Morgunblaðið - 16.04.1991, Side 66
66
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 1991
Vaxtarrækt:
Fjórði meistaratitill
Sigrirðar Gestssonar
AKUREYRINGURINN Sigurður Gestsson endurheimti íslands-
meistaratitilinn í vaxtarrækt á Hótel Islandi s.l. sunnudag og
vann þar með titilinn i fjórða skiptið á ferlinum. Margrét Sigurð-
ardóttir vann titilinn öðru sinni í kvennaflokki og Sölvi Fannar
Viðarsson vann unglingaflokkinn en þessir þrír keppendur voru
úrskurðaðir heildarsigurvegarar í keppni, sem skiptist i níu
flokka.
„ Þetta er alltaf sami barning-
urinn og mikil og erfið keppni,
þar sem enginn er öruggur fyrir-
fram. Ég vissi að Guðmundur
Marteinsson yrði minn aðalkeppi-
nautur, hann var betur skorinn
en ég hafði hinsvegar meiri vövða-
massa og betri hlutföll milli
líkamshluta, sem gerði gæfumun-
inn“, sagði Sigurður Gestsson í
samtali við Morgunblaðið. Hann
keppti ekki í fyrra, en hafði
þrívegis áður unnið titilinn í karla-
flokki. „ Ég hef æft stíft, síðustu
10 ár, þó ég hafi ekki keppt á
hveiju ári. Þetta er mitt líf og
starf. Það er almennur áhugi á
venjulegri heilsurækt og vaxtar-
rækt á Akureyri og við mættum
með átta manna vaxtarræktarlið
á keppnina. Ég er mjög ánægður
með árangurinn af þessari ferð“,
sagði Sigurður, sem rekur Vaxt-
arræktina á sínum heimaslóðum.
Að norðan kom einnig Hrönn
Einarsdóttir, þriggja barna móðir
sem hefði hæglega getað unnið
titil kvenna yfir heildina, ef hún
hefði ekki mætt Margréti Sigurð-
ardóttir í toppformi. „ Hrönn ógn-
aði Margréti verulega, hafði góða
fætur og kvenlegri línur, en
Margrét hafði betra tak á efri
skrokk ásamt betri skurði, sem
sýndi vöðvana betur“, sagði Svan-
ur Kristjánsson yfirdómari keppn-
innar. Hann taldi keppnina hafa
verið mjög tvísýna í nokkrum
flokkum og að nokkrir keppendur
ættu mikla framtíða fyrir sér í
vaxtarrækt, jafnvel á erlendum
vettvangi. „íslandsmeistari ungl-
inga Sölvi Fannar hefur allt til
að bera til að ná góðum árangri
erlendis ef hann leggur sig l'ram
við æfingar. Hann hefur nánast
hnökralausa byggingu og útfærir
æfingarnar skemmtilega".
í -=-70 kg fiokki vann Þór Jós-
efsson, Kristján Jónsson í +80 kg
og Sölvi í 80. í +70 kg flokki
karla vann Júlíus Hafsteinn, +80
Gestur Helgason, +90 Sigurður
Gestsson og +90 Guðmundur
Marteinsson. í kvennaflokki vann
Margrét Sigurðardóttir sinn flokk
áður en hún tryggði sér heildartit-
ilinn, en í +57 flokki vann Kristj-
ana ívarsdóttir og Hrönn Einars-
dóttir vann í +52 flokki.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Kapparnir í efstu fjórum
- sætunum í heildarúrslitum í
karlaflokki. Sigurður Gests-
son (t.v.), Guðmundur Mar-
teinsson, Sölmundur Örn og
Gestur Helgason. Hér
hnykla þeir vöðvana í frjáls-
um æfingum.
íslandsmeistarar í vaxtar-
rækt,, Margrét Sigurðar-
dóttir frá Iteykjavík og Sig-
urður Gestsson frá Akur-
eyri, sem vann titilinn í
fjórða skipti á ferlinum.
samsinnir henni og bætir við að fórna
verði flestum öðrum áhugamálum.
Þau eru samt sammála um að dans-
inn sé þess virði og íris Anna segist
ekki geta hugsað sér neitt skemmti-
legra. Á næstunni er nóg að gera
hjá þeim írisi Önnu og Ólafi Magn-
úsi því í maí munu þau taka próf sem
gerir þeim kleift að taka þátt í tveim-
ur danskeppnum í London í vor. Þá
munu þau einnig fylgjast með einni
virtustu danskeppni í heimi í Black-
pool í Bretlandi.
Keppnin kom á óvart
í keppni í fijálsri aðferð í flokki
16 ára og eldri sigruðu Ingvar Þór
Geirsson og Anna Sigurðardóttir frá
Dansskóla Jóns Péturs og Köru.
I stuttu samtali við blaðamann
sagðist Ingvar hafa verið í dansi frá
því að hann var fímm ára en Anna
í 10 mánuði, en áður hafði hún verið
í jassballett. Um keppnina sagði
Ingvar að hún hefði komið sér á
óvart. „Hún var mun harðari en ég
bjóst við fyrir fram,“ sagði hann. Þau
Anna voru engu að síður sammála
um að mórallinn meðal keppendanna
væri mjög góður. „Við þekkjumst
töluvert og fólk samgleðst hvert öðru
þegar vel gengur. Þetta er mjög
góður félagsskapur," sagði Anna en
þau Ingvar Þór munu taka þátt í
nokkrum keppnum á alþjóðlegari
grund á næstunni. Meðal þeirra er
keppnin í Blackpool.
Jón Pétur Úlfljótsson, sem sigraði
í flokki atvinnumanna sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að keppnin
hefði að þessu sinni verið afar hörð,
sérstaklega í flokki 14 til 15 ára og
Anna Sigurðardóttir og Ingvar Þór Geirsson.
íris Anna Steinarsdóttir og Ólafur Magnús Guðnason.
íslandsmeistarakeppni í samkvæmisdönsum:
Keppnin mun harðari
núna en á síðasta ári
- segir Jón Pétur Úlfljótsson sigur-
vegari í flokki atvinnumanna
íslandsmeistarakeppni í samkvæmisdönsum fór fram í Ásgarði,
íþróttahúsi Garðabæjar, um helgina. 700 dansarar í 9 aldurshópum,
frá flokki 7 ára og yngri til 50 ára og eldri, tóku þátt í keppninni. Jón
Pétur Úlfljótsson, sem ásamt Köru Amgrímsdóttur varð sigurvegari
i hópi atvinnudansara, segir að keppnin hafi verið afar jöfn í flestum
flokkum. Hann segir gæði dansins mun meiri en í keppninni fyrir ári.
Keppt var í Latindönsum (Cha cha, sömbu, rúmbu og jive) og Stand-
arddönsum (enskum valsi, tangó, quikstep og vínarvalsi). Þrír alþjóðleg-
ir dómarar frá Þýskalandi, Bretlandi og Danmörku sáu um dómgæslu
í keppninni.
í íþróttahúsinu Ásgarði var margt
um manninn þegar blaðamaður leit
þar við á sunnudagskvöldið en að
sögn kunnugra hafði húsið verið
nánast troðfullt alla helgina.
Ekkert skemmtilegra en
dansinn
Engu að síður tókst að ná tali af
einu parinu í keppninni, þeim Ólafi
Magnúsi Guðnasyni og Irisi Önnu
Steinarsdóttur sem sigruðu í Stand-
arddönsum (basic og fijálsri aðferð)
í flokki 14-15 ára.
Unglingamir, sem eru í Dansskóla
Sigurðar Hákonarsonar sögðust hafa
byrjað að dansa saman fyrir 5 mán-
uðum, en íris Anna hefur verið í
dansi frá því að hún var þriggja ára
og Ólafur Magnús frá því að hann
var níu ára. „Við eyðum eiginlega
öllum okkar frítíma í dansinn," sagði
íris Anna. Síðustu dagana fyrir
keppnina bjuggum við nánast niður
í dansskóla." Þrátt fyrir þetta segj-
ast þau bæði hafa nægan tíma til
að sinna skólalærdómnum. „Maður
reynir bara að skipuleggja sig vel
og fóma frekar öðrum áhugamál-
um,“ sagir Iris Anna sem segist hafa
gaman af að fara á skíði. Ólafur