Morgunblaðið - 13.06.1991, Qupperneq 55
,, ntTfOmB •rni-'.i-;
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 13. JÚNÍ 1991
55
KNATTSPYRNA / SAMSKIPADEILDIN
Om «■ Bosnjak sendi út á
■ I Atla Einarsson, sem
gaf strax fyrir. Eyjamönnum
tókst ekki að hreinsa nógu vel
frá, Bosnjak komst aftur í bolt-
ann og skoraði af stuttu færi á
3. mínútu.
Oi O Atli Einarsson brun-
■ mm aði upo völlinn, gaf
út til hægri á Guðmund Inga
Magnússon, sem sendi fyrir
markið, þar sem Atli var mættur
ogþrumaði í netið á 17. mínútu.
Einarsson átti
W ■ w stungusendingu inn
fyrir vörn ÍBV á Guðmund
Steinsson, sem tók boltann við-
stöðulaust og skilaði honum ör-
ugglega í netið á 25. mínútu.
1B Hlynur Stefánsson
■ ’w lék upp að endamörk-
um, sendi góðan bolta fyrir á
Elías Friðriksson, sem fleygði
sér fram og skallaði f netið af
stuttu færi á 26. mínútu.
ÚRSLIT
ÍBV-Víkingur 1:3
Hásteinsvöllur, Vestmannaeyjum. íslands-
mótið 1. deild (Samskipsdeildin), miðviku-
dagur 12. júní 1991.
Mark ÍBV: Elías Friðriksson (26.).
Mörk Víkings: Tomislav Bosnjak (3.), Atli
Einarsson (17.), Guðmundur Steinsson (25.)
Dómari: Sveinn Sveinsson, þokkalegur.
Gul spjöld: Janez Zilnik, Guðmundur Ingi
Magnússon, Björn Bjartmans, Guðmundur
Steinsson, Víkingi. Heimir Hallgrímsson,
Nökkvi Sveinsson, Friðrik Sæbjömsson,
ÍBV.
Rautt spjald: Janez Zilnik (41.).
Lið ÍBV: Þorsteinn Gunnarsson, Friðrik
Sæbjömsson, Sigurður Ingason (Ingi Sig-
urðsson 45.), Elías Friðriksson, Sindri Grét-
arsson, Leifur Geir Hafsteinsson, Heimir
Hallgrímsson, Nökkvi Sveinsson, Hlynur
Stefánsson, Arnljótur Davíðsson (Bergur
Ágústsson 68.), Sigurlás Þorleifsson.
Lið Víkings: Guðmundur Hreiðarsson,
Helgi Björgvinsson, Þorsteinn Þorsteinsson,
Guðmundur Ingi Magnússon, Janez Zilnik,
Atli Einarsson, Tomislav Bosnjak (Ólafur
Ámason 60.), Guðmundur Steinsson, Atti
Helgason, Helgi Bjarnason, Hólmsteinn
Jónasson (Björn Bjartmanz 60.).
Atli Einarsson, Helgi Björgvinsson,
Víkingi. Hlynur Stefánsson, ÍBV:
Friðrik Sæbjörnsson, Þorsteinn Gunnars-
son, ÍBV. Guðmundur Hreiðarsson, Þor-
steinn Þorsteinsson, Guðmundur Steinsson,
Atli Helgason, Víkingi.
Fj. leikja u J T Mörk Stig
VALUR 3 3 0 0 5: 0 9
KR 3 2 1 0 8:1 7
BREIÐABLIK 3 2 1 0 7: 4 7
ÍBV 4 2 1 1 7:6 7
VI'KINGUR 4 2 0 2 8: 8 6
KA 3 1 0 2 3: 5 3
STJARNAN 3 1 0 2 1:4 3
FH 3 0 2 1 3: 5 2
FRAM 3 0 1 2 3: 5 1
VÍÐIR 3 0 0 3 1:8 0
4. deild D:
Neisti - Kormákur..................1:3
Óli Ólafsson — Rúnar Guðmundsson 2, Al-
bert Jónsson.
Hvöt-UMSEb.........................6:2
Bjarni Gaukur Sigurðsson 3, Páll Leó Jóns-
son 2, Gunnar Jónsson — Guðmundur Óli
Jónssoh, Sigurður Bjarkarson.
HSÞ-b - Þrymur.....................9:1
Stefán Guðmundsson 2, Viðar Sigutjónsson
2, Jónas Hallgrímsson, Skúli Hallgrímsson,
Ari Hallgrímsson, Erlingur Guðmundsson,
sjálfsmark — .
4. deild E:
Höttur - Sindri................frestað
Huginn - Austri...................3:1
Sveinbjöm Jóhannsson 2 (2v), Halldór Ingi
Róbertsson — Eiríkur Friðriksson (v).
Valur - Leiknir....................2:0
Ingvar Jónsson, Þórarinn Stefánsson.
Einherji - KSH.....................2:2
Hallgrímur Guðmundsson, Einar Bjöm
Kristbergsson - Páll Bjömsson, Hlynur
Ármannsson.
Utandeildakeppnin:
Amor-TFÍ....................2:7
Smástund -TFÍ...............2:2
Mót í Svíþjóð
Fjögurra þjóða mót hófst í Svíþjóð í gær-
kvöldi, en Sviar, ítalr, Sovétmenn og Danir
taka þátt i mótinu.
Malmð:
Ítalía - Danmörk...............2:0
Ruggiero Rizzitelli (107.), Gianluca Vialli
(108.). 8.741
Tíu Víkingar héldu
féngnum hlut í Eyjum
Hólmbert velur 24 leikmenn
„MÉR sýndist á tímabili að þetta ætlaði að verða eins og í fyrra,“
sagði Logi Ólafsson, þjálfari Vfkings, við Morgunblaðið eftir 3:1
sigur gegn ÍBV í Eyjum í gærkvöldi. „Rétt eins og þá byrjuðum
við að skora og náðum þriggja marka forskoti, en um tíma var
ég smeykur um að þeir [Eyjamenn] myndu jafna eins og áður.
En ég er mjög ánægður með sigurinn, sérstaklega þar sem við
vorum einum færri t um 50 mínútur. Við lögðum áherslu á að
loka svæðum og beita skyndisóknum og þaðtókst, en mér þótti
helst til mikið af ódýrum spjöldum í leiknum."
Fyrri hálfleikur var ótrúlega fjör-
ugur og strax á annarri mínútu
komst Sigurlás Þorleifsson i dauða-
færi og skallaði að marki, en Guð-
mundur Hreiðars-
son, markvörður
Víkings, varði vel.
Mínútu síðar lá bolt-
inn í neti Eyja-
manna eftir að Tomislav Bosnjak
Sigfús Gunnar
Guðmundsson
skrífarfrá
Eyjum
skoraði. Skömmu síðar var Arnljót-
ur í góðu færi en skallaði yfir mark
Víkings. Þar á eftir átti Leifur Geir
skot að marki Víkinga og vildu
Eyjamenn meina að varnarmaður
hefði varið knöttinn með hendi, en
ekki fengu þeir víti.
Á 15. mínútu barst boltinn óvænt
til Guðmundar Steinssonar á víta-
teigslínu. Hann skaut viðstöðulaust,
en boltinn hafnaði í þverslá. Tveim-
ur mínútum síðar gerði Atli Einars-
son svo annað mark Víkinga. Ilinu-
megin varði Guðmundur vel frá
Arnljóti og Hlyni Stefánssyni.
Guðmundur Steinsson kom svo
Víkingum í 3:0 skömmu síðar eftir
að hafa sloppið inn fyrir vörn ÍBV,
en töluverð rangstöðulykt var af
markinu.
Mínútu síðar minnkaði Elías
Friðriksson muninn og kom Eyja-
mönnum inn í leikinn á ný. Það sem
eftir lifði hálfleiksins fengu liðin sín
tvö færin, en markverðir þeirra
komu í veg fyrir fleiri mörk.
Á 41. mínútu gerðist það að
Janez Zilnik var vikið af leikvelli.
_Hann renndi sér aftan í Elías Frið-
riksson og fékk þar með sitt annað
gula spjald í leiknum. Það gengur
ekki upp og var honum því vikið
af velli.
Síðari hálfleikur var ótrúlega
daufur miðað við þann fyrrl
Víkingar, einum færri, léku skyn-
samlega, náðu að binda vörnina vel
saman og beittu svo ágætis skyndi-
sóknum. Upp úr einni slíkri leit
hættuiegasta færi hálfleiksins
dagsins ljós, þegar Björn Bjartmarz
O/ar í dauðafæri og auðveldara virt-
ist að skora en brenna af, en það
var einmitt það sem Bjöm gerði.
Eyjamenn virtust ekki líklegir til
að jafna og komust lítt áleiðis gegn
Víkingsvörninni.
Síðari hálfleikur var mjög „gul-
ur“ — alls voru sex gul spjöld á lofti.
Víkingar áttu hreint ágætis leik.
Þeir em með ágæta vörn og stór-
skemmtilega frartilínu, þar sem
Atli Einarsson og Guðmuflitrr
Steinsson skemmtu sér vel. Atli
átti stórgóðan leik í sókninni og
Helgi Björgvinsson var mjög sterk-
ur í vörninni í síðari hálfleik.
Eyjamenn náðu sér ekki nógu
vel á strik og vantaði meiri baráttu
í liðið, en Hlynur Stefánsson stóð
upp úr.
Hólmbert Friðjónsson, þjálfari
21 árs landsliðsins, hefur valið
24 leikmenn fyrir æfingaleik gegn
Svíum, sem fer fram á Akranesi á
sunnudaginn kl. 15.
Hólmbert mun velja sextán leik-
menn úr hópnum í dag, en hópurinn
er þannig skipaður:
Kristján Finnborgason, Haraldur
Ingólfsson og Brandur Siguijóns-
son, Akranesi, Ólafur Pétursson,
Keflavík, Steinar Adólfsson, Ágúst
Gylfason, Örn Torfason og Lárus
Sigurðsson, Val, Ríkharður Daða-
son, Steinar Guðgeirsson og Ágúst
Ólafsson, Fram, Þormóður Egilsson
og Rúnar Kristinsson, KR, Valdi-
mar Kristófersson, Ingólfur Ingólfs-
son og Valgeir Baldursson, Stjörn-
unni, Finnur Kolbeinsson, Fylki,
Arnar Grétarsson og Grétar Steind-
órsson, Breiðabliki, Kristján Hall-
dórsson, IR, Helgi Björgvinsson,
Víkingi, Nökkvi Sveinsson og Leifur
Geir Hafsteinsson, Vestmannaeyj-
um.
- fyrir æfingaleik 21 árs landsliðsins gegn Svíum á Akranesi
Morgunblaöið/Einar Falur
Helgi Björgvinsson átti mjög góðan leik í vöm Víkings.
faém
FOLK
■ ARNFINNUR Bragason,
markvörður Vals á Reyðarfirði,
varði vítaspyrnu frá Helga Inga-
syni, Leikni, í 4. deildarkeppninni
í gærkvöldi.
■ LEIKUR Einherja og KSH
seinnkaði um klukkustund í gær-
kvöldi, þar sem flugvél sem flutti
leikmenn KSH til Vopnafjarðar -
bilaði á Egilstaðaflugvelli.
■ LEIKMENN Sindra á Horn-
arfirði komust aftur á móti ekki
til Egilstaðar til að leika gégir
Hetti, vegna bilunarinnar í flugvél-
inni. Leikurinn fer fram í kvöld kl.
20.
■ LIAM Brady verður líklega
næsti framkvæmdastjóri Glasgow
Celtic. Hann er einn fjögurra um-
sækjenda sem teknir hafa verið í
viðtal. Hinir eru
Frank Stapelton,
Tommy Graig, að-
stoðarfram-
kvæmdastjóri og
Ivan Golac, fyrrum stjóri Sout-
hampton og Partizan Belgrad.
I NOTTINGHAM Forest hefur
boðið 3 milljónir punda í Dean
Saunder hjá Derby. Ef af þessum
kaupum verður er það hæsta
verð sem enskt lið hefur greitt
fyrir leikmann. Manchester Un-
ited á metið, greiddi 2,3 milljónir
punda fyrir enska landsliðsmann-
inn, Gary Pallister, fyrir tveimur
árum. Mörg lið hafa sýnt áhuga á
Saunders.
■ ARSENAL hefur boðið 3,5
milljónir punda fyrir sænska landsl-
iðsmanninn Jonas Thern sem leik-
ur með Benfica í Portúgal. Líklegt
er að kaupin gangi eftir og þá yrði
það hæsta upphæð sem enskt félag
hefur greidd fyrir leikmann. —-
Frá
Bob
Hennessy
í Englandi
Ikvöld
Knattspyrna
1. deild:
Valsvöllur, Valur - KR..20
Stjörnuv., Stjarnan - Víðir .20
4. deild:
Gervigv.,'Víkv. - Stokkseyri20
Egilss., Höttur - Sindri.20