Morgunblaðið - 14.05.1991, Síða 33
MORGUWBLAÐIÐ ■MÍIÐJÖDAGLhR 14. MAI 1991
38
Tveir af aðalleikurunum, Clint Eastwood og Charlie Sheen.
Bíóhöllin sýnir
myndina „Nýliðinn“
BÍÓHÖLLIN hefur tekið til sýningar myndina „Nýliðinn". Með aðal-
hiutverk fara Clint Eastwood og Charlie Sheen. Leikstjóri er Clint
Eastwood.
Myndin segir frá David Acker-
man (Sheen) sem er nýliði í sér-
stakri deild innan Los Angeles-lög-
reglunnar. Deiid þessi sinnir þjófn-
aði á dýrum bílum, þar er David
kynntur fyrir Nick Pulovsky (East-
wood), lögreglumanni sem honum
ber að starfa með. Nick hefur ein-
mitt orðið fyrir þeirri reynslu að
bílaþjófar skutu síðasta starfsfé-
laga hans til bana og honum er efst
í huga að hefna fyrir það. Hann
telur sig vita við hvern er að sak-
ast. Nick er gamall í hettunni, óþol-
inmóður, kuldalegur, ruddafenginn
og mikill vindlareykingamaður.
Honum er líka laus höndin og hætt-
ir til að beita menn ofbeldi af litlu
tilefni. Nýliðar eins og David Acker-
man geta varla hugsað sér verra
hlutskipti í upphafi starfs en að
lenda með meinhorni eins og Nick.
Háskólabíó
sýnir myndina
„I ljótum leik“
HÁSKÓLABÍÓ hefur tekið til sýn-
ingar myndina „I ljótum leik“.
Með aðalhlutverk fara Sean Penn
og Ed Harris. Leikstjóri er Phil
Joanoli.
Myndin hefst á því að Terry Noon-
an á í skiptum við dópsala í ömur-
legu hverfi í New York. Lögreglu-
menn koma þeim í opna skjöldu en
Terry skýtur þá af stuttu færi. Hann
lætur fíkniefnasalann aka sér á
næstu brautarstöð en tíðindin berast
á svipstundu um undirheima New
York, einkum þó í Rottugrenið en
þar var Terry fæddur og uppalinn.
Hann leitar því á fornar slóðir og
biður æskuvin sinn, Jackie, ásjár.
Það verða miklir fagnaðarfundir og
Jackie hefur samband við Frankie,
eldri bróður sinn, sem er höfuðbófinn
á svæðinu og biður hann að útvega
Terry vinnu. Á það er fallist og vinn-
an er í samræmi við hverfið og þá
sem þar búa. Frankie leggur stund
á fjárkúgun, hvers kyns arðrán og
ógnarverk en hyggst nú færa út
kvíarnar og hefja eiturlyfjasölu í
stórum stíl. Af þeim sökum er hann
að semja við ítalskan bófa en' málið
vandast þegar í ljós kemur að Stevie,
æskuvinur þeirra Terrys og Jackies,
skuldar einum þeirra átta þúsund
dali og það sem verra er, getur ekki
greitt skuldina.
Kór Átthagafélags Strandamanna.
Strandamenn syngja í Þorlákshöfn
KÓR Átthagafélags Stranda-
manna í Reykjavík heldur tón-
leika í Þorlákskirkju í Þor-
lákshöfn miðvikudaginn 15.
maí nk. kl. 20.30.
Á söngskránni eru bæði inn-
lend og erlend lög, m.a. lög úr
söngleikjum. Stjórnandi kórsins
er Erla Þórólfsdóttir og undir-
leikari Laufey Kristinsdóttir.
ÚR DAGBÓK
LÖGREGLUNNAR í REYKJAVÍK:
Atriði úr myndinni.
FÁNASTENGIIR
Starrahólum 8-111 Reykjavík - sími 72502 - Fax 72850
Upplýsingar alla daga frá kl. 9-22.
Verð á SNARA FÁNASTÖNGUM með jarðfestingum, línu
og hún.
6 metra fánastöng kr. 25.870,- m/vsk.
8 metra fánastöng kr. 31.270,- m/vsk.
10 metra fánastöng kr. 43.600,- m/vsk.
GREIÐSLUSKILMÁLAR.
10. -13. maí 1991.
Síðla aðfaranótt laugardags sá
lögreglumaður á sjónpósti í mið-
borginni hvar þrír 17 ára gamlir
drengir brutust þar inn í söluturn.
Nálægir lögreglumenn handtóku
drengina skömmu síðar. Drengirn-
ir, tveir Kópavogsbúar og einn
Garðbæingur, áttu þá í mestum
erfiðleikum með að skipta þýfinu,
fjórum tyggjópökkum. Skemmd-
irnar, sem þeir ollu, koma þeir til
með að þurfa að bæta, en þær eru
öllu meiri en andvirði tyggjósins
góða.
Kona á sextugsaldri var staðin
að því að reyna að hnupla þremur
áfengisflöskum í verslun ATVR í
Kringlunni á föstudag. Hún hafði
stungið flöskunum inn á sig, en
þar sem árvökulum starfsmanni
fannst augljós „óléttan“ ósennileg
hjá konu á þessum aldri komst upp
um verknaðinn. Annars er ekki
óalgengt að starfsmenn ÁTVR
standi fólk að hnupli í verslunum
þess. Þeir kalla þá jafnan á lögregl-
una, sem meðhöndlar þá viðkom-
andi mál sem hvern annan þjófnað.
Á laugardagsmorgun voru mál
fjögurra manna og einnar konu,
sem gistu fangageymslur lögregl-
unnar um nóttina, tekin fyrir hjá
dómara. Þetta voru aðilar að jafn
mörguni málum. Einn hafði ölvaður
streist á móti lögreglumönnum við
handtöku utan við skemmtistað.
Annar hafði ölvaður tekið þátt í
slagsmálum í miðbænum og lét
ófriðlega eftir handtökuna. Þriðji,
einnig ölvaður, hafði uppi ósæmi-
legt orðbragð við lögreglumenn
auk þess sem hann hafði ekki ráð-
ið við að hafa hemil á framleiðslu
munnvatnskirtlanna. Sá íjórði hafi
látið ófriðlega á skemmtistað, sóp-
að glösum af borðum og rutt um
húsgögnum. Eitthvað virtist hann
einnig hafa drukkið. Konan hafði
reynt að bíta og sparka í lögreglu-
mann eftir að þeir höfðu þurft að
hafa afskipti af henni þar sem hún
var ölvuð að valda ónæði. Allt þetta
fólk varð nokkrum þúsundum krón-
um fátækara eftir atburði nætur-
innar.
Um helgina urðu 5 umferðarslys
í borginni, þar af 4 á föstudag. i
þessu slysum slösuðust tveir hjól-
reiðarmenn. Full ástæða er til að
minna ökumenn á að nú er sá árs-
tími hafinn þegar vænta má barna
á reiðhjólum við hvert hjólmál.
Á laugardag fór fram árlegt
uppboð á óskilamunum hjá lögregl-
unni. Margir höfðu hug á að kom-
ast yfir ýmislegt sem þar var á
boðstólum og víst er að sumir gerðu
þargóð kaup. í boði voru t.d. gjarð-
arlaus flatlendisreiðhjól, gróf-
mynstrað háfjallareiðhjól, fatnaður
ýmiss konar, skartgripir og einn
var svo heppinn að höndla forláta
gítar, strengjalausan. Einhvetjir
höfðu hug á að ná sér í enn ódýr-
ari tanngarða en þekkjast t.d. í
Búlgaríu, en þeir urðu fyrir von-
brigðum. Svo „persónulegir“ munir
eru sjaldnast hafðir á uppboðum.