Morgunblaðið - 14.05.1991, Síða 4

Morgunblaðið - 14.05.1991, Síða 4
4 MÓRGUNBLÁÐIÐ ÞRIÐJUÐAGUR 14. MAÍ 1991 VEÐUR VEÐURHORFUR I DAG, 14. MAI YFIRLIT: Fyrir norðan land er lægðardrag sem liggur vestur á Grænlandshaf en heldur vaxandi 990 mb lægð við strönd Labrad- or þokast norðaustur. SPÁ: Rigning á Suðvestur- og Vesturlandi. Suðvestan gola eða kaldi og þykknar upp síðdegis um austanvert landið. Hlýnandi veður. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á MIÐVIKUDAG: Sunnan- og suðaustan átt. Rigning um sunnan- og vestanvert landið, en úrkomulítiö norðaustanlands. Hlýnandi veður. HORFUR Á FIMMTUDAG:Suðvestan átt. Skúrir sunnanlands og- vestan, en léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi. Heldur kóln- andi veður. Svarsími Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600. TAKN Heiðskirt Lettskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskyjað x Norðan, 4 vindstig: * Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / * / * / * / * Slydda / * / * * * \ * * * * Snjókoma * * * •f Q° Hitastig: 10 gráður á Celsius SJ Skúrir * V El ~ Þoka = Þokumóða ’ , ’ Súld OO Mistur —j- Skafrenningur [T Þrumuveður m / VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hltl veður Akureyri 7 alskýjað Reykjavík 4 snjóél á síð.klst. Bergen 7 skúrir Helsinki 16 léttskýjað Kaupmannahöfn 12 alskýjað Narssarssuaq 4 skýjað Nuuk +4 heiðskírt Osló 17 skýjað Stokkhólmur 17 skýjað Þórshöfn 9 skúrir Algarve vantar Amsterdam 12 rigning Barcelona 19 lóttskýjað Berlín 14 skýjað Chicago 29 þokumóða Feneyjar 19 þokumóða Frankfurt 16 hálfskýjað Glasgow 14 súld Hamborg 13 rigning Las Palmas vantar London 17 skýjað LoaAngeles 18 léttskýjað Lúxemborg 16 hálfskýjað Madrid 20 skýjað Malaga 22 lóttskýjað Mallorca 20 skýjað Montreal 26 léttskýjað NewYork 31 heiðskírt Orlando 30 heiðskírt Par/s 18 léttskýjað Róm 18 iéttskýjað Vín 13 skúrir Washington 32 heiðskírt Winnipeg 30 léttskýjað Félagsmála- ráðherra ræður sér að- stoðarmann BRAGI Guðbrandsson félagsmál- astjóri í Kópavogi hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Jóhönnu Sigurðardóttur félagsmálaráð- herra. Bragi er 37 ára félagsfræðingur að mennt. Hann hefur verið félags- málastjón Kópavogs frá 1982, en var áður kennari við Menntaskólann í Hamrahlíð og stundakennari við Háskóla íslands og Menntaskólan- um í Reykjavík. Bragi hefur starfað í ýmsum nefndum og að rannsóknarverkefn- um á vegum félagsmálaráðuneytis- ins, heilbrigðisráðuneytisins og iðn- aðaráðueytisins. Eiginkona Braga er Árdís Ólafs- dóttir hjúkrunarfræðingur og eiga þau þrjú börn. Aðstoðarmaður Jóhönnu í fyrri ríkisstjórn var Grétar Guðmunds- son, sem nú hverfur aftur til fyrra starfs síns hjá ráðgjafastöð Hús- næðisstofnunar ríkisins. Morgunblaðið/Sverrir Danska leignskipið Polar Naiioq lagðist við bryggju í Sundahöfn á sunnudag, skömmu áður en samkomu- lag tókst á inilli Sjómannafélags Reykjavíkur og Samskipa hf. Samkomulag í kaupskipadeilunni: A __ Islensk áhöfn á Polar Nanoq SAMKOMULAG tókst á sunnudag á milli Sjómannafélags Reylgavíkur og Samskipa hf. um að íslenskir hásetar manni áhöfn danska skipsins Polar Nanoq, sem Samskip hafa á þurrleigu. Að sögn Jónasar Garðars- sonar, stjórnarmanns í Sjómannafélaginu, felst í samkomulaginu að íslenskir hástar munu taka við af pólskri áhöfn skipsins við næstu komu þess til Islands. Jafnframt hefur Sjómannafélagið aflýst yfirvinnu- banni sem félagið hafði sett á fjögur skip Samskipa. . Jónas sagði að verkfallsaðgerðim- aðgerðir Sjómannafélagsins hefðu ar hefðu verið famar að hafa tals- verð áhrif og tafið lestun skipanna erlendis og í íslenskum höfnum. Ómar Jóhannsson, framkvæmda- stjóri Samskipa, sagði óyggjandi að verið ólöglegar. „Þama er um leigu- skip að ræða sem kemur ekki í okk- ar eigu fyrr en eftir næstu mánaða- mót. Það var gengist inn á, að þegar skipið kæmi næst til íslands, yrði það mannað íslenskum hásetum. Það kom í ljós að allt stefnir í að skipið verði í langtímaverkefnum erlendis og komi ekki til íslands aftur fyrr en í byijun vetrar. Á þeim forsendum gengumst við inn á þetta samkomu- lag en teljum það alls ekki fordæmis- gefandi," sagði Ómar. Jónas sagði að Sjómannafélagið fylgdist grannt með hvort settar yrðu erlendar áhafnir á önnur skip. „Eim- skipafélagið er ekki með leiguskip eins og er en Sambandið með tvö sem eru mönnuð útlendingum en bæði eru í tímabundnum verkefnum. Það eru því engar frekari aðgerðir í undirbúningi eins og er,“ sagði hann. Áður en samkomulagið tókst um helgina hafði Sjómannafélagið hótað að setja yfirvinnubann á allan kaup- skipaflotann. / DAG kl. 12.00 . H8imild•. Veflurslola klands (Byggt k veðurspá kl. 16.15 f gær) Skákmótið í Amsterdam: Jóhami endaði í 6.-7. sæti JÓHANN Hjartarson gerði jafntefli við Valeríj Salov í síðustu um- ferð minningarskákmótsins um Max Euwe í Amsterdam. Jóhann endaði í 6.-7. sæti með 4 vinninga af 9 mögulegum. Salov varð hins vegar efstur á mótinu ásamt breska stórmeistaranum Nigel Short en þeir fengu 6 vinninga. Jóhann hafði svart gegn Salov og varð skákin 39 leikir. Short og Anatolíj Karpov gerðu einnig jafn- tefli í 30 leikjum. Viktor Kortsjnoj og Míkhaíl Gúrevítjs tefldu hins vegar 66 leiki áður en sæst var á jafnan hlut. Garríj Kasparov náði 3. sætinu ásamt Karpov með því að vinna Ljúbojevic og Jan Timman kom sér upp úr botnsætinu með því að vinna Van der Wiel. Lokastaðan varð þessi: Short og Salov 6 vinningar, Karpov og Kasp- arov 5*/2, Kortsjnoj 4'h, Jóhann og Timman 4 vinningar, Gúrevítjs 3*/2, Ljubojevic og Van der Wiel 3 vinn- ingar. Sigurður Ágústsson frá Birtingaholti látinn Sigurður Ágústsson frá Birt- ingaholti lést á Sjúkrahúsi Suður- lands aðfaranótt sunnudagsins 12. maí á 85. aldursári. Sigurður var fæddur 13. mars 1907 í Birtingaholti í Hrunamanna- hreppi, Ámessýslu, sonur hjónanna Magnúsar Ágústs Helgasonar, al- þingismanns og bónda þar, og konu hans Móeiðar Skúladóttur. Sigurður lauk gagnfræðaprófi frá Flensborg 1924, og nam harmoníum- og píanó- leik frá 7-17 ára aldurs hjá einka- kennurum í Reykjavík. Hann var bóndi í Birtingaholti frá 1934-1964. Hann var skólastjóri barnaskólans á Flúðum í Hrunamannahreppi 1950-51 og 1955-64, kennari í Reykholti í Biskupstungum 1964-69, kennari í bama- og unglingaskólan- um á Stokkseyri 1970-72, og kenn- ari við Gagnfræðaskólann á Selfossi 1972-75. Sigurður var skólastjóri Tónlistarskóla Ámessýslu 1974-78, en lét þá af störfum fyrir aldurs sakir og varð stundakennari við skól- ann. Sigurður var hreppstjóri Hmna- mannahrepps 1947-58, og í hrepps- nefnd 1950-62. Hann var formaður Búnaðarfélags Hmnamanna 1939-63, formaður Nautgriparækt- arfélags Hmnamanna 1935-50, og formaður Ræktunarfélags Hruna- manna 1946-56. Hann var formaður sóknarnefndar Hrepphólasóknar 1943-51, formaður Tónlistarfélags Ámessýslu 1969-77, organisti Hrepphólakirkju frá 1925 og síðar einnig við Hrunakirkju. Sigurður fékk heiðursviðurkenn- ingu fyrir tónlistarstörf, veitt úr Minningarsjóði Egils Gr. Thorarens- en 1969, og listamannalaun 1980. Hann var áæmdur Riddarakrossi hinnar íslensku Fálkaorðu og var gerður heiðursborgari Hmnamanna- hrepps 1987. Sama ár var hann gerður heiðursfélagi Ungmennafé- lags Hmnamannahrepps og Tónlist- arfélags Árnessýslu, og 1988 var hann gerður heiðursfélagi Lands- sambands blandaðra kóra. Sigurður byijaði ungur að semja lög og liggja eftir hann fjölmargar tónsmíðar. Þá ritaði hann um skólamál í Hmna- mannhreppi í Sögu Flúðaskóla 1929- 1979. Eiginkona Sigurðar var Sigríður Sigurfínnsdóttir, sem lést 1983, og eignuðust þau sjö börn. ASI hvetur til stuðnings við færeyska verkamenn ALÞÝÐU S AMB AND ís- lands hefur hvatt aðildar- félög sín að sýna færeysk- um verkamönnum sam- stöðu í vinnudeilu þeirra og sjá til þess að ekki verði gengið inn á verksvið þeirra við löndun eða af- greiðslu færeyskra fiski- skipa hér á landi. Er þetta gert að ósk Færeyska verkamannasambandsins. Kjarasamningur Færeyska verkamannasambandsins við atvinnurekendur rann út 1. maí og hafa samningaviðræð- ur, með milligöngu sáttasemj- ara, reynst árangurslausar. Alþýðusambandi íslands barst á laugardag bréf frá Færeyska verkamannasambandinu þar sem segir, að aðildarfélög þess hafí samþykkt sáttatillögu í vinnudeilunni með fyrirvara um samþykki félagsfunda en atvinnurekendur hins vegar hafnað henni og lagt á verk- bann. Verkbanninu var aftur af- lýst í gær en ekkert hefur þó þokast í samningaviðræðum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.