Morgunblaðið - 14.05.1991, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 14.05.1991, Qupperneq 26
26 leet IAM .l-l ÍKJOAdUUIIII'l aiGAJHWUOHOM ■ THORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 1991 Færeyjar: Verkbanni svar- að með verkfalli Kaupmannahöfn. Frá Nils Jorgen Bruun, VERKFALL hófst hjá ófaglærð- um verkamönnum í Færeyjum í gær en sl. miðvikudag lýstu sam- tök vinnuveitenda yfir verk- banni. Sáttasenyari reyndi fram á mánudagsmorgun að miðla málum og lagði til launahækkun sem nemur 62 aurum (um sex ISK) á klukkustund. Atvinnurek- endur höfnuðu tillögunni. Meðal þeirra sem eru í verkfalli eru vörubílstjórar, starfsmenn í sorphirðu, hafnarverkamenn og ræstitæknar. Starf liggur sem fyrr niðri í frystihúsum landsins. A Landssjúkrahúsinu í Þórshöfn var samið um undanþágur og er helmingur ræstitækna og mat- reiðslufólks í vinnu. Á sjúkrahúsinu á Þvereyri er hins vegar ekkert unnið í eldhúsi og engin hreingem- ing fer fram. Áætlunarflug milli Kaupmanna- hafnar og Færeyja heldur áfram þrátt fyrir átökin en póstur og fragt berst hins vegar ekki með vélunum. Farþegar frá Færeyjum fá aðeins að hafa með sér 5 kílógramma handfarangur, en farþegar frá Kaupmannahöfn fá ekki afhentan farangur sinn. Ein undantekning var þó gerð að því er hið síðasttalda varðar. Færeyska knattspymu- landsliðið, sem keppir við Júgóslav- íu og Austurríki í Evrópukeppni meistaraliða á næstu tveimur vik- fréttarilara Morgunblaðsins. um, fór frá Færeyjum á föstudag og fengu liðsmenn að hafa farangur með sér. ■ MW** -:4%, ! Vj ^ '■' ■ ■»- * * , ■ - * * \ ■ > ÍL , i .1 > * ÍAl Þýskaland: Flokkur Græningja klofnar Frankfurt. Reuter. UM 200 róttækir náttúru- verndarsinnar og kvenrétt- indakonur í þýska Græn- ingjaflokknum ákváðu á sunnudag að segja sig úr flokknum og stofna nýjan. Klofningshópurinn sakar forystumenn Græningja- flokksins um svik við málstað náttúruverndarsinna. Jutta Ditfurth, fyrrverandi þing- maður Græningjaflokksins, er leiðtogi nýja flokksins. Sovéskur út- sendari CIA fiýr vestur Lundúnum. Reuter. SOVÉSKUR leyniþjónustumað- ur, sem njósnaði fyrir Banda- ríkjamenn, hefur flúið til Banda- ríkjanna, að sögn breska sunnu- dagsblaðsins Sunday Telegraph. Blaðið segir að njósnarinn, Alex- ander Krapíva, hafi flúið ásamt fjölskyldu sinni frá Vín. Krapíva hafi starfað á vegum leyniþjónustu sovéska hersins, GRU, í sendiráði Sovétríkjanna í Washington á ár- unum 1982-86 og fallist þá á að starfa fyrir bandarísku leyniþjón- ustuna CIA. Síðan starfaði hann hjá GRU í Moskvu þar til í desem- ber er hann hóf störf í Vín. „Jafna má mikilvægi þeirra leynilegu upplýsinga sem hann lét CIA í té á undanförnum áram við njósnir Olegs Penkovskíjs höfuðs- manns á sjöunda áratugnum, en hann er nú talinn einn af mikilvæg- ustu njósnurum Vesturlanda,“ seg- ir blaðið. Starfsmenn GRU hafa átt mikinn þátt í iðnaðamjósnum Sovétmanna. „Það að hafa upp- ljóstrara í höfuðstöðvunum í Moskvu í svo langan tíma er gífur- lega þýðingarmikið fyrir vestrænar leyniþjónustur," bætir blaðið við. Reuter Bandarískir hermenn í Bangladesh búa sig undir að afferma flutningavél með vistir handa fórnarlömb- um náttúruhamfaranna. Bangladesh: Bandarískir hermenn hefja björgrunarstörf Dhaka. Reuter. BANDARÍSKAR herflugvélar lentu í gær í Bangladesh með land- gönguliða flotans sem taka eiga þátt í björgunarstarfinu vegna felli- bylsins sem gekk yfir landið í siðasta mánuði. Hann kostaði 138.000 manns lífið og gerði meira en fjórar milljónir manna heimilislausar. Mikið ríður á að fólkinu verði komið til hjálpar tafarlaust því búist er við nýjum fellibyl innan þriggja daga. Mikil flóð hafa einnig valdið usla í landinu og kostuðu þau 52 menn lífið í gær og alls um 200 á einni viku. Meira en 1.500 bandarískir land- gönguliðar eiga að taka þátt í björg- unarstarfínu og er búist við að þeir verði allir komnir til landsins á miðvikudag. Þeim fylgja nokkrar herþyrlur og bátar sem einnig er hægt að aka á landi, auk verk- fræði- og hjúkrunarsveita. Andstæðingar Begum Khaleda Zia forsætisráðherra sögðu að koma landgönguliðanna til landsins væri móðgun við sjálfstæða þjóð. Khaleda tók við völdum aðeins mánuði áður en fellibylurinn reið yfir 29. apríl. „Það er ljóst að stjórn- in hefur algjörlega gefist upp fyrir Bandaríkjamönnum," sagði Abdur Razzak, leiðtogi BAKSAL-flokks- ins, sem aðhyllist sósíalisma. Stjórnvöld vísuðu þessari gagnrýni á bug og sögðu að stjórnarandstæð- ingar rækju hornin í allt sem stjórn- in gerði. Fang-aflótti í Svíþjóð: Dagblöð krefjast brottreksturs æðsta yfirmanns fangelsismála Stokkhólmi. Frá Erik Liden, fréttaritara Morgunblaðsins. ENN Á ný hlær umheimurinn að stefnu Svía í málefnum af- brotamanna. Tveir hættulegir hryðjuverkamenn flúðu í lok síð- ustu viku_ úr Kumla-fangelsinu rétt hjá Orebro en fangelsið á að teljast öruggasta stofnun sinnar tegundar í landinu. Mennirnir nýttu sér andvara- leysi varðanna, komust fyrst upp á sjö metra háan múr er liggur umhverfis fangagarðinn og þaðan yfir annan jafn háan múr og á brott. Þess er krafist í forystugreinum margra sæn- skra blaða að yfirmanni fangels- ismála og stjórnendum Kumla verði þegar vikið frá. Páfinn hyllir meyna frá Fatíma Reuter Fjögurra daga heimsókn Jóhannesar Páls II páfa til Portúgals lauk í gær með því að hann söng úti- messu fyrir hálfa milljón manna og flutti meynni frá Fatíma þakkir sínar. Hún er sögð hafa birst fjár- hirðum í Portúgal árið 1917 og spáð fyrir um bolsé- vikkabyltinguna í Rússlandi sem varð fáeinum mán- uðum síðar. Á hinn bóginn sagði hún að kristindóm- urinn yrði síðar endurreistur þar í landi. Páfí þakk- aði meynni fyrir fall marxismans og sagðist jafn- framt telja að hún hefði bjargað sér er gerð var morðtilraun við páfa 1981. Hann varaði við því að önnur tegund efnishyggju gæti tekið við guðleysi marxismans. Postular hennar myndu hylla frelsið en leitast við að eyðileggja rætur kristilegs siðferð- is. Á myndinni sést páfi andspænis Iíkneski af meynni. Fangarnir tveir eru Iean Urs- ut og Marten Imandi, báðir af er- lendum ættum. Þeir vora á sínum tíma dæmdir í ævilangt fangelsi fyrir ýmis hryðjuverk í Danmörku og Svíþjóð. Er Ursut flýði úr fang- elsi árið 1988 skaut hann á tvo lögreglumenn í Stokkhólmi og særði þá hættulega. Að þessu sinni var aðferðin við flóttann sígild; mennirnir rifu lak í strimla og búa til úr því reipi. Endann festu þeir í spýtu uppi á þakinu og tókst einnig að notfæra sér festingar á hátalara- og ljós- kastarakerfi við að feta sig niður á jafnsléttu. Festingarnar höfðu áður verið notaðar af föngum við flóttatilraun en brotnuðu þá undan þunga þeirra. Þrátt fyrir ákafa leit hefur hvorugur mannanna fundist á svæðinu umhverfis Kumla. Sjö hópar leitarmanna með hunda og þyrlur hafa verið á höttunum eftir þeim síðan á laugardag en engin ummerki hafa fundist. Vegna skorts á starfsfólki í Kumla var svo komið að óvenju margir lítt- þjálfaðir verðir voru á vakt þegar mennirnir komust undan. Mistök í fjarskiptum milli fangelsisyfír- valda og lögreglu fyrst eftir að uppvíst varð um flóttann og síðar milli hópa leitarmanna hömluðu leitinni í upphafi. Fjölmiðlar fara yfirleitt háðuleg- um orðum um málið og stjórnvöld verða að láta sér nægja að sam- sinna því að flóttinn sé hneyksli. Sum finnsk dagblöð velta því fyrir, sér hvort sænsk yfirvöld sleppi af ásettu ráði njósnurum og stórglæp- amönnum auk þess sem þau láti hjá líða að elta uppi óþekkta kaf- báta er sigli nánast upp í land- steina. Geti ástæðan verið sú að með þessu sparist umtalsverð út- gjöld. Danmörk: Mikill fjár- lag’ahalli Kaupmunnahöfn. Frá N.J.Bruun, fréltaritara Morgunblaðsins. BÚIST er við, að hallinn á fjár- lögum danska ríkisins á síð- asta ári hafi verið um 40 millj- arðar dkr., hátt í 400 milljarð- ar ÍSK. Er það 10 milijörðum dkr. meira en talið var um síð- ustu áramót og 14 milljörðum dkr. meira en fyrir 1989. í dagblaðinu Politiken segir, að hallinn svari til þess, að hver einasti skattborgari í Danmörku hafi borgað 10.000 dkr., nærri 100.000 ISK, of lítið í skatta eða önnur gjöld. Þá kemur einnig fram í blaðinu, að atvinnuleysi er vaxandi og útlit fyrir, að um 280.000 manns verði til jafnaðar án vinnu á þessu ári. Henning Dyremose fjármálaráðherra seg- ir þó, að margt bendi til, að ástandið sé að skána enda hag- vöxtur góður í Danmörku um þessar mundir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.