Morgunblaðið - 16.04.1991, Síða 60
60)
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 1991
Vinningstölur laugardaginn
13. apríl 1991
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5af 5 0 2.746.484
2.4 TM ri 158.976
3. 4af5 153 5.377
4. 3af5 5.038 381
Heildarvinningsupphæð þessa viku:
5.965.571 kr.
Ath. Vinningar undir 12.000 krónum eru greiddir út
á Lottó sölustöðum.
fclk f
fréttum
DANS
Hörkukeppni í
Freestyle í Tónabæ
Fyrir skömmu fór fram í
Tónabæ keppni í „Freestyle“-
dansi og var keppnin í tvennu lagi.
Keppt var í flokki 10 til 12 ára
og síðan í 13 til 16 ára flokki.
Mikil þátttaka var í keppnunum
og stemming mikil í húsinu sem
heita má að hafi verið stútfullt í
báðum tilvikum.
Keppni í eldri flokkinum fór fram
föstudaginn 15. mars.Keppendur
voru um 50 talsins, en milli 700
og 800 manns fylltu húsið og
stemmingin mikil. 1 hópdansi sigr-
aði flokkur að nafni ímynd en
hannskipa þær Tinna Hrafnsdótt-
ir, Maria Heba Þorkelsdóttir,
Nanna Kristín Magnúsdóttir og
Ingibjörg Gunnlaugsdóttir. Annað
sætið skipaði hópurinn Krissó með
þær Olgu Bjarnadóttur, Ólöfu
Maríu Gylfadóttur, Guðrúnu Ástu
Unnur Pálmarsdóttir, Islandsmeistari í einstaklingsdansi í eldri flokk-
inum.
Vinna
ákjöndag
Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík vantar sjálfboðaliða til
margvíslegra starfa á kjördag, laugardaginn 20. apríl.
Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu flokksins í
Þessir voru m.a. heiðraðir. Morgunbla5ið/J6n Svavarsson
BLÓÐGJAFAFÉLAGIÐ
Um 20 blóð-
gjafar heiðraðir
Blóðgjáfafélagið hélt sinn aðal-
fund fyrir skömmu, en síðar á
árinu verður félagið 10 ára, nánar
tiltekið 16. júlí. Ólafur Jensson
formaður félagsins sagði í samtali
við Morgunblaðið að þetta hefði
verið góður og gagnmerkur fundur
og tækifærið hefði verið notað til
að heiðra sérstaklega þá blóðgjafa
sem gefið hafa blóð 50 sinnum og
75 sinnum, en það voru um 20
manns.
Fleira var á dagskrá, til dæmis
umræða um útgáfu á fræðslubækl-
ingi sem sendur var til allra voru
18 ára á síðasta ári og dreift víðar.
Jón Hilmar Alfreðsson yfirlæknir
og Leifur Þorsteinsson héldu svo
fyrirlestur um glasafijóvganir á ís-
landi og svöruðu síðan mörgum
fyrirspurnum. Ein breyting var gerð
á stjórn félagsins, Anna María
Snorradóttir var kjörin í stjórn í
stað Hólmfríðar Gísladóttur sem
gaf ekki kost á sér. Anna María
var kjörin varaformaður og ritari,
en Ólafur Jensson var endurkjörinn
formaður. Auk þeirra eru í stjórn
Logi Runólfsson, Jóhann Diego
Arnórsson og Halldóra Halldórs-
dóttir. Endursþoðendur Þorsteinn
Kragh og Haiberg Sigurðsson.
Valhöll, Háaleitisbraut I, eða í síma 82900
frá kl. 9:00 til 22:00.
Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík.
FRELSI OG
MAN N ÚÐ
ÍSLENDINGAFÉLÖG
Þorra blótað j Lúxemborg
Islendingafélagið í Lúxemborg
stóð laugardaginn 23. febrúar
fyrir þorrablóti.
Var gnótt hefðbundins þorramat-
ar auk sjávarrétta á boðstólum og
tóku flestir vel til matar síns.
Leikklúbburinn Spuni sá um
-skemmtialríðLog. síðan ,var dregid
í happdrætti þar sem margt var um
góða vinninga.
Hljómsveitin Sambandjð kom frá
íslandi og lék fyrir dansi, sem stig-
inn var fram á nótt. Fjölmenntu
Islendingar úr nýlendunni á þorra-
blótið og skemmti fólkið sér aug-
sýnilega hið besta. - Linda.