Morgunblaðið - 14.05.1991, Síða 1
64 SIÐUR B
11
STOFNAÐ 1913
106. tbl. 79. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 14. MAI 1991
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Dómstóll í Suður-Afríku:
Winnie Mandela lagði
á ráðin um mannrán
Jóhannesarborg. Reuter.
WINNIE Mandela, eiginkona suður-afríska blökkumannaleiðtogans
Nelsons Mandela, var í gær fundin sek fyrir rétti í Jóhannesarborg
um mannrán og um að hafa verið í vitorði með þeim, sem misþyrmdu
fjórum ungum mönnum. Sagði dómarinn, að Winnie hefði afhjúpað
sjálfa sig fyrir réttinum sem „ósvífinn lygara“. Hér var aðeins um
sektardóm að ræða og hefur veijandi hennar ákveðið að áfrýja honum.
Xoliswa Falati, forstöðumaður að ræna fjórum ungum mönnum af
gistiheimilis á vegum kirkjunnar, var
fundinn sekur um það sama og
Winnie en bílstjórinn hennar, John
Morgan, um mannránin. Sagði dóm-
arinn, M.S. Stegmann, að þau þrjú
og Jerry Richardson, fyrrum lífvörð-
ur Winniear, hefðu lagt á ráðin um
Bandaríkin:
Efnavopn-
unum eytt
Washington. Reuter.
GEORGE Bush Bandaríkjafor-
seti skýrði í gær frá því að hann
hefði tekið ákvörðun um skilyrð-
islaust bann við notkun efna-
vopna af hálfu Bandaríkjanna og
allar birgðir landsins af slíkum
vígtólum yrðu eyðilagðar.
I yfirlýsingu forsetans segir að
Bandaríkjamenn voni að aðrar þjóð-
ir fari að dæmi þeirra. Hvatt er til
þess að haldið verði áfram að reyna
að ná samkomulagi í árangurslitlum
viðræðum sem farið hafa fram í
Genf í sjö ár um allsheijarbann við
notkun efnavopna.
Ákvörðun Bush merkir að
Bandaríkjamenn hafa varpað fyrir
róða tveim kröfum. Þeir hafa hing-
að til sagt að þeir áskilji sér rétt
til að svara í sömu mynt verði ráð-
ist á þá með efnavopnum og krafist
þess að fá að halda eftir 500 tonna
birgðum þar til allar þjóðir hafi
samþykkt efnavopnabann. Banda-
ríkin og Sovétríkin náðu á síðasta
ári samkomulagi um að eyða megn-
inu af efnavopnabirgðum sínum.
gistiheimilinu en Winnie síðan horfið
á braut og látið karlmennina um
framkvæmdina. Var öllum mönnun-
um misþyrmt og einn þeirra, Stom-
pei Seipei, svo hart leikinn, að hann
lést síðar. Á síðasta ári var Jerry
Richardson dæmdur til hengingar
fyrir morðið á honum.
Nelson Mandela, sem var í fang-
elsi þegar þessir atburðir áttu sér
stað fyrir tveimur árum, hlýddi svip-
brigðalaus á sektardóminn en
Winnie, kona hans, endurtók, að hún
væri saklaus.
Winnie Mandela var framarlega í
baráttunni gegn aðskilnaðarstefn-
unni í fjarveru manns síns en síðustu
ár hafa ýmsar gerðir hennar þótt
umdeilanlegar, m.a. stofnun harð-
snúinnar lífvarðasveitar.
Eldflaugar
upprættar
Sovétmenn eyðilögðu á
sunnudag síðustu SS-20
eldflaugar sínar og var það
í samræmi við ákvæði
INF-samnings stói-veld-
anna um fækkun meðal-
drægra eldflauga. Samn-
ingurinn var undirritaður
fyrir þremur árum. Á
myndinni bera sovéskir
hermenn eina af eldflaug-
unum en á innfelldu mynd-
inni er sú síðasta sprengd
í sundur í tilraunastöð
sovéska hersins í Kapústín.
Áður höfðu sjálfar kjarna-
hleðslurnar verið fjarlægð-
ar eins og líklegt er.
Reuter
Friðartilraunir James Bakers í Miðausturlöndum:
Svartsýni vegna ósveigjan-
leika ísraela og Sýrlendinga
Kairó, Damaskus, Jerúsalem. Reuter.
VONIR um verulegan árangur
af friðarferð James Bakers, ut-
anríksráðherra Bandaríkjanna,
um Miðausturlönd hafa dvínað
og er kennt um ósveigjanlegri
afstöðu Ísraela og Sýrlendinga.
Gekk hvorki né rak á fundi Bak-
ers og Hafez Assad Sýrlandsfor-
seta á sunnudag og eftir yfirlýs-
ingar Yitzhaks Shamirs, forsæt-
isráðherra ísraels, um helgina,
eru bandarískir embættismenn
ekki bjartsýnir á, að betur gangi
í viðræðum Bakers við ísraelska
ráðamenn. Alexander Bessmert-
nykh, utanríkisráðherra Sov-
Viðræður Efta og EB:
Stefnt að samningum
um EES fyrir júnílok
Jón Baldvin Hannibalsson vísar á bug
fréttum um málamiðlun í sjávarútvegi
Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
Á utanríkisráðherrafundi Efta, Fríverslunarbandalags Evrópu,
og Evrópubandalagsins í Brussel í gærkvöld náðist umtalsverður
árangur á flestum sviðum samninganna um Evrópska efnahagssvæð-
ið (EES). Ekkert miðaði þó í samkomulagsátt í sjávarútvegs- og
tollamálum, sem virðast vera erfiðasti hjallinn á lokasprettinum.
Lauk fundinum með því, að ráðherrarnir ítrekuðu þann vilja sinn
að ljúka samningunum fyrir 24. júní í sumar.
I viðtali við Morgunblaðið að un í sjávarútvegi, sem viðurkenndi
réttmæti þeirrar kröfu EB að að-
gangur að mörkuðum tengdist að-
gangi að fiskimiðum. Sagði Jón,
að ekkert slíkt hefði komið fram á
fundinum og stæði ekki til að
breyta afstöðunni hvað það varð-
aði.
fundinum loknum vísaði Jón Bald-
vin Hannibalsson utanríkisráðherra
algjörlega á bug þeirri frétt
Ritzau-fréttastofunnar dönsku,
sem var höfð eftir ónefndum heim-
ildamönnum, að Islendingar og
Norðmenn hefðu fallist á málamiðl-
Jón Baldvin sagði, að í yfirlýs-
ingu ráðherranna væri lögð áhersla
á, að endanlegur samningur yrði
að taka tillit til hagsmuna allra
ríkjanna og í greininni, sem fjallaði
um sjávarútveg, væri vísað á aðra
grein, sem ítrekaði þetta sjónar-
mið. Kvaðst hann telja, að í þessu
fælist nægjanleg við'urkenning á
sérstöðu íslendinga. Að öðru leyti
sagði hann, að töluverður árangur
hefði náðst varðandi ýmis ágrein-
ingsmál, meðal annars um sameig-
inlegan dómstól, aðild Efta-ríkj-
anna að nefndum EB og um ákvæði
um almenna fyrirvara í samning-
um. Þá sagði Jón Baldvin, að nokk-
uð hefði þokast í umræðum um
upprunareglur og aðlögunartíma.
étríkjanna, sem einnig er á ferð
um Miðausturlönd, segist þó enn
vongóður um að lausn finnist á
deilumálunum fyrir botni Mið-
jarðarhafs.
Sýrlendingar kreijast þess, að
ráðstefnan verði haldin á vegum
Sameinuðu þjóðanna en ísraelar
vilja ekki ljá máls á því. Þá deila
ríkin einnig um hveijir skuli verða
fulltrúar Palestínumanna og hvort
ráðstefnan skuli haldin í anda álykt-
ana SÞ númer 242 og 338 en þar
segir, að Israelar skuli afsala sér
hernumdu svæðunum fyrir frið.
Hafa bandarískir embættismenn
það eftir Baker, að verði ekki veru-
íegur árangur af þessari fjórðu ferð
hans muni hann ekki gera fleiri til-
raunir til a.ð finna friðsamlega lausn
á deilum Israela og araba.
Á sameiginlegum blaðamanna-
fundi þeirra Bakers og Bessmertn-
ykhs í Kairó á sunnudag var sov-
éski utanríkisráðherrann fremur
bjartsýnn. Sagði hann, að ágrein-
ingsmálunum hefði fækkað og
líkurnar á friðaiTáðstefnu aukist
að sama skapi. Deilan um aðild SÞ
að ráðstefnunni virðist þó vera
næsta óyfirstíganleg og vegna þess
hafa sumir nefnt, að hún yrði hald-
in án þátttöku Sýrlendinga. Á
blaðamannafundinum vísaði Baker
hins vegar slíkum vangaveltum á
bug.
Yitzhak Shamir, forsætisráð-
herra Israels, sagði á sunnudag, að
Israelar myndu aldrei láta af hendi
nokkurn skika í Jerúsalem og hefðu
auk þess í hyggju að stækka borg-
ina í austur inn á Vesturbakkann.
Þykja þessar yfíriýsingar Shamirs
ekki boða neitt gott fyrir viðræður
hans og James Bakers.
Þýskaland:
Jafnaðar-
menn njóta
mests fylgis
SAMKVÆMT skoðanakönnun
sem þýska vikuritið Ber Spiegel
birti í gær nýtur Jafnaðarmanna-
flokkurinn í Þýskalandi meira
fylgis en kristilegir demókratar
(CDU), flokkur Helmuts Kohls
kanslara, og Kristilega sósialsain-
bandið (CSU), systurflokkur
þeirra í Bæjaralandi.
Samkvæmt skoðanakönnuninni
njóta jafnaðarmenn 40% fylgis en
CDU-CSU 38%. í kosningunum í
desember fengu jafnaðarmenn 33,8%
fylgi en flokkur Kohls tæplega 44%.
Mest er fylgistap CDU í austurhluta
Þýskalands og segir Der Spiegel að
1,7 milljónir kjósenda þar sem áður
studdu kristilega demókrata bindi
trúss sitt nú við jafnaðarmenn.
Skýringin á fylgishruni stærsta
flokks Þýskalands er talin vera aukið
atvinnuleysi í austurhlutanum og
skattahækkanir þrátt fyrir kosninga-
loforð í aðra veru.