Morgunblaðið - 16.04.1991, Qupperneq 39
. MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. .APRLL.,19,91
39
A L
N G
S K O S N
N G A R
Sameiginlegur framboðsfundur á Borðeyri:
Atvinnumál, byggðamál og
búvörusamningur helstu málin
Morgunblaðið/Hallur
Hluti fundarmanna á sameiginlegum kosningafundi frambjóðenda í Vestfjarðakjördæmi, sem haldinn
var á Borðeyri.
TÆPLEGA fimmtíu manns sóttu
sameiginlegan framboðsfund, sem
efnt var til á Borðeyri síðastliðinn
föstudag, en á fundinum gerðu
frambjóðendur I Vestfjarðakjör-
dæmi grein fyrir helstu stefnu-
málum flokka sinna, auk þess sem
þeir svöruðu fyrirspurnum frá
fundargestum. Sjö flokkar bjóða
fram á Vestfjörðum, og mættu
ellefu frambjóðendur á fundinn.
Hver flokkur fékk samtals 30 mín-
útur til ráðstöfunar á fundinum,
sem skipt var niður í þrjár umferð-
ir, en að lokinni fyrstu umferð
voru leyfðar fyrirspurnir.
Fyrst á mælendaskrá var Ágústa
Gísladóttir, sem skipar annað sæti á
V-lista Kvennalistans, og gerði hún
atvinnu- og byggðamál helst að
umræðuefni. Hún sagði meðal ann-
ars að aukin tækni á öllum sviðum
og kvótaskipting í sjávarútvegi og
landbúnaði hefði stuðlað að fækkun
fólks í þessum greinum, og stjórn-
völd hefðu ekki áttað sig nógu tíman-
lega til að bregðast við því. Uppbygg-
ing nýrra atvinnugreina á lands-
byggðinni yrði að eiga sér stað þeg-
ar samdráttur yrði í hefðbundnum
greinum, en lausnir stjórnvalda hefðu
að mestu leyti verið fólgnar í töfra-
lausnum fram að þessu. Ágústa gerði
síðan nokkra grein fyrir stefnu
Kvennalistans í atvinnu- og byggða-
málum, og sagði hann vilja leggja
áherslu á að móta atvinnustefnu, sem
tæki mið af aðstæðum kvenna og
þörfum fjölskyldunnar.
Óásættanlegur
búvörusamningur
Einar K.' Guðfinnsson, sem er í
öðru sæti D-lista Sjálfstæðisflokks,
fjallaði um nýgerðan búvörusamn-
ing, og sagði að eins og hann væri
úr garði gerður þá væri hann óásætt-
anlegur að mati sjálfstæðismanna.
Hann sagði samninginn hafa verið
keyrðan í gegn af alltof miklu of-
forsi, og ekki væri hægt að una við
hann óbreyttan. Það sem fyrst og
fremst væri athugavert við samning-
inn að mati sjálfstæðismanna væri
sú mikla óvissa sem í honum væri
fólgin, en enginn vissi hve mikil hin
svokallaða flata skerðing yrði. Sjálf-
stæðismenn hefðu talið ástæðu til
að fara hægar til að útiloka þessa
miklu óvissu, sem íslensk bændastétt
þyrfti nú að búa við. Hann sagði að
mikil flöt framleiðsluskerðing á
svæðum eins og Vestfjörðum, þar
sem bú væru almennt smá, þýddi
einfaldlega að verið væri að bregða
fæti fyrir viðkomandi bændur, og
víða væri byggðin það veik að hún
þyldi ekki frekari grisjun.
Einar vék að þingsályktunartillögu
um jöfnun orkuverðs, sem ríkis-
stjórnarflokkarnir lögðu fram á síðs-
ustu dögum þingsins. Hann benti á
að í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar-
innar væri því lofað á tveimur stöðum
að jafna orkuverðið, en ekkert hefði
verið aðhafst fyrr en í október síðast-
liðnum. Þá hefði nefnd verið sett í
málið, sem skilað hefði skýrslu 5.
mars. Síðan hefði vika liðið, og iðnað-
arráðherra þá lagt fram þingályktun-
artillögu, sem falið hefði það í sér
að hann skoraði á sjálfan sig að beita
sér fyrir því að jafna orkuverð. Mál-
ið hefði síðan komið fyrir fjárveiting-
anefnd 18. mars, en þinginu hefði
hins vegar átt að slíta 15. mars sam-
kvæmt upprunalegri áætlun ríkis-
stjórnarinnar. „Við sjáum því að það
var aldrei ætlunin að afgreiða þetta
mál út úr þinginu. Það var ætlunin
að kynna þetta og reyna svo að slá
lyki í augu fólks, og halda því fram
að þetta væri eitthvað baráttumál
ríkisstjórnarinnar, sem það auðvitað
var ekki,“ sagði hann.
Kvótalögin andbyggðastefna
Lilja Rafney Magnúsdóttir,. sem
skipar apnað sæti G-lista Alþýðu-
bandalagsins, sagði að það sem ko-
sið yrði um sérstaklega á Vestfjörð-
um væru byggða- og samgöngumál,
fiskveiðistjórnun og lífskjarajöfnun.
Hún sagði að Alþýðubandalagið vildi
nýja fiskveiðistefnu, en kvótastefnan
hefði leitt til þess að æ stærri hluti
af hinni sameiginlegu auðlind hefði
safnast á æ færri hendur. Núverandi
kvótalög væru andbyggðastefna, og
því vildi Alþýðubandalagið breyta,
en grundvallaratriðið í hugmyndum
flokksins væri að fiskimiðin væru
sameign allra landsmanna.
Hún sagði að nýr búvörusamning-
ur væri erfiður mörgum svæðum sem
eingöngu byggja á sauðfjárrækt, en
þar væru sömu lögmál látin gilda og
í fiskveiðum, þ.e. kvótasala. Þetta
gæti haft.hættulegar afleiðingar fyr-
ir veikar byggðir, sem ekki mættu
missa neinn hlekk úr keðjunni, og
það ætti til dæmis við á Ströndum.
Við þessu þyrfti að sporna, og styrkja
unga bændur sem ráðist hefðu í
framkvæmdir sem væru þeim þung-
ar, og leita þyrfti leiða til að styrkja
búsetu með nýjum
atvinnutækifærum.
Aðeins ættu að vera
tvö framboð
Ingibjörg Guðmundsdóttir, sem er
efst á Þ-lista Þjóðarflokks-Flokks
mannsins, gerði grein fyrir helstu
stefnumálum flokksins. Hún sagði
að fjöldi framboða í alþingiskosning-
unum nú sýndi pólitíska virkni, en
raunverulega ættu einungis að vera
tvö framboð; gamla pólitíkin og sú
nýja. Gamla pólitíkin legði áherslu á
hagsmunagæslu og miðstýringu, en
nýja pólitíkin, sem Þ-listinn vildi
boða, legði áherslu á frelsi og þátt-
töku einstaklingsins, valddreifingu
og lýðræði.
Bændur í landgræðslustörf
Guttormur Einarsson, sem skipar
fyrsta sæti á F-lista Frjálslyndra,
sagði að auka þyrfti og efla ný at-
vinnutækifæri á landsbyggðinni, svo
sem ferðaþjónustu, upplýsingaþjón-
ustu og vinnslu landbúnaðarvara.
Hann sagði að búvörusamningurinn
fæli í sér vá fyrir bændur í Strapda-
sýslu, en samkvæmt hugmyndum
Frjálslyndra myndi þeim standa til
boða að snúa sér að öðrum störfum
ef þeir neyddust til að bregða búi.
Nefndi hann þar til dæmis land-
græðslu- og landverndarstörf auk
ferðamannaþjónustu.
Fjölskyidan menningar-
grunneining
Magnús Björnsson, sem er í fjórða
sæti B-lista Framsóknarflokksins,
kom víða við í málflutningi sínum.
Hann vék meðal annars að þeirri
stefnu Framsóknarflokksins að inn-
ganga í Evrópubandalagið kæmi
aldrei til .greina, og.sagði að; þa,ð
væri alveg öruggt að það væri einn
af þeim liðum, sem aldrei yrði til
sölu í stjórnarmyndunarviðræðum.
Magnús sagði framsóknarmenn telja
fjölskylduna vera menningargrun-
neiningu íslensks þjóðfélags, og um
hana yrði að standa vörð til þess að
styðja hana og styrkja. Hann sagðist
óttast það mest ef „dulbúin ftjáls-
hyggjuöfl í hinum nýja íhaldsflokki
Islands, Sjálfstæðisflokknum" næðu
fram að ganga, og borga þyrfti fyrir
heilsugæslu, þannig að eingöngu
fjármagnseigendur fengju þar
þjónustu.
Stjórnarflokkarnir ljúki
dæminu
Pétur Sigurðsson, sem er í öðru
sæti A-lista Alþýðuflokks, gerði
grein fyrir því sem hann sagði Al-
þýðuflokkinn hafa komið til leiðar
meðal annars á sviði efnahagsmála
og húsnæðismála á síðasta kjörtíma-
bili. Hann sagði að ríkisstjórn Stein-
gríms Hermannssonar hefði tekist
að afstýra hruni atvinnuveganna og
hamla gegn verðbólguskriðunni, og
reyndar að koma verðbólgunni niður
í það að vera jafnvel lægri heldur en
í helstu viðskiptalöndum íslendinga.
Þá hefði tekist að minnka viðskipta-
hallann við utlönd og lækka vexti,
en með því hefði drápsklyfjum verið
létt af mörgu alþýðuheimilinu. Það
kæmi því ekki á óvart að aðrir stjórn-
málaflokkar vildu nú ráðstafa hagn-
aðinum. „Er það ekki rétt og sann-
gjarnt að fela núverandi stjórn-
arflokkum að ljúka við dæmið? Er
það ekki sanngjarnt að leyfa núver-
andi ríkisstjórnarflokkum að standa
við það loforð sitt að skila afrakstrin-
um til þeirra, sem mest lögðu á sig
við að koma þjóðarskútunni á réttan
kjöl og gera hana sjóklára á ný?“,
sagði Pétur. Hann sagði að gera
þyrfti þjóðarsátt um lífskjarabyltingu
á allra næstu mánuðum, sem fæli
meðal annars í sér hækkun skattleys-
ismarka, verðlækkun á nauðsynja-
vörum og húsaleigustyrk til nauð-
staddra, en á móti þyrfti að skatt-
leggja fjármagnstekjur og hvers kon-
ar eignamyndun í þjóðfélaginu.
Pétur sagði núverandi fískveiði-
stefnu ve'ra óhliðholla Vestfirðingum,
og meðal annars hefði hún leitt til
kaupmáttarrýrnunar hjá fiskverka-
fólki. Hár húshitunarkostnaður í
kjördæminu kallaði á að íbúar þess
þyrftu að hafa meiri tekjur en íbúar
annars staðar á landinu, og því væri
jöfnun orkuverðs réttlætiskrafa
Vestfirðinga. Pétur sagði varaform-
ann Sjálfstæðisflokksins hafa komið
í veg fyrir að þingsályktunartillaga
iðnaðarráðherra um jöfnun orku-
verðs hefði náð fram, og því varaði
hann þá sem vildu ná niður húshitun-
arkostnaði á Vestfjörðum við því að
styðja Sjálfstæðisflokkinn.
Á móti matarskatti
Ágústa .Gísladóttir V-ljst^. sagðj.(
að Kvennalistinn hefði ætíð verið á
móti matarskattinum, og í stefnu-
skrá flokksins væri lagt til að virðis-
aukaskattur yrði felldur niður af
matvælum og skattur á munaðarvör-
um hækkaður. Varðandi afstöðu
Kvennalistans til búvörusamningsins
sagði Ágústa að flokkurinn teldi
samninginn vera nauðsynlegan, en
skoða þyrfti hann mjög gaumgæfi-
lega og í honum væru atriði, sem
þyrfti að breyta réttlátlega og af
skipulagi, til dæmis varðandi flata
skerðingu bústofns. Hún sagði fram-
leiðslustjómun í landbúnaði vera
nauðsynlega, en treysta ætti bænd-
um betur til að skipuleggja stjórnun-
ina sjálfir í samvinnu við stjórnvöld.
Bætur fyrir keyptan kvóta
Aðspurður um hvort bæta ætti
fyrir keyptan kvóta ef kvótakerfið
yrði lagt niður sagði Guðjón A.
Kristjánsson, D-lista, að nokkurs
misskilnings gætti varðandi kaup á
fískveiðikvóta. Hann nefndi sem
dæmi að ef fyrirtæki væri með
rekstrarhagnað og fjárfestu í kvóta-
kaupum fyrir 100 milljónir, þá
greiddu útgerðarmenn í raun og veru
50 milljónir vegna skattalaganna,
þar sem mismunurinn hefði farið í
tekjuskatt, ef honum hefði ekki verið
ráðstafað í eitthvað annað. Þá hefðu
margir ekki einungis keypt aflaheim-
ildir heldur einnig fyrirtæki, sem
kannski hefðu verið rekin með tapi,
en tapið væri almennt selt á um
15%, og það mætti afskrifa sam-
kvæmt skattalögum. „Það má því
lengi um það deila hvort menn hafa
raunverulega verið að kaupa kvóta
fyrir 100 milljónir, en mér er nær
að halda að þeir hafí keypt hann
fyrir eitthvað mikið minna verð. Þar
að auki fara menn ekki í kvótakaup
nema þeir ætli sér að hagnast á þeim
viðskiptum, og þá má spyija af hvetj-
um það var tekið sem þeir hafa hagn-
ast á,“ sagði hann.
Varðandi afstöðuna til búvöru-
samningsins sagðist Guðjón vera
sammála því tilboði, sem þeim bænd-
um væri gert er vildu selja fram-
leiðslurétt og bregða búi, en hins
vegar ætti það tilboð að standa leng-
ur en gert væri ráð fyrir í samningn-
um. Þá sagðist hann hafna þeim flata
niðurskurði sem gert væri ráð fyrir.
„Eg til að sá niðurskurður sem verð-
ur af fijálsum vilja manna verði
kannski meiri en við þolum byggða-
lega séð, því það er alls ekki víst að
sveitirnar þoli þá grisjun, sem verður
við það að bændur hætta af sjálfs-
dáðum.“
Endurgieiðslur í stað
undanþága
Jón Olafsson, sem skipar fímmta
sæti á G-lista Alþýðubandalagsins,
sagði að hann væri á móti niðurfell-
ingu á virðisaukaskatti, og engar
undanþágur ætti að leyfa, en með
því væri hægt að lækka skattinn
meira. Ef hins vegar ætti leyfa ein-
hveijar undanþágur, þá ætti þar að
vera um endurgreiðslu að ræða.
Ríkið í samkeppni við
fjármagnsstofnanir
Ingibjörg Guðmundsdóttir, Þ-lista,
vék að spurningu um vaxtamál, og
sagði að með sölu ríkisskuldabréfa
væri ríkið að keppa við fjármagns-
stofnanir um sparifé landsmanna, en
með aukinni eftirspurn eftir pening-
um hækkuðu þeir í verði. Þess vegna
vildi Þ-listinn tafarlaust stöðva er-
lenda skuldasöfnun og innlenda lán-
töku. Hún sagði búvörusamninginn
vera vondan samning, og mestu
máli skipti að draga úr miðstýring-
unni, yfirbyggingunni og milliliða-
kostnaðinum.
Ekki farsælt að fjölga
undanþágum
Pétur Bjarnason, sem er í öðru
sæti B-lista Framsóknarflokks, sagði
ekki farsælt til lengdar að fjölga
undanþágum frá virðisaukaskatti, og
þar sem þetta skattkerfi væri komið
á þyrfti að nota það á allt, en hins
vegar ætti að reyna að fá skattinn
lækkaðan eins og mögulegt væri.
Hann sagði að búvörusamningurinn
hefði verið samþykktur af bændum,
en spurning væri hins vegar hvort
það ætti við um bændur í Stranda-
sýslu. Sér fínndist að Strandasýsla
ætti að njóta ákveðins forgangs
vegna landgæða og góðs fjárstofns,
og þar ætti að grípa til byggðaað-
gerða til dæmis af Byggðastofnun,
þannig að minnsta kosti yrði haldið
við þeim fjárstofni sem er í sýslunni
og hann jafnvel aukinn.
Bjarni G. Bjarnason, þriðji maður
á A-lista Alþýðuflokks, ræddi um
sjávarútvegsmál. Hann sagði að bati
í fískvinnslunni hefði einungis að litlu
leyti náð til þeirra sem við fisk-
vinnslu vinna, og það hlyti að verða
forgagngsverkefni að bæta kjör
þessa fólks.
Einar K. Guðfinnsson, D-lista,
sagði að Sjálfstæðisflokkurinn teldi
almennt séð að virðisaukaskatturinn
ætti að vera breiður skattstofn til
þess að koma í veg fyrir skattsvik
°g tryggja skattskil. Sjálfstæðis-
menn vildu bæta skattskil og koma
í veg fyrir skattsvik, og þess vegna
vildu þeir ekki fjölga undanþágum.
Ef menn teldu hins vegar nauðsyn-
legt að greiða til baka einhvem hluta
af þeim virðisaukaskatti sem inn-
heimtur væri, þá ætti að gera það
með almennum endurgreiðslum.
Búvörusamningurinn
varnarsamningur
Lilja Rafney Magnúsdóttir, G-
lista, sagði að búvörusamningurinn
væri varnarsamningur gegn þeim
sem vildu fijálsan innflutning bú-
vara. Hann væri þó þungur krosss á
mörgum bændum, en það væri vegna
þess að ekki hefði verið tekið á því
miklu fyrr að stýra framleiðslunni
að innlendum markaði. Hún sagðist
ekki telja að betri samningur næðist
í stöðunni í dag, og því myndi hún
styðja hann á Alþingi ef hún væri í
þeirri aðstöðu.
Pétur Bjarnason, B-lista, ræddi
um afstöðuna til EB, og sagði að
framsóknarmenn vildu fyrst og.
fremst semja við EB, en með því að
ganga ekki í EB héldu íslendingar
eigin rétti til þess. Hann sagðist vilja
sjá yfirlýsingu frá sjálfstæðismönn-
um og krötum um að þeir ætluðu
ekki að ganga í EB, en framsóknar-
menn hefðu skýra stefnu um að gera
það ekki.
Pétur Sigurðsson, A-lista, átti síð-
asta orðið á framboðsfundinum á
Borðeyri. Hann sagði að enn á ný
kæmi það fram í málflutningi fram-
sóknarmanna að stjórnmálamenn í
öðrum flokkum ætli að svíkja land
og þjóð og ganga í EB skilyrðis-
laust. Hann sagðist telja það óábyrgt
af framsóknarmönnum að halda því
fram að þeir ætluðu aldrei að gera
þetta eða hitt, og hann væri hræddur
um að ef mál stæðu þannig eftir
10-15 ár, þá yrði gripið til gleymsku
Steingríms Ilermannssonar, þegar
Frainsóknarflokkurinn samþykkti
aðild að einhveiju ríkjabandalagi,
sem væri að þróast í heiminum.