Morgunblaðið - 27.04.1991, Blaðsíða 4
54
IMORÖUNBLAÐIÐ: LAUGARDAGUR(2S.I APRÍLil991
Skagaströnd:
94 milljóna króna hagnaður
hjá Skagstrendingi í fyrra
Skagaströnd.
94 MILLJÓNA króna hagnaður
varð af rekstri Skagstrendings hf.
á síðasta ári. Er þetta eitt besta
ár í sögu félagsins að sögn Valdi-
Kærður fyrir
að nauðga
dóttur sinni
KARLMAÐUR á fimmtugsaldri
hefur verið úrskurðaður í gæslu-
varðhald til 30. apríl næstkom-
andi. Hann hefur verið kærður
fyrir að nauðga dóttur sinni á
fer mingaraldri.
Atburðurinn átti sér stað í kaup-
stað á Norðurlandi og felldi héraðs-
dómari gæsluvarðhaldsúrskurðinn
yfír manninum. Hann situr í fang-
elsinu í Síðumúla í Reykjavík.
Rannsókn málsins er ekki að
fullu lokið og ekki ljóst hvort um
endurtekið brot var að ræða.
mars Guðnasonar endurskoðanda
á aðalfundi þess er haldinn var á
hótel Dagsbrún á Skagaströnd 25.
apríl sl.
Ákveðið hefur verið að félagið láti
smíða fyrir sig nýjan 60 m langan
togara í skipasmíðastöð í Bergen í
Noregi og mun skipið verða afhent
í júlí-ágúst 1992. Skipið á að kosta
um 900 milljónir og hefur Fiskveiði-
sjóður íslands samþykkt að lána 60%
kaupverðsins en Búnaðarbankinn
mun ganga í ábyrgð fyrir þeim 40%
sem á vantar. Nýja skipið, sem verð-
ur frystiskip, mun verða gert út
ásamt Örvari sem einnig er frysti-
skip og var með hæsta skiptaverð
íslenskra togara á síðasta ári. Amar
sem er ísfískstogari félagsins verður
seldur eða úreltur ásamt fleiri skipum
félagsins. Er það með mikilli eftirsjá
að Amar verður látinn frá félaginu
því hann hefur reynst ákaflega vel
og frá því að hann kom í rekstur í
október 1973 hefur hann borið að
landi rúmlega 60 þúsund tonn á
Skagaströnd.
Þar sem félagið mun ekki reka
nenn ísfískstogara er ljóst að erfítt
verður um hráefnisöflun til frystihúss
Hólaness hf. sem tekið hefur á móti
megninu af afla Arnars. Því hefur
verið ákveðið að stofna nýtt útgerð-
arfyrirtæki í eigu Hólaness, Skag-
strendings og Höfðahrepps til að
kaupa og reka ísfískstogara í stað
Amars. Mun hlutafé hins nýja félags
verða 200 milljónir króna.
Á aðalfundi Skagstrendings var
samþykkt útgáfa 10% jöfnunarhluta-
bréfa og að greiða 15% arð af hlut-
afé félagsins. Stjóm félagsins var
jafnframt veitt heimild til hlutafjár-
aukningar upp á 50 milljónir og skal
henni lokið fyrir 25. apríl 1993.
Hluthafar í Skagstrendingi hf. em
252 og hlutafé rúmlega 100 milljón-
ir að nafnverði. Framkvæmdastjóri
félagsins er og hefur verið frá upp-
hafi Sveinn S. Ingólfsson en stjómar-
formaður nú er Gylfí Sigurðsson.
VEÐUR
/ VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hitf veður Akureyri 0 alskýjaft Reykjavík 3 slydda
Bergen 10 léttskýjað
Helsinki 12 skýjað
Kaupmannahöfn 7 skýjað
Narssarssuaq 3 léttskýjað
Nuuk ■i-3 snjókoma
Ósló 10 skýjað
Stokkhólmur 6 skýjað
Þórshöfn 9 skýjað
Algarve • 15 skýjað
Amsterdam 13 léttskýjað
Barcelona 13 hálfskýjað
Berlín 7 þokumóða
Chicago 11 léttskýjað
Feneyjar 15 skýjað
Frankfurt 13 skýjað
Glasgow 14 léttskýjað
Hamborg 10 skýjað
Las Palmas vantar
London 15 mistur
LosAngeles 12 alskýjað
Lúxemborg 13 skýjað
Madrfd 12 léttskýjað
Malaga 17 léttskýjað
Mallorca 15 skýjað
Montreal 11 lóttskýjað
New York 12 skýjað
Orlando 21 skýjað
París 15 skýjað
Róm 10 skúr
Vín 12 léttskýjað
Washlngton 14 mlstur
Winnipeg 12 skýjað
VEÐURHORFUR I DAG, 27. APRIL
YFIRLIT: Um 450 km suöur af Vestmannaeyjum er 980 mb lægð
sem þokast norður. Heldur hlýnar í veðri.
SPÁ: Hvöss norðaustanátt með skúrum eða slydduéljum vestan-
lands en sunnan- eða austangola eða kaldi annars staðar. Skúrir
verða sunnan- og austanlands en þurrt að mestu í öðrum lands-
hlutum.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á SUNNUDAG: Sunnan- og suðaustanátt á landinu,
slydda eða rigning á Suöur- og Suðvesturlandi en úrkomulítið í
öðrum landshlutum. Hiti 2-3 stig.
HORFUR Á MÁNUDAG: Sunnan- og suðvestanátt, skúrir sunnan-
og vestanlands en þurrt annars staðar. Hiti 3-4 stig.
N: y, Norðan, 4 vindstig: ' Vindörin sýnir vind- ■JO Hitastig:
10 gráður á Celsíus
stefnu og fjaðrirnar •
Heiðskírt vindstyrk, heil fjöður \J Skúrir
er 2 vindstig. * V7 F'
Léttskýjað r r r t t r t Rigning = Þoka
/ / / = Þokumóða
Hálfskýjað * / * ’ , ’ Súld
Skýjað f * r * Slydda f * r CX3 Mistur
* * * —Skafrenningur
Alskýjað * * * * Snjókoma * * * [ Þrumuveður
Morgunblaðið/KGA
Nemendur Þinghólsskóla í Kópavogi glíma við stærðfræðiprófið í
gærmorgun.
Tæplega 4.000
unglingar þreyta
samræmdpróf
FYRRA samræmda próflð sem grunnskólanemendur þreyta á þessu
vori var í gær og síðara prófið taka unglingarnir á mánudaginn. Tæp-
lega 4.000 nemendur gangast undir prófin, en 270 þeirra sem ættu
að taka þessi próf gera það ekki.
Það eru 3.910 unglingar sem
þreyta prófin. Þeir eru úr 115 grunn-
skólum, sem hafa 10. bekk. í gær
var stærðfræði lögð fyrir nemendur
og á mánudaginn verður það
íslenska.
Þeir sem taka þessi próf eru ungl-
ingar sem fæddir eru árið 1975, og
verða 16 ára á þessu ári. Árið 1975
fæddust 4.180 böm í landinu, en
3.910 þreyta prófín, þannig að 270
unglingar þessa árgangs gangast
ekki undir samræmd próf.
Þær upplýsingar fengust í
menntamálaráðuneytinu að hluti
þessara 270 unglinga væru með und-
anþágu, eða væru í sérskólum, en
stór hluti þessa hóps væru unglingar
sem horfíð hefðu frá skólanámi og
ekkert væri vitað um.
Árið 1989 var gerð sú breyting
að engin inntökuskilyrði þarf í fram-
haldsskóla landsins og frá árinu 1988
hafa ekki verið samræmd próf í
ensku og dönsku eins og áður var.
Póstkröfusala:
Greiða ber YSK
samkvæmt nótu
SAMKVÆMT áliti ríkisskattstjóra ber kaupmönnum að greiða virðis-
aukaskatt af vörum, sem þeir selja gegn póstkröfu, samkvæmt dagsetn-
ingu a reikmngi.
Skrifstofa viðskiptalífsins sendi
ríkisskattstjóra erindi þessa efnis í
mars vegna þess að kaupmönnum
fínnst réttlátara að greiða sam-
kvæmt greiðslustimpli pósthúss þeg-
ar varan er móttekin.
Ríkisskattstjóri telur að greiða eigi
samkvæmt dagsetningu á reikningi,
sé hann gefínn út um leið og varan
er pöntuð. Þetta getur þýtt að kaup-
menn láni ríkinu fé um nokkurn tíma,
því talsverður hluti þeirrar vöru sem
seld er gegn póstkröfu er aldrei leyst
út ogþá þurfa kaupmenn að fá virðis-
aukaskattinn endurgreiddan.
Kaupmenn, sem senda afgreiðslu-
seðil í stað reiknings með vörum
greiða virðisaukaskatt samkvæmt
greiðslustimpli pósthúss, þegar sala
hefur f rauninni farið fram.
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Peysurnar fluttar út í leiguflugvélina á Keflavíkurflug^elli í gær-
morg’un.
Hraktir Kúrdar fá
íslenskar peysur
RAUÐI kross íslands sendi á miðvikudagskvöldið flutningavél frá Car-
golux fulla af teppum og peysum frá íslenskum prjónastofuin til Teher-
an í Iran.
Vélin var losuð ytra á fimmtudag
og að sögn Kristjáns Eysteinssonar
sem fylgdi farminum á leiðarenda
fyrir hönd RKÍ gekk losun vel. Farm-
urinn var afhentur Rauða hálfmán-
anum í Iran sem kom honum strax
í flóttamannabúðir Kúrda við landa-
mæri íraks, en þar ríkir nú neyðar-
ástand eins og kunnugt er af fréttum.
Annar álíka farinur jfór frá
Keflavíkurflugvelli áleiðis til Diya-
bakir í Tyrklandi um hádegisbilið í
gær með sömu flugvél. Ytra tekur
tyrkneski Rauði hálfmáninn við
farminum og kemur honum til
hraktra flóttamanna nálægt landa-
mærum Tyrklands og íraks.
Hjálpargögn þessi eru keypl fyrir
framlag ríkisstjórnar íslands til
hjálpar Kúrdum á flotta; frá írak.