Morgunblaðið - 14.05.1991, Side 4
4
MÓRGUNBLÁÐIÐ ÞRIÐJUÐAGUR 14. MAÍ 1991
VEÐUR
VEÐURHORFUR I DAG, 14. MAI
YFIRLIT: Fyrir norðan land er lægðardrag sem liggur vestur á
Grænlandshaf en heldur vaxandi 990 mb lægð við strönd Labrad-
or þokast norðaustur.
SPÁ: Rigning á Suðvestur- og Vesturlandi. Suðvestan gola eða
kaldi og þykknar upp síðdegis um austanvert landið. Hlýnandi veður.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á MIÐVIKUDAG: Sunnan- og suðaustan átt. Rigning um
sunnan- og vestanvert landið, en úrkomulítiö norðaustanlands.
Hlýnandi veður.
HORFUR Á FIMMTUDAG:Suðvestan átt. Skúrir sunnanlands og-
vestan, en léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi. Heldur kóln-
andi veður.
Svarsími Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600.
TAKN
Heiðskirt
Lettskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskyjað
x Norðan, 4 vindstig:
* Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * * \
* * * * Snjókoma
* * *
•f Q° Hitastig:
10 gráður á Celsius
SJ Skúrir
*
V El
~ Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—j- Skafrenningur
[T Þrumuveður
m / VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hltl veður Akureyri 7 alskýjað Reykjavík 4 snjóél á síð.klst.
Bergen 7 skúrir
Helsinki 16 léttskýjað
Kaupmannahöfn 12 alskýjað
Narssarssuaq 4 skýjað
Nuuk +4 heiðskírt
Osló 17 skýjað
Stokkhólmur 17 skýjað
Þórshöfn 9 skúrir
Algarve vantar
Amsterdam 12 rigning
Barcelona 19 lóttskýjað
Berlín 14 skýjað
Chicago 29 þokumóða
Feneyjar 19 þokumóða
Frankfurt 16 hálfskýjað
Glasgow 14 súld
Hamborg 13 rigning
Las Palmas vantar
London 17 skýjað
LoaAngeles 18 léttskýjað
Lúxemborg 16 hálfskýjað
Madrid 20 skýjað
Malaga 22 lóttskýjað
Mallorca 20 skýjað
Montreal 26 léttskýjað
NewYork 31 heiðskírt
Orlando 30 heiðskírt
Par/s 18 léttskýjað
Róm 18 iéttskýjað
Vín 13 skúrir
Washington 32 heiðskírt
Winnipeg 30 léttskýjað
Félagsmála-
ráðherra
ræður sér að-
stoðarmann
BRAGI Guðbrandsson félagsmál-
astjóri í Kópavogi hefur verið
ráðinn aðstoðarmaður Jóhönnu
Sigurðardóttur félagsmálaráð-
herra.
Bragi er 37 ára félagsfræðingur
að mennt. Hann hefur verið félags-
málastjón Kópavogs frá 1982, en
var áður kennari við Menntaskólann
í Hamrahlíð og stundakennari við
Háskóla íslands og Menntaskólan-
um í Reykjavík.
Bragi hefur starfað í ýmsum
nefndum og að rannsóknarverkefn-
um á vegum félagsmálaráðuneytis-
ins, heilbrigðisráðuneytisins og iðn-
aðaráðueytisins.
Eiginkona Braga er Árdís Ólafs-
dóttir hjúkrunarfræðingur og eiga
þau þrjú börn.
Aðstoðarmaður Jóhönnu í fyrri
ríkisstjórn var Grétar Guðmunds-
son, sem nú hverfur aftur til fyrra
starfs síns hjá ráðgjafastöð Hús-
næðisstofnunar ríkisins.
Morgunblaðið/Sverrir
Danska leignskipið Polar Naiioq lagðist við bryggju í Sundahöfn á sunnudag, skömmu áður en samkomu-
lag tókst á inilli Sjómannafélags Reykjavíkur og Samskipa hf.
Samkomulag í kaupskipadeilunni:
A __
Islensk áhöfn á Polar Nanoq
SAMKOMULAG tókst á sunnudag á milli Sjómannafélags Reylgavíkur
og Samskipa hf. um að íslenskir hásetar manni áhöfn danska skipsins
Polar Nanoq, sem Samskip hafa á þurrleigu. Að sögn Jónasar Garðars-
sonar, stjórnarmanns í Sjómannafélaginu, felst í samkomulaginu að
íslenskir hástar munu taka við af pólskri áhöfn skipsins við næstu
komu þess til Islands. Jafnframt hefur Sjómannafélagið aflýst yfirvinnu-
banni sem félagið hafði sett á fjögur skip Samskipa. .
Jónas sagði að verkfallsaðgerðim- aðgerðir Sjómannafélagsins hefðu
ar hefðu verið famar að hafa tals-
verð áhrif og tafið lestun skipanna
erlendis og í íslenskum höfnum.
Ómar Jóhannsson, framkvæmda-
stjóri Samskipa, sagði óyggjandi að
verið ólöglegar. „Þama er um leigu-
skip að ræða sem kemur ekki í okk-
ar eigu fyrr en eftir næstu mánaða-
mót. Það var gengist inn á, að þegar
skipið kæmi næst til íslands, yrði
það mannað íslenskum hásetum. Það
kom í ljós að allt stefnir í að skipið
verði í langtímaverkefnum erlendis
og komi ekki til íslands aftur fyrr en
í byijun vetrar. Á þeim forsendum
gengumst við inn á þetta samkomu-
lag en teljum það alls ekki fordæmis-
gefandi," sagði Ómar.
Jónas sagði að Sjómannafélagið
fylgdist grannt með hvort settar yrðu
erlendar áhafnir á önnur skip. „Eim-
skipafélagið er ekki með leiguskip
eins og er en Sambandið með tvö
sem eru mönnuð útlendingum en
bæði eru í tímabundnum verkefnum.
Það eru því engar frekari aðgerðir í
undirbúningi eins og er,“ sagði hann.
Áður en samkomulagið tókst um
helgina hafði Sjómannafélagið hótað
að setja yfirvinnubann á allan kaup-
skipaflotann.
/ DAG kl. 12.00
.
H8imild•. Veflurslola klands
(Byggt k veðurspá kl. 16.15 f gær)
Skákmótið í Amsterdam:
Jóhami endaði í 6.-7. sæti
JÓHANN Hjartarson gerði jafntefli við Valeríj Salov í síðustu um-
ferð minningarskákmótsins um Max Euwe í Amsterdam. Jóhann
endaði í 6.-7. sæti með 4 vinninga af 9 mögulegum. Salov varð hins
vegar efstur á mótinu ásamt breska stórmeistaranum Nigel Short
en þeir fengu 6 vinninga.
Jóhann hafði svart gegn Salov
og varð skákin 39 leikir. Short og
Anatolíj Karpov gerðu einnig jafn-
tefli í 30 leikjum. Viktor Kortsjnoj
og Míkhaíl Gúrevítjs tefldu hins
vegar 66 leiki áður en sæst var á
jafnan hlut. Garríj Kasparov náði
3. sætinu ásamt Karpov með því
að vinna Ljúbojevic og Jan Timman
kom sér upp úr botnsætinu með því
að vinna Van der Wiel.
Lokastaðan varð þessi: Short og
Salov 6 vinningar, Karpov og Kasp-
arov 5*/2, Kortsjnoj 4'h, Jóhann og
Timman 4 vinningar, Gúrevítjs 3*/2,
Ljubojevic og Van der Wiel 3 vinn-
ingar.
Sigurður Ágústsson frá
Birtingaholti látinn
Sigurður Ágústsson frá Birt-
ingaholti lést á Sjúkrahúsi Suður-
lands aðfaranótt sunnudagsins 12.
maí á 85. aldursári.
Sigurður var fæddur 13. mars
1907 í Birtingaholti í Hrunamanna-
hreppi, Ámessýslu, sonur hjónanna
Magnúsar Ágústs Helgasonar, al-
þingismanns og bónda þar, og konu
hans Móeiðar Skúladóttur. Sigurður
lauk gagnfræðaprófi frá Flensborg
1924, og nam harmoníum- og píanó-
leik frá 7-17 ára aldurs hjá einka-
kennurum í Reykjavík. Hann var
bóndi í Birtingaholti frá 1934-1964.
Hann var skólastjóri barnaskólans á
Flúðum í Hrunamannahreppi
1950-51 og 1955-64, kennari í
Reykholti í Biskupstungum 1964-69,
kennari í bama- og unglingaskólan-
um á Stokkseyri 1970-72, og kenn-
ari við Gagnfræðaskólann á Selfossi
1972-75. Sigurður var skólastjóri
Tónlistarskóla Ámessýslu 1974-78,
en lét þá af störfum fyrir aldurs
sakir og varð stundakennari við skól-
ann.
Sigurður var hreppstjóri Hmna-
mannahrepps 1947-58, og í hrepps-
nefnd 1950-62. Hann var formaður
Búnaðarfélags Hmnamanna
1939-63, formaður Nautgriparækt-
arfélags Hmnamanna 1935-50, og
formaður Ræktunarfélags Hruna-
manna 1946-56. Hann var formaður
sóknarnefndar Hrepphólasóknar
1943-51, formaður Tónlistarfélags
Ámessýslu 1969-77, organisti
Hrepphólakirkju frá 1925 og síðar
einnig við Hrunakirkju.
Sigurður fékk heiðursviðurkenn-
ingu fyrir tónlistarstörf, veitt úr
Minningarsjóði Egils Gr. Thorarens-
en 1969, og listamannalaun 1980.
Hann var áæmdur Riddarakrossi
hinnar íslensku Fálkaorðu og var
gerður heiðursborgari Hmnamanna-
hrepps 1987. Sama ár var hann
gerður heiðursfélagi Ungmennafé-
lags Hmnamannahrepps og Tónlist-
arfélags Árnessýslu, og 1988 var
hann gerður heiðursfélagi Lands-
sambands blandaðra kóra. Sigurður
byijaði ungur að semja lög og liggja
eftir hann fjölmargar tónsmíðar. Þá
ritaði hann um skólamál í Hmna-
mannhreppi í Sögu Flúðaskóla 1929-
1979.
Eiginkona Sigurðar var Sigríður
Sigurfínnsdóttir, sem lést 1983, og
eignuðust þau sjö börn.
ASI hvetur
til stuðnings
við færeyska
verkamenn
ALÞÝÐU S AMB AND ís-
lands hefur hvatt aðildar-
félög sín að sýna færeysk-
um verkamönnum sam-
stöðu í vinnudeilu þeirra
og sjá til þess að ekki verði
gengið inn á verksvið
þeirra við löndun eða af-
greiðslu færeyskra fiski-
skipa hér á landi. Er þetta
gert að ósk Færeyska
verkamannasambandsins.
Kjarasamningur Færeyska
verkamannasambandsins við
atvinnurekendur rann út 1.
maí og hafa samningaviðræð-
ur, með milligöngu sáttasemj-
ara, reynst árangurslausar.
Alþýðusambandi íslands barst
á laugardag bréf frá Færeyska
verkamannasambandinu þar
sem segir, að aðildarfélög þess
hafí samþykkt sáttatillögu í
vinnudeilunni með fyrirvara
um samþykki félagsfunda en
atvinnurekendur hins vegar
hafnað henni og lagt á verk-
bann.
Verkbanninu var aftur af-
lýst í gær en ekkert hefur þó
þokast í samningaviðræðum.