Morgunblaðið - 27.04.1991, Blaðsíða 42
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUÉ 27! APRÍL499I
42
fclk f
fréttum
BRÚÐKAUP
David Cassidy gengnr í það
heilaga í þriðja sinn
Gamli popparinn og hjarta-
knúsarinn David Cassidy er
genginn í það heilaga í þriðja
sinn. Atburðurinn átti sér stað
fyrir skömmu og hin lukkulega
heitir Sue Shirfin og er 41 árs
gömul. Sjálfur er David kominn
nokkuð á fímmtugsaldurinn. Ný-
lega fæddur sonur þeirra Beau
var meðal gesta á athöfninni og
lét í sér heyra, reyndi m.a. að
yfirgnæfa prestinn er hann gaf
hjónin saman. Sue þessi er laga-
og textahöfundur sem hann hitti
fyrst árið 1973, en síðan ekki
söguna meir fyrr en fyrir hálfu
fimmta ári síðan. Tókust þá
kærleikar með þeim sem standa
enn. Þetta er þriðja hjónaband
Cassidys og annað hjónaband
Sue.
David er á fullri ferð í poppinu
eftir nokkurt hlé, er fullur bjart-
sýni og hefur nýlega sent frá sér
nýja hljómplötu. Hann hefur
einnig nýlega leikið í kvikmynd
að nafni „Spirit of 76“. Hann
Vinsældir hans eru aftur orðnar
umtalsverðar og hann þakkir því
framlagi eiginkonu sinnar sem
leggur fram mikið af tónlistar-
efninu. „Þetta er rómantísk og
falleg tónlist, en það eru einmitt
tveir kosta frúar minnar. Það
veitir mér mikinn innblástur að
hlusta á lög hennar og hiýða á
textana," segir Cassidy.
Athöfniimi lokið og Beau litli þagnaður í bili.
eyðir miklum tíma í að fylgja
bæði plötu og kvikmynd eftir og
segist ánægður með afrakstur-
inn. Fyrir 15 árum mátti hann
varla líta út um gluggann heima
hjá sér án þess að koma af stað
uppþoti meðal æstra aðdáenda
sinna sem flestir voru tánings-
stúlkur. Nú er öldin önnur og
hann vekur ekki sömu eftirtekt.
Han segist guðs lifandi feginn
því hitt hafí verið óþolandi
ástand. „Svo tel ég mig vera með
vandaðri tónlist nú til dags og
hún er flutt öðru vísi. Hún höfð-
ar til eldra fólks en áður og er
ekki líkleg til múgsefjunnar,"
segir David.
Tertan skorin.
ROKK
Billy Idol þreyttur
á rokkinu
Rokktónlistarmaðurinn Billy
Idol er tekinn að lýjast á
rokkinu og vill gjaman ná frama
í kvikmyndum
á meðan hann
hvílir sig frá
því og hleður
- batteríin.
Hann var bú-
inn að næla
sér í stórt
hlutverk í
kvikmynd Oli-
vers Stone um
hljómsveitina
The Doors er
hann lenti í
alvarlegu slysi
á vélhjóli sínu.
Idol átti að
leika yfírrót-
ara hljóm-
sveitarinnar,
en vegna
meiðsla hans
sem greru
seint, var
hlutverkið
skorið mjög
niður og Idol
sést lítið í
myndinni.
En kappinn
var ekki svo
alvaræega
slasaður að
hann kæmist
ekki á ról á
ný. Er beinin
voru gróin saman á ný fór hann
á stúfanna og sendi frá sér nýja
hljómplötu.
Er hún mun rólegri en fyrri
■ skífur hans þótt ærslafengin sé
og bendir það til að enn sé hann
í lággír gagnvart rokkinu.
Umboðsmaður Idols, David Gold-
man segir það rétt vera að Idol
vilji hvíla sig.
Hann hefur
reyndar verið
að fylgja nýj-
ustu skífu
sinni eftir síð-
ustu mánuði
með erfiðum
hljómleika-
ferðum, en
margir fram-
leiðendur séu
á eftir honum
í væntanleg
hlutverk.
„Gallinn er
bara sá,“ segir
Goldman, „að
Billy vill hlut-
verk þar sem
hann getur
látið reyna á
leiklistarhæfi-
leika sína sem
hann telur
vera umtals-
verða.
Hann vill
ekki leika
•rokkstjörnur.
Hann viíl ein-
mitt hvíla sig
á því. Margir
af þeim sem í
mig hringja
vilja hann í
slík hlutverk, en það verður ekki.
Það er hins vegar engin spurn-
ing að næstu tvö árin eða svo mun
Billy einbeita sér að kvikmynda-
leik, því hann getur í raun valið
úr hlutverkum.
Billy Idol, ófrýnilegur að vanda.
PATREKSFJORÐUR
Af sjósókn
ungs fólks
Ifyrri viku hafði hér við-
komu sem oftar skólaskip-
ið Mímir RE 3. Eftir komu
þess er beðið með nokkurri
óþreyju.
í litlu sjávarplássi stendur
hugur ungra sem aldinna
nærri sjónum og hefur sjó-
vinna og siglingafræði verið
kennd í efstu bekkjum skólans
í fjölda ára. Það eru einmitt
nemendur í þessum greinum
sem njóta góðs af komu Mím-
is. Hér eru nemendur það
margir að fara varð með þá
í þremur ferðum að þessu
sinni, til þess að koma þeim
í svolitla snertingu við lífið á
og í sjónum. Þetta eru sjóferð-
ir sem enginn vill missa af
þrátt fyrir litla aflavon, eink-
um í vorferðunum. Það eru
siglingatækin, vinnuaðferð-
irnar og veiðarfærin sem ver-
ið er að kynna. Margt kemur
þó upp því fjörðurinn þeirra
er fullur af lífi sem felur í sér
feikna verðmæti ef það væri
nýtt. í þessuin ferðum bragð-
ar margur í fyrsta sinn hörpu-
disk beint úr skelinni, ígul-
keijahrogn eða sæsnigil.
- Hilinar
Morgunblaðið/Hilmar Árnason
Nemendur um borð í skólaskipinu Mími RE 3.
COSPER
ffiPIB
Lðn#
iitw
COSPER
— Ég elska þig kæra Stína, yósu lokkana þína, bláu augun
og ljúffenga matinn.