kleift að varpa
spilum á tölvuskjá yfir á sýning-
artjald. Er það mikil framför frá
glærunum. í annan stað var
daglega gefið út mótsbiað með
öllum spilum hverrar umferðar,
umfjöllun um athyglisverðustu
spilin og svokölluðum Butler-
útreikningi á árangri keppenda.
Umsjón með því höfðu Elín
Bjarnadóttir, Valgerður Krist-
jónsdóttir, Guðmundur Péturs-
son og Kristján Hauksson. Guð-
mundur Pétursson skrifaði
páskahugvekju um ótrúlega
„friðsemd“ keppenda í þessu
spili úr 6. umferð:
Austur gefur; NS á hættu.
Norður ♦ 4 ▼ ÁD109876432
Vestur ♦ Á5 ♦ - Austur
♦ 762 ♦ ÁDG85
¥5 ▼ G
♦ KG74 ♦ D10
♦ G9853 Suður ♦ ÁD1064
♦ K1093
▼ K ♦ 98632 ♦ K72
í töfluleik Tryggingamið-
stöðvarinnar og Jakobs Kristins-
sonar gengu sagnir þannig í lok-
aða salnum, með þá norðanmenn
Pétur Guðjónsson og Tryggva
Gunnarsson í NS gegn Braga
Haukssyni og Sigtryggi Sigurðs-
syni í AV:
Vestur Nordur Austur Suður
— — 1 spaði Pass
1 grans 6 hjörtu Pass Pass
6 spaðar Pass Pass Pass
„Friður sé með yður,“ skrifaði
Guðmundur og taldi eins og
fleiri að náungakærleikur
Tryggva í suður væri í góðu
meðallagi. En auðvitað var skýr-
ingin öll önnur. Bæði Pétur og
Tryggvi dobluðu slemmuna. Slík
tvídobl samræmast illa bridslög-
unum og úrskurðaði Agnar
Jörgensen keppnisstjóri að
samningurinn skyldi spHaður
ódoblaður. Fimm niður, 250 í
NS. Það reyndist 9 IMPa tap,
því hinum megin spiluðu NS 5
hjörtu og unnu þau slétt.
Vel á minnst. Það má ekki
leggja niður svartan ás gegn 6
hjörtum. Þá virrnst siemman.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Þessi staða kom upp í skák-
keppni stofnana um daginn í við-
ureign þeirra Kristjáns Guð-
mundssonar (2.245), Háskóla ís-
lands, og Braga Kristjánssonar
(2.295), Húsnæðisstofnun ríkis-
ins, sem hafði svart og átti leik.
Hvítur lék síðast 22. e5-e6, en
svartur reyndist ekki þurfa að
þiggja skiptamunsfómina:
22. - Bg2+!, 23. Kxg2 - Dg3+
og hvítur gafst upp, því eftir 24.
Khl — Hh4 verður mátinu ekki
forðað. Sveit íslandsbanka náði
að hnekkja veldi Búnaðarbanka
íslands í þessari rótgrónu keppni
og sigra með 19‘/2 v. af 28 mögu-
legum. Búnaðarbankinn og Iðn-
skólinn komu næstir með 18 v.
og þá Húsnæðisstofnun og Há-
skólinn með 17'/2 v. í B-flokki
sigruðu Grunnskólar Reykjavíkur,
en Eimskipaiélag Islands varð í
öðru sæti: