Morgunblaðið - 16.06.1991, Blaðsíða 37
37
MORGUNBLAÐIÐ
ATVINNA/RAÐ/SMA
SUNNUDAGUR 16. JUNI 1991
AMIN
Atvinnumiðlun iðnnema
Iðnnemar:
Vantar á skrá nema í vélvirkjun, blikksmíði,
trésmíði, múraraiðn, hárskurði (hlutastarf)
og hárgreiðslu. Um er að ræða störf í
Reykjavík, Borgarnesi, Akureyri og Bakka-
firði. Sumarstörf og störf til lengri tíma.
Atvinnurekendur:
Erum með nema á skrá í rafvirkjun, rafeinda-
virkjun, prentsmíði, hárgreiðslu, bifvélavirkj-
un og Ijósmyndun. Um er að ræða sumar-
störf, starfsþjálfunarsamninga og meistara-
samninga.
AMIN, Atvinnumiðlun iðnnema,
Skóiavörðustíg 19, 101 Reykjavík,
sími 14316, fax 620274.
Ertu kennari
með metnað?
Geturðu hugsað þér að vinna við aðstæður
sem eru e.t.v. allt aðrar en Kennaraháskólinn
bjó þig undir að starfa við - í umhverfi þar
sem nemendurnir eru ekki 600 heldur rétt
rúmlega 60 - þar sem ekki er aðeins einn
árgangur í bekk heldur a.m.k. tveir - þar sem
ekki er búið að hugsa allt fyrir þig heldur
færðu að reyna á skipulagshæfileika þína,
sköpunargáfu og getu til að takast á við hin
fjölbreyttustu kennslustörf?
Ef svo er þá höfum við í Flateyrarskóla þörf
fyrir þig!
Hafðu samband við Hinrik, formann skóla-
nefndar, í síma 94-7828 (vs) og 94-7728 (hs)
eða Vigfús, skólastjóra, í síma 94-7670 (vs)
og 94-7814 (hs).
Grunnskólinn á Flateyri.
Iðntæknistofnun vinnur að tækniþróun og aukinni fram-
leiðni í íslensku atvinnulífi. Á stofnuninni eru stundaðar
hagnýtar rannsóknir, þróun, ráðgjöf, gæðaeftirlit, þjón-
usta, fræðsla og stöðlun. Áhersla er lögð á hæft starfs-
fólk til að tryggja gæði þeirrar þjónustu sem veitt er.
Vörustjórnun
- upplýsingatækn
Framleiðslutæknideild Iðntæknistofnunar
óskar að ráða starfsmann til að sinna verk-
efnum á sviði vörustjórnunar og upplýsinga-
tækni.
í starfinu felst aðstoð við fyrirtæki í að taka
í notkun nýja tækni varðandi upplýsingar um
birgðir og birgðastjórnun. Starfsmanninum
er einnig ætlað að framkvæma greiningar í
vörustjornun og vinna tillögur til úrbóta.
Gerðar eru kröfur til agaðra og sjálfstæðra
vinnubragða.
Umsækjandi þarf að hafa menntun á há-
skólastigi í verkfræði, tæknifræði eða sam-
bærilegu. Starfið krefst góðrar þekkingar á
upplýsingatækni, tölvutækni og vörustjórn-
un. Góð kunnátta í íslensku, ensku og Norð-
urlandamáli er mikilvæg auk þess að eiga
auðvelt með að starfa með öðrum.
Konur jafnt sem karlar eru hvattar til sækja
um starfið. Öllum umsóknum verður svarað
og gögnum skilað.
Skriflegar umsóknir berist til Iðntæknistofn-
unar fyrir 28. júní nk., merkt: „Vörustjórnun".
Farið verður með allar umsóknir sem trúnað-
armál.
lóntæknistof nun 11
IÐNTÆKNISTOFNUN ÍSLANDS
Keldnaholt, 112 Reykjavík
Simi (91) 68 7000 '
Tækniteiknari (281)
Óskum að ráða tækniteiknara í framtíðar-
starf hjá verkfræðistofu í Reykjavík. Starfið
er laust strax. Góð vinnuaðstaða. Laun sam-
komulag.
Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi þekkingu
á Auto-cad, geti unnið sjálfstætt og hafi
getu til að vinna undir álagi. Starfsreynsla
er æskileg.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. á eyðu-
blöðum sem liggja frammi á skrifstofu okkar
merktar: „281“.
Hagva ngurhf
Grensásvegi 13 Reykjavík | Sími83666 Ráðningarþjónusta Rekstrarráðgjöf Skoðanakannanir
Klltl!l!illVlll eRHDBIEiaÉ^ft iiimuiíis 1 111 S 1 klillliuiu hBiÍKECieitii
Lausar stöður
Hlutastaða lektors í lyfjagerðarfræði við
lyfjafræði lyfsala Háskóla íslands er laus til
umsóknar. Lektornum er ætlað að stunda
rannsóknir og kennslu á sérsviði sínu innan
lyfjagerðarfræðinnar auk þess að geta tekið
að sér almenna kennslu í lyfjagerðarfræði.
Hlutastaða lektors í eðlislyfjafræði er laus
til umsóknar. Umsækjanda er ætlað að
kenna eðlislyfjafræði og lyfjagreiningar-
tækni. Stöðunni fylgir rannsóknarskylda í
eðlislyfjafræði og lyfjagreiningartækni og er
ætlast til að umsækjandi taki virkan þátt í
rannsóknastarfi sem fram fer í lyfjafræði lyf-
sala.
Næturvarsla
Fyrirtæki óskar að ráða tvo menn til eftirlits
með húsum sínum í Reykjavík að næturlagi.
Leitað er að mönnum á eigin bíl (sér eða
sameiginlegum) sem skiptast myndu á um
starfið, t.d. 4 nætur unnar og 4 nætur frí.
Viðkomandi yrðu verktakar hjá fyrirtækinu
og þurfa því að vera fjárhagslega sjálfstæðir
og ábyrgir. Þeir þurfa og að vera nákvæmir,
reglusamir og hafa hreint sakavottorð.
Gert er ráð fyrir að næturvarslan verði aðai-
starf þeirra sem ráðnir verða.
Umsóknir með ýtarlegum upplýsingum berist
Morgunblaðinu eigi síðar en fimmtudag 20.
þessa mánaðar merktar: „Næturvarsla -
6526“.
SJÓNVARPIÐ
Starf umsjónar-
manns Textavarps
er laust til umsóknar
Um er að ræða nýtt starf sem tengist opnun
Textavarps næsta haust. Umsjónarmaðurinn
mun leiða kynningu og þróun þjónustunnar.
Einnig mun hann hafa forgöngu um uppbygg-
ingu, áferð og framboð efnis Textavarpsins.
Umsækjendur skulu hafa góða almenna
menntun, ríkt frumkvæði, hæfileika til að
vinna sjálfstætt, þekkingu og reynslu á tölvu-
sviði, góða tungumálakunnáttu og góða sam-
starfshæfileika.
Umsóknum sé skilað til Sjónvarpsins á eyðu-
blöðum sem þar fást, fyrir 3. júlí 1991, en
ráðið verður í stöðuna frá 1. ágúst 1991.
Allar nánari upplýsingar veitir framkvæmda-
stjóri Sjónvarpsins, eða starfsmannastjóri
Ríkisútvarpsins í síma 693900.
Umsóknarfrestur er til 29. júlí nk.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna
ríkisins. Umsækjendur skulu láta fylgja um-
sókn sinni rækilega skýrslu um vísindastörf
þau er þeir hafa unnið, ritsmíðar og rann-
sóknir, svo og námsferil sinn og störf. Með
umsókninni skulu send eintök af vísindaleg-
um ritum og ritgerðum umsækjanda, prent-
uðum og óprentuðum.
Nánari upplýsingar veitir Þórdís Kristmunds-
dóttir, prófessor, formaður stjórnarnefndar
lyfjafræði lyfsala, H.í. sími 694370.
Umsóknir skulu sendar starfsmannasviði
Háskólans, Aðalbyggingu Háskólans við
Suðurgötu, 101 Reykjavík.
DAGVIBT BABIVA
Fóstrur, þroska-
þjálfar eða annað
uppeldismenntað
starfsfólk
Dagvist barna, Reykjavík, óskar eftir sta is-
fólki í gefandi störf á góðum vinnustöðum.
Til greina koma hlutastörf bæði fyrir og eftir
hádegi.
Upplýsingar veita leikskólastjórar eftirtalinna
leikskóla og skrifstofa Dagvistar barna, sími
27277.
BREIÐHOLT
Fálkaborg v/Fálkabakka s. 78230
AUSTURBÆR
Hlíðaborg v/Eskihlíð s. 20096
VESTURBÆR
Vesturborg v/Hagamel s. 22438
#~lf l#
RÍKISÚTVARPIÐ -
Sölukonur
- sölumenn
prósentur
Vegna aukinna umsvifa vill öflug heildverslun
í Reykjavík bæta við sig sölumönnum.
Um er að ræða sölumennsku á vönduðum
og þekktum heimilistækjum til einstaklinga.
Sölusvæði er allt landið.
Sölumennirnir þurfa að hafa góða framkomu
og getu til að starfa sjálfstætt, vera drífandi
og skipulagðir. Góð reynsla af sölustörfum
og bifreið nauðsynleg.
Fyrirtækið býður krefjandi starf og góða
tekjumöguleika. Laun eru prósentur. Nám-
skeið verður haldið fyrir sölumennina á veg-
um fyrirtækisins.
Nánari upplýsingar eru eingöngu veittar á
skrifstofu FRUM hf. Vinsamlegast hafið
samband við HolgerTorp þriðjudag-fimmtu-
dag kl. 13.30-16.00. Skriflegum umsóknum
skal skilað fyrir 21. júní.
Starfsmannastjómun ■VBAI ÆM
Ráðningaþjónusta
Sundaborg 1-104 Reykjavík - Símar 681888 og 681837