Morgunblaðið - 13.06.1991, Síða 56

Morgunblaðið - 13.06.1991, Síða 56
EIMSKIP VIÐ GREIÐUM ÞÉR LEIÐ FIMMTUDAGUR 13. JUNI 1991 VERÐ I LAUSASOLU 100 KR. Veðurstofan spáir sunnanátt Morgunblaðið/Sverrir Blíðviðri var í höfuðborginni í gær en sólarlítið. Hið bezta veður til að dytta að húsum eða til að fá sér kaffibolla utandyra. Veðrið hefur leikið við Sunnlendinga síðasta hálfan mánuðinn en nú spáir Veðurstofan breytingum. Um helgina mun vindur byija að blása af suðri og þá fá Sunnlendingar væntanlega vætu en Norðlending- ar fá bjartara veður. Sláturfél- agið stefn- ir Goða hf. SLÁTURFÉLAG Suðurlands hef- ur höfðað mál á hendur Goða hf. fyrir að nota í pylsuauglýsingum orðalagið „... og vera grennstir fyrir bragðið". Telur stefnandi að með orðalaginu brjóti stefndi gegn óskráðu vígorði sínu „Fremstir fyrir bragðið" sem sé löngu landsþekkt og hafi náð markaðsfestu fyrir unnar kjötvör- ur, þ.m.t. pylsur og því sé hætta á því að villst verði á vígorðum. Dómkröfur stefnanda eru í þremur liðum. í fyrsta lagi að stefnda verði dæmd óheimil í auglýsingu orðin „... .grennstir fyrir bragðið“. í öðru lagi að stefndi verði dæmdur til þess að greiða stefnanda kr. 500.000,00 í skaðabætur auk hæstu dráttarvaxta. Þriðja dómkrafan er að stefndi verði dæmdur til þess að greiða stefnanda málskostnað. Um málavexti segir í stefnunni að Goði hf. hafi í pylsuauglýsingu í Morgunblaðinu 31. maí 1991 ogsjón- varpsauglýsingum notað orðalagið .. að vera grennstir fyrir bragðið" og telji stefnandi að með notkun þessara orða bijóti stefndi gegn óskráðum vígorðum stefnanda „Fremstir fyrir bragðið“ en vígorð þetta sé löngu landsþekkt og hafi náð markaðsfestu fyrir unnar kjöt- vörur, meðal annars pylsur, og hætt sé við að villst verði á vígorðum. Stefnandi fyrir hönd Sláturfélags- ins er Brynjólfur Kjartansson hrl. Stefnir hann Árna S. Jóhannssyni, framkvæmdastjóra, fyrir hönd Goða hf. Málið fer fyrir bæjarþing Reykja- víkur 20. júní næstkomandi. Lífeyrissjóðir alþingismanna og ráðherra: Reykjavík: Gasolía lak í höfnina UM 100 lítrar af gasolíu láku úr ms. StapafeHi í höfnina við Eyjagarð í Orfirisey síð- degis í gær. Lögreglunni barst tilkynning um atburðinn klukkan rúmlega fjögur, og voru starfsmenn Reykjavíkurhafnar fengnir til að hreinsa olíuna úr höfninni. Skuldbmdingar sjóðanna 2,2 millj. og eignir engar Iðgjöld þyrftu að vera 50% af launum til þess að standa undir réttindum ÁFALLNAR skuldbindingar líf- eyrisjóða alþingismanna og ráð- herra umfram eignir námu sam- tals tæpum 2,2 milljörðum króna Bjöm Vignir Sigurpáls- son ritstjómarfulltrúi Björn Vignir Sigurpálsson, hefur verið ráðinn ritstjórnarfulltrúi við Morgunblaðið. Björn Vignir er 45 ára að aldri. Hann starfaði sem blaðamaður við Morgunblaðið frá 1964-1979. Árið 1979 tók hann þátt í stofnun Helgarpóstsins og var ritstjóri þess blaðs ásamt Árna Þórarinssyni. Árið 1982 réðst Björn Vignir til starfa hjá mynd- bandafyrirtækinu ísmynd og starf- aði þar til ársins 1984. Björn Vignir kom til starfa á Morgunblaðinu á ný í ársbyrjun -1985 og tók að sér umsjón með viðskiptablaði Morgunblaðsins, sem hóf þá göngu sína. Frá sumri 1990 hefur hann annast umsjón sunnudagsblaðs Morgunblaðsins ásamt viðskiptablaði. Björn Vignir heldur áfram um- sjón þessara tveggja blaða, en tek- ur auk þess að sér ný verkefni á ritstjórn Morgunblaðsins. Björn Vignir Sigurpálsson Björn Vignir Sigurpálsson er kvæntur Kristínu Olafsdóttur og eiga þau tvö börn. í árslok 1989 samkvæmt trygging- arfræðilegri úttekt sem Jón Erl- ingur Þorbjörnsson, trygginga- stærðfræðingur hefur gert á sjóð- unum. Það þýðir að væri sjóðunum lokað nú þá þyrfti framangreinda upphæð úr rikissjóði til að full- nægja þeim réttindum sem félagar hafa áunnið sér þegar, en eignir sjóðanna eru engar. Fjárhæðin skiptist þannig milli sjóðanna að.áfallin skuldbinding Líf- eyrissjóðs alþingismanna nemur 1.945 milljónum og áfallin skuldbind- ing Lífeyrissjóðs ráðheiTa nemur samtals 248 milljónum. Lífeyrissjóðir alþingismanna og ráðherra eru ekki söfnunarsjóðir heldur gegnumstreymissjóðir og greiðir ríkissjóður árlega halla sjóð- anna. Iðgjöld til þeirra á árinu 1989 námu 13,1 milljón króna, en lífeyr- isgreiðslur voru á árinu samtals 84,1 milljón, þar af voru lífeyrisgreiðslur úr Lífeyrissjóði ráðherra 8,9 milljón- ir. Greiðslan frá ríkissjóði nam 87% af lífeyrisgreiðslum úr Lífeyrissjóði ráðherra, en 82% af lífeyrisgreiðslum úr Lífeyrissjóði alþingismanna. Sam- tals nam framlag ríkissjóðs til sjóð- anna tveggja á árinu 1989 69,1 millj- ón króna. Ef iðgjöld ættu að standa undir þeim réttindum sem Lífeyrissjóður alþingismanna veitir þyrftu iðgjöld að hækka í 50% af launum. Hins vegar reiknast iðgjaldaþörf Lífeyris- sjóðs ráðherra vera um 85% af laun- um til þess að standa undir þeim réttindum sem sjóðurinn veitir. Þá er miðað er við 2% ávöxtun sjóðanna umfram launabreytingar. Lífeyrisþegar í Lífeyrissjóði al- þingismanna voru nær 100 árið 1989 og fengu samtals,75,2 milljónir króna í lífeyri eða 750-800 þúsund krónur að meðaltali á árinu. Lífeyrisþegar úr Lífeyrissjóði ráðherra voru 21 á árinu 1989 og fengu samtals 8,9 milljónir eða rúm 400 þúsund krónur að meðaltali hver. í desembermánuði 1989 námu greiðslur úr Lífeyrissjóði alþingismanna um 70 þús. kr. en rúmum 36 þús. úr Lífeyrissjóði ráð- herra, en þær koma til viðbótar greiðslum úr Lífeyrissjóði alþingis- manna. Sjá ennfremur fréttir og viðtöl á bls. 24. Fáskrúðsfjörður: Fékk tundurdufl í nótina TUNDURDUFL kom í dragnót 26 tonna báts í Fáskrúðsfirði á miðvikudag. Sprengjusérfræð- ingar Landhelgisgæslunnar fóru á staðinn en duflið reyndist vera tómt. Tilkynnt var um tundurdufl í dragnót bátsins Kambavíkur um hálf tvö leytið á miðvikudag. Fóru sprengjusérfræðingar Landhelgis- gæslunnar strax á staðinn og ætl- uðu að eyðileggja duflið. Þeir kom- ust hins vegar að því að ekkert sprengiefni var í duflinu og var skelin því afhent lögreglunni á Fáskrúðsfirði sem væntanlega hendir því á haugana. Tundurduflið, eins og flest tund- urdufl við landið, heimsstyijöldinni. er ur semm Arblik kaupir þrotabú Hildu FYRIRTÆKIÐ Árblik hefur keypt alla starfsemi Hildu hf. í Banda- ríkjunum. Hilda var tekin til gjald- þrotaskipta á síðasta ári. Kaupin ná til heildverslunar og sjö versl- ana víðsvegar um Bandaríkin. Árblik hefur starfað síðan árið 1980. Starfsmenn hér á landi er um 70, en um 20 starfsmenn verða í verslununum vestan hafs. Sjá viðskiptablað B-2

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.