Morgunblaðið - 16.06.1991, Side 10

Morgunblaðið - 16.06.1991, Side 10
- . ■ v .*s | 10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. JÚNI 1991 LANASJOÐUR ISLENSKRA NAMSMANNA Lánasjóður íslenskra námsmanna (LÍN) var stofnaður árið 1961, en frá árinu 1952 hafði verið starfandi Lánasjóð- ur stúdenta við Háskóla íslands. Miklar breytingar hafa orðið á starf- semi sjóðsins í gegnum tíðina og hefur löngum staðið styr um starf- semi hans. Núgildandi lög um Lánasjóðinn voru sett árið 1982. Þar segir í 1. grein, að meginhlutverk sjóðsins sé að veita íslenskum námsmönnum fjárhagsaðstoð til framhaldsnáms við stofnanir, er geri sambærilegar kröfur til undirbúningsmenntunar nemenda og gerðar eru vegna há- skólanáms hérlendis. í 3. grein seg- ir svo að opinber aðstoð við náms- menn skuli nægja hverjum náms- manni til að standa straum af eðli- legum náms- og framfærslukostnaði þegar eðlilegt tillit hafi verið tekið til fjölskyldustærðar, framfærslu- kostnaðar þar sem nám sé stundað, tekna námsmanns og maka hans, lengdar árlegs námstíma og annarra atrfða, sem áhrif kunni að hafa á fjárhagsstöðu námsmanns. í lögun- um er gert ráð fyrir að menntamála- ráðherra kveði nánar á um þessi atriði í reglugerð. Hefur ráðherra þannig úrslitaáhrif á það á hverjum tíma, hversu há lánin era og með hvaða hætti er tekið tillit til að- stæðna námsmanna. Lánin fryst en hækkuð aftur eftir Birgi Ármannsson MÁLEFNI Lánasjóðs íslenskra námsmanna snerta marga íslendinga beint og þau snerta þá alla með einhverjum hætti. Um 8.000 manns munu fá námsaðstoð frá sjóðnum á þessu ári og auk þess er miklum upphæðum úr sameiginlegum sjóð- um landsmanna varið til hans á ári hverju. Það vekur því mikla athygli í hvert sinn sem breyt- ingar eru gerðar á út- hlutunarreglum sjóðs ins. Reglunum var breytt nú fyrir skömmu og hafa tals- menn ríkisstjórnar- innar og náms- mannahreyfinganna deilt hart um rétt- LÉN 1991 Fjöldi lánþega: Um 8.000 Útgiöld: Heildarnámsaðstoð: 3.920 m.kr. Afborganir af lánum: 1.750 m.kr. Rekstrarkostnaður: 71 m.kr. Tekjur: Ríkisframlag: 1.730 m.kr. Lántaka: 3.400 m.kr. Afborganir lána: 600 m.kr. Hér er mlðod við oð ðtoim sljðrnor ÚH um ollt oð Námak í /eiguáúsnædi SJÉÉ0 k á mámii mæti þess. Báðir aðilar segja að nauðsyn hafi verið á niðurskurði útgjalda til þess að koma í veg fyrir halla á rekstrinum, en þá greinir á um hvort rétt leið var farin. Hér verður gerð nokkur grein fyrir stöðu sjóðsins og fjallað um við- brögð við breyttum úthlutunarreglum. á mánuafs^ * fær tiJ, f ins. Áður var h/*mtnýjum ú^n^ærsIu 46.716 kr íMánuðiþann,VnðhU'PPhæðkomin upp / P gaðhereru,„ lG,7%sWa- °6kró,,Ui'á ... ’ skerð,ngx, að raeða }> Gnmnfran,kl 1 mSJoðs»'s- Helstu KK ðÞ,,”á"íÆ^' SgsfeS8 1 «ámi með tvö börnfÁnfÁ** barn 116-790 kvTo'^'hjÓn sem Hj4n Eins og sjá má af ákvæðum lag- anna frá 1982 var þá tekin sú af- staða, að lánin skyldu að fullu duga námsmanni til framfærslu og varð það að veruleika 1985. í febrúar það ár var ákveðið, að hækkanir á lánunum skyldu fylgja svokallaðri vísitölu ráðstöfunartekna. Þann 1. september 1985 tók þáverandi menntamálaráðherra, Ragnhildur Helgadóttir, þá ákvörðun, að ijúfa vísitölutengingu lánanna og var það rökstutt með því, að kaupmáttur þeirra hefði aukist mun meira en kaupmáttur launa á árunum þar á undan. Lánin voru síðan tengd við framfærsluvísitölu um það bil ári síðar og var þá mat manna, að' skerðingin, sem hlaust af þessari frystingu, hafi verið um 20%. Námsmannahreyfingarnar mót- mæltu frystingu lánanna harðlega og eftir að vísitölutenging var tekin upp aftur hófu þeir baráttu fyrir því að fá þessa skerðingu bætta. Þegar Svavar Gestsson tók við emb- ætti menntamálaráðherra 1988 hét hann námsmönnum því, að hækka lánin um 20% og gerði það á árunum 1989 og 1990. Samhliða því voru gerðar breytingar á öðrum atriðum i námslánakerfinu til að fjármagna hluta hækkananna, svo sem að auka skerðingu á lánum vegna tekna í leyfi og að lækka lán til einstaklinga í foreldrahúsum. Stefndi í 700 milljóna halla Þegar Ólafur G. Einarsson varð menntamálaráðherra í Vor skipaði hann nýja stjórn LIN. I byijun þessa mánaðar samþykkti hún breytingar á uthlutunarreglunum, sem fela í sér 16,7% skerðingu á framfærslu- grunni lánanna, auk annarra breyt- inga. Er mat sjóðsins, að með þessu megi skera útgjöld hans niður um um það bil 300 milljónir á þessu ári. Rökin fyrir skerðingunni eru þau, að útgjöld sjóðsins hafi vaxið svo mikið umfram framlag ríkisins á fjárlögum, að með sama áfram- haldi hafi hann stefnt í þrot. Þórður Gunnar Valdimarsson, framkvæmdastjóri LÍN, segir að hallinn á rekstri sjóðsins hafi stefnt í að verða 700 milljónir króna á árinu. Við afgreiðslu fjárlaga hafí verið gert ráð fyrir að veitt yrði námsaðstoð upp á 3,8 milljarða króna. í vor hafi hins vegar stefnt í að þessi upphæð yrði 4,2 milljarð- ar vegna fjölgunar námsmanna og Sjá bls. 12

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.