Morgunblaðið - 14.05.1991, Side 32
32
MORGUNBlAÐ'íð ‘í>RIÍ)Jt.''r)AGLífí 14: MAÍ19ÖÍ
Borholur Hitaveitu Akureyrar:
Kannað hvort auka megi
afköst á Laugalandssvæðinu
TILRAUN stendur nú yfir á
vegum Hitaveitu Akureyrar þar
sem kannað er hvort unnt sé að
lyfta vatnsborði tímabundið með
því að dæla niður í ónotaðar
borholur volg-u eða köldu vatni.
Hafist var handa í síðustu viku,
en gert er ráð fyrir að niðurdæl-
ingin muni standa i 3-4 vikur.
Ef tilraunin heppnast verður
hægt að auka afköst svæðisins
verulega. Orkustofnun vinnur
að þessari tilraun fyrir hitaveit-
una.
Ætlunin er að dæla í holu núm-
er 8 við Laugaiand um 80 gráðu
heitu vatni sem kemur frá Ytri-
Tjömum og verður blandað í vat-
nið ákveðnum skammti af natríum
Unglingavinnan:
Um 100 færri skráðir
nú miðað við fyrra ár
RÚMLEGA 400 unglingar hafa
skráð sig í unglingavinnu hjá
Akureyrarbæ, en skráningu
Vortónleikar
strengjasveita
VORTÓNLEIKAR strengjadeild-
ar Tónlistarskóla Akureyrar
verða haldnir í Akureyrarkirkju
*í kvöld, þriðjudagskvöld, kl.
20.00.
Þijár strengjasveitir leika fjöl-
breytta efnisskrá, m.a. verk eftir
Ingvar Jónasson, Mozart, Bach,
Bartók og þjóðlög frá ýmsum lönd-
um. Stjómendur sveitanna eru
Magna Guðmundsdóttir, Jón Rafns-
son og Roar Kvam.
lauk á föstudag. Þetta er um
eitt hundrað ungingum færra
en skráðu sig í fyrra.
Sigrún Björnsdóttir hjá Vinnu-
miðlun sagði að 14 og 15 ára ungl-
ingar fengju vinnu hálfan dag í
samtals sjö vikur, en þeir sem
fæddir em á árinu 1975, eða 16
ára unglingar, fá vinnu allan dag-
inn í sex vikur.
I ár em skráðir 120 16 ára ungl-
ingar, en Sigrún sagði að reynslan
undanfarin ár sýndi að þeir skiluðu
sér ekki allir. A síðasta ári skráðu
sig yfír 500 unglingar í unglinga-
vinnuna, eða um 100 fleiri en nú.
Unglingarnir munu starfa við
almenna umhirðu, við ýmis verk
hjá bæjarfélaginu, við skógrækt
og á gæsluvöllum, leikskólum og
dagheimilum.
brómíð auk þess sem einnig verður
sett saman við það ákveðinn
skammtur af natríum flúorescein.
Fylgst verður náið með því hvemig
vatnsborð í holum á svæðinu
bregst við niðurdælingunni. Hola
númer 5 við Laugaland verður
stöðugt í gangi meðan á tilraun-
inni stendur en aðrar borholur á
svæðinu verða ekki notaðar og
verður vel fylgst með hita og vatns-
magni í holunni og tekin sýni regl-
ulega af því vatni sem upp úr hol-
unni kemur með tilliti til þeirra
efna sem blandað var saman við
vatnið er sett var niður í holuna á
Ytri-Tjörnum.
Magnús Finnsson, tæknifræð-
ingur hjá Hitaveitu Akureyrar,
sagði að tilraun sem þessi hefði
ekki verið gerð áður á lághita-
svæði, eins og umrætt svæði er,
en þetta væri gert til að athuga
hvort auka mætti afköst Lauga-
landssvæðisins. Vatnsbúskapur
veitunnar væri góður, en verið
Morgunblaðið/Húnar Þór
Verið er að sklpta um dælu í einni af borholum Hitaveitu Akureyrar
á Laugalandi, en miðað er við að skipta um dælur við átta ára ald-
ur þeirra. A myndinni eru starfsmenn hitaveitunnar, þeir Hreinn
Grétarsson, Snælaugur Stefánsson og Kristján Hálfdánarson.
væri að huga að framtíðinni, gert
væri ráð fyrir að bærinn stækkaði
og vatnsnotkun ykist.
„Við höfum dælt um 8 lítrum á
sekúntu niður í holuna og vatns-
borðið hefur lyfst nokkuð. Þessi
tilraun byggist á því að athuga
hvernig vatnsborðið hagar sér í
kjölfar niðurdælingarinnar og
hvort hitastigið breytist, en það
hefur ekki breyst fram til þessa,
sem þýðir að hugsanlega sé vatnið
enn ekki komið í gegn, eða það
er ennþá á leiðinni. Þá er tilgangur-
inn einnig sá að athuga hvort þetta
blandaða vatn frá Ytri-Tjörnum
kemur upp aftur á Laugalandi, en
það gerum við til að kanna virkni
á milli borholanna og þá einnig
hversu langan tímg það tekur vat-
nið að fara þarna á milli,“ sagði
Magnús.
Knapi slasaðist
MIÐALDRA karlmaður slasað-
ist nokkuð er bifreið ók á hest
er hann reið, en við það féll
hann af baki og meiddist m.a. á
höfði.
Atburðurinn átti sér stað á laug-
ardag, en bifreiðinni var ekið norð-
ur Krossanesbraut og yfir blind-
hæð sem á götunni er. Þar fyrir
Framhaldsskólanemar á Akureyri:
Atvinnuhorfur mun betri
en á síðustu tveimur árum
ATVINNUHORFUR framhaldsskólanema á Akureyri eru betri í
ár en verið hefur síðustu tvö undangengin ár. Af tæplega 1.100
manna úrtaki nema í Menntaskólanum á Akureyri og Verkmennta-
skólanum á Akureyri höfðu 4,4% aðspurðra ekki vísa vinnu í sum-
ar, en á árinu 1989 höfðu rúmlega 15% nemanna ekki vísa atvinnu
þá um sumarið.
Undanfarin ár hefur atvinnu-
málanefnd látið gera skoðana-
könnun að vori á atvinnuhorfum
framhaldsskólanema á Akureyri.
^Könnunin nú fór fram um miðjan
apríl og náði til tæplega ellefu
hundruð nema í tveimur skólum,
MA og VMA. Meginniðurstöður
könnunarinnar gefa til kynna að
atvinnuhorfur framhaldsskóla-
nema eru betri en var á sama tíma
síðasta vor og mun betri en fyrir
tveimur árum.
Fram kom í könnuninni að
76,2% nemanna höfðu vísa atvinnu
í sumar, en það er nokkru fleira
en var síðasta vor þegar 73% þeirra
höfðu vísa atvinnu. Könnunin vorið
.1990 var gerð hálfum mánuði síð-
ar en sú sem nú var gerð og hún
náði einungis til nema í MA. Vorið
1989 höfðu rétt um 58% framhald-
skólanema örugga atvinnu þá um
sumarið.
Þegar atvinnuhorfur Akur-
eyringa eru skoðaðar sérstaklega
kemur í ljós að 72% þéirra hafa
atvinnu í sumar, en það er mun
meira en vorið 1989 og nokkru
meira en var í fyrra. Flestir Akur-
eyringanna eða um 85% vinna í
bænum, tæplega 4% þeirra á Eyja-
fjarðarsvæðinu en rúmlega 10%
munu vinna annars staðar á
landinu í sumar. Flestir munu
vinna við afgreiðslustörf í sumar,
eða rúmlega 19% aðspurðra Akur-
eyringa, 17,5% vinna við iðnað,
15,5% fá atvinnu hjá ríki eða sveit-
arfélagi og 10% verða í byggingar-
vinnu. Við landbúnað ætla 3,3%
nemanna að starfa, 1,45 við fisk-
veiðar og 5,9% við fískvinnslu.
handan var hópur ríðandi manna
og náði ökumaður ekki að hemla
í tæka tíð, en lenti á aftasta hross-
inu. Tæplega sextugur karlmaður
reið hrossinu og féll hann af baki.
Hann slasaðist töluvert, var í
fyrstu fluttur í Fjórðungssjúkrahú-
sið á Akureyri en síðan suður til
Reykjavíkur. Hesturinn slapp án
alvarlegra meiðsla og ökumann
sakaði ekki, en bíllinn skemmdist
talsvert.
Bifreið valt í Ljósavatnsskarði
aðfaranótt sunnudags og voru allir
er í honum voru, fjórir talsins,
fluttir í sjúkrahús. Bíllinn fór
nokkrar veltur og er gjörónýtur.
Lögregla tók sex ökumenn fyrir
of hraðan akstur á sunnudags-
kvöld og var einn þeirra sviptur
ökuleyfi en hann ók á 96 km hraða
þar sem leyfilegur hámarkshraði
er 50 km. Rúður voru brotnar í
miðbæ Akureyrar um helgina, m.a
í húsgagnaversluninni Augsýn og
urðu nokkrar skemmdir á hús-
gögnum í kjölfarið.
Bíladagar
Bíll dagsins, fremstur í
flokki viö leik og störf.
Izusu Crew cab
.m mm SAMBAND ÍSlENSKRA SAMVlNNUFtLAGA
lUUðsOtðfúf
Bílasala
Þórshamars,
Glerárgötu 36,
Akureyri.
Góðandagim!
Umræða um heil-
brigðishugtakið
SAMTÖK áhugafólks um heimspeki á Akureyri efnir til umræðu
um heilbrigðishugtakið í húsakynnum Háskólans á Akureyri við
Þórunnarstræti 15. og 16. maí kl. 20.30. bæði kvöldin.
Verslunarhúsnæði til leigu
við Ráóhústorg, Akureyri, ca 500 m2.
Upplýsingar í síma 96-24430.
Pétur Pétursson heilsugæslu-
læknir hefur framsögu um heil-
brigðishugtakið með sérstöku tilliti
til líkamlegra þátta annað kvöld,
miðvikudagskvöld, en á fimmtu-
dagskvöld mun Geðverndarfélag
Akureyrar annast dagskrá um
andlegt heilbrigði. „Svo tíðrætt
sem mönnum verður um sjúkdóma
og vanheilsu, þá vefst þeim tunga
um tönn þegar útlista skal hvað
felst í heilbrigði til líkama og sálar
— hvað sé heilbrigt líf,“ segir í
fréttatilkynningu.
Áhugafólk um heimspeki og
heilbrigðismál er sérstaklega hvatt
til að koma og leggja orð í belg,
en erindi þessi og umræða er öllum
opin. í ráði er að ljúka umræðunni
næsta haust með erindi Vilhjálms
Árnasonar heimspekings um heil-
brigðishugtakið.
Sjávarútvegsdeildin Dalvík
Við Sjávarútvegsdeildina ó Dalvík er kennt til 1. og 2. stigs stýrimanna-
prófs og til prófs fiskiðnaðarmanna.
Umsóknarfrestur um skólavist er til 15. júní nk. Inntökuskilyrði til nóms
í stýrimannadeild eru skv. nýútgefinni og eldri reglugerðum um stýri-
mannaskóla. Inntökuskilyrði til náms í fiskvinnsludeild eru skv. reglu-
gerð um fiskiðnaðarnám. Odýr heimavist og mötuneyfi á staðnum.
Upplýsingar í símum 96-61383, 96-61085, 96-61380 og 96-61162.
Skólastjóri.