Morgunblaðið - 13.06.1991, Qupperneq 43
rsei iKut er HUOAQUTMMra aiQAjaviuoíioi
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUÐAGUR 18. JUNÍ1991
43
Hestamót Harðar:
I . !
Muni efstur í B-flokki
Hestar
Valdimar Kristinsson
SÚ HEFÐ virðist hafa skapast
að þeir hestar sein ná að sigra í
gæðingakeppni á landsmótum
hafa orðið friðhelgir frá allri
keppni. Eigandi Muna frá Ketils-
stöðum sem sigraði í A-flokki
gæðinga á síðasta landsmóti,
Sveinbjörn Sævar Ragnarsson,
lét þessa hefð lönd og leið á
hestamóti Harðar sem haldið var
á Varmárbökkum um helgina.
Sævar mætti með Muna nú í
B-flokk gæðinga og gerðu þeir
sér lítið fyrir og sigruðu af miklu
öryggi. Fer nú ekki milli mála
að Muni er nánast jafnvígur á
báðum vígstöðvum og sannar
þessi árangur enn frekar fjöl-
hæfni hans og gæði.
Harðarfélagar voru sannarlega
heppnir með veður þegar þeir héldu
mót sitt sem hófst á föstudag með
forkeppni í A- og B-flokki gæðinga.
Einkunnir voru í heildina nokkru
lægri en verið hefur undanfarin ár
en eigi að síður verða Harðarfélag-
ar með ágætan hestakost á ijórð-
ungsmótinu sem haldið verður síðar
í þessum mánuði. í A-flokki sigraði
stóðhesturinn Blakkur frá Hvítár-
bakka sem Trausti Þór Guðmunds-
son sýndi. Ekki gat hann þó sýnt
hestinn í úrslitum þar sem hann var
að sýna í gæðingakeppni hjá And-
vara en þar var hann einnig með
efsta hross í A-flokki. Þess má svo
geta í framhjáhlaupi að Trausti var
einnig með tvo efstu hesta hjá Fáki
á dögunum.
Erling Sigurðsson gerði það einn-
ig gott um helgina er hann kom
fjórum gæðingum inn á íjórðungs-
mót, einum í B-flokki og þremur í
A-flokki. Þá var hann einnig með
fljótasta hestinn í 250 metra skeiði
en það telst nú ekki til stórtíðinda
þótt Erling vinni skeiðið hjá Herði.
Ágæt þátttaka var í skeiðgrein-
um kappreiða en aðeins einn riðill
í brokki og keppni í stökki féll nið-
ur þar sem aðeins einn keppandi
var skráður. Tímar í skeiðinu voru
sæmilegir en þess má geta að knapi
á fyrsta hesti í 150 metra skeiði
var sá kunni Harðarfélagi Kristján
Þorgeirsson sem aldrei lætur sig
vanta á Harðarmótin. Kristján sem
er heiðursfélagi í Herði er nú á
áttræðisaldri en hann var einn af
stofnendum félagsins.
Úrslit urðu sem hér segir:
A-flokkur gæðinga
1. Blakkur frá Hvítárbakka, eig-
andi og knapi í forkeppni Trausti
Þór Guðmundsson, knapi í úrslitum
Ragnar Ólafsson, 8,52.
2. Þróttur frá Tunguhálsi, eig-
endur Hjálmar Guðjónsson og Erl-
ing Sigurðsson, knapi Erling Sig-
urðsson, 8,52.
3. Þokki frá Hraðastaðakoti, eig-
andi og knapi Erling Sigurðsson,
8,19.
4. Þorri frá Meðalfelli, eigandi
Erling Sigurðsson, knapi í for-
keppni Erling Sigurðsson, knapi í
úrslitum Lárus Sigmundsson, 8,42.
5. Gosi frá Syðri-Brekkum, eig-
andi Þröstur Karlsson, knapi Þor-
varður Friðbjörnsson, 8,16.
6. Örp frá Mosfellsbæ, eigandi
Ingimundur Eymundsson, knapi
Þórunn Þórarinsdóttir, 8,17
B-flokkur gæðinga
1. Muni frá Ketilsstöðum, eigandi
og knapi Sveinbjörn Sævar Ragn-
arsson, 8,71.
2. Pjakkur frá Torfunesi, eigandi
og knapi Ragnar Ólafsson, 8,50.
Pjakkur var jafnframt valinn feg-
ursti gæðingur mótsins.
3. Snjall frá Gunnarsholti, eig-
andi Herdís Hjaltadóttir, knapi Erl-
ing Sigurðsson, 8,25.
4. Baldur frá Ey, eigandi Ósk
Siguijónsdóttii', knapi í forkeppni
Trausti Þór Guðmundssonj knapi í
úrslitum Birgir Hólm Ólafsson,
8,37.
___________________________________________
Morgunbladið/Valdimar Kristinsson
Hörður sendir sex hesta í B-flokki á fjórðungsmót en þeir eru frá
vinstri talið: Krummi og Brynhildur, Stígur og Lúther, Baldur og
Birgir, Snjall og Erling, Pjakkur og Ragnar og Muni og Sævar.
Fulltrúar Harðar í barnaflokki á fjórðungsmótinu frá vinstri: Svein-
björn á Hvelli, Garðar á Skafrenningi, Magnea Rós á Drottningu,
Sölvi á Geysi og sigurvegarinn, Guðmar Þór á Limbó.
5. Stígur frá Viðvík, eigandi og
knapi Lúther Guðmundsson, 8,35.
6. Krummi frá Saurum, eigandi
og knapi Brynhildur Þorkelsdóttir,
8,26.
U nglingaflokku r
1. Gunnar Þorsteinsson á Fagra-
Blakk frá Mosfellsbæ, eigandi
Svanlaug Aðalsteinsdóttir, 8,13.
2. Theódóra Mathiesen á Hvini
frá Haugi, eigandi Bjarni Mathies-
en, 8,11.
3. Egill Þórarinsson á Glæsi frá
Kolkuósi, eigandi Egill Þórarinsson,
7,94.
4. Svanhildur Jónsdóttir á Fjölni
frá Árnanesi, eigandi Svanhildur
Jónsdóttir, 7,54.
Barnaflokkur
1. Guðmar Þór Pétursson á
Limbó frá Holti, eigandi Hákon
Pétursson, 8,26.
2. Sölvi Sigurðarson á Geysi frá
Hala, eigandi Valdimar Kristinsson,
8,13. ,
3. Magnea Rós Axelsdóttir á
Drottningu frá Reykjavík, eigandi
Axel Blomsterberg, 8,06.
4. Garðar Hólm Birgisson á Skaf-
renningi frá Ey, eigandi Birgir
Hólm Olafsson, 8,03.
5. Sveinbjörn Sveinbjömsson á
Hvelli frá Þórisstöðum, eigandi
Sveinbjörn Sveinbjörnsson, 7,94.
Unghross í tamningu
1. Prins frá Keflavík, eigandi
Gunnar Pétursson, knapi Þorvarður
Friðbjörnsson.
2. Tarsan frá Meðalfelli, eigandi
og knapi Sigurþór Gíslason.
3. Hrafntinna frá Brúarhóli, eig-
andi Sigvaldi Haraldsson, knapi
Haraldur Sigvaldason.
150 metra skeið
1. Blakkur, eigandi og knapi
Kristján Þorgeirsson, 17,25 sek.
2. Trítill frá Borgarnesi, eigandi
Albert Rútsson, knapi Sigurður Sig-
urðarson.
3. Feykir frá Stóra-Dal, eigandi
og knapi Þorvarður Friðbjörnsson.
250 metra skeið
1. Vani, eigandi og knapi Erling
Sigurðsson, 23,5 sek.
2. Pæper frá Varmadal, eigandi
og knapi Björgvin Jónsson.
300 metra brokk
1. Húni frá Enni, eigandi Jónas
Sigurðsson, knapi Brynjar Gunn-
laugsson, 40,7 sek.
2. Flosi frá Stórholti, eigandi og
knapi Guðfinnur Vilhjálmsson.,
3. Garpur frá Svanavatni, eig-
andi og knapi Vilhjálmur Þorgríms-
son.
300 metra brokk
1. Húni, eigandi Jónas, knapi
Bi-ynjar Gunnlaugsson á 40,7 sek.
}saHyo\
Bíltæki
Sáttasemjarar verðs og gæða
ECD8000 - tækið með öllu. Geislaspilari,
2x25 vatta magnari og útvarp með LW/MW/FM.
Beinn útgangur fyrir kraftaukamagnara, aðskilinn
bassi og „discant“, „Pre-fader“. Útvarp með 36 stöðva
minni, sjálfvirkum stöðvaleitara, styrkstilli á bestu
tíðni, langbylgju fyrir ferðalagið og sér umferðarrás
„SDK“, með geislaspilara.
Kr. 45.570,- stgr.
BImb 88 li
S-.^SC 3 2 3
AST é íSMTt G
WV sásíyo mms
Á*) 5' STniiM.S.Í
i’PSC 1 2 3
SST WM s MTt ft ®
FXOI - útvarps- og segulbandstæki.
Bíltæki sem sameinar allt það helsta og frábært verð,
2x7,5 W magnari með stillingu fyrir há- og lágtíðni,
segulband sem spilar báðum megin, útvarp með sjálf-
virkum stöðvaleitara, 36 stöðva minni og fallega upp-
lýstu stjórnborði.
Kr. 17.955,- stgr.
) fy MMI OD * | —yv • , i-m
FX21 - bíltæki með 2x25 W magnara.
Kraftmikill magnari með útgangi fyrir fjóra hátalara,
„Fader“, aðskildum bassa og „discant“, útgangi fyrir
„Sub-Woofer“, segulband sem spilar beggja vegna með
Dolby B, útvarp með 36 stöðva minni, sjálfvirk leitun
á mesta styrk, innbyggt í sleða „Quick release" o.fl. o.fl.
Kr. 25.935,- stgr.
'**. SA&YO V
FX31 - lOO vatta tækið. 4x25 W magnari
með aðskildum bassa og „discant“, beinum útgangi
fyrir annan kraftmagnara, „Fader“, útgangi fyrir
,,Sub-Woofer“, sjálfvirku“ Loudness“, segulbandi með
Dolby B, lagaleitari, spilar beggja vegna, velur milli
Cr02/metal og normal bands. Útvarp með 36 stöðva
minni, sjálfvirkum leitara, SDK, mæli fyrir útsending-
arstyrk, truflanaeyði og sjálfvirka leitun á bestu tíðni.
Stafrænt og vel upplýst stjórnborð, innbyggt í sleða
o.fl. o.fl.
Kr. 32.400,- stgr.
Gunnar Asgeirsson hf.
Suöurlandsbraut 16 • Sími 680780
DOVCS 5GS2R FARM
(ORGANIC)
Vörur úr lífrænt
ræktuðu komi
Faxafell hf. snni 51775
VARMO
SNJÓBRÆÐSLA
4
REYKIALUNDUR