Morgunblaðið - 14.05.1991, Page 56
NÝTTÁ ÍSLANDI
MATVÆLI
ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 1991
VERÐ í LAUSASÖLU 100 KR.
Smygl á fíkniefimm;
TVennt í
varðhald
TVEIR útlendingar, þýskur karl-
maður og spænsk kona, voru um
helgina úrskurðuð í tveggja
vikna gæsluvarðhald vegna
gruns um að hafa smyglað rúm-
lega 1.600 grömmum af hassi til
landsins.
Fólkið kom til landsins frá Spáni
á fimmtudagskvöldið, þar sem það
er búsett. Það var síðan handtekið
á föstudagskvöldið og hassið fannst
við húsleit í íbúð í Reykjavík þar
sem það dvaldist. Farið var fram á
gæsluvarðhald yfir báðum á laugar-
dag. Þjóðveijinn var úrskurðaður í
*gæsluvarðhald á laugardaginn til
24. maí og konan til sama tíma á
sunnudaginn.
Hvomgt hefur áður komið við
sögu fíkniefnalögreglunnar hér á
landi. Konan er hins vegar gift ís-
lenskum manni sem er þekktur að
fíkniefnamisferli hér á landi, en þau
bjuggu um tíma hérlendis.
JJtgerð
Andra BA
tekin úr
gjaldþrota-
skiptum
ÍSLENSKA úthafsútgerðarfyrir-
tækið hf., sem gerði verksmiðju-
togarann Andra BA út við Al-
askastrendur, var í gær tekið úr
gjaldþrotaskiptum'og afhent eig-
endum á nýjan leik. Fyrirtækið
^var tekið til gjaldþrotaskipta fyr-
ir tíu mánuðum en eigendur þess
hafa nú samið við kröfuhafa sína
og fengið fyrirtækið aftur.
Haraidur Haraldsson stjórnar-
formaður sagði, að samningar
hefðu náðst við þá kröfuhafa, sem
eftir voru, og því hefðu eigendur
fyrirtækisins það í hendi sér hvort
framhald yrði á starfsemi þess eða
ekki. „Menn eru ánægðir með þessa
niðurstöðu. Það er mikill léttir fyrir
okkur að vera ekki skráðir sem
forsvarsmenn fyrir gjaldþrota fyrir-
tæki,“ sagði Haraldur.
Fyrirtækið var tekið til gjaldþrot-
askipta 4. júlí í fyrra, en í gær úr-
^skurðaði sýslumaður Barðastrand-
arsýslu að fyrirtækið skyldi tekið
úr gjaldþrotaskiptum og afhent eig-
endum aftur.
Alþingi sett
Morgunblaðið/RAX
Nýkjörið Alþingi, 114. löggjafarþing frá endurreisn Alþingis, var sett
í gær að lokinni guðsþjónustu í Dómkirkjunni. Myndin var tekin þeg-
ar þingheimur hyllti forseta og fóstuijörð með ferföldu húrrahrópi.
Sjá fréttir á miðopnu.
Ríkisstjórnin ræðir við aðila vinnumarkaðarins um ríkisfjármál:
Engar ákvarðanir um að-
gerðir teknar í þessari viku
segir Friðrik Sophusson fjármálaráðherra
ÁKVARÐANIR um aðgerðir í rík-
isfjármálum verða ekki teknar
fyrr en um eða eftir næstu helgi
að sögn Friðriks Sophussonar
fjármálaráðherra. Þá segist fjár-
málaráðherra ekki eiga von á að
vextir á spariskírteinum ríkis-
sjóðs verði hækkaðir í þessari
viku en búist hefur verið við
hækkun þeirra vaxta undanfarna
daga. Hafnar eru viðræður full-
trúa rikisstjórnarinnar og verka-
lýðshreyfingarinnar um stöðuna
í ríkisfjármálum og möguleg
áhrif hennar á forsendur kjara-
sanminga.
„Þessi vika verður notuð til við-
ræðna og svo má búast við því að
næsta vika verði vika ákvarðan-
anna,“ sagði Friðrik Sophusson við
Morgunblaðið í gær. Á rfkisstjórn-
arfundi, sem haldinn var á laugardag
um ríkisfjármálin, var ákveðið að
kynna fulltrúum_ vinnumarkaðarins
stöðu málsins. Á sunnudag ræddu
forsætisráðherra, fjármálaráðherra
og viðskiptaráðherra við forystu-
menn Alþýðusambandsins og Band-
alags starfsmanna ríkis og bæja og
í gær var rætt við fulltrúa Vinnuveit-
endasambandsins, Bandalag háskól-
amenntaðra ríkisstarfsmanna og
Kennarasambands íslands.
Friðrik Sophusson sagði að þessar
viðræður hefðu eingöngu snúist um
vandamálin sem við blöstu, og úr-
lausnarefnin. „En í framhaldi af
þessum viðræðum gerum við ráð
fyrir að teknar verði upp faglegar
viðræður um ýmsa snertifleti þess-
ara vandamála og þjóðarsáttar-
samninganna. Við reiknum með að
þessi vika fari að mestu leyti í það.
Það þýðir að engar tillögur verða
samþykktar fyrr en í fyrsta lagi um
næstu helgi,“ sagði hann.
Sjá ummæli aðila viímumark-
aðarins bls. 2.
Heilsuhæli NLFI fer 1
mál við læknafélagið
STJORN Heilsuhælis Náttúrlækningafélags Islands í Hveragerði
ákvað á stjórnarfundi í gær að fela lögfræðingi sínuni að höfða
mál gegn Læknafélagi Islands. Er ástæðan aðvörun frá læknafélag-
•inu til félagsmanna þar sem læknar eru varaðir við að sækja um
læknisstöðu á hejlsuhælinu. Sæki einhver læknir um stöðuna þrátt
fyrir aðvörun LI á hann á hættu að vera gerður brottrækur úr
félaginu.
Arni Guðjónsson, lögfræðingur
heilsuhælisins, segir að málshöfð-
unin verði byggð á grundvelli 2.
málsgreinar vinnulöggjafarinnar
4*ar sem segir að stéttarfélög skuli
vera opin öllum.
Ef Læknafélag íslands ætli að
vísa einhveijum úr félaginu jafn-
gildi það því að félaginu hafi verið
lokað. Verði látið á það reyna fyrir
Félagsdómi hvort að þessi aðvörun
standist lög og hvort þessi ákvæði
í lögum læknafélagsins standist lög.
Silfursljarnan hf. í Öxarfirði:
Franskt fyrirtæki reiðubú-
ið til viðræðna um samstarf
Hugmyndir um vinnslustöð til fullverkunar á eldisfiski
FRANSKT fyrirtæki, Caviar Petrossjan, sem rekur veitinga-
staði í Frakklandi og verslanir og veitingastað í New York,
hefur lýst sig reiðubúið til viðræðna um samstarf við fiskeldis-
fyrirtækið Silfurstjörnuna hf. í Öxarfirði um að reisa þar vinnsl-
ustöð fyrir eldisfisk. Fyriidækið sem uin ræðir hefur undanfar-
ið hálft ár keypt 2-3 tonn af 3-9 kílóa eldislaxi vikulega af Silfur-
sljörnunni og einnig nokkuð af bleikju.
Að sögn Björns Benediktsson- væru þó uppi um að Silfurstjarn-
ar, stjórnarformanns Silfur-
stjörnunnar, liggja enn ekki fyrir
neinar áætlanir um hvernig
hugsanlegu samstarfi fyrirtækj-
anna yrði háttað. Hugmyndir
an seldi franska fyrirtækinu
hréfni, sem síðan yrði fullverkað
hér á landi, bæði sem reykt og
fersk flök í neytendaumbúðum,
og selt undir nafni franska fyrir-
tækisins.
Það sem af er þessu ári hefur
verið slátrað á þriðja hundrað
tonnum af eldisfiski hjá Silfur-
stjörnunni. Björn sagðist reikna
með að framleiðslan á þessu ári
yrði á bilinu 400-500 tonn, og á
næsta ári yrði afkastageta stöðv-
arinnar fuilnýtt, en hún er um
800 tonn. Að jafnaði starfa 14-15
manns hjá Silfurstjörnunni hf.,
en að auki starfa þar 12 manns
til viðbótar þegar slátrað er.