Morgunblaðið - 14.05.1991, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 14.05.1991, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 1991 .23 Fyrsti STEF-dag- urinn til- einkaður Jóni Leifs SAMBAND tónskálda og eig- enda flutningsréttar héldu STEF-dag í fyrsta sinn laugar- daginn 11. maí, og var hann til- einkaður Jóni Leifs, sem var frumkvöðull að stofnun samtak- anna, fyrsti formaður þeirra og framkvæmdastjóri um langt ára- bil. Markmiðið með sérstökum STEF-degi er að kynna starf- semi STEF og veita jafnframt viðurkenningu þeim aðilum, sem veitt hafa samtökunum liðsinni sitt með einum eða öðrum hætti. Á þessum fyrsta STEF-degi var Rut Ingólfsdóttur og Paul Zu- kofsky veitt viðurkenning fyrir kynningu og flutning á verkum Jóns Leifs, og Ríkisútvarpinu var veitt viðurkenning fyrir kynningu og flutning á íslenskri tónlist um áratuga skeið, svo og fyrir gott samstarf við samtökin frá upphafi. Paul Rut Zukofsky Ingólfsdóttir Samband tónskálda og eigenda flutningsréttar var stofnað 1948, og eru samtökin í fyrsta lagi í fyrir- svari fyrir tónskáld og textahöf- unda að því er varðar höfundarrétt- armálefni á íslandi, og í öðru lagi sjá þau um að innheimta höfundar- réttargjöld vegna flutnings og upp- töku á tónlist og úthluta þejm til innlendra jafnt sem erlendra rétt- hafa. Aðildarfélög að STEF eru Tónskáldafélag íslands og Félag tónskálda og textahöfunda. Á ári hveiju úthlutar STEF þóknun til um það bil 1.100 rétt- hafa hér á landi. Núlíðurmérvel Barninu líður vel eftir baðið. Nivea krembað, milt og mýkjandi barnabað, fer vel með viðkvæma húð ungbarnsins. Nivea krembað inniheldur mild hreinsiefni og olíur sem halda húðinni silkimjúkri. Sýrustig pH5. HIVEA J.S. Helgoson, sími 91-685152 Nakvæmlega eins I og góðir sveppir eiga að vera. Ljúffengir og bragðmiklir. Tilvaldir í sósur, súpur og á pitsur Þú getur valið um 290 og 380 g í næstu matvöruverslun. D sveppir 9 s sneioum i sneiðum 1 • 380 g 290 g NIÐURSUÐUVERKSMIÐJAN ORA HF. AUQLÝSINQASTOm

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.