Morgunblaðið - 13.06.1991, Side 50
50
MQBGUNBLAÐIÐ FIMÍÆTUPAGUR 1,3- JÚNÍ 1991
*
Ast er...
. . . að veifa honum í
kveðjuskyni.
TM Reg. U.S. PatOff.—all rights reserved
° 1991 Los Angeles Times Syndlcate
Við hefðum átt að kaupa hina
tvo líka'...
Ég eyðilegg buxurnar á hjól-
inu og skelli teygjuböndunum
á skálmarnar!
í>essir hringdu . . .
Verðlagning í dollurum
Kona hringdi:
„Oft hefur verið vakin athygli
á því að verð í fríhöfninni í Flug-
stöð Leifs Eiríkssonar eru öll í
dollurum og þar sjást ekki íslensk-
ar verðmerkingar. Þetta er í
hæsta máta óeðlilegt og undarlegt
að ekki sé úr því bætt. I fríhöfnum
erlendis eru verð jafnan skráð í
gjaldmiðli viðkomandi lands en
auk þess verðmerkt í dollurum eða
pundum. Þeir sem sjá um rekstur
fríhafnarinnar hér ættu að sjá
sóma sinn í að koma þessu í lag
og hafa hafa íslenskar verðmerk-
ingar.
Drukku af sama kaleik
Afi hringdi:
„Víkveiji skrifar um altaris-
göngur 23. maí og segir að ekki
tíðkist sá siður legnur í Reykjavík
að allir drekki af sarna kaleik.
Þetta er ekki rétt. Ég var við
fermingu í Háteigskikju í vor og
þar voru allir látnir drekka af
sama kaleik. Þetta skapar smit-
hættu ætti fyrir löngu að heyra
sögunni til.“
Frakki
Frakki var tekinn á veitinga-
húsinu Berlín laugardagskvöldið
8. júní. í frakkanum voru húslykl-
ar og skór. Vinsamlegast hringið
í síma 28395 eða skilið frakkanum
í afgreiðlsuna í Berlín.
Köttur
Svartur, hvítur og gráflekkótt-
ur fressköttur tapaðist frá Víði-
grund fyrir hálfum mánuði. Vin-
samlegast hringið í síma 42599
ef hann hefur einhvers staðar
komið fram.
Kettlingar
Tvo átta vikna kettlinga, sem
eru hvítir og gulbröndóttir, vantar
gott heimili. Upplýsingar í síma
670958.
Kettlingur
Svört og hvít læða, mannelsk
og um það bil tveggja mánaða
kom í hús í grennd við Rafstöðina
á laugardag. Upplýsingar í
síma 33493.
Gleraugu
Gleraugu töpuðust á leiðinni frá
Sundlaugunum í Laugadal inn
Sundlaugarveg og Laugarásveg.
Finnandi er vinsmlegast beðinn
að hringja í síma 38023.
Úr
Gullúr með svartri ól tapaðist
fyrir nokkru. Úrskífan er alsett
steinum og annar vísirinn laus.
Finnandi er vinsamlegast beðinn
að hringja í Aðalheiði í síma
615441.
FJAÐRAFOK
Ég verð að játa það að ég hafði
sömu tiifinningu, og að hafa keyrt
yfir hænu, þegar ég las fjaðrafokið
eftir S. Guðjón Bergsson í blaðinu
þ. 4. þ.m.
Góði maður reyndu að halda þér
við efnið. Hvað kemur það aramæ-
iskunni við, eða hvort Kristur var
Skrifið eða hringið til
Velvakanda
Velvakandi livetur lesendur til
að skrifa þættinum um hvaðeina,
sem hugur þeirra stendur til —
eða hringja milli kl. 10 og 12,
mánudaga til föstudaga, ef þeir
koma því ekki við að skrifa. Með-
al efnis, sein vel er þegið, eru
ábendingar og orðaskiptingar,
fyrirspurnir og frásagnir, auk
pistla og stuttra greina. Bréf
þurfa ekki að vera vélrituð, en
nöfn, nafnnúmer og heimilisföng
verða að fylgja öllu efni til þáttar-
ins, þó að höfundur óski nafn-
leyndar. Ekki verða hirt nafnlaus
bréf sem eru gagnrýni, ádeilur
eða árásir á nafngreint fólk.
Sérstaklega þykir ástæða til að
beina því til lesenda blaðsins utan
höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti
sinn lilut ekki eftir liggja hér í
dálkunum.
læs, að ég tók inntökupróf í Verzló
árið 1936.
Eða þá dagsetning vikuritsins
„Spiegel", á hún að ráða úrslitum
um læsi Krists? Gengur Guðjóni
eitthvað illa að lesa það sem hann
sjálfur skrifar, eða fara læsi og rit-
hæfni alls ekki saman hjá honum?
Guðjón getur auðvitað staðhæft
hvað eina sem honum hentar, eins
og að flestallir gyðingar hafi verið
læsir fyrir 2000 árum síðan, og
hafi kennt börnum sínum að lesa.
Ég sé gyðingabörnin hans Guðjóns
fyrir mér 1.500 árum fyrir fæðingu
Gutenbergs, með bókastafla í hand-
akrikanum á leið til kennslu!
Það er örugglega ekki margir
íslendingar (aðrir en S.G.B.) sem
ekki vita að ólæsi hefur alltaf verið
útbreitt í Miðausturlöndum, og er
enn í dag. En látum Guðjón rausa.
Það alvarlegasta er ef það skyldi
fyrirfinnast annað fólk, sem reynir
að niðurlægja Krist, eins og Guðjón
þráfaldlega gerir.
Hvernig átti Kristur að vita það
að Ararat er ekki hæsta fjall í heimi?
Hvernig átti Kristur að þekkja
Ameríku, Ástralíu, ísland? Hvernig
átti Kristur að vita það að jörðin
er ekki flöt eins og pönnukaka, eða
að hún er ekki miðdepill sólkerfis
Algjörlega út í hött
tmn 15. maf .krifaði Einnig er það fáránicgt hjá honum
tycl (trein I Velvakanda sem bar
leitið „Ilvaða mál talaði Kristur"
>K svaraði undirritaður þeirri grein
>g fjarstæðukenndum staðhæfing-
um hans í groin sem birtist & sama
stað þann 17. mal. En Richardt
ir ekki hættur. Hann skrifaði grein
undir fyrireögninni „Var Kristur
læs“ og birtist hún 30. ma(.
Sú grein er I raun og veru mik-
ið vitlausari en hin fyrri og skal
ég ncfna hversvegna í örfáum orð-
að segja að „menn verða ckki tru-
aðir af að lesa Biblluna, heldur
lesa menn Hiblíuna af þvl að þeir
eru trúaðir", sem svar við þvl að
Bibllan Uli um að Jesús hafi lesið.
Margir hafa komist til kristinnar
trúar af þvl að lesa Biblluna, Ld.
fyrir starf Gldeonmanna.
Richardt Ryel sagðist Icsa
(slensku og gutla I einum 8-9 öðr-
um tungumálum til viðbóUr. Ég
dreg þýskukunnáttu hans I cfa,
þar sem sögnin „schreiben" er eitt
okkar, eða að sólin er margfalt
stærri en jörðin. Hvað um margföld-
un, deilingu að maður tali nú ekki
um æðri stærðfræði, hver eða hvar
átti Kristur að læra þetta? Auðvitað
vita mörg 10-12 ára börn margt
sem Kristur ekki vissi eða gat vit-
að. Er hann minni maður fyrir það
S.G.B.? Með því að tileinka Kristi
þekkingu sem Kristur alls ekki gat
tileinkað sér, er Guðjón að gera lít-
ið út þekkingu Krists, og er það
þó sjálfsagt öfugt við það sem hann
ætlapi sér!!!
Fukyrði og skammir eru alltaf
vottur þess að menn séu að komast
í rökþrot. Haltu þó áfram S.G.B.,
ég er ekkert hörundsár.
Kristur var mikill persónuleiki.
Kristur var gáfumaður. Kristur var
boðberi siðgæðis og drengskapar.
Kristur var mikill spámaður. Tvö
þúsund ára menningarsaga hefur
sannað okkur þetta.
Ég endurtek því „Það þarf ekki
að taka upp hanskann fyrir Jesúm
Krist.“
Richardt Ryel
HÖGNI HREKKVISI
„06 Bíj S/VifO'H SU'CMA LAGAf) ?"
Víkverji skrifar
Aútmánuðum kom kona frá Sov-
étríkjunum til læknisaðgerðar
hér á landi og stóð einstaklingur á
Akranesi fyrir fjársöfnun vegna
ferðar konunnar og eiginmanns
hennar hingað til lands. Ekki er
vitað annað en að vel hafi tekist
til. Þessi frétt kom upp í huga Vík-
veija er hann rakst á dögunum á
klausu í norsku blaði þar sem sagt
var frá því að 5 ára drengur frá
Murmansk hefði fengið synjun á
læknismeðferð vegna krabbameins
í N-Noregi. Ástæðan fyrir synjun-
inni var sögð sú að í Norður-Noregi
hefðu menn nóg með sig og sína
og hefði m.a. þurft að senda barn
á sjúkrahús í Ósló í vetur vegna
mikilla anna á sjúkrahúsinu í
Tromsö. í N-Noregi vaxa með
hverju ári samskipti við Sovétmenn,
og þá á flestum sviðum mannlífs-
ins, og í fyrrnefndri fréttaklausu
var því komið að, að læknar í
Tromsö hefðu ekki viljað styggja
kollegana í Murmansk.
að er ábyggilegt að engu verð-
ur logið um fjölbreytileika
veðursins á íslandi. Vinur Víkverja
vaknaði árla einn morguninn fyrir
um viku og þurfti þá að skera sig
í gegnum hrollkalda þokuna í Bú-
staðahverfinu. Er hann kom í vest-
urborgina var komið allt annað veð-
ur, bjart og nánast heiður himinn.
Leiðin lá norður í land og ofarlega
í Mývatnssveitinni var hvít jörð. í
ábæti í hádeginu fékk hann síðan
hressilegt haglél. Um kvöldið var
svo aftur flogið inn í bjartviðri og
miðnætursól syðra.
Annars veltir Víkveiji fyrir sér
þessari vaxandi óþolinmæði fólks
eftir sumrinu. Það er ekkert nýtt
að kalt sé í júnímánuði. Fyrir nokkr-
um árum var skrifari staddur á
Vopnafirði á Jónsmessunni. Þá
snjóaði hressilega og fjallvegir urðu
illfærir.
XXX
Glöggir menn, sem allan ársins
hring leika golf á Suðurnesi
við Seltjarnarnes, hafa veitt því
athygli í vor, að óvenju mikið virð-
ist af sel á þessum slóðum. Segja
þeir sem til þekkja, að hann liggi
þarna í hrognkelsunum. Dýrið lætur
mannaferðir fáa metra í burtu lítil
áhrif hafa á sig og sannarlega er
selurinn skemmtilegur granni á
þessu ótrúlega fjölskrúðuga nesi,
sem svo lítið lætur yfir sér. Annars
ræður krían ríkjum þarna á Nesinu
á þessum árstíma, en æðurin og
tjaldurinn gera sér einnig hreiður á
sama blettinum ár eftir ár. Kylfing-
arnir taka fullt tillit til þessara vina
sinna og iðka íþrótt sína með félög-
um sínum og fjölskyldum. Útivistar-
svæðið á Nesinu verður að vernda
og það verður vart gert á betri
hátt en, með því að nýta svæðið
fyrir golfvöll og náttúruskoðun.
Þetta tvennt fer vel saman.