Morgunblaðið - 27.04.1991, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 27.04.1991, Blaðsíða 49
MÓÉGlMiíÖLABlÖ 'lJAUÖÁftDAGUfti átAArMÍÍ,»Í9!ÍÍ m RENAULTI9 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 691282 KL. 10-12 FRÁ MÁNUDEGI •'tAGS JáM 'Uiiim im Taktu á móti lífinu í Jesú „Kjósið í dag, hveijum þér viljið þjóna,“ Jósúab 24:15-24. Þannig talaði Jósúa Núnsson til ísraels- manna er hann hvatti þá til að velja á milli hinna mörgu falsguða og hins lifandi Guðs, en sagði síðan: „En ég og mínir ættmenn munum þjóna Drottni." „Og lýðurinn sagði við Jósúa: „Drottni Guði vorum, viljum vér þjóna og1 hlýða hans röddu.“ Þetta val gengur.sem rauð- ur þráður gegnum alla Biblíuna, sem er orð Guðs til þín og mín, til að vera „Lampi fóta vorra, og ljós á vegi vorum“ Sálm. 119:105. Áminning til okkar að velja á milli, hveijum við viljum þjóna, einhveij- um hinna mörgu falsguða, eða hin- um lifandi Guði. „En í því er hið eilífa líf fólgið, að þeir þekki þig, hinn eina sanna Guð, og þann sem þú sendir Jesúm Krist“ Jóh. 17:3. „Ég er vegurinn og sannleikurinn og lífið: enginn kemur til föðurins nema fyrir mig“ Jóh. 14:6 „Því að svo elskaði Guð heiminn, að hann gaf son sinn eingetinn, til þess að hver, sem á hann trúir, glatist ekki, heldur hafi eilíft líf“ Jóh. 3:16. Þess- um náðar boðskap Guðs hefír ekki alltaf verið vel tekið, og er svo enn. Fljótlega eftir þessi heit ísraels- manna fóru að koma fram aðrar raddir og „hver fór sína leið, og þeir villtust" Jes. 53:6. og þeir vildu ekki hlýða, þegar Drottinn talaði á ný til þeirra: „Nemið staðar við vegina og litist um og spyijið um gömlu göturnar, hver sé hamingju- leiðin, og farið hana, svo að þér finnið sálum yðar hvíld. En þeir sögðu: Vér viljum ekki fara hana“ Jer. 6:16. Fagnaðarhátíðin í Jerú- salem þegar fólkið hrópaði í gleði sinni „Hósanna, blessaður sé sá sem kemur í nafni Drottins" Jóh. 12:14, hljóðnaði, og innan fárra daga var aftur hrópað: „Burt, burt með hann. Krossfestum hann“ Jóh. 19:15. Hér á íslandi er svokölluð þjóð- kirkja sem einnig er nefnd „Evang- elísk lúthersk" en hefir verið svo „rúmgóð" að þar hafa þrifist alls- konar villukenningar svo sem anda- trú, guðspeki og nýaldarkenning með öllu sínu kukli. Allt þetta er í andstöðu við Guðs orð og andstyggð fyrir Drottni. 5. Mós. 18:11. Lúk. 16:19—31. Ég held að slíkt sam- rýmist ekki siðbótarkenningu Lúth- ers. Synd má varla minnast á, miklu fremur er hamrað á þeirri megnu villu að allir sem eru skírðir ádreif- ingarskím, sem ómálga börn, hafi þá endurfæðst, og séu því Guðs börn. Allt sé því í lagi, hvernig sem líf fólks er og breytni. Hvílík fjar- stæða, enda í mótsögn við kenningu Frelsarans, „en öllum þeim, sem tóku við honum, gaf hann rétt til að verða Guðs böm, þeim sem trúa á nafn hans.“ Jóh. 1:12. „Sá sem trúir og verður skírður, mun hólpinn verða." Mark. 16:16. „Hver sem ákallar nafn Drottins mun frels- ast.“ Post. 2:21. Þetta er leiðin. „Kjósið því í dag, hveijum þér viljið þjóna“ falsguðum þessa heims, eða hinum eina sanna Guði og orði hans. „Framar ber að hlýða Guði en mönnum." Post. 5:29. „Og ekki er hjálpræðið í neinum öðmm, því að eigi er heldur annað nafn undir himninum er menn kunna að nefna, er oss sé ætlað fyrir hólpnum að verða.“ Post. 4:12. Nú er mikið talað um að kjósa, þó í öðmm skilningi sé. Þar skyldi margt athugað: Það er munað eftir ykkur þingmenn og ráðherrar, sem gáfuð samþykki ykkar til að veita bjórnum yfir þjóðina, til viðbótar því áfengi, sem fyrir var, og hafið svo opnað flóðgáttir þessara eitur- efna í allar áttir um landið og eruð að því enn. Hvílík ógæfa. Hvers vegna var bara einn opinber starfs- maður ákærður og sakfelldur fyrir óleyfileg áfengiskaup, þegar vitað var að líkt var ástatt með marga .í fH/ j i<l ui.iniiu 'Oi) i ri ii íi ra r fleiri? Var það ekki af því að þarna vom allir þingflokkar samsekir? Eg man líka hve slælega var tekið á málum, þegar eiturlyfjafaraldurinn var að byija hér á landi. Einn virk- ur löggæslumaður varaði við þessu og vildi taka það föstum tökum þegar í stað. Það var gert grín að honum, og jafnvel höfðað mál á hann, og fjölmiðlar vom sammála um að hér „úti á þessum hólma" væri engin hætta á ferðum. Hver hefir þróunin orðið? Eg man ykkur þingmenn, sem komið hafið því til leiðar að ófædd böm í móðurkviði, em deydd í hundraðatali á hveiju ári. Hvílík synd. Það er líka hneyksli að lög frá ykkar hendi séu þannig að hagkvæmara sé fjárhagslega fyrir fólk að búa saman í óvígðri sambúð, en í hjónabandi, því samfé- lagsformi sem Guð sjálfur hefir stofnað og vill fá að helga það og blessa. Kristin siðfræði er ekki leng- ur í skólum, öll áhersla lögð á svo- kallaða „kynfræðslu“ strax á meðal unglinga. Þetta eykur á lauslæti, sem helst má ekki nefna því nafni, þetta þykir svo eðlilegt, sjálfsagt. Aftur á móti er sjálfsölum með getnaðarverjum komið fyrir í skól- um til fijálsra afnota. Það þykir víst menningarauki. Gælt er líka við hvers konar kynvillu. Maður sér líka hina ranglátu skattalöggjöf, sem ávallt kemur harðast niður á láglaunafólkinu. Það er auðséð að þau loforð sem gefin hafa verið á fjögurra ára fresti, hafa ekki verið birt og „litli maðurinn" hefir gleymst. Nú á enn að kjósa. Aldrei hafa svo margir flokkar verið í kjöri og allir ætla nú að gjöra gott úr öllu sem miður hefur farið og er auðvit- að öðmm að kenna. Ykkur alþingis- mönnum, sem þannig hafið farið að, er ekki treystandi lengur. Þið þarfnist hvíldar, enda hafið þið líka flestir mörgum öðmm störfum að gegna. Auðvitað getið þið bætt ráð ykkar, og vonandi gerið þið það. Farið að dæmi Nikódemusar ráð- herra á fund með Jesú. Hann mun gefa ykkur skýr svör. Hlýðið ráðum hans. Þá mun margt betur fara. „Þér eruð vinir mínir, ef þér gjörið það sem ég býð yður.“ Jóh. 15:14. „Vinn þú það ei fyrir metorð manns, að missa Guðs náð og vinskap hans.“ Ps. 22:9. Þið kennimenn lærðir og leikir: Haldið fast við það heit sem þið hafið gefið, að boða Guðs orð, hreint og ómengað. Biðjið um kraft- inn frá hæðum, skím í heilögum anda með þeim táknum sem Guð vill gefa. Hefjið upp raust ykkar, eins og Pétur forðum og berið fram þann boðskap sem hann flutti fyllt- ur heilögum anda, og varð grund- völlur frumsafnaðarins. Þessi boð- skapur hreif. „En er þeir heyrðu þetta, stungust þeir í hjörtun og sögðu við Pétur og hina postulana. Hvað eigum vér að gjöra bræður? En Pétur sagði við þá: Gjörið iðrun, og sérhver yðar láti skírast í nafni Jesú Krists til fyrirgefningar synda yðar, og þér munuð öðlast gjöf heilags anda. Því að yður er ætlað fyrirheitið og börnum yðar, og öll- um þeim, sem í íjarlægð eru, öllum þeim, sém Drottinn Guð vor kallar til sín. Og með öðrum fleiri orðum bar hann vitni, áminnti þá og sagði: Látið frelsast frá þessari rangsnúnu kynslóð. Þeir, sem þá veittu viðtöku orði hans, voru skírðir, og á þeim degi bættust við hér um bil þijú þúsund sálir. Og þeir héldu sér stöð- uglega við kenningu postulanna og samfélagið og brotning brauðsins og bænirnar." Post. 2:37—47. Þannig myndaðist frumsöfnuður- inn. Þarna var vakning í heilögum anda. í síðasta versi þessa kapítula segir svo að „Drottinn bætti dag- lega við í hópinn þeim er frelsast létu.“ Kenning postulanna er hin sama í dag, því „Jesús Kristur er í gær og í dag hinn sami". Hebr. 13:9. Hann kom, og kemur enn, „til að leita að hinu týnda og frelsa það“. Matt. 1:21 og Lúk. 19:10. Vakning gefðu, vér þig biðjum, Drottinn. Vek upp fólk þitt, ger það heilt og djarft. Andann sendu eins og fyrst í kristni. Orði krossins gefðu sigurkraft. Drottinn sendu andans kraft og eld. Drottinn sendu andans kraft og eld. Svo vér öðl- umst sigurkraftinn sanna. Drottinn sendu andans kraft og eld. „Gjörið því iðrun og snúið yður, að syndir yðar verði afmáðar, til þess að endurlífgunartímar komi frá augliti Drottins." Post. 3:19. „Kjósið því í dag, hveijum þér viljið þjóna.“ Jósúab 24:15. „Þér getið ekki þjónað bæði Guði og mamm- on.“ Matt. 6:24. Jesús segir: „Kom- ið til mín.“ Matt. 11:28. Kom og fylg mér.“ Mark. 10:21. „Guðs orð fær sýnt og sannað, hvað sé þér leyft eða bannað. Það skal þitt leiðarljós." (H.P. Ps. 7:3.) Sigffús B. yaldimarsson 1^>C><3Q. hvíla þreytta fætur \yz7 Wicanders Kork-o-PIast Korkflísar er barnaleikur að þrífa ££ írmíla 29, Mílatirgi, sími 31648 Þ. ÞQRGRÍMSSON & CO — Um 1.400.000 nemendur útskrif- uöust úr banda- rlskum mennta- skólum á síöasta ári. Þar af voru um 150 íslend- ingar. — ■ Skútuvogi 10a - Sími 686700 1&-27. APRÍL Stórsýning á meira en 20 amerískum eðalvögnum Glóbus hf., Jöfur hf. og Jötunn hf. sýna sitt besta. GLENS OG GAMAN í DAG Eftir hádegi, glerblástur- og amerísk glerlistarkona. Kl. 12.00 Listdansskóli Þjóðleikhússins. Ballett. Frá kl. 13.00 The Three Quarters. Amerísk hljómsveit. Kl. 12.00 og 13.00 Söngsveitin Raddbandið. Söngur. Kl. 14.00 Amerískur fótbolti, æfing. Stjaman í Garðabæ. Kl. 15.00 Dansskóh Heiðars og Ástvaldssonar. Amerískir dansar. KRINGWN Opið frá kl. 10-19 mánudaga til föstudaga 10—16 laugardaga. Veitingastaðimir opnir lengur. ... . .V .. AVi-' ’ > Á&Mffir'-. i; rh$ÍiÁ0}t:.. RENAULT19 ... margfaldur verðlauna- og metsölubíll Rcnault 19 var úthlutað titlinum „Bíll ársins 1990“ í Danmörku, Noregi og írlandi. Renault 19 hefur sett hvcrt sölumctið á fætur öðru. Hann er búinn lúxusinnréttingu, rafdrifnum rúðum, vökva- og velti stýri og fjarstýrðum samlæsingum. Kraftmikill mótor með rafeinda- kveikju, einstök fjöðrun og sport- legir aksturseiginleikar munu síðan koma þér þægilega á óvart. Bilaumboöið hf Krókhálsi 1, simi 686633, Reykjavik. RENAULT Lúxemborg — Þýskaland Ferðafólk Á milli Lúxemborgar og Trier, elstu borgar Þýskalands, er til leigu herbergi með morgunmat. Okkar tilboð: Tveggja manna herbergi í þrjá daga 150 DEM. Einnig er til leigu íbúð fyrir 2-4 persónur. Okkar tilboð: Ein vika á 385-450 DEM. Hringið eða skrifið til Tinu Hein, pósthólf 1249, 5503 Konz, Germany, sími 90-49-6501-17857 eftir kl. 17 eða á daginn í síma 90-352-4303-3475. Frekari upplýsingar hjá Sólveigu í síma 53952.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.