Morgunblaðið - 13.06.1991, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. JÚNÍ 1931
25
Y estmannaeyj ar:
Eyjamenn fögnuðu
skipverjum á Gaiu
Vestmannaeyjum.
VÍKINGASKIPIÐ Gaia kom til hafnar í Vestmannaeyjum um
klukkan fjögur aðfaranótt miðvikudags, eftir tveggja og hálfs
sólarhrings siglingu frá Þórshöfn í Færeyjum. Eyjamenn tóku
vel á móti skipi og skipshöfn, þó skipið kæmi til hafnar um miðja
nótt, bátar sigldu á móti Gaiu austur fyrir Eyjar og fylgdu henni
síðasta spölinn til hafnar og þó nokkur hópur fólks fagnaði skip-
inu við bryggju.
Gaia hefur reynst vel
Nokkrir smábátar og Lóðsinn
héldu til móts við Gaiu um klukk-
an hálf þijú. Er Gaiu var mætt
nokkrum mílum austan Bjarna-
reyjar voru skipshorn þeytt til
heiðurs skipi og skipshöfn. Flestir
þeirra sem héldu til móts við Gaiu
voru ættingjar og vinir Eyja-
mannsins Gunnars Marels Eg-
gertssonar sem er stýrimaður á
víkingaskipinu, en einnig fóru
fulltrúar Vestmannaeyjabæjar til
móts við skipið.
Er Gaia hafði lagst að bryggju
ávarpaði Bragi I. Ólafsson, forseti
bæjarstjórnar, áhöfnina og bauð
þá velkomna til Eyja og óskaði'
þeim góðrar ferðar á leið sinni
vestur um haf um leið og hann
færði Gunnari Marel og félögum
hans blómakörfu frá Vestmanija-
eyjabæ.
Gunnar heilsaði síðan upp á
ættingja og vini og urðu fagnaðar-
fundir.
Meðal þeirra sem tóku á móti
Gaiu á bryggjunni í Eyjum var
tollheimtumaðurinn í Eyjum.
Hann sinnti þar embættisverkum
sínum en haft var á orði að líklega
hefðu Leifur heppni og hans menn
ekki þurft að fara í gegnum toll-
skoðun á siglingu sinni vestur um
haf.
Gaia mun verða í Eyjum til
laugardags eða sunnudags en þá
heldur skipið til Reykjavíkur þar
sem það á að koma til hafnar
þjóðhátíðardaginn 17. júni.
Grímur
Gunnar Marel Eggertsson,
stýrimaður, með blómakörf-
una, sem Vestmannaeyjabær
færði áhöfn Gaiu.
- segirGunnar
Marel Eggerts-
son, stýrimaður
Vestmannaeyjum.
„ÞAÐ ER meiriháttar gaman að
vera kominn heim og ég er yfir
mig ánægður með móttökurn-
ar,“ sagði Gunnar Marel Egg-
ertsson, stýrimaður á Gaiu við
komuna til Eyja.
„Ferðin hefur gengið mjög vel
alla leið. Við höfum mestan part
ferðarinnar haft ágætis veður. Þó
lentum við í brælu við Shetlands-
eyjar, á leið okkar til Orkneyja,
en náðum í var og lágum þar í
þijá sólarhringa. Frá Færeyjum
höfum við síðan haft mjög góðan
byr enda var siglingin nánast æv-
intýraleg. Skipið gekk oft átta til
tíu mílur en meðalhraðinn hefur
verið um sjö og hálf míla sem er
mjög gott. Oft og tíðum vildi skip-
ið jafnvel fara enn hraðar en mað-
ur vildi sjálfur og það var eins og
að vera á brimbretti þegar það
fleytti keriingar á öldunni," sagði
Gunnar. Hann sagðist vera mjög
ánægður með skipið og skipsfélaga
sína.
í áhöfn Gaiu eru 10 manns og
standa þeir sex tíma vaktir, fimm
á hvorri vaki. „Þetta er eins og
hver önnur sjómennska og aðbún-
aðurinn er ágætur þannig að mað-
ur sefur alveg ljómandi vel á
frívaktinni. Ég er stýrimaður en
leiðangursstjórinn er skipstjóri.
Það má segja að ég sé svona eigin-
lega skipstjóri á móti honum,“
sagði Gunnar, en hann stýrði Gaiu
til hafnar í Eyjum.
Gunnar sagði að nú væri ákveð-
ið að Gaia færi hnattsiglingu og
sigldi áfram vestur um frá
Ameríku. „Leiðangrinum á að
ljúka í Sevilla á Spáni þegar heims-
sýningin hefst þar á næsta ári.
Það er búið að bjóða okkur pláss
áfram í ieiðangrinum og eins og
staðan er í dag þá ætla ég með
alla leið,“ sagði Gunnar.
Hann sagði að þeir myndu hafa
viðdvöl í Eyjum í íjóra til fimm
daga en þeir yrðu að vera komnir
til Reykjavíkur 17. júní. „Ef það
verður útlit fyrir góðan byr þá
þurfum við ekki að leggja af stað
héðan fyrr en á laugardag eða
sunnudag," sagði Gunnar.
Grímur
Hefur verið
eitt ævintýri
- segirRíkarð-
ur Pétursson
Vestmannaeyjum.
TVEIR íslendingar eru þátttak-
endur í leiðangri Gaia, Gunnar
Marel Eggertsson og Ríkarður
Pétursson.- Ríkarður var skip-
verji á Gaiu frá Noregi til Fær-
eyja en frá Færeyjum til íslands
sigldi hann á aðstoðarskipi sem
fylgir víkingaskipinu.
„Þetta hefur verið eitt ævintýri
frá upphafi," sagði Ríkarður við
komuna til Eyja. „Allt hefur geng-
ið vel og við höfum yfirleitt verið
langt á undan áætlun. Við höfum
siglt fyrir seglum alla leið en Gaia
er auk þess búin litlum utanborðs-
mótor sem við notum til að sigla
inn í hafnir og leggjast að bryggju.
Skipið hefur í alla staði reynst vel
og er hið besta sjóskip," sagði
Ríkarður.
Grímur
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Gaia siglir til Eyja í fylgd nokkurra báta er sigldu til móts við
skipið.
Betra, uerd
ODYRAR PYLSUR
EIGA EKKI AÐ KOSTA MIKIÐ
Þratt fyrir gylliboö annarra i odyrum pylsum
eru Búrfellspylsur á sértilboði langódýrastar
Verðið er aðeins 474 kr./kg, sem er 10%
lægra verð en á næstódýrustu pylsunum.
Þegar þu færð þer odyrar pylsur
skaltu fá þér Búrfellspylsur